Morgunblaðið - 23.09.2001, Page 21
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2001 21
HEITAR tilfinningar, háskaleg-
ar hugsanir og mikil samkennd
setja svip á þessa ljóðabók Mar-
grétar Lóu. Hér er talið ákjós-
anlegt að gefa sig á vald tilfinn-
ingum því að þær eru uppspretta
sannrar þekkingar. Minnst er á
mikilvægi þess að geta „lifað sig
inn í heiminn“ en til þess „verður
maður að vera reiður / – mjög
reiður“. Það krefst ekki bara ein-
beitingar að geta séð heiminn eins
og hann er í raun. Ekki er útilokað
að færa þurfi töluverðar fórnir til
þess að hljóta skýra sýn: kannski
þarf „að nudda augasteina okkar /
upp úr salti“.
Lífinu er stillt upp gegn lær-
dómi, tilfinningu gegn reynslu. Til-
veran verður síður metin með
mælistikum heldur skynjuð, hvort
sem er með rökvísum eða órökvís-
um hætti. Listin er farvegur sann-
leikans, ljóðið heldur manni frá
sturlun, en samt er lausnin ekki
alltaf einhlít. Orð og merkingar
vilja farast á mis.
Allt sem við segjum!
Allt sem við gerum!
Nei það er of smátt!
Nei það er of jarðbundið!
Aðeins í listinni:
…
Hugsunin í ljóðunum
finnur sér ekki alltaf
farveg í sögðum orðum.
Togstreitan um að
segja það sem innra
býr er stundum óleyst.
En hvort sem menn
segja eða þegja bera
ljóðin með sér að orð
eru til alls fyrst. Ekki
er samt gefið að orðræða leysi all-
an vanda en hún er þó affarasæl-
asta viðleitnin til að brúa ýmis bil.
Því er betra að skrifa en ekki:
Orð mín geta lítið bætt.
En menn gera samt
margt
heimskulegra en að
skrifa
Dvalið er við það
sem kann að vera til
góðs. Þótt orðin geti
lítið bætt þá er víst að
ljóðagerðin verður
varla nokkrum til
hnjóðs.
Háværasta röddin í
höfði mínu ber með
sér vísdómsblæ,
reynslu þess sem hef-
ur víða ratað, en um
leið sýnir hún sam-
kennd og jafnvel
huggun. Þessi bók er enn ein varð-
an á ljóðaferli Margrétar Lóu, ferli
sem einkennst hefur af trúverð-
ugleika og jöfnum gæðum.
BÆKUR
L j ó ð
Eftir Margréti Lóu Jónsdóttur.
Mál og menning 2001 – 62 bls.
HÁVÆRASTA RÖDDIN Í
HÖFÐI MÍNU
Margrét
Lóa Jónsdóttir
Ingi Bogi Bogason
Gegn háskalegum hugsunum
JPV-ÚTGÁFA gefur í
haust út bókina, Björg –
ævisaga Bjargar C. Þor-
láksson, eftir Sigríði Dúnu
Kristmundsdóttur prófess-
or.
Björg C. Þorláksson
fæddist árið 1874 norður í
Húnaþingi. „Saga hennar
er saga ungrar konu sem
braust til mennta í trássi
við viðteknar hugmyndir
um hlutverk kvenna og
skóp sér æviferil sem var
einstakur á hennar tíð. Hún átti
drjúgan hlut í að semja íslensk-
danska orðabók ásamt Sigfúsi Blön-
dal manni sínum og árið
1926 lauk hún doktorsprófi
frá Parísarháskóla fyrst ís-
lenskra kvenna.
Saga Bjargar speglar
átök gamalla og nýrra hug-
mynda um hlutverk
kynjanna og glímu hennar
við viðtekin viðhorf. Fáir
hafa þekkt sögu Bjargar en
hér vinnur Sigríður Dúna
úr margvíslegum heimildum
og einkasöfnum sögu ein-
stakrar konu sem var
brautryðjandi meðal íslenskra
kvenna og lifði mikla umbrotatíma,“
segir í kynningu.
