Morgunblaðið - 24.04.1996, Síða 2
2 D MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1996
ÚRSLIT
ÍÞRÓTTIR
Eistland - ísland 1:1
Kehtna í Eistlandi, æfingalandsleikur leik-
manna tuttugu og eins árs og yngri, þriðju-
daginn_23. apríl 1996.
Mark Islands: Brynjar Björn Gunnarsson
(86.).
Mark Eistlands: (90.).
Island: Ámi Gautur Arason (Atli Knútsson
46.) - Guðni Rúnar Helgason, Ólafur
Bjarnason, Biynjar Björn Gunnarsson, Ólaf-
ur Stígsson (Gunnar Einarsson 60.) - Sigur-
björn Hreiðarsson (Ragnar Ámason 60.),
Bjarnólfur Lárusson (Davíð Ólafsson 87.),
Jóhannes Harðarson, Sigþór Júlíusson (Þór-
hallur Hinriksson 87.) - Sigurvin ÓJafsson
- Stefán Þórðarson.
Suðurnesjamótið
Víðir-Njarðvík.....................6:1
ReynirS. - Grindavik...............1:1
G.G. - Njarðvík....................6:0
Knattspyrna
England
1. deild:
Port Vale - Luton................1:0
Watford - Grimsby................6:3
Staða efstu liða:
Sunderland.....44 22 16 6 59:31 82
Derby..........44 20 16 8 67:47 76
Crystal Palace.44 20 15 9 66:45 75
Stoke..........43 18 13 12 56:45 67
Charlton.......43 16 18 9 53:43 66
Leicester......44 17 14 13 62:60 65
Ipswich........43 17 11 15 76:68 62
Huddersfield...43 17 11 15 60:55 62
PortVale.......43 15 14 14 55:59 59
Birmingham.....44 15 13 16 60:59 58
Sheffield United ..44 15 13 16 53:53 58
Southend.......44 15 13 16 51:59 58
Frakkland
PSG - Martigues..................0:0
Staða efstu liða:
Auxerre.........35 20 5 10 61:28 65
PSG.............35 18 10 7 58:32 64
Metz............35 17 11 7 38:27 62
Monaco..........35 17 10 8 53:33 61
Lens............35 15 14 6 40:24 59
Montpellier.....35 16 9 10 48:37 57
Íshokkí
NHL-deildin
Austurdeild:
Washington - Pittsburgh..........1:4
■ Washington er yfir 2:1.
Florida - Boston.................6:2
■ Florida er yfir 2:0.
Vesturdeild:
Vancouver - Colorado.............4:3
■ Staðan er jöfn 2:2.
Heimsmeistarakeppnin
Keppnin fer fram í Vín í Austurriki:
A-RIÐILL:
Rússland - Þýskaland.................2:1
Kanada - Slóvakía.....................3:3
Russia - Slóvaíka.....................6:2
Bandaríkin - Austurríki..................
Kanada - Austurríki...................4:0
Staðan:
Rússland................2 2 0 0 8:3 4
Kanada..................2 1 1 0 7:3 3
Bandar..................1 1 0 0 5:1 2
Slóvakía................2 0 1 1 5:9 1
Þýskaland...............1 0 0 1 1:2 0
Austurríki............ 2 0 0 2 1:9 0
B-RIÐILL:
Tékkland - Svíþjóð................3:1
Finnland - Noregur................1:1
Ítalía - Frakkland................6:5
Tékkland - Finnland................4:2
Staðan:
Tékkland.................2 2 0 0 7:3 4
Ítalía...................1 1 0 0 6:5 2
Finnland.................2 0 1 1 3:5 1
Noregur..................1 0 1 0 1:1 1
Svíþjóð..................1 0 0 1 1:3 0
Frakkland................1 0 0 1 5:6 0
Golf
Brosmót GS
Án forgjafar:
Örn Ævar Hjartarson, GS.............75
Davíð Jónsson, GS...................78
Gunnar Þ. Jóhannsson, GS............78
Með forgjöf:
Bergþór Jónsson, GR.................64
Þorsteinn Sigurðsson, GS............68
Gunnar Þ. Jóhannsson, GS............68
Snóker
Heimsmeistaramótið í Sheffield
Fyrsta umferð, sá sigrar sem er undan til
að vinna tíu leiki.
