Morgunblaðið - 15.07.1999, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 15.07.1999, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ ÍMtlPPj Morgunblaðið/Brynjúlfur Brynjólfsson FRÁ bútasaumssýningunni á Hornafirði. Bútasaumssýn- ing á Höfn Höfn - Allsérstök sýning er nú í Pakkhúsinu á Höfn, það eru tæp- lega tuttugu bútasaumskonur sem sýna afrakstur vetrarins. Rúmlega fjörutíu konur sóttu námskeið sl. vetur á vegum Hand- raðans, sem er félag handverksfólks á Hornafirði, kennarar komu frá Frú Bóthildi í Reykjavík. Á sýningunni eru bæði strau- myndir og svo venjulegur búta- saumur, rúmlega 80 verk, allt frá púðum upp í rúmteppi í öllum regn- bogans litum og mikil fjölbreytni í munstrum. Áhugi á bútasaumi er orðinn mjög mikill og fer stöðugt vaxandi hér á landi. Héraðsskógar á Norður-Héraði Gróðursetning hafín á efra Jökuldal Vaðbrekku, Jökuldal - Gróðursetn- ing er hafin á efra Jökuldal á vegum Héraðsskóga. Eins og komið hefur fram í fréttum Morgunblaðsins stækkaði svæði Héraðsskóga til Norður-Héraðs á síðasta vetri með samningi þar um. Nú hafa níu bændur á Norður-Héraði gert samning við Héraðsskóga um nytja- skógrækt á Norður-Héraði og fleii-i samningar eru í deiglunni. I síðustu viku hófst gróðursetn- ing á Grund á Jökuldal en Grund er eina býlið á efra Jökuldal sem gerði samning við Héraðsskóga í þetta sinn. Grund er yfir 300 metra yfir sjó og langt inni í landi. Að sögn Rúnars Isleifssonar, hjá Héraðs- skógum, er rennt blint í sjóinn með árangur af þessari gróðursetningu svo hátt yfir sjávarmáli en hann heldur að hægt sé að ná ágætis ár- angri á þessum stað eftir að hafa kíkt í trjágarða á efra Jökuldal. Það er skjólsælt þama í Skotunum við Grund og það er kostur í skógrækt- inni. Við þessa gróðursetningu er aðal- lega notað íslenskt birki en aðrar tegundir, rússalerki og mýrarlerki, Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson KOLBRUN Sigurðardóttir, skógarbóndi á Grund, vinnur við að gróð- ursetja birki, rússalerki og mýrarlerki ásamt Wojereck Mrozkiercz og Kristofer Kubielas í Skotum við Kringilsá utan við Grund. Rúnar Is- leifsson frá Héraðsskógum leiðbeinir við gróðursetninguna. eru reyndar lítillega með. Karl Jak- obsson, skógarbóndi á Grund, segir að hann sé búinn að hugsa lengi um að rækta skóg í landi sínu og segist hafa sótt um að komast inn í til- raunaverkefni fyrir 10 árum en ver- ið hafnað. Hann segist hafa haldið málinu við síðan og gert samning við Héraðsskóga nú og í fyrsta áfanga verði gróðursettar 9.000 plöntur, en síðan verði haldið áfram á næsta ári. Mareind stækkar Grundarfirði - Rafeindafyrirtækið Mareind hefur verið rekið af Halldóri Kr. Halldórssyni rafeindavirkja síðan 1993. Hann flutti reksturinn til Grundai-fjarðai- í janúar 1994. Halldór er borinn og bamfæddur Gmndfirðingur. Til þessa hefur hann aðallega verið að þjónusta skip og báta, þ.e. í siglinga- og fiskleitartækjum. Reksturinn hefur gengið mjög vel og þjónustusvæðið stækkaði ört. Fékk hann þá til liðs við sig fyrmm starfsfélaga, Þorstein Sveinsson rafeindavirkja og gerðist hann meðeigandi. Þeir félagar era mjög bjartsýnir á framtíðina og með haustinu ætla þeir að hefja alhliða þjónustu fyrir fyrirtæki. Marcínd mm Morgunblaðið/Helga HALLDÓR Kr. Magnússon til vinstri og Þorsteinn Sveinsson fyrir framan fyrirtækið Mareind. Bryggjuhátíð á Drangsnesi Einmuna blíða á Búnaðarbankamóti Morgunblaðið/Ingimundur KRISTMAR J. Ólafsson, Jakob Skúlason for- maður knattspyrnudeildar Skallagríms og Jó- fríður H. Sigfúsdóttir framkvæmdastjóri deild- arinnar. Borgarnesi - Hið ár- lega Búnaðarbanka- mót í knattspyrnu var haldið í Borgar- nesi helgina 2.