Morgunblaðið - 16.08.1996, Síða 3
2 C FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1996 C 3
ÚRSLIT
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
KAPPROÐUR
SKYLMINGAR
GOLF
benelfon Opið
í Leirunni sunnudaginn 18. ágúst kl. 9.00
Fyrirkomulag:
Höggleikur án fgj. (þrenn verðlaun) og með fgj.
(fimm verðlaun).
Aukaverðlaun fyrir að vera næst holu á 3. og 16. braut.
Tveir útdrættir í mótslok.
Skráning hafin í síma 421 4100.
Knattspyrna
2. deild kvenna
Einheiji - Sindri.................0:2
-Jónína Einarsdóttir, Jóna Benný Krist-
jánsdóttir.
Vináttulandsleikir
Búkarest, Rúmeniu:
Rúmenía - ísrael..................2:0
Adrian Ilie (19.), Gheorghe Craioveanu
(82.). - 7.000.
Siofok, Ungveijalandi:
l'ngverjal. - Sam. Arab. Furstad..3:1
Laszlo Klausz (12.), Florian Urban (35.),
Ferenc Orosz (64.) - Zuhair Bakheet Saad
(88.). - 5.000.
Gautaborg, Svíþjóð:
Svíþjóð - Danmörk.................0:1
- Ole Bjur (30.). - 21.350.
Arequipa, Pérú:
Perú - Kosta Ríka.................3:0
Pablo Maldonado (55.), Roberto Palacios
(70.), Roberto Farfan (90.).- 15.000.
San Pedro Sula, Hondúras:
Hondúras - E1 Salvador............2:1
Will Iraheta (40., sjálfsmark), Nicolas Su-
azo (50.) - Elias Montes (89.). - 2.200.
Vináttuleikur
Vígsluleikur á Amsterdam Arena, nýjum
leikvangi Ajax í fyrrakvöld.
Ajax - AC Milan...................0:3
- Dejan Savicevic (32.), Marco Simone
(50., 82. vítasp.). - 51.000.
Tennis
(slandsmótið
Meistaraflokkur kvenna, 8 manna úrslit:
Hrafnhildur Hannesdóttir vann Stellu Rún
Kristjánsdóttur 6-2, 6-0.
Tvíliðaleikur karla, undanúrslit:
Arnar Sigurðsson og Davíð Halldórsson
unnu Ólaf Sveinsson og Einar Sigurgeirsson
6-2, 7-6 (7-5).
Stefán Pálsson og Gunnar Einarsson unnu
Jónas Bjömsson og Snæbjöm Gunnsteins-
son 6-0, 6-0.
Óðlingaflokkur karla:
Einar Thoroddsen vann Börk Aðalsteinsson
6-3, 6-1.
Hjólreiðar
Sunnudaginn 11. ágúst fór fram íslands-
meistaramótið í fjailhjólreiðum í Öskjuhlíð.
Keppt var í íjórum aldursflokkum og einnig
í opnum flokki. Þátttakendur voru 23 á
aldrinum 9 ára til 39.
Meistaraflokkur 19 ára og eldri: klst.
10 hríngir - 27,4 km
Kristinn Morthens..............1:21,05
Jens V. Kristinsson............1:23,41
Stefán Garðarsson..............1:23,10
B-flokkur, 19 ára og eldri: 7 hringir - 19,18 km Kristmundur Guðleifsson mín. 54,47 KS 9.9.
Erwin H.K. Brynjarsson 59 54
Kristinn R. Kristinsson 63,58
16-18 ára: 5 hringir - 13,7 km Helgi Berg Friðþjófsson Bj artmar Leósson mín. 37,17 43 23
Bjöm Oddsson 44*38
49 00
13-15 ára: 3 hríngir - 8,22 km Ingi Örn Jónsson mín. 23,53
Guðmundur Guðmundsson Þráinn Ævarsson 24Í04 24,06 26,41
26Í57
27,25
31,09
Egill Öm Bjamason 34,28
9-12 ára: mín.
1 hringur - 2,74 km
Jónas Jónasson.......................9,55
LiljaRún Sigurðardóttir.............11,22
Hlynur Már Ólafsson.................11,28
Golf
BK-mót á Húsavík
Karlar án forgjafar:
Egill Hólmsteinsson, GA...............151
Viðar Þorsteinsson, GA................155
Axel Reynisson, GH....................156
Með forgjöf:
Ingimar Hjálmarsson, GH...............131
Baldvin J. Jónsson, GKj...............133
Pálmi Þorsteinsson, GH................133
Konur án/með forgjöf:
Ámý Ámadóttir, GSS................167/145
Erla Adolfsdóttir, GA.............175/151
Oddríður D. Reynisdóttir, GH.....187/147
Reykjalundarhlaupið
Reykjalundarhlaupið fer fram í áttunda sinn
á laugardaginn 24. ágúst en hér er um al-
menningshlaup að ræða. Það verður reynd-
ar ekki bara hlaupið heldur einnig boðið
upp á gönguleiðir og fólk í hjólastólum og
með önnur hjálpartæki er boðið velkomið.
