Morgunblaðið - 24.04.1996, Blaðsíða 4
—
IÞRDWR
HANDKNATTLEIKUR
Gunnar til EIvgiuiti
Gunnar Gunnarsson, hand-
knattleiksmaður og þjálfari,
hefur fengið tilboð frá norska fé-
laginu Elverum og fer utan á
morgun til að skoða aðstæður og
til viðræðna. „Þetta er nú eigin-
lega alveg öfugt við það sem ég
ætlaði mér. Eftir að ég hætti hjá
Haukum sagði ég að nú ætlaði
ég að hætta og einbeita mér að
vinnunni, en nú er allt útlit fyrir
að ég hætti í vinnunni og einbeiti
mér að þjálfun," sagði Gunnar í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi.
Elverum er skammt norðan við
Ósló og hefur handknattleiksfélag
staðarins verið með nokkra ís-
lendinga innan sinna raða á und-
anförnum árum. Þórir Hergeirs-
son þjálfaði liðið í þrjú ár og kom
því upp í fyrstu deildina fyrir
tveimur árum og í vetur lék Matt-
hías Matthíasson með liðinu.
„Ef vel gengur hlýtur það að
vera draumastarf að vera þjálfari
í fullu starfi þannig að þetta er
mjög áhugavert. Tilboð þeirra
þarf að vera mjög gott til að ég
rífi mig upp úr þeirri vinnu sem
ég hef hér, en forráðamenn
Skandia hafa sýnt mér skilning
og ég fæ leyfi frá störfum í eitt
ár. Raunar hafa forráðamenn El-
verum gert tveggja til þriggja ára
samning, en það verður að koma
í ijós hvemig þetta fer allt sam-
an,“ sagði Gunnar.
Eftir að hann hefur skoðað sig
um í Elverum fer hann á laugar-
daginn til Drammen þar sem hann
ætlar að fylgjast með síðari úr-
slitaleiknum í borgarkeppni Evr-
ópu en þar tekur Drammen á
móti Hameln og dómarar verða
Stefán Arnaldsson og Rögnvald
Erlingsson.
Einar Gunnar og Sig-
urður í Aftureldingu
EINAR Gunnar Sigurðsson, stórskytta frá Selfossi, ætlar
að leika með Aftureldlngu í Mosfellsbæ á næstu leiktíð.
„VIÐ erum að sjálfsögðu himin-
lifandi yfir þvf að Einar Gunnar
skuli hafa ákveðið að ganga til
liðs við okkur. Hann mun tví-
mælalaust styrkja lið okkar
verulega," sagði Jóhann Guð-
jónsson, formaður handknatt-
leiksdeildar UMFA, í samtali
við Morgunblaðið í gær, en þá
hafði Einar Gunnar Sigurðs-
son, handknattleiksmaður frá
Selfossi, nýlega undirritað
tveggja ára samning við félag-
ið. Sigurður Sveinsson, horna-
maður úr FH, hefur einnig
gengið til liðs við Mosfellinga.
Það var alveg ljóst eftir að ný-
liðnu keppnistímabili lauk að
við ætluðum að styrkja leikmanna-
hóp okkar fyrir næsta vetur. Nú
höfum við fengið Einar Gunnar til
liðs við okkur og þá hefur Sigurður
Sveinsson úr FH bæst í raðir liðs-
manna okkar. Með því að fá þessa
tvo leikmenn til liðs við okkur er
það mat okkar að þeim markmiðum
hafi verið náð,“ bætti Jóhann við.
Jóhann kvað félagsskipti Einars
hafa átt sér nokkum aðdraganda.
Einar hafí verið með fleiri tilboð
en að lokum valið að gera tveggja
ára samning við Aftureldingu.
Var kominn í pattstöðu
„Ég hef hugsað mikið um mína
stöðu síðan tilboð Aftureldingar kom
til og um leið horft til baka síðastlið-
in tvö ár. Þegar til þeirra er litið
finnst mér ég lítið hafa bætt mig
og þar af leiðandi verið óánægður
með frammistöðu mína. Það má
segja að ég hafi verið komin í patt-
stöðu sem handknattleiksmaður. Ég
held að með þessum félagsskiptum
í Aftureldingu hafi ég möguleika til
að bæta mig um leið og ég kemst
í annað umhverfi," sagði Einar
Gunnar Sigurðsson.
„Mér líst vel á hvernig að málum
er staðið í Mosfellsbæ og umgjörðin
er góð og ég hlakka til þess að leika
með félaginu. Auk þess sem ég þekki
Einar Þorvarðarson þjálfara vel frá
þeim tíma sem hann þjálfaði Selfoss
og treysti honum til góðra verka,“
bætti Einar við og sagði ennfremur
að ákvörðunin að yfirgefa Selfoss
hafi ekki verið auðveld. Það hafi
tekið sinn tíma að herða upp hugann
og yfirgefa félagið eftir að hafa leik-
ið með því alla tíð. „En ég er þakk-
látur þeim sem ég ræddi við hjá
félaginu hversu vel þeir tóku í
ákvörðun mína og skildu stöðu
mína.“
Einar sagðist ætla að búa áfram
á Selfossi. „Mér vex það ekki í aug-
um að fara á milli til æfinga auk
þess sem ég og kona mín erum bæði
í góðu starfi hér sem við viljum ekki
sleppa.“
Einar fer á versta tíma
Valdimar Grímsson, þjálfari Selfyss-
inga, sagðist mjög óhress með að
Einar Gunnar skuli hafa yfirgefíð
Selfoss. „Það er mjög slæmt að
missa Einar Gunnar og það breytir
öllum forsendum varðandi áfram-
haldandi þjálfun hjá liðinu. Ég gerði
þriggja ára samning við Selfoss í
fyrra, sem reyndar er uppsegjanleg-
ur árlega, og var með ákveðna upp-
byggingu í gangi. Það er ekki eins
spennandi að þjálfa liðið og áður
eftir brotthvarf Einars Gunnars sem
var lykilmaður í iiðinu. Ég ætla að
hugsa minn gang næstu daga, en
það er ekkert annað lið inn í mynd-
inni hjá mér eins og er,“ sagði Valdi-
mar.
