Morgunblaðið - 28.07.2000, Blaðsíða 6
6 D FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 2000
DAGLEGT LIF
MORGUNBLAÐIÐ
BÓK Pearl S. Buck, Aust-
anvindar og vestan, fjall-
ar um lýónaband kín-
verskrar stúlku, sem
heldur tryggð við gildi heimalands-
ins, og læknis, sem er menntaður
vestanhafs og lítur lífið vestrænum
augum. Eins og;við má búast ein-
kennist hjónaband þeirra af tog-
streitu og ágreiningi þar sem ólík
sjónarmið mætast. Svipað er úpp á
teningnum í sambúð vestrænnar og
austrænnar læknLsfræði. Á Vestur-
löndum vekja austrænar lækninga-
aðferðir grunsemdir sumra lækna
og leikmanna, enda í grundvallar-
atriðum ólík hugmyndafræði sem
að baki liggur. Ef til vill ýtir það
undir tortryggni að fornu austrænu
aðferðimar rata stundum vestur
um haf í misvirðukigum búningi,
sumir sjá t.d. gróðavon í að búa til
nýjar aðferðjr úr sam'suðu æva-
fornra hugmynda sem eru ekki
endilega runnar úr sama farvegi.
Vestræn læknisfræði er stundum
kölluð gagnveikislækningar (allo-
pathy) vegna þess að vestræn lyf
verka allt öðruvísi eh sjúkdómur-
inn sjálfur á meðan t.d. smá-
skammtalækiringiir byggjast á lyfj-
um sem hafa sömu verkan og
veikin, bara miklu mildari. Smá-f
skamrntalækningar eru reyndar
upprunnar vestiinhafs eins og sum
ar þeirra meðferða sem eru ai
ryðja sérítil rímjs, svo sem pólun;
„Rolfing" pg Alexanderstækni.
Austrænar lækhingaaðferðir eru
gjarnan kallaðar óhefðbundnar
vegna stuttra kynna Vesturlanda-
Áhugi á óhefðbundnum lækningum, val-
meðferðum, fer vaxandi og sífellt fleiri leita
sér heilsubótar til hliðar við hefðbundna
vestræna læknisfræði. Kristín Elfa Guðna-
dóttir kannaði hvar og hvernig austrið
mætir vestri og hvaða meginkostir bjóðast
þeim sem kenna sér meins.
búa af þeim en eru þó vitaskuld
hefðbundnar í heimalöndunum.
Indverjar leggja mikið fé til vaxtar
og viðhalds sinnar gömlu læknis-
fræði, ayurveda, og í kínverskum
læknaskólum eru víðast kenndar
, fomu aðferðirnar til hliðar við þær
vestrænu. Kínverjar leggja meiri
áherslu á verknám en læknaskólar
á Vesturlöndum og hvetja nemend-
ur til að gagnrýna óhikað það sem
þeim er kennt.
Margt býr í þokunni
Gróskan í hverskyns valkostum
við hefðbundnar vestrænar lækn-
ingar er gífurleg og auðvelt að vill-
ast í þykkni óhefðbundinna lækn-
inga. Um kostina spinnast sífellt
meiri umræður meðal fagfólks, sem
er vel því margir þiggja leiðsögn
um frumskóginn.
í grein um sjálfstæð meðferðar-
form (óhefðbundnar lækningar) í
Tímariti hjúkrunarfræðinga, 3. tbl.
1998, vitnar Lilja Þormar hjúkrun-
arfræðingur í Dalai Lama: „Gagn-
rýnið hugarfar er jákvætt þegar
það leiðir til frekari þekkingarleit-
ar en lokar ekki á það sem er fram-
andi.“ Síðar í greininni segir Lilja
méðal annars: „Áhugi almennings á
náttúrlegum meðferðarformum er
sífellt að aukast. Fólk leitar leiða
sem eru án skaðlegra aukaverkana,
eru betri fyrir umhverfið og eru
fyrirbyggjandi. Fleiri og fleiri eru
famir að skiíja hvað felst í því að
taka ábyrgð á eigin heilsu og farnir
að kjósa lífsstíl sem sámræmist
viðhorfum náttúrúla:kninga. Það
virðist líka færast í aukana að fólk
kjósi að taka virkan þátt í eigin
meðferð, vilji skilja hvað úm er að
ræða og geta tekið ákvarðanir
byggðar á haldgóðri fræðslu og
ráðgjöf. Fólk gerir því aðrar og
meiri kröfur en áður fyrr. Hér er
ég ekki að segja að valmeðferð eigi
að koma í jstað hefðbundinna eða
ríkjandi Iækninga og meðferðar-
Rolfing-fræðingurinn
HAFÞÓR Rúnar Gestsson er Rolf-
ingfræðingur og rekur eigin Rolf-
ing-stofu í Reykjavík. „Þótt Rolfing
sé yfirleitt
flokkaö með
óhefðbundnum
lækningum
byggir það al-
gerlegaávest-
rænni Iíffæra-
og lífeðlisfræði
með áherslu á
bandveflíkam-
ans og innbyrð-
is samspil
líkamshluta í
stöðu og hreyfingu," segir
„í raun má segja að Rolfing mejfi
nota við flest stoðkerfisvandaiúr*’
því allsstaðar er bandvefur í lí
anum. Hin hefðbundna Rolfing-
meðferð felst í tíu skipta meðferi
þar sem farið er kerfísbundið jfi:
allt stoðkerfið, og hei
ur losaður með þrýstitækni. Þí
kannski segja að þetta sé nokkurs
konar upphersla á I:
hef stundum Ifkt þessu í
að bifvélavirki taki lífsre;
rétti á honiun stærstu beyg.