Dr. Sigríður
Dúna Krist-
mundsdóttir
Ævisaga Bjargar
C. Þorláksson
LEIKFERÐ Möguleikhússins með
Völuspá, eftir Þórarin Eldjárn, í
mennta- og grunnskóla um norð-
austurhluta landsins hefst á morgun,
mánudag, og verða fyrstu sýningar í
Nesskóla í Neskaupstað kl. 11.20 og
á Reyðarfirði í Félagslundi kl. 19. Á
þriðjudag verða sýningar á Djúpa-
vogi kl. 9.45, Breiðdalsvík kl. 13.10
og á Bakkafirði kl.19.30. Þá verður
sýning í Þórshöfn kl. 9 á miðvikudag
og á Vopnafirði kl. 12.30. Þá verður
sýning fyrir Menntaskólann á Egils-
stöðum á fimmtudag kl. 13.
Leikstjóri sýningarinnar er Dan-
inn Peter Holst. Pétur Eggerz leikur
öll hlutverkin í Völuspá og Stefán
Örn Arnarson sellóleikari gefur
hverri persónu verksins sérstakt
stef úr sellóinu.
Völuspá í
leikferð um
Austurland
PETER Tompkins óbóleikari og
Guðríður St. Sigurðardóttir píanó-
leikari halda tónleika í sal Borgar-
hólsskóla í dag, sunnudag, kl. 16. Öll
verk sem flutt verða eru samin á
tuttugustu öld og spanna um tugi
ára, það elsta var samið árið 1921 og
það nýjasta árið 1999.
Félag íslenskra tónlistarmanna
styrkir tónleikana.
Tónleikar í
Borgarhólsskóla
♦ ♦ ♦
Á ÖÐRUM tónleikunum í tónleika-
röðinni Sunnudags-matinée í tón-
listarhúsinu Ými í dag kl. 16 koma
fram Elín Ósk Óskarsdóttir sópr-
ansöngkona og Gerrit Schuil píanó-
leikari og flytja aríur m.a. úr La
Wally, Mefistofele, La Gioconda,
Don Carlo og La forza del destino.
Þá flytur Elín konsertaríuna Ah!
Perfido, opus 65, eftir Beethoven.
Heimasíða Ýmis er www.kkor.is/
ymir.html.
Morgunblaðið/Þorkell
Flytjendur dagsins: Gerrit Schuil og Elín Ósk Óskarsdóttir.
Aríur á
Sunnudags-
matinée
BRAGI Ólafsson og Þorvaldur
Þorsteinsson munu senda frá sér
skáldsögur á þessu hausti. Það er
bókaútgáfan Bjartur sem gefur út
og þaðan berast þær fréttir að
Bragi sé um þessar mundir að
leggja lokahönd á sína aðra skáld-
sögu. Gengur hún undir nafninu
Gæludýrin. Þetta er Reykjavíkur-
saga úr nútímanum.
Bragi fékk tilnefningu til Ís-
lensku bókmenntaverðlaunanna
fyrir síðustu skáldsögu sína, Hvíld-
ardagar.
Þorvaldur Þorsteinsson, sem er
þekktastur fyrir leikritaskrif og
barnabækurnar um Blíðfinn, send-
ir frá sér sína fyrstu skáldsögu í
haust, Rabarbaramaðurinn (vinnu-
heiti). Þar segir frá kennaranum
Haraldi Haraldssyni sem lifir tvö-
földu lífi og og glímu hans við þá
flóknu tilveru sem slíkt líferni
skapar. Bjartur gefur einnig út
barnabók eftir Þorvald er nefnist
Vettlingarnir hans afa. Þetta er
fyrsta bókin í nýjum barnabóka-
flokki Bjarts, sem kallast Litlir
bókaormar.
Þorvaldur Þorsteinsson verður
mjög í sviðsljósinu í haust því auk
bókanna tveggja verða frumsýnd
tvö leikverk hans í Borgarleikhús-
inu í vetur. Leikgerð eftir sögunum
um Blíðfinn í október og leikritið
And of course Björk... eftir áramót.
Skáldsögur eftir Braga og Þorvald
Bragi
Ólafsson
Þorvaldur
Þorsteinsson