1-Stephen Hendry (Skotlandi) vann Jason
Ferguson (Englandi) 10-8. Úrslit í leikjum:
9-69 104-0 (104 í stuði) 46-74 0-71 118-1
(118) 0-67 51-75 133-0 0-129 (129) 71-6
106-0 (106) 79-17 131-0 45-67 86-1 2-122
67-2 104-0 (104).
14-Tony Drago (Möltu) vann Steve James
(Englandi) 10-2. Úrslit í leikjum: 22-73
57-29 78-6 67-60 78-23 67-64 72-16
123-14 (115) 63-1 69-25 42-64 68-48.
13-Dave Harold (England) vann Neal Fo-
ulds (Englandi) 10-4. Úrslit í leikjum: 67-72
131-1 (123) 61-43 17-69 81-0 66-52 98-0
79-24 87-15 105-34 (101) 95-0 64-71 26-76
120-2 (120).
2-Steve Davis (Englandi) vann Willie
Thorne (Englandi) 10-8. Urslit i leikjum:
31- 69 65-31 37-63 103-0 (103) 12-64 77-25
35-83 73-44 30-82 55-59 28-107 64-5
59-66 84-32 57-55 86-24 71-47 63-51.
Gary Wilkinson (Englandi) vann 16-David
Roe (Englandi) 10-9. Úrslit í leikjum: 125-0
32- 74 8-80 0-70 64-40 59-66 64-50 21-85
34-75 58-41 68-59 16-90 33-66 79-30
85-29 66-28 57-40 9-83 76-15.
Rod Lawler (Englandi) vann 4-John Parrott
(Englandi) 10-6. Úrslit leikja: 80-20 57-38
79-14 0-72 91-4 54-64 106-25 12-75 82-0
0-99 31-69 13-91 69-54 74-33 76-1 98-0.
Skíði
Reykjavíkurmótið
Svig karla:
1. SigurðurM. Sigurðsson, Árm...1.27,66
2. Pálmar Pétursson, Árm........1.30,18
3. Ásþór Sigurðsson, Árm........1.31,95
Svig kvenna:
1. Asa Bergsdóttir, Árm.........1.45,43
2. Andrea Arnadóttir, Árm.......1.54,90
3. Jóna M. Ásmundsdóttir, ÍR....1.58,20
Piltar 15-16 ára:
1. Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Árm...l.36,89
2. Óskar Steindórsson, Fram.....1.37,90
3. Sigurgeir Gunnarsson, Árm....1.46,46
Stúlkur 15-16 ára:
1. Dögg Guðmundsdóttirj Árm.....1.44,23
2. Helga Halldórsdóttir, Arm....1.45,03
3. Bryndís Haraldsdóttir, Árm...1.49,18
íslandsgangan
Gangan, sem nefnist Skíðatrimm, var hald-
in í Hlíðarflaili um síðustu helgi. Gangan
er ein af sex íslandsgöngum vetrarins.