liðki stirðar legur og
götuna."
Áður en Haíþór.fórutan
Rolfing starfaði h:uin sem nuditari.
„Égtók fijótlega eftirþvíáð égfékk
oft sama fólkið til nun með sömu um-
kvörtunarefhin eftir aðhafa verið
gott í mislangan tíma. Ég fór því að
huga að því áð
auka þekkingu
mína og tækni
sem endaði með
þvíaðégfórí
Rolfing-námið
hjá Rolflnstitu-
teíBouIderí
Colorado.
Þétfa ineð-
ferðarform
vantaðii flór-
una hér lieima.
Ég myndi gjaman vðja fá flfeeii-í Rol-
fera hér svo ég kæmist oftar f tínm
sjálfúr. Eins vantar alveg „osteop-
ath“ (skekkjulækni) hérlemiiiog
það er synd að þctta gamlá góða
meðferðarform sem svo rnörg ön
eru sprottin úr skuli vanta hér. Þ;
’ erþó einn felendingur í þ ví n;imi
London og er væntanlegur
ir eitt til tvö ár.
Hafþór er spurður hvorf það'sé
eitthvað sem fóik þurfi að hafa í
■ huga áður en það leitar óhefðbund-
innar lækningar. Hann svárar því til
að að minnsta kosti sé ógjorningur
að ætla sér að banna fólki að leita
eitt frekar en annað. „Þó er sjálfs. t
að kynna sér bakgrunn meðhöi
ans því einhver brögð hafa verið að
því að fólk hafi verið að meðhöndla
viðskiptavjni eftir eitt til tvö helgar-
námskeið."
Hafþór telur líklegt að samskipti
vestrænt menntaðra lækna og val-
meðferðaraðila fari vaxandi í fram-
tíðinni. „Ég hef til dæmis kynnst
mörgu fólki í heilbrigðisstéttinni,
bæði hér heima og erlendis, sem
lærthefúr óhefðbundnar aðferðir.
Sérstaklcga virðast hj úkrunjir fræð-
ingar og sjúkraþjálfarar iðnir við
það. Ég held þó að beinn samruni
vestrænu læknisfræðinnar og val-
meðferða sé ekki til góðs. Valmeð-
ferðimar verða að fá að halda sjálf-
stæði sínu svo að kerfið gleypi þær
ekki. En þessar greinar ættu auð-
yeldlega að geta starfað saman hlið
við hlið. Kannski eigum við eftir að
sjá heilsumiðstöðvar í náinni framtíð
með blöndu af hefðbundnum lækn-
um Og óhefðbundnum meðferðarað-
ilum eins og vfsir er kominn að á
Heilsustofnuninni í Hveragerði,"
segir Hafþór.
Hann álitur að styrkur sumra
óhefðbundinna aðferða liggi í fyrir-
byggjandi aðgerðum sem erfitt sé að
f mæla vísindalega, en styrkur vest-
rænu aðferðanna liggi fremur í
uppskurðum og meðhöndlun
alvarlegra sjúkdóma og slysa. „Þar
sem Rolfing-meðferð er svo nýleg
hér á landi vita fæstir læknar í
hveiju hún felst. Fái ég viðskiptavin
með undirliggjandi alvarlegan sjúk-
dóm bið ég hann að leita álits læknis
sfns á þvf að hann komi til mih. Lík-
lega stafar rígurinn og tortryggnin
sem oft hefur einkennt samskipti
þessara aðila af vanþekkingu á ár-
angriog verksviði hinna. Mín til-
um.
forma. Ekkert kemur í stað há-
tæknimeðferðar þegar svo ber und-
ir, en aftur á móti gætum við
örugglega bætt alla meðferð og
mannleg samskipti með því að
víkka sjóndeildarhringinn. Ríkj-
andi meðferðarform og valmeðferð
þyrftu því í auknum mæli að hald-
ast í hendur."
