Morgunblaðið - 23.09.2001, Blaðsíða 44
DAGBÓK
44 SUNNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI heyrði áþreifanlegtdæmi um samdrátt í innan-
landsflugi í Bandaríkjunum eftir
hryðjuverkin. Íslendingur, búsettur í
Texas, var staddur hér heima þegar
ósköpin dundu yfir en komst að
nokkrum dögum liðnum vestur um
haf. Flaug frá Keflavík til Minneapol-
is og þaðan áfram til Dallas. Hann
hefur oft farið þessa leið áður, en
aldrei hefur verið jafn fámennt í vél-
inni frá Minneapolis til Dallas og nú;
farþegarnir voru aðeins fimm.
x x x
UMMÆLI Þorvaldar Örlygsson-ar, þjálfara knattspyrnuliðs
KA, í Morgunblaðinu síðastliðinn
þriðjudag vöktu athygli Víkverja.
Þá var ljóst að KA-menn fylgdu
Þórsurum upp í úrvalsdeild að ári, og
blaðamaður spyr Þorvald hvernig
það sé fyrir Akureyri að fá tvö lið í
efstu deild. Þjálfarinn svarar: „Ég
ætla ekki að segja neitt um það. Það
eina sem ég hugsa um er mitt lið, ég
er KA-maður og það er nóg fyrir
mig.“
Ef marka má þessi orð virðist, eins
og Víkverji hefur reyndar einhvern
tíma heyrt, að ekki ríki mikill kær-
leikur á milli íþróttafélaganna
tveggja á Akureyri.
x x x
VINUR Víkverja, mikill KR-ing-ur, gat ekki leynt gleði sinni eft-
ir að lið hans sigraði Fram í næstsíð-
ustu umferð Símadeildar karla í
knattspyrnu. Með tapi gegn Fram á
heimavelli hefði KR hins vegar fallið,
og hann sagði að fall með því að tapa á
heimavelli fyrir þeim bláu hefði verið
óbærilegt. Miklu skárra væri að falla
með því að tapa í Grindavík í dag! En
vonaði samt auðvitað það besta.
x x x
MENNTASKÓLINN á Akureyrivar settur í vikunni, í 122.
skipti. Víkverji rakst á ávarp
Tryggva Gíslasonar skólameistara
við það tækifæri á heimasíðu skólans
og fannst meistari komast vel að orði
þegar hann beindi orðum sínum sér-
staklega til nýnema. Hann sagði m.a.:
„Umskiptin eru mikil frá því að
stunda skyldunám í grunnskóla til
þess að hefja bóknám í menntaskóla,
sem hefur það meginmarkmið að búa
nemendur undir nám í háskóla. Þetta
er skemmtilegt nám og Menntaskól-
inn á Akureyri er skemmtilegur skóli
og hann er góður skóli fyrir þá nem-
endur sem vilja vinna. Ég vona, ný-
nemar góðir, að þið eigið eftir að hafa
bæði gagn og gaman af því að vera
hér og leggja stund á nám sem þið
hafið valið ykkur sjálf og njóta lífsins
á hollan hátt, á þann hátt að þið þurfið
aldrei að skammast ykkar fyrir
neitt.“
Tryggvi sagði ennfremur að öll
byrjun væri erfið, en erfiðleikar væru
til að sigrast á. „Enginn ræður því
hvað fyrir hann kemur í lífinu, en allir
ráða hvernig þeir vinna úr því sem
fyrir þá kemur. Við ráðum því hvern-
ig við bregðumst við því sem fyrir
okkur kemur – hvort sem það er gott
eða illt. Því skiptir það máli, nemend-
ur góðir, að snúa sér öllu í hag – sigr-
ast á erfiðleikunum og vaxa með
vandanum.
Ef allt væri auðvelt, ef enginn
vandi væri til þess að glíma við, hætt-
um við að þroskast. Auk þess gefur
fátt meiri lífsfyllingu en að sigrast á
vanda. Vellíðan fylgir vel unnu
starfi.“
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 ragna, 4 róar, 7 hrogn-
in, 8 viljugt, 9 greinir, 11
jaðar, 13 skora fast á, 14
matnum, 15 ófrjálsan
mann, 17 tanga, 20
skemmd, 22 annmarki, 23
atvinnugrein, 24 nam, 25
virtur.
LÓÐRÉTT:
1 bugða, 2 önduð, 3 fífl, 4
tréflögu, 5 ana, 6 nagdýr,
10 synja, 12 vingjarnleg,
13 hug, 15 fámál, 16
hyggur, 18 pannan, 19
trú, 20 skot, 21 upp-
spretta.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 matvendni, 8 nýtur, 9 tómur, 10 kór, 11 tuðra,
13 akrar, 15 hafts, 18 hrund, 21 tía, 22 freta, 23 dónar, 24
Skipasund.