Helstu úrslit:
17 km
Konur
1. Svanhildur Jónasdóttir, Ak......53,57
Karlar 17-34 ára:
1. Haukur Eiríksson, Ak............36,37
2. Þóroddur Ingvarsson, Ak.........36,52
3. Kristján Hauksson, Ólafsf.......36,58
4. Jón Garðar Steingrímss., Sigluf..37,23
5. Baldur Hermannsson, Ármanni.....38,26
Karlar 35-49 ára:
1. Magnús Eiríksson, Sigluf.........38,28
2. Haukur Sigurðsson, Olafsf.......42,12
3. Þórhallur Ásmundsson, Sauðárkr. ...43,19
Karlar 50 ára og eldri:
1. Kristján R. Guðmundsson, ísaf...39,01
2. Rúnar Sigmundsson, Ak...........44,18
3. Konráð Eggertsson, ísaf.........44,59
5 km
Konur
1. Guðrún Pétursdóttir, Sigluf.....26,28
2. Guðrún Magnúsdóttir, Ströndum ....28,22
3. Marta Sigvaldadóttir, Ströndum..32,04
Karlar
1. Rögnvaldur Bjömsson, Ak.........21,46
2. Grétar Orri Kristinsson, Ak.....22,07
3. Geir Reynir Egilsson, Ak........22,50
í kvöld
Knattspyrna
Deildarbikarkeppni KSÍ
Selfoss: Selfoss - Ægir.........kl. 19
Kópav.: Breiðabl. - Leiknir.....kl. 19
Fylkisv.: Fylkir - Léttir.......kl. 19
Leiknisv.: IR - ÍBV.............kl. 19
Ásvellir: HK - Haukar...........kl. 20
Skíði
Andrésar andar-leikarnir, þeir 21. í
röðinni, verða settir á Akureyri í
kvöld. 500 böm á aidrinum 9 til 12
ára taka þátt í mótinu. Keppni hefst
á morgun.
FELAGSLIF
Afmæli Víkings
Á morgun, sumardaginn fyrsta 25.
apríl, verður haldið upp á 88 ára af-
mæli Knattspyrnufélagsins Víkings.
Dagskrá hefst í Víkinni kl. 12 og
stendur til kl. 14. Deildir félagsins
verða með kynningu á starfsemi sinni,
ýmsar viðurkenningar verða veittar
og íþróttamaður Víkings valinn. Boðið
verður upp á veitingar.
Amœlisdagur Vikings
Sumardaginn fyrsta, þann 25. apríl nk.,
verður haldið upp á 88 ára afmæli
félagsins.
Dagskráin liefst í Víkiniii kl. 12.00 og stendur til kl. 14.00.
Deildir félagsins verða með kynningu á starfsemi sinni.
Ýmsar viðurkenningar verða veittar og íþróttamaður Vikings valinn.
Kaffi og veitingar • Allir velkomnir
Knattspyrnufélagið Víkingur
KNATTSPYRNA
Stærsta stundin
á þjálfaraferlinum
ATLI Eðvaldsson er eistneskur í aðra ættina. Eðvald Hinriksson,
faðir hans heitinn, var frá Eistlandi og var markvörður landsliðsins
á sínum tíma. „Pabbi byijaði feril sinn hérna og það er sérstök til-
finning að stjórna landsliðinu sem þjálfari í fyrsta sinn á heimaslóð-
um hans,“ sagði Atli við Morgunblaðið eftir leikinn í gær. „Ég náði
aldrei að spila hérna og þetta á eftir að verða ein af stærstu stundun-
um á þjálfaraferli mínum.“
Þrjá tíma í vega-
bréfsskoðun
ÞAÐ tók íslenska 21s árs liðið um þrjár klukkustundir að komast í
gegnum vegabréfsskoðun við komuna til Tallinn í Eistlandi á mánu-
daginn. Aðalástæðan fyrir því var að Ragnar Árnason úr Stjörnunni
var með vegabréf sem var útrunnið. „Það átti ekki að hleypa honum
inn í landið. En eftir mikið þras við tollverði á flugvellinum gekk það
á endanum að koma honum í gegn,“ sagði Jón Gunnlaugsson, farar-
stjóri liðsins.
Leikmenn a-landsliðsins þurftu ekki að bíða eins lengi í sambandi
við vegabréfsskoðun, „aðeins" í tvær klukkustundir.
