Morgunblaðið - 23.09.2001, Side 41
HUGVEKJA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2001 41
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík Skúli Hannesson 475 6669 894 2669
Búðardalur Víðir Kári Kristjánsson 434 1148
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Ingibjörg Ólafsdóttir 478 8962
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989
Grenivík Björn Ingólfsson 463 3131 463 3118
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Jóhannes V. Jóhannesson 453 7343
Hólmavík Jón Ragnar Gunnarsson 451 3333
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Stella Steingrímsdóttir 892 3392 894 8469
Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ólafía Þóra Bragadóttir 478 1786 896 1786
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 862 3281
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Reynir Arnar Ingólfsson 486 8913
Laugarvatn Valdimar Ingi Auðunsson 486 1136
Mos./ Teigahv. Jóna M. Guðmundsdóttir 566 6400
Neskaupstaður Sigrún Júlía Geirsdóttir 477 1812 477 1234
Neskaupstaður Ægir Guðjón Þórarinsson 477 1372
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962
Neskaupstaður Bjartur Sæmundsson 477 1489
Ólafsfjörður Árni Björnsson 866 7958 466 2575
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Agnieszka Szczodrowska 465 1399
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/868 0920/866 9574
Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð Mýv. Pétur Freyr Jónsson 464 4123
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey Jónsdóttir 452 2879 868 2815
Stokkseyri Halldór Ásgeirsson 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Gunnhildur Eik Svavarsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 869 7627
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281
Þingeyri Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir 456 8233 456 8433
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
BORGIR
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
F A S T E I G N A S A L A
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 15 OG 17
AUSTURBERG 8 - MEÐ BÍLSKÚR
Glæsileg þriggja herbergja 80,4
fm íbúð á þriðju hæð í litlu fjöl-
býli, Merbau-parket og -flísar á
gólfum. Björt stofa með útgengi á
suðursvalir. Fallegt útsýni.
Bílskúr. Kristinn á bjöllu.
Myndir á www.borgir.is
Verð: 10,2 millj.
0PIÐ HÚS
Í GRJÓTASELI 5,
Í DAG, FRÁ KL. 14–17
Til sölu vönduð sérhæð ásamt
tvöföldum bílskúr á góðum
stað í Seljahverfi. Flísar og
parket á gólfum. Þetta er eign
sem býður upp á marga mögu-
leika. Anna og Grímur munu
sýna húsið milli kl. 14 og 17 á
sunnudag. Komið og skoðið.
Sjón er sögu ríkari.
SKOÐANA- og
tjáningarfrelsi, sem
eru aðall vestrænna
lýðræðisríkja, fylgir
mikil ábyrgð, ríkar
skyldur, ef vel á að
vera. Ef taka á
ábyrga afstöðu eða
móta marktæka
skoðun er gott að
búa að reynzlu og
þekkingu. Sem og
að setja sig vel inn í
málavexti. Það er
reyndar siðferðileg
skylda okkar. Í
þjóðfélagi, eins og
okkar, þar sem al-
menn menntun og
þekking er á til-
tölulega háu stigi,
er eftirleikur þessa
frelsis, þessara
mannréttinda, auð-
veldari.
Auk tiltækrar menntunar og
þekkingar höfum við tvær mik-
ilvægar eigindir til að styðjast
við, þegar ákvörðun er tekin
eða skoðun mótuð: Dómgreind
og samvizku. Dómgreindin
spannar skynsemi okkar, sem
að hluta til er tekin í arf en að
hluta til þróuð eða þroskuð á
lífsferli okkar. Samvizkan hefur
verið skilgreind sem siðgæð-
isvörður vitundarinnar eða sem
rödd Guðs í manninum. Ef við
setjum okkur eins vel inn í
málavexti og kostur er og höf-
um jafnframt fullt samráð við
dómgreind okkar og samvizku
erum við á réttri leið. Enginn
getur breytt réttar en að breyta
eins og samvizka hans, rödd
Guðs í honum, býður.