Lóðrétt: 2 altíð, 3 verka, 4 nötra, 5 nemur, 6 snót, 7 þrír,
12 rót, 14 ker, 15 hafs, 16 flesk, 17 stapp, 18 hadds, 19
unnin, 20 durt.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Brú-
arfoss og Örfirisey
koma í dag. Atlantic
Peace, Alta Mar og An-
ine Maleen koma á
morgun. Brúarfoss fer
á morgun
Hafnarfjarðarhöfn:
Seagull og Hachimnoe
fara í dag.
Gemini og Brúarfoss
koma á mánudag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Á morg-
un kl. 10 boccia, kl. 14
félagsvist.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9-12 opin handa-
vinnustofan, kl. 10:15
leikfimi, kl. 11 boccia,
kl. 13:30-16:30 opin
smíðastofan/útskurður,
kl. 13:30 félagsvist, kl.
10-16 púttvöllurinn op-
inn, kl. 16 myndlist. All-
ar upplýsingar í síma
535-2700.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9-16 handa-
vinna,kl. 9-12 bútasaum-
ur,kl. 10-11:30 samveru-
stund, kl. 13:30-14:30
söngur við píanóið, kl.
13-16 bútasaumur.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Snyrtinám-
skeið byrjar 25. sept. kl.
9. Spænska hefst 27.
sept. kl. 12:15. Les-
hringur á Bókasafni
Garðabæjar byrjar 1.
okt. kl. 10:30. Búta-
saumur byrjar 3. okt.
kl. 16 í Garðaskóla. Les-
hringur á bókasafni
Álftaness byrjar 10. okt.
kl. 15. Nánari upplýs-
ingar á www.fag.is. Sími
565 6622.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á mánud.
kl. 20:30. Fótaaðgerða-
stofan opin frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára 9
er opin á morgun kl.
16:30-18, s. 554 1226.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Á morgun
kl. 8 böðun, kl. 9 fótaað-
gerð og myndlist, kl.
9:30 hjúkrunarfræðing-
ur á staðnum, kl. 10-12
verslunin opin, kl. 11:10
leikfimi, kl. 13 föndur
og handavinna.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18-20. Á
morgun kl. 9 böðun og
hárgreiðslustofan opin.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Á morgun verður fé-
lagsvist kl. 13. Á þriðju-
dag verður saumur og
brids. Pútt á vellinum
við Hrafnistu kl. 14.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga kl. 10-
13. Matur í hádeginu.
Félagsvist kl. 13:30 í
dag. Dansleikur í kvöld
kl. 20. Caprí-tríó leikur
fyrir dansi. Mánudagur:
Brids kl. 13. Dans-
kennsla fellur niður.
Miðvikudagur: Göngu-
Hrólfar fara í létta
göngu frá Hlemmi kl.
9:45. Söngvaka kl. 20:45
umsjón Sigurbjörg
Hólmgrímsdóttir.
Stjórnandi Eiríkur Sig-
fússon. Námskeið í
framsögn og upplestri
hefst fimmtudaginn 27.
september kl. 16:15.
Kennari Bjarni Ing-
varsson. Skráning og
upplýsingar á skrif-
stofu. Heimsókn og
fræðslukynning hjá Ís-
lenskri erfðagreiningu
föstudaginn 28. septem-
ber. Brottför frá Ás-
garði Glæsibæ kl. 14.
Ath. takmarkaður fjöldi
þátttakenda. Skráning
hafin á skrifstofu FEB.
Brids námskeið byrjar
miðvikudagskvöldið 3.
október kl 19:30 í Ás-
garði Glæsibæ, kennari
Ólafur Lárusson, upp-
lýsingar og skráning á
skrifstofu. Farið verður
til Kanaríeyja 20. nóv-
ember á sérstökum
vildarkjörum. Upplýs-
ingar og skráning á
skrifstofunni. Silfurlín-
an er opin á mánu- og
miðvikudögum kl. 10-
12. Upplýsingar á skrif-
stofu FEB kl. 10-16 í s.
588-2111.
Félagsstarfið, Hæðar-
garði 31. Á morgun kl.
9-16:30 opin vinnustofa,
handavinna og föndur,
kl. 9-13 hárgreiðsla, kl.
14 félagsvist.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á morgun er handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum frá
kl. 9-17, kl. 9 gler- og
postulínsmálun, kl. 20
skapandi skrif.
Gullsmári Gullsmára
13. Á morgun leikfimi
kl. 15.