PÍLUKAST
IÞROTTAHREYFINGIN
Þorgeir
tvöfaldur
Reykjavíkur-
meistari
ÞORGEIR Guðmundsson,
fyrrum knattspyrnumaður úr
KR, varð um helgina tvöfald-
ur Reykjavíkurmeistari í pílu-
kasti. Hann sigraði í ein-
stakiingskeppni karla, vann
Sigurð Hjörleifsson í úrslit-
um 4:3. Hann varð einnig
meistari í tvímenningi ásamt
Einari Óskarssyni. Anna
Kristín Bjarnadóttir varð
Reykjavíkurmeistari kvenna.
Á myndinni er Þorgeir með
verðlaunin sem hann hlaut á
mótinu.
Ljósmynd/Erling Ó. Aðalsteinsson
Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ,
ræddi málið í setningarræðu
sinni og rifjaði upp_ að áform um
sameiningu ÍSÍ og Óí hefðu staðið
yfir í fjögur ár en hægt miðað í
þeim málum.
Hann sagði að engu að síður
væri víðtækur og verulegur skiln-
ingur og stuðningur við slíka sam-
einingu. Allir 22 formenn sérsam-
banda ÍSÍ hefðu undirritað yfírlýs-
ingu þess efnis og vildu láta á
málið reyna á íþróttaþingi í haust.
Ennfremur kom fram í máli hans
að vaxandi og almennur stuðning-
ur við sameiningu væri innan
íþróttabandalaganna.
„Iþróttafélögin, héraðssam-
böndin og bandalögin vítt og breitt
um landið eru grasrótin í íslensku
íþróttalífí, vaxtarbroddurinn, og
þessi grasrót, hin stóra, sveit karla
og kvenna hins almenna íþrótta-
starfs úti í héraði, vill að sjálf-
sögðu hafa áhrif og hafa sitt að
segja um þau fjölmörgu alþjóða-
samskipti, sem fram fara á vegum
ólympíunefndarinnar. Eftir því
sem þau samskipti vaxa, er krafan
háværari og réttlátari. Það er lýð-
ræðisleg afskræming á fjölda-
hreyfingu sem okkar, ef einn þátt-
ur starfsins sækir ekki og þarf
ekki að sækja vald sitt eða umboð
til þeirra sem bera hita og þunga
félagsstarfsins í hreyfingunni. Það
gengur ekki lengur og stefnir í
óefni.“
Ellert sagði að um stórmál væri
að ræða. Með sameiningu fengist
sparnaður og hagræðing, sam-
ræmd yfirstjórn, lýðræðisleg
stjórnskipun í hreyfingunni og hún
kæmi í veg fyrir þann voða að
hreyfingin sundraðist í tvær áttir.
Hún væri í þágu ólympíustarfsins
innanlands því með því að tengj-
ast ÍSÍ og sækja vald sitt til hérað-
anna og félaganna sjálfra væri
ekki hætta á að ólympíumálefni
yrði útundan, misskilin eða van-
rækt. „Það er eindreginn vilji for-
ystumanna IOC, Alþjóða ólympíu-
nefndarinnar, að íþróttahreyfing
og ólympíuhreyfmg hvers lands
sé órofa heild.“
Erfitt að fá forystufólk við
óbreyttar aðstæður
Hann benti auk þess á að
íþróttahreyfingin og íþróttaforyst-
an á íslandi hefðu ekki efni á að
starfa í sundraðri sveit og sú
ábyrgð og skylda hvíidi á núver-
andi forystumönnum að sameina
kraftana í einum farvegi. „Ef ekki
tekst að fínna Íausn á þessu stóra
máli í haust með þeim afleiðingum
að ákvörðun verður enn frestað,
mun það hafa ófyrirsjánanlegan
eftirmála og það mun reynast erf-
itt fyrir hreyfinguna að fá til for-
ystu menn eða konur, sem geta
eða vilja starfa við óbreyttar að-
stæður.“
Þáttaskil
Eggert rakti gang mála frá
1992 og sagði að viðræðunefndin
sem hefði verið komið á eftir
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1996 D 3
KAPPROÐUR
AC Milan
og Atletico
Madrid til
Kína
Landsliðshópurinn
Morgunblaðið/Gunnar Rúnar Sverrisson
■SLENSKI landsliðshópurinn, sem verður í sviðsljósinu í Tallinn. Frá hægri: Sigurður Jónsson, Logi Ólafs-
son, landsliðsþjálfari, Kristinn Björnsson, aðstoðarþjálfari, Diðrik Ólafsson, lisstjóri, Ólafur Adolfsson,
Kristján Finnbogason, Arnar Grétarsson, Þórður Guðjónsson, Hlynur Stefánsson, Guðni Bergsson, Ey-
jólfur Sverrisson, Birkir Kristinsson, Bjarki Gunnlaugsson, Rúnar Kristinsspn, Lárus Orri Sigurðsson,
Geir Þorsteinsson, aðalfararstjóri, Eiður Smári Guðjohnsen. Krjúpandi eru Ólafur Þórðarson og Sigur-
steinn Gíslason. Á myndina vantar Arnór Guðjohnsen.