Um valmeðferðir almennt má
segja að í þeim flestum er lögð
áhersla á heildarsýn á einstakling-
inn og tekið mið af persónulegri
reynslu hans. Margar þeirra
byggja á heimspekilegu eða trúar-
legu viðmiði, aðferðirnar eru mild-
ar og miða að því að styðja við nátt-
úrlegan lækningamátt líkamans.
Hugtakaforði valmeðferða og vest-
rænna lækninga er ólíkur og sýn á
sjúkdóma og heilbrigði einnig. í
valmeðferðum er orsakar leitað en
minni áhersla lögð á að draga úr
einkennum og sjúkleikinn oft túlk-
aður sem afleiðing ójafnvægis í
líkamanum.
Ólík •
viðhorf
GREINA má þrjár meginlínur í
afstöðu fólks til valmeðferða. Til
eru þeir sem vilja prófa allt og
líta flestar eða allar lækninga-
aðferðir jákvæðum augum. Aðrir
líta á allfc slíkt sem „nýaldarrugl"
og treysta engu nema strangvís-
indalegum vestrænum lækning-
um. Loks eru þeir sem ef til vill
skipa stærsta hópinn og eru
reiðubúnir til þess að skoða aðr-
ar leiðir en þá vestrænu en binda
samt enn trúss sitt að mestu við
þær lækningar sem þeir eiga að
venjast. Gagnrýni er mismikil
innan þessa hóps, margir prófa
eitthvað vegna þess að einhver
hefur bent þeim á það og þeir
telja það a.m.k. ekki skaða. Aðrir
kynna sér einhverja lækninga-
aðferð eða kerfi utan hins hefð-
bundna og öðlast tiltrú á því í
gegnum þá viðkynningu.
Læknirinn
Læknanámið of
ósveigjanlegt
GUÐMUNDUR Bjömsson er sér-
fræðingur í endurhæfingarlækning-
um og yfirlæknir Heilsustofnunar
NLFÍíHvera-
gerði. Hann hef-
ur kynnt sér og
notar óhefð-
bundnar Iækn-
ingaaðferðir í
starfi sínu.
„Óhefðbundn-
ar lækninga-
aðferðir eiga tví-
mælalaust sinn
sess í meðferð ýmissa heilsuvanda-
mála,“ segir Guðmundur. „Þær geta
verið tilvalinn valkostur þegar ann-
að bregst en mikilvægt er að þeim sé
beitt af kunnáttu og reynslu. Nálar-
stungan er þar fremst í flokki, en
einnig náttúrulyf með sannað gildi."
Guðmundur segir afstöðu ís-
lenskra lækna til óhefðbundinna
lækningaaðferða mjög misjafiia.
„ Almennt séð eru læknar þó
íhaldssamir og lengi að sættast við
nýja strauma. Þannig er það sem
talið var óhefðbundið fyrir þrjátíu
árum fyrst núna viðurkennt sem
gild læknisfræði, og em nálarstung-
umar dæmi um það. Læknum
gremst auðvitað þegar skjólstæð-
ingar þeirra flakka á milli fólks án
menntunar á heilbrigðissviði sem
gefur sig út fyrir það að geta „lækn-
að“ sjúkdóma með óhefðbundnum
og of illa rannsökuðum aðferðum,
og finnst oft að verið sé að hafa fólk
að féþúfú," segir Guðmundur. „En
það er eðlilegt að fólk leiti annað
þegar hið hefðbundna heilbrigðis-
kerfi „bregst“ að þeirra mati. Auð-
vitað þarf að beina fólki frá aðiium
sem hafa hvorki þekkingu né kunn-
áttu áþessum sviðum, en slíkt er
hlutverk Landlæknisembættisins.
Til þess þurfa læknar að hafa til að
bera víðsýni og skilning á „brölti“
skjólstæðinga sinna.“
Guðmundur segir mikilvægt að
læknar þekki til þeirra aðferða sem
eru að öllu leyti eða að hluta til
viðurkenndar. „Læknanámið er of
ósveigjanlegt í þessu tilliti. Læknar
sem tekið hafa upp óhefðbundna
nálgun í störfum sinum fræða í vax-
andi mæli aðra lækna um þessi mál.“
Að mati Guðmundar fer samþætt-
ing læknisfræðinnar og valmeð-
ferða sífellt vaxandi. „Það er til bóta
að læknar leiði þá þróun. Eitt dæmið
höfum við hér í Hveragerði. Við er-
um með Kínverja í starfi sem er vel
menntaður í hefðbundinni kín-
verskri læknisfræði, sem við teljum
til óhefðbundinna lækninga hér-
lendis. Hann stundar fyrst og fremst
nálarstungumeðferð við verkjum og
er meðlimur í þverfaglegu endur-
hæfingarteymi okkar hér.“