Hraunbær 105. Á
morgun kl. 9 perlu-
saumur, postulínsmálun
og kortagerð, kl. 10
bænastund, kl. 13 hár-
greiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Á
morgun kl. 9 föndur, kl.
10 boccia, kl. 13 frjáls
spilamennska.
Norðurbrún 1. Á morg-
un kl. 10-11 ganga, kl.
9-15 fótaaðgerð, kl.12-
15 bókasafn.
Vesturgata 7. Á morg-
un kl. 9-16 fótaaðgerðir
og hárgreiðsla, kl. 9:15-
15:30 handavinna, kl.
10-11 boccia, kl.12:15-
13:15 danskennsla, kl.
13-16 kóræfing. Haust-
fagnaður verður
fimmtudaginn 11, októ-
ber, kvöldverður,
skemmtiatriði, söngur,
dans og fleira. Nánar
auglýst síðar; upplýs-
ingar í síma 562-7077.
Hálfsdagsferð.
Fimmtudaginn 27. sept.
kl. 13. Farið verður á
sýningu á útskurðar-
verkum eftir Siggu á
Grund sem tekur á
móti hópnum í Sjó-
minjasafni Íslands í
Hafnarfirði. Ekið verð-
ur til Krísuvíkur.
Krísuvíkurkirkja skoð-
uð. Kaffiveitingar í
Bláa lóninu, skoðunar-
ferð um Grindavík.
Leiðsögumaður Nanna
Kaaber, athugið tak-
markaður fjöldi, sækja
þarf farmiðana fyrir
þriðjudaginn 25. sept.
upplýsingar og skráning
í síma 562-7077.
Vitatorg. Á morgun kl.
9 smiðjan og hár-
greiðsla, kl. 9:30 bók-
band, morgunstund og
handmennt, kl. 10 fóta-
aðgerðir, kl. 13 leikfimi
og frjáls spil.
Kirkjustarf aldraðra
Digraneskirkju. Opið
hús á þriðjudag kl. 11.
Leikfimi, matur, helgi-
stund og fleira.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 alla mánu-
daga og fimmtudaga.
Skráning kl. 12:45. Spil
hefst kl. 13. Bridsdeild
FEBK í Gullsmára.
Kristniboðsfélag karla.
Fundur verður í
Kristniboðssalnum,
Háaleitisbraut 58-60
mánudaginn 24. sept. kl.
20. Sigursteinn Her-
sveinsson sér um fund-
arefnið. Allir karlmenn
velkomnir.
GA-fundir spilafíkla,
eru kl. 18:15 á mánu-
dögum í Seltjarnarnes-
kirkju (kjallara), kl.
20:30 á fimmtudögum í
fræðsludeild SÁA Síðu-
múla 3-5 og í Kirkju
Óháða safnaðarins við
Háteigsveg á laugar-
dögum kl. 10:30.
Háteigskirkja, eldri
borgarar, mánudaga fé-
lagsvist kl. 13-15, kaffi.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir alla mánudaga kl.
20 á Sólvallagötu 12,
Reykjavík. Stuðst er við
12 spora kerfi AA-sam-
takanna.
Kvenfélag Kópavogs
vinnukvöld vegna bas-
ars mánudag kl. 20, að
Hamraborg 10.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra.
Haustmót í pútti fer
fram þriðjudaginn 25.
september kl. 14.
Skráning á staðnum frá
kl. 13.
Reykjavíkurdeild SÍBS
Þriðjudaginn 25. sept
verður fyrsta spila-
kvöldið í húsnæði Múla-
lundar, vinnustofu
SÍBS, í Hátúni 10c. Fé-
lagar fjölmennið og tak-
ið með ykkur gesti.
Byrjað að spila kl 20.
Mæting kl. 19:30. Hús-
inu lokað kl. 20.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Vestfjörðum:
Á Suðureyri: hjá Gesti
Kristinssyni, Hlíðarvegi
4, s. 456-6143. Á Ísa-
firði: hjá Jóni Jóhanni
Jónss., Hlíf II, s. 456-
3380, hjá Jónínu Hög-
nad., Esso-versluninni,
s. 456-3990 og hjá Jó-
hanni Káras., Engjavegi
8, s. 456-3538. Í Bolung-
arvík: hjá Kristínu Kar-
velsd., Miðstræti 14, s.
456-7358.
Minningarkort Kven-
félagsins Seltjarnar eru
afgreidd á bæjarskrif-
stofu Seltjarnarness hjá
Ingibjörgu.
Í dag er sunnudagur 23. sept-
ember, 266. dagur ársins 2001. Orð
dagsins: Ég er ljós í heiminn komið,
svo að enginn, sem á mig trúir, sé
áfram í myrkri.