Atli Eðvaldsson ánægður meðfyrsta leik sinn sem landsliðsþjálfari
Strákamir léku
að mörgu leyti vel
Ungmennalið íslands og Eistlands í
knattspyrnu gerðu 1:1 jafntefli í
æfingaleik í Kethna í Eistlandi í gær
og komu bæði mörkin á síðustu fimm
mínútum leiksins. Brynjar Björn Gunn-
arsson gerði glæsilegt mark með skalla
eftir hornspyrnu Bjarnólfs Lárussonar
en heimamenn jöfnuðu fimm mínútum
síðar.
„Þetta var erfiður baráttuleikur en
strákarnir léku að mörgu leyti vel,
reyndu að gera það sem fyrir þá var
lagt og gerðu það oft ágætlega,“ sagði
Atli Eðvaldsson, þjálfari íslenska liðs-
ins, við Morgunblaðið en þetta var fyrsti
leikur hans sem landsliðsþjálfari.
Atli sagði að úrslitin væru eðliieg.
„Mótherjarnir hafa nánast verið saman
síðan í nóvember, æft 120 sinnum og
spilað yfir 20 leiki en við fórum út á
mánudag, náðum einni æfingu og vor-
um því að koma saman í annað sinn
auk þess sem flestir voru að leika fyrsta
landsleik sinn í þessum aldursflokki.
Vörnin lék þokkalega vel en við spiluð-
um ekki með „sweeper" eins og strák-
arnir eru vanir heldur vorum með flata
ijögurra manna vörn sem gekk á köfl-
um mjög vel. Auðvitað gerðu menn
mistök en það eru hlutir sem auðvelt
er að laga. Strákarnir þurfa bara tíma.“
Leikurinn fór fram við góðar aðstæð-
ur í um 20 stiga hita að viðstöddum
500 til 700 manns. „Eistlendingarnir
eru mjög líkamlega sterkir og spiluðu
fast en við gáfum ekkert eftir,“ sagði
Atli. „Markið var gott, Brynjar stökk
upp og skoraði með hörkuskalla - bolt-
inn fór í jörðina og skaust upp í þaknet-
ið. Hins vegar var jöfnunarmarkið frek-
ar klaufalegt. Boltanum var sparkað
um 20 metra til baka og Atli ætlaði
að spyrna honum fram á við en tuðran
fór í mótheija og inn. En svona gerist
alltaf af og til og ekkert við því að gera.“
Stuðningur við
ný íþróttasamtök
íþróttaþing 1994 hefði haldið níu
fundi. Sameiningamálin væru erfið
og viðkvæm en mikilvægt væri að
eitt sameinað sterkt afl kæmi fram
fyrir íþróttahreyfinguna í heild.
Ekki þyrfti að finna upp hjólið á
ný í þessu efni og vísaði til sam-
bærilegs máls í Noregi sem væri
á lokastigi. Hann sagðist óttast
að rættist óskin um sameiningu
ekki brátt væri veruleg hætta á
að forystumenn sérsambanda fjar-
lægðust forystumenn héraðs-
bandalaga og íþróttabandalaga.