Hlaupinu er ætlað að höfða til sem flestra,
fatlaðra sem ófatlaðra, keppnisfólks sem
skemtiskokkara.
Boðið er upp á fjórar vegalengdir fyrir
væntanlega þátttakendur, sú lengsta er 14
km, þá 6 km og 3 km. Fjórða leiðin er sú
eina sem er öll á malbiki það er 500 - 4
km leið sem hentar vel fólki í hjólastólum
og með önnur hjálpartæki.
Hiaupið hefst klukkan 11 nema hjá þeim
sem far alengstu leiðina þeir fara af stað
tuttugu minútum fyrr. Ekki þarf að skrá
sig í hlaupið en þátttakendur eru beðnir
um að mæta tímanlega. Þátttökugjald er
500 krónur en allur fá verðlaunapening
fyrir þáttökuna.
Ragnar og Sigrún
RAGNAR Sigurðsson með víkingasverðið, sigurlaunin í karla-
flokki, ásamt Slgrúnu Geirsdóttur en hún varft hlutskörpust
í kvennaflokki. „Eg þurfti mikið að hafa fyrir sigrinum," sagði
Ragnar. Hann varð Norðurlandameistari unglinga í vor.
Curcic
til Villa
ASTON Villa keypti í gær
júgóslavneska miðjumanninn
Sasa Curcic fyrir 400 miHjón-
ir frá Bolton. Það er hæsta
upphæð sem Villa hefur
greitt fyrir einn einstakan
leikmann, en ekki er þó búist
við að Curcic verði klár í
slaginn með félaginu fyrr en
að tveimur vikum liðnum þvi
hann þarf að bíða atvinnu-
leyfis.
Brian Little, knattspyrnu-
stjóri Villa, kvaðst í gær
hlakka mikið til keppnistíma-
bUsins. Keppni yrði örugg-
iega harðari en nokkru sinni
um meistaratitilinn, margir
ætiuðu sér að sigra og VUla
yrði í baráttunni með þeim
þremur stóru, Manchester
United,_Liverpool og New-
castle, Á því léki enginn vafi.
Ragnar fékk
víkingasverðið
Fyrsta alþjóðlega mótið í skylm-
ingum með höggsverði sem
haldið er hér á landi fór fram í
íþróttahúsinu í Kaplakrika um síð-
ustu helgi. Hingað til lands kom
af þessu tilefni hópur danskra
skylmingamanna til þess að eiga í
höggi við heimamenn. Keppt var
bæði í eistaklingskeppni karla og
kvenna og í liðakeppni karla. I
fyrstu verðlaun í karlaflokki var
víkingasverð og eftir hörkukeppni
stóð Ragnar Sigurðsson uppi sem
sigurvegari og hlaut sverðið góða.
í kvennaflokki var Sigrún Geirs-
dóttir hlutskörpust og í liðakeppn-
inni voru íslenskar sveitir í tveimur
efstu sætunum en danska sveitin
hafnaði í þriðja sæti.
„Ég þurfti mikið að hafa fyrir
sigrinum," sagði Ragnar, en hann
varð einnig Norðurlandameistari
unglinga í vor. Hann sagðist hafa
átt í höggi við Ólaf Bjarnason í
fyrstu umferð og haft sigur að lok-
um, 15:13. Því næst lagði hann
Kára Frey Björnsson að hólmi, 15:9,
og keppti til úrslita við Danann Jan
Rasmussen sem hafði borið sigur-
orð af Davíð Þór Jónssyni í undan-
úrslitum, 15:14.
„Viðureignin við Jan var mjög
skemmtileg og það var hart barist
um hvert stig. Mér tókst þó að vera
að jafnaði tveimur stigum yfir nær
allan leikinn og sigra 15:12.“
„Jan Rasmussen er einn af betri
skylmingamönnum Danmerkur og
keppir með besta félagsliði lands-
ins. Hann varð sigurvegari í keppn-
inni um Norður-Evrópubikarinn ár-
ið 1995.“ Ragnar sagði mikinn feng
að dönsku skylmingamönnunum
hingað til lands og stefnan hefði
verið sett á að fá erlenda skylm-
ingamenn hingað árlega til keppni
og reyna að festa mótið í sessi sem
alþjóðamót.