Guðríður ætlar
sér að hætta
GUÐRÍÐUR Guðjónsdóttir
hyggst hætta sem þjálfari 1.
deildarliðs Fram í handknatt-
leik. Hún hefur þjálfað liðið
síðustu fjögur keppnistímabil
og sex vetur alls, auk þess sem
hún hefur leikið með félaginu
í 20 ár.
■ TONNIE Bruins Slot, aðstoð-
armaður Johan Cruyff hjá Barcel-
ona, hefur ákveðið að ganga til liðs
við PSV Eindhoven. Bruins Slot,
sem hefur verið átta ár sem aðstoð-
armaður Cruyff hjá Barcelona,
hefur gert fimm ára samning við
Eindhoven sem unglingaþjálfari.
Hann sagði að erfiðasta skrefið
hafi verið að segja Cruyff að leið-
ir þeirra væri að skilda. Áður en
hann gerðist þjálfari hjá Barcel-
ona, var hann yfirmaður unglinga-
þjálfunar hjá Ajax.
■ UEFA samþykkti á fundi sínum
fyrir helgi að heimiia liðum sem
leika í úrslitakeppni Evrópumóts-
ins í Englandi í sumar að nota
22 leikmenn í stað 21 eins og áður
hefur verið. Líklegt er að flest liðin
bæti við einum markverði og verði
með þijá slíka í hópnum.
■ Á SAMA fundi ákváðu forráða-
menn UEFA að funda með forráða-
mönnum Evrópuráðsins þann 26.
apríl og þar á að gera síðustu til-
raun til að sannfæra Evrópuráðið
um að veita knattspyrnuyfirvöldum
í Evrópu heimild til að setja reglur
um að knattspyrnulið hafi að
minnsta kosti 11 heimamenn í 16
manna hópi.
■ NICOLAS Ouedec, miðherji
Nantes, mun ekki leika með
Frökkum í EM í Englandi, vegna
meiðsla á læri. Hann meiddist í
Evrópuleiknum gegn Juventus.
■ OUEDEC, sem er ekki í byijun-
arliði Frakka, getur ekki leikið
meira á þessu keppnistímabili í
Frakklandi, sem endar 18. maí,
daginn eftir mun Aime Jacquet,
landsliðsþjálfari Frakka, tilkynna
EM-hópinn sinn.
■ BENGT Andersson, markvörð-
ur Örgryte, verður í .markinu hjá
Svíum er þeir mæta Norður-írum
í vináttulandsleik í kvöld. Thomas
Ravelli, sem hefur átt fast sæti í
landsliðsmarkinu, er meiddur og
getur ekki verið með.
■ DAVID Seaman, markvörður
Arsenal, sem er 32 ára, tilkynnti
í gær að hann hafi ákveðið að fram-
lengja samningi sínum við liðið til
ársins 2000. Seaman, sem er
landsliðsmarkvörður Englands,
hefur leikið 23 landsleiki.
■ BRENDAN Malone, þjálfari
nýliðanna Toronto Raptors í
NBA-deiIdinni, er hættur störfum.
Við stöðu hans tekur Darrell Wal-
ker, sem var aðstoðarmaður Mal-
one í vetur. Toronto vann 21 leik
í vetur og tapaði 61 og var með
betra vinningshlutfall en hinir
nýliðarnir í deildinni, Vancouver
Grizzlies, sem vann aðeins 15 leiki.
■ BUTCH Beard, þjálfari New
Jersey Nets, var rekinn frá félag-
inu eftir síðasta leik liðsins í NBA-
deildinni á mánudag. Liðið vann
aðeins 30 leiki í vetur og tapaði
52 og var langt frá því að komast
í úrslitakeppnina. Liðið tapaði 11
af síðustu 13 leikjum sínum í deild-
inni. Ekki er ákveðið hver tekur
við af Beards.
■ JOHN Parrott, fyrrum heims-
meistari í snóker frá Englandi,
féll úr keppni í fyrstu umferð á
heimsmeistaramótinu sem nú
stendur yfir í Sheffield í Eng-
landi. Hann tapaði fyrir hinum 24
ára gamla landa sínum Rod Lawl-
er, 10:6. Lawler, sem er í 40.
sæti á heimslistanum, sagði að sig-
urinn á Parrott væri sá mikilvæg-
asti ferlinum. Þetta er í fyrsta sinn
sem Parrott, sem varð heimsmeist-
ari 1991, tapar í fyrstu umferð á
HM í 13 ár.