Sérsamböndin sættu sig ekki við
óbreytt valdahlutföll á íþróttaþingi
og yrði ekki breyting á fylktu þau
sér um Ólympíunefndina. „Við eig-
um á hættu vissa sundrungu í
okkar hreyfingu ef við náum ekki
til lands í þessu þýðingarmikla
máli. Okkur ber að horfa á þetta
mál út frá hagsmunum heildarinn-
ar og láta ekki minni hagsmuni
skemma fyrir meiri.“
Hann sagði að þáttaskil hafi orðið
í starfi nefndarinnar 18. mars sl.
Eggert Magnússon, formaður
-- p-—----------—y------g— -
viðræðunefndar ISI og QI,
greindi frá störfum nefndarinn-
ar vegna hugsanlegrar samein-
ingar og kynnti drög að tillögum
að lögum fyrir ný samtök,
Ólympíu og íþróttasamband
íslands, ÓSÍ, á sambandstjóm-
arfundi ÍSÍ um helgina.
Steinþór Guðbjartsson fylgd-
ist með umræðunum en fram
kom ótvíræður stuðningur við
hugmyndirnar með þeim fyrir-
vara að breytingar sem allir
sættu sig við yrðu gerðar.
þegar hann lagði fram tillögur að
lögum fyrir ný samtök, Ólympíu
og íþróttasamband íslands, en
drögin hefði hann samið með
dyggri aðstoð Ara Bergmanns
Einarssonar, ritara Óí. A sama
fundi hefði Júlíus Hafstein, for-
maður Óí, lagt fram tillögu um
að nefndin undirbyggi drög að lög-
um nýrra samtaka sem grundvall-
aðist á ólympíusáttmálanum, hug-
sjónum ólympíuhreyfingarinnar og
túlkun IOC á ólympíusáttmálan-
um. „Tillaga sú sem ég lagði fram
náði yfir nánast öll þau atriði sem
upp eru talin í tillögu formanns
Ólympíunefndar.“
Eggert fjallaði ekki efnislega
um tillöguna þar sem hún hefði
verið send stjórnum allra sam-
bandsaðila en sagði að nefndin
væri byrjuð að fara markvisst yfir
drögin í þeim tilgangi að samræma
sjónarmið nefndarmanna. „Hann
sagði að nefndinni bæri að skila
fullmótuðum tillögum til fram-
MEIST ARALIÐ Kína í knatt-
spyrnu, Shanghai Shenhua, mun
leika gegn toppliðum Ítalíu og
Spánar, AC Milan og Atletico
Madrid, i maí og júní. Shenhua
leikur gegn AC Milan fyrir fram-
an 28 þús. áhorfendur á
Hongkou-leikvellinum 28. maí og
Atletico Madrid 5. júní. Þetta
verða tveir mestu knattspyrnu-
leikirnir sam hafa farið fram í
borginni. Það kostar liðið 28,3
millj. ísl. kr. að fá AC Milan til
að koma til Kína - liðið mætir
með alla sína sterkustu leikmenn.
Sölvi þjálf-
aði einnig
Færeyinga
ÞEGAR við rifjuðum upp í gær
hvaða Islendingar hafa sljórnað
landsliðum í landsleikjum gegn
íslandi, féll niður nafn Sölva
Óskarssonar, fyrrum þjálfara
Þróttar og Breiðabliks, sem var
landsliðsþjálfari Færeyinga á
árum áður.
Hér kemur listinn yfir þá ís-
lendinga sem hafa sljórnað
landsliði Færeyringa í a-lands-
leik gegn Islandi:
Sölvi Óskarsson.
1972: ísland - Færeyjar..3:0
Eggert Jóhannesson.
1974: Færeyjar - ísland..2:3
Örn Eyjólfsson.