Það var einnig jöfn keppni í
kvennaflokki þar sem barist var um
hvert stig en að lokum stóð Sigrún
Geirsdóttir ein eftir ósigruð. Hún
átti við Þórdísi Kristleifsdóttur í
úrslitum og sigraði, 15:13. Áður
hafði Sigrún unnið Helgu Magnús-
dóttur í undanúrslitum 15:14 og
Þórdís haft betur í baráttu við Tanju
Möller, 15:13.
A-sveit íslands hafði mikla yfir-
burði í liðakeppninni og vann B-
sveitina í úrslitum 45:31, en hver
sveit er skipuð þremur mönnum.
A-sveitin var skipuð þeim Ragnari,
Kára og Davíð Þór en B-sveitin
Ólafi Bjarnasyni, Kristmundi Berg-
sveinssyni og Ólafi Kristmundssyni.
Danska sveitin varð þriðja, eftir
óvænt tap fyrir B-sveit íslands,
45:39. Unglingasveit íslands stóð
sig mjög vel og varð í fjórða sæti
en alls kepptu sjö sveitir. Unglinga-
sveitin var skipuð Andra Kristins-
syni, Arnari Sigurðssyni og Hróari
Húgóssyni.
IMýjasta stjarnan
Reuter
NÝJASTA hlaupastjarna heimsins, Daniel Komen frá Kenýju, hefur
sett stefnuna á að bæta heimsmetið í 5.000 m hlaupl fyrir ársiok. í
kvöld ætlar hann að keppa bæði í 1.500 og 3.000 m hlaupi á mótl í Köln
í Þýskalandi.
Góður árangur Önnu Láru og Ármanns Kojic á HM í Skotlandi
„Eru að uppskera
árangur erfiðis síns“
Anna Lára Steingrímsdóttir og
Ármann Kojic Jónsson tóku
þátt í heimsmeistaramótinu í kapp-
róðri, sem lauk í Skotlandi um síð-
ustu helgi, og stóðu sig vel. Bæði
kepptu á eins manns bátum - ein-
æringi - í léttvigtarflokki. Anna
Lára varð í 13. sæti og Ármann í
21. sæti. Þau eru bæði í Siglingafé-
laginu Brokey í Reykjavík.
Jón Magnús Jónsson, einn for-
ráðamanna íþróttarinnar hérlendis,
sagðist í samtali við Morgunblaðið
mjög ánægður með árangurinn.
„Fullorðnir teljast 18 ára og eldri.
Þau eru bæði nýorðin 18 ára og að
keppa í fyrsta skipti á HM þannig
að við teljum árangurinn glæsileg-
an. Þau hafa æft geysilega mikið,
11 sinnum í viku í vetur og 13 sinn-
um í viku eftir að kom fram á vor-
ið; hafa því lagt gríðarlega mikið á
sig og eru að uppskera árangur
erfíðis síns. En árangurinn er samt
framar öilum vonum,“ sagði Jón
Magnús.
Eftir undanriðla er keppt til úr-
slita; fyrstu sex keppa þá í A-riðli,
næstu 6 í B-riðli og svo koll af kolli.
Anna Lára keppti í C-riðlinum þar
sem baráttan stóð milli hennar og
japanskrar stúlku. Þær voru einmitt
í sama undanriðlinum, þar sem sú
japanska hafði betur, en í úrsiita-
keppninni tók Anna Lára strax for-
ystu. Róið er 2.000 metra og hún
var fljótlega komin 3-4 sekúndum
á undan og hélt því forskoti allt þar
til 1.500 metrar voru að baki. Sú
japanska minnkaði þá muninn en
ekki nóg og Anna Lára kom á und-
an í markið, sigraði í C-riðlinum og
hreppti þar með 13. sætið á mótinu.
Ánna Lára varð í 12. sæti á
heimsmeistaramóti unglinga í fyrra
og þetta er fyrsta ár hennar í fiokki
fullorðinna. Arangurinn má því telja
mjög glæsilegan.
Ármann náði, ásamt félaga sín-
um, 30. sæti á HM í fyrra á tvírón-
um báti en hefur einungis æft í
flokki einæringa frá því i fyrrahaust.
Sigurvegari í kvennaflokki á ein-
æringi var stúlka frá Rúmeníu,
frönsk stúlka varð önnur og banda-
rísk þriðja. Dani var hlutskarpastur
í karlaflokki, Tékki varð annar og
Finni þriðji.
Þjálfari íslensku róðramannanna
er Leone Tinganelli.
ANNA Lára Steingrímsdóttir, Leone Tinganelll, þjálfari, og Ármann
Kojic Jónsson á keppnisstað í Skotlandi um síðustu helgi.