Í Merki krossins (1. hefti
2001), sem kaþólska kirkjan á
Íslandi gefur út, er vitnað til
merkrar bókar, Yfir þröskuld
vonarinnar, eftir Jóhannes Pál
II. páfa, en hann hefur áunnið
sér trúnað og virðingu meðal
þjóða heims, langt út fyrir raðir
rómversk-kaþólskra. Bók þessi
kemur væntanlega út í haust á
vegum Þorlákssjóðs í þýðingu
Reynis Guðmundssonar. Í henni
er svo að orði komizt um sam-
vizkuna: „Samvizkan er griða-
staður og leyndasti kjarni
mannsins, þar sem hann finnur
sig einan með Guði, en rödd
hans hljómar innra með honum
…“ Ennfremur: „Í hollustu við
samvizkuna sameinast kristnir
menn öðrum mönnum við að
leita sannleikans og ráða fram
úr, samkvæmt þessum sann-
leika, hinum mörgu siðferðilegu
vandamálum sem upp koma í
lífi hvers og eins sem og í lífi
samfélagsins …“
Í beinu framhaldi af fram-
ansögðu segir: „Eftir því sem
góð samvizka er útbreiddari
lætur fleira fólk og samfélags-
hópar af blindri þrákelkni sinni
og leitast við að laga sig að
hlutlægum reglum siðferðilegr-
ar breytni. Engu að síður gerizt
það oft að samvizkan villist af
leið vegna óviðráðanlegrar fá-
fræði, en það veldur ekki því að
hún glati tign sinni. Ekki er
hægt sð segja það sama þegar
maðurinn gerir lítið sem ekkert
til að leita sannleikans og hins
góða eða þegar samvizkan verð-
ur nánast blind vegna ávanans
að syndga …“ Þessi orð undir-
strika mikilvægi þess að nýta
trú okkar og siðfræði hennar,
hvort sem við tilheyrum róm-
versk-kaþólskri eða evangelísk-
lútherskri kirkju, til að þroska
með öllum og sérhverjum það
góða og fagra, þá mannúð, sem
ýmsir kennimenn telja eðl-
islæga dómgreind mannsins og
samvizku.
Rétturinn til menntunar og
rétturinn til skoðana-, trúar- og
tjáningarfrelsis eru kjarni al-
mennra mannréttinda. Þessi
réttindi falla í einu og öllu að
kristnu lífsviðhorfi. „Fagn-
aðarboðskapurinn er fyllsta
staðfestingin á öllum mannrétt-
indum,“ segir Jóhannes Páll II.
páfi í bók sinni. Frelsið getur
hins vegar verið vandmeðfarið,
jafnvel breytzt í andhverfu sína,
ef kristin mannúð er ekki með í
för, ef við virðum ekki jafnrétti
náungans til frelsis og vel-
ferðar. „Ef við föllumst ekki á
þann möguleika,“ segir Jóhann-
es Páll II, „að verða öðrum
gjöf, verður hættan á eig-
ingjörnu frelsi ávallt yfirvof-
andi.“ – Það er ekki út í hött,
sem eitt sinn var sagt: Þegar
við ýtum úr jarðlífsvör höfum
við það eitt í farteski sem við
höfum öðrum gert og gefið.
Tæknin hefur fært öll ríki
jarðar í nábýli. Við getum flogið
til fjarlægustu heimshorna á
einu dægri. Við getuð séð á
sjónvarpsskjá heima í stofu
okkar atburði hinum megin á
hnettinum, jafnskjótt og þeir
gerast. Ferðalög tugmilljóna
manna álfa og landa á milli eru
ein stærsta atvinnugrein mann-
kynsins. Fólk flytzt og í stórum
stíl landa á milli í leit að betra
lífi. Þúsundir Íslendinga búa og
stunda atvinnu erlendis. Þús-
undir fólks af erlendu bergi
brotið býr og vinnur hér á
landi. Þegar ólíkir „menningar-
heimar“ blandast er hætta á
árekstrum, ekki sízt ef fáfræði
og fordómar vísa veginn. Þessi
framvinda í „þorpinu Jörð“ er
þegar allt kemur til alls próf-
raun sem mannkynið getur
staðizt, ef kristin viðhorf ráða
ferð. Ef við nýtum dómgreind
okkar. Ef við höfum samráð við
samvizkuna, rödd Guðs í mann-
inum. Við skulum standa trúan
vörð um mannréttindi okkar.
En við verðum að deila þeim
hvert með öðru.