(Jóh. 12, 46.)
ÞAÐ er mjög athyglis-
vert að aldraðir ætli að
bjóða fram til sveitar-
stjórnakosninga og ef
til vill líka til Alþingis.
Þá munu þeir eiga full-
trúa sem getur flutt
mál þeirra.
Ég held að öryrkjar
eigi svo sannarlega
samleið með félögum
eldri borgara með
framboð í huga því það
vantar fulltrúa í sveit-
arstjórnir og á Alþingi
sem kemur áfram mál-
efnum aldraðra og ör-
yrkja.
Forystusveit öryrkja
ætti að íhuga alvarlega
að ganga til samstarfs
við aldraða. Öll loforð
fjórflokkanna hafa ver-
ið meira og minna svik-
in. Öryrkjar og aldrað-
ir þurfa að þjappa sér
saman og styðja hver
annan í baráttunni fyr-
ir mannsæmandi kjör-
um þessara hópa.
Að endingu óska ég
öldruðum velfarnaðar
með áform sín til fram-
boðs.
Gunnar G.
Bjartmannsson,
Hátúni 10.
Finnst þetta bruðl
MIG langar til að fá út-
reikninga á því hve
mikið sími allra lands-
manna myndi spara ef
þeir slepptu fylgiskjali
með símreikningunum
og færðu allt á viðhengi
giróseðilsins, sem er að
miklu leyti autt núna.
Mér og mörgum öðrum
finnst þetta bruðl.
Sama má segja um
seðla frá Orkuveitunni,
upplýsingarnar ættu
að komast fyrir á einu
blaði. Talað hefur verið
um að minnka pappírs-
flóðið eftir að tölvurnar
komu til sögunnar og
þessi fyrirtæki ættu að
huga að því.
Elísabet.
Tapað/fundið
Stór, gylltur
kross týndist
LÍTIL þriggja ára
hnáta týndi fallega
krossinum hennar
ömmu sinnar. Hann er
úr víravirki, gulllitaður
og nokkuð stór. Hún
var með hann í mynda-
töku hjá ljósmyndara,
svo fór hún í Fossvogs-
kirkjugarð og þaðan í
Grasagarðinn og hefur
líklega týnt honum á
öðrum hvorum staðn-
um. Hafi einhver fund-
ið krossinn þá er sím-
inn hjá litlu hnátunni,
sem heitit Pétrína, 698-
470 og 561-8134.
Dýrahald
Kettlingur
í óskilum
UM það bil sex mánaða
svartur kettlingur með
hvítar hosur, hvítan
smekk og hvítt yfir-
skegg öðrum megin er
í óskilum í Skeiðarvogi
og langar heim. Eig-
andi hringi í síma 698-
9246.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Öryrkjar og aldraðir
í framboð
HINN síungi öldungur, Viktor Korts-
noj (2614), teflir enn af fítónskrafti.
Hann nartaði í hæla gamla erkióvinar
síns, Anatoly Karpovs, á minningar-
móti Najdorfs er lauk fyrir skömmu í
Buenos Aires. Í stöðunni hafði hann
svart gegn heimamanninum, Pablo
Ricardi (2545). 31... Rxe5! 32. Bxb7
Rg4+ 33. Kf3 Kxb7 34. Kf4 Kc6 35.
Hb1 a6 36. d5+? Þótt það sé megin-
regla að ýta eigi frípeðum áfram var
óráðlegt að gera það strax. 36. Rh4
hefði verið skynsamlegra. 36... Kc5 37.
d6 Hg6 38. Rh4 Hxd6 39. Rxf5 Hg6 40.
He1 Rf6 41. Re7 Rh5+ 42. Kf5 Rg7+
43. Kf4 He6 44. Hg1 Hxe7 45. Hxg7
He2 46. Hg8 Hxc2 47. Hc8+ Kd5 48.
Hd8+ Ke6 49. Hb8 Hxc3 50. Hxb6+
Kd5 51. Hxa6 Ha3 52. a5 Kd4 53. Ha7
c3 og hvítur gafst upp. Haustmót Tafl-
félags Reykjavíkur hefst í dag, 23.
september, kl. 14.00 í húsakynnum fé-
lagsins í Faxefeni 14. Fyrirkomulag
mótsins er með hefðbundnu sniði. Evr-
ópukeppni taflfélaga stendur nú yfir í
Chania á Krít. Hægt er að fylgjast með
gangi mála á skak.is en bæði Taflfélag
Reykjavíkur og Taflfélagið Hellir hafa
sveitir í keppninni.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.