Daniel Komen tókst ekki að vinna sérsæti íliði Kenýja á Ólympíuleikunum í Atlanta
Ætlar að eiga
heimsmet
fyrir árslok
Daniel Komen er tvítugur hlaup-
ari frá Kenýja sem á síðustu
dögum hefur vakið mikla athygli
fyrir frammistöðu sína á hlaupa-
brautum Evrópu. í tvígang á innan
við viku hefur hann verið hársbreidd
frá því að slá heimsmet. í fyrra
skiptið kom hann fyrstur í mark í
3.000 m hlaupi í Mónakó á laugar-
daginn og var aðeins 5/100 úr sek-
úndu frá heimsmeti Noureddine
Morceli frá Alsír. Á stigamóti Al-
þjóða frjálsíþróttasambandsins í
Zúrich í fyrrakvöld skaut hann
heimsmethafanum í 5.000 metra
hlaupi, Haile Gebreselasse, ref fyrir
rass á lokasprettinum og kom rúm-
um sjö sekúndum á undan honum
í mark á öðrum besta tíma sögunn-
ar, 12.45,09 mín. - heimsmetið er
12.44,39 mín. Hlaupið var eitt það
besta í sögunni þar sem sex fyrstu
menn hlupu allir undir 13 mínútum.
Enn ætlar þessi fótfrái Kenýja-
maður að reima á sig hlaupaskóna
og taka þátt frjálsíþróttamóti sem
fram fer í Köln í kvöld. Hann ætlar
ekki að láta sér nægja að hlaupa
3.000 m því hann er einnig skráður
til leiks í 1.500 m hlaupi. Þetta
verða þriðja og fjórða hlaup hans
á sex dögum. Ekki skal segja um
hvort heimsmet fellur hjá honum
að þessu sinni, en Komen _segir
vera stutt í að það gerist. í það
minnsta hefur hann sett stefnuna
á að bæta heimsmetið í 5.000 m á
örðu hvoru „gullmóta" Alþjóðasam-
bandsins er fram fer í Brussel á
föstudaginn eftir viku og í Berlín
viku síðar.
Komen er fyrrum tvöfaldur
heimsmeistari unglinga í lang-
hlaupum en tókst ekki að vinna sér
sæti í Ólympíuliði Kenýja fyrir
Ólympíuleikana í Atlanta. Þrátt
fyrir þau vonbrigði hefur hann
ekki látið það á sig fá heldur sett
stefnuna á að skrá nafn sitt á ann-
an hátt í sögubækur frjálsíþrótta
- í það minnsta fram að næstu
leikum - með því að setja heims-
met.
„Það var yndislegt að sigra Gebr-
eselasse,“ sagði hann eftir hlaupið
í Zúrich í fyrrakvöld. „Sigurinn
veitir mér sjálfstraust eftir að hafa
misst af leikunum í Atlanta, en ég
á enn eftir að slá heimsmet. Næst
þegar ég hleyp þrjú þúsund metra
stefni ég á met, en eigi að síður
eru fimm þúsund metrarnir mitt
uppáhald," bætti hann við. Komen
er líkt Gebreselassie, fjölhæfur
hlaupari, sem hefur burði til að
ógna öllum heimsmetum á vega-
lengdinni frá 2.000 m til 10.000
m, að viðbættum hindrunarhlaup-
um. En kappanum er ýmislegt fleira
til lista lagt en vera einn allra
fórfráasti maður jarðarinnar.
Á sínum yngri árum var hann
frambærilegur hástökkvari og náði
athyglisverðum árangri í þeirri
grein áður en hlaup tóku hug hans
allan. Þá var hann einnig markvörð-
ur í knattspyrnuliði.
Eins og mál standa í dag virðist
engin vafí leika á að fái Komen
réttar aðstæður, góðan forystusauð
- oft kallaður héri - þá hefur hann
vænlegan möguleika á að fá nafn
sitt skráð á heimsmetalista áður en
keppnistímabilið er úti.
Idag
Knattspyrna
1. deild karla:
Ólafsfj.: Leiftur - Keflavík.....19
Valsvöllur: Valur-ÍA.............19
Fylkisvöllur: Fylkir-ÍBV.........19
3. deild:
Fjölnisvöllur: Fjölnir - Ægir....19
Kópavogur: HK-Dalvík.............19
Nesk.staður: Þróttur - Vlðir.....19
Sandgerði: Reynir - Grótta.......19
Úrslitakeppni 4. dcildar:
Bol.vík: Bolungarvík - Tindastóll ...19
Golf
Árlegt golfmót handboltamanna verð-
ur í dag á Vífilsstaðavellinum í
Garðabæ. Ræst verður út milli kl. 14
og 17. Þátttökurétt hafa allir sem
tengst hafa handbolta á einhvern
hátt, fyrr og síðar. Stjarnan sér um
mótið að þessu sinni.
FRJALSIÞROTTIR
ÞAÐ ER NÆSTA VIST AÐ...
■
m.
...ef þú spilar tíl að vinnal
■ TT
m