Kirkja Krists konungs í Landakoti.
Dómgreindin
og samvizkan
Skoðanir okkar eru byggðar á reynslu,
þekkingu, dómgreind og samvizku.
Stefán Friðbjarnarson staldrar við
þessar eigindir – sem og skoðana-
og tjáningarfrelsi.
ÞRIÐJUDAGINN 25. september
2001 heldur Sverrir Jakobsson
sagnfræðingur fyrirlestur í hádeg-
isfundaröð Sagnfræðingafélags Ís-
lands sem hann nefnir: Sjálfs-
myndir miðalda og uppruni
Íslendinga. Fundurinn fer fram í
stóra sal Norræna hússins, hann
hefst kl. 12.05 og lýkur kl. 13.
Fundurinn er opinn öllu áhuga-
fólki um sögu og er aðgangur
ókeypis.
„Í fyrirlestrinum verður fjallað
um þjóðerni sem hluta af sjálfs-
mynd fólks fyrr og nú. Umræða
um þjóðlega sjálfsmynd hefur á
seinustu áratugum verið mót-
sagnakennd. Annars vegar ganga
margir sérfræðingar um þjóðerni
út frá því að það sé afurð seinni
tíma, en miðaldasagnfræðingar
telja sig hins vegar hafa nægar
heimildir um tilvist þjóðernis fyrr
á öldum. Af hverju stafar þessi
ágreiningur? Eru menn kannski
ekki að ræða um sama fyrirbærið?
Ástæða er til að velta því fyrir sér
hvers konar sjálfsmyndir hafi ver-
ið ríkjandi á miðöldum, hvort mið-
aldaþjóðerni sé sama eðlis og nú-
tímaþjóðerni og í hverju munurinn
sé fólginn,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Sverrir Jakobsson hefur BA-
próf í sagnfræði frá HÍ, MA-próf í
miðaldafræðum frá University of
Leeds og vinnur nú að doktors-
ritgerð um heimsmynd Íslendinga
á tímabilinu 1100-1400 við sagn-
fræðiskor HÍ. Hann hefur verið
stundakennari við HÍ síðan 1997.
Rætt um
sjálfsmynd-
ir miðalda
FRÉTTIR
STJÓRN Verkalýðsfélags Húsa-
víkur hefur samþykkt eftirfarandi
ályktun varðandi niðurskurð á
rekstrarframlagi til svæðisútvarps
Norðurlands:
„Verkalýðsfélag Húsavíkur átel-
ur stjórnendur Ríkisútvarpsins
fyrir að draga þarf verulega úr út-
sendingartíma og fækka þarf
starfsfólki til að mæta sparnaðar-
áformum útvarpsráðs.
Svæðisútvarp Norðurlands
gegnir mikilvægu hlutverki í
fréttaþjónustu og þjóðmálaum-
ræðu á svæðinu og hefur verið í
forystu annarra fjölmiðla á Norð-
urlandi á því sviði. Ákvörðun út-
varpsráðs er því mikil vonbrigði
fyrir hlustendur svæðisútvarpsins
ekki síst í hinum dreifðu byggðum.
Verkalýðsfélag Húsavíkur hvet-
ur stjórnendur Ríkisútvarpsins til
að leita allra leiða til að efla starf-
semi Ríkisútvarpsins og þar með
svæðisstöðva stofnunarinnar á
landsbyggðinni og draga til baka
boðaðar aðgerðir meðan unnið
verði að því að skapa Ríkisútvarp-
inu eðlileg rekstrarskilyrði.
Þá skorar félagið á Norðlend-
inga að standa vörð um starfsemi
svæðisútvarps Norðurlands á Ak-
ureyri.“
Mótmæla
niðurskurði á
svæðisútvarpi
Norðurlands
FYRIRLESTUR verður haldinn í
Foreldrahúsinu í Vonarstræti 4b
mánudaginn 24. september kl. 20:30.
Fjallað verður um athyglisbrest
með ofvirkni en það er hegðunar-
röskun sem kemur fram hjá börnum
fyrir 7 ára aldur.
Fyrirlesari er Málfríður Lorange,
sálfræðingur.
Fyrirlestur um
athyglisbrest
með ofvirkni
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