-4. júlí sl. en mótið er fyrir 4.-7. flokk. Keppendur komu víðsvegar að af landinu: Rangárvöll- um, Hveragerði, Þorlákshöfn, Stokkseyri, Sand- gerði, Garði, Bessa- staðahreppi, Blönduósi, Bolung- arvík, Hvamms- tanga auk heimamanna. Voru keppendur um 800 talsins. Meðan mótið stóð yfír var ein- stök blíða í Borgarnesi. Mótið gekk mjög vel og framkoma keppenda og fylgjenda þeirra til fyrirmyndar utan vallar sem inn- an. Röð efstu liða í einstökum flokkum: 4. fl. A-lið: Bolungar- vík, Umf. Bessastaðahrepps, Reynir Sandgerði. B.-lið: Bolung- arvík, Skallagrímur, Umf. Bessa- staðahrepps. 5. fl. A.-lið: Umf. Bessastaðarhrepps, Umf. Stokks- eyrar, KFR. B.-lið: Skallagrímur, Umf. Bessastaðahrepps, Skalla- grímur. 6. fl. A-lið: Hamar Hveragerði, KFR, Ægir Þorláks- höfn. B.-lið: Umf. Bessastaða- hrepps, Kormákur Hvamms- tanga, Skallagrímur. 7. fl. A-lið: Skallagrímur, Reynir Sandgerði, Ægir Þorlákshöfn. B-lið: Hvöt Blönduósi, Ægir Þorlákshöfn, Skallagrímur. Prúðustu liðin Valin voru prúðustu liðin í hverjum aldursflokki. En þau voru: Víðir, Garði í 7.fl., Hvöt, Blönduósi í 6. fl., Hamar, Hvera- gerði í 5. fl. og Ægir, Þorláks- höfn í 4. fl. Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir Krakkar á sundnámskeiði í Kolviðarneslaug Eyja-og Miklaholtshreppi - Lok- ið er sundnámskeiði sem haldið var í Laugagerði. Aðalheiður Helgadóttir, íþróttakennarí við Laugagerðisskóla, hélt nám- skeiðið á eigin vegum eftir að skóla lauk í vor. Hún fékk að- stöðu í Kolviðarneslaug og í íþróttahúsi Laugagerðisskóla og naut aðstoðar Guðríðar Péturs- dóttur sérkennara. Þetta er í annað sinn sem Aðal- heiður heldur námskeið fyrir krakkana í sveitinni. Rúmlega 20 böm á aldrinum 6 til 10 ára tóku þátt í því. Sundnámskeiðið tók tvær vikur og var sjáanlegur ár- angur í lokin. Síðasta daginn var haldin grillveisla fyrir börnin, systkini og foreldra. Mikil ánægja var með þetta framtak Aðalheiðar og víst að margir era farnir að hlakka til að komast á sundnámskeið í framtíðinni. Drangsnesi - Laugardaginn 17. júlí nk. verður Bryggjuhátíð haldin á Drangsnesi í ijórða sinn. Þetta er fjölskylduhátíð þar sem foreldrar og börn skemmta sér saman. Hátfðin stendur í einn dag en hann er vel nýttur. Byijar hátíðin kl. 10 um morguninn í Kokkáls- víkurhöfn á dorgveiðikeppni barnanna. Boðið er upp á ferðir út í Grímsey á Steingrímsfirði. Grímsey er sannkölluð nátt- úruperla og iðar af fuglalífi. Eitt af því sem hefur áunnið sér fast- an sess á Bryggjuhátíð er sjávar- réttasmakk þar sem fólki gefst kostur á að bragða á ýmsu góð- gæti sem úr sjónum kemur. Örv- ar Kristjánsson verður með úti- tónleika. Þjóðsögur og sagnir sem tengjast viðkomandi stöðum verður komið fyrir á rekadrumb- um á 10 stöðum í Strandasýslu og fyrsti sagnarekinn verður afhjúp- aður við Kerlinguna á Drangs- nesi á hátíðinni. I skólanum heldur Dósla mál- verkasýningu og þar eru einnig tvær ljósmyndasýningar. Annars vegar eru sýndar gamlar Ijós- myndir sem sýna mannlíf fyrri tíðar og svo sýningin Veröldin og við. Þar sýna 14 krakkar á aldr- inum 7-14 ára Ijósmyndir teknar í vor. Ýmislegt fleira verður til skemmtunar þennan dag svo sem hestaferðir, söngvarkeppni, grill- veisla, fótbolti, varðeldur með fjöldasöng o.fl. Skemmtuninni lýkur svo með Bryggjuballi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.