1975: Island - Færeyjar..6:0
Páll Guðlaugsson.
1990: Færeyjar - ísland..2:3
Teitur Þórðarson stendur í
sömu sporum og þessir þjálfarar,
þegar hann stjórnar landsliði
Eistlands gegn Islandi í Tallinn
í kvöld.
næsta íþróttaþing svo fram-
kvæmdastjórnin hefði ráðním til
að leggja málið fyrir þingið og
framkvæmdastjórn ÓI fyrir næsta
aðalfund. „Að þessu takmarki
miðast starfið í nefndinni nú og
þetta mun takast með markvissum
og jákvæðum skilningi og vinnu-
brögðum nefndarmanna.“
Sameining ekkert mál
Reynir Ragnarsson, formaður
Iþróttabandalags Reykjavíkur,
sagði að IBR hefði mesta atkvæða-
vægi innan ÍSÍ en samkvæmt
drögunum væri fækkun fulltrúa
óhjákvæmileg og hún hefði mest
áhrif hjá bandalaginu. Hann sagði
að ÍBR hefði haldið tvo fundi um
málið síðan drögin voru kynnt og
menn væru almennt á þeirri skoð-
un að sameining í einhveiju formi
væri æskileg. „Það er betra að
eiga færri fulltrúa í sterkum sam-
tökum en marga í áhrifalausum
samtökum."
Hann benti á að samt sem áður
væri margt sem þyrfti að skoða
betur í drögunum og nefndi nokk-
ur dæmi máli sínu til stuðnings,
m.a. að skoða þyrfti möguleika á
að héraðssambönd í sama kjör-
dæmi kæmu sér saman um full-
trúa á íþróttaþingi og að fulltrúar
yrðu kjörnir á þingi viðkomandi
sérsambands. Hann þakkaði Egg-
erti fyrir drögin og sagði samein-
ingu ekkert mál. „Það er verið að
sameina fyrirtæki á nokkrum vik-
um þar sem tugmilljóna króna
Anna Lára og
Ármann sóttu
gull til Skotlands
Anna Lára Steingrímsdóttir og
Ármann Kojic Jónsson frá
siglingaklúbbnum Brokey í Reykja-
vík unnu til tvennra gullverðlauna
og fimm silfurverðlauna á alþjóð-
legu móti .í kappróðri í Strathclyde
í Skotlandi um helgina.
Krakkarnir, sem eru 18 ára,
kepptu á einrónum bátum en kepp-
endur voru um 300 talsins. Fyrri
keppnisdag sigraði Ármann í flokki
hagnaður er í veði en hér eru tug-
milljóna króna skuldir í veði. Það
er ekkert mál að sameina þetta
ef menn vilja og koma sér saman
um leikreglur.“
Grasrótina vantar
Jónas Þór Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Ungmenna- og
íþróttasambands Austurlands,
UIA, sagði margt ágætt í drögun-
um en vitnaði í orð forseta ÍSI um
að grasrótin ætti að ráða en eng-
inn úr grasrótinni frá héraðssam-
bandi eða íþróttabandalagi væri í
samstarfsnefndinni. „Menn eru
hræddir við þetta.“
Atkvæðaskiptingin erfiðust
Einar Ole Pedersen, formaður
Ungmennasambands Borgafjarð-
ar, UMSB, sagði að erfiðast væri
að eiga við atkvæðaskiptinguna.
Hann sagðist aldrei hafa skilið
tortryggni sérsambanda út í hér-
aðssamböndin því um væri að
ræða samheija og skrýtið ef þeir
væru andstæðingar á íþrótta-
þingi.
Ekki vandamál
Benedikt Geirsson, formaður
Skíðasambandsins, sagðist ekki
sjá fyrrnefnt vandamál. Héraðs-
sambönd og íþróttabandalög kysu
fulltrúa í sérsambönd og ef þeir
væri í andstöðu við hreyfinguna
væru þeir farnir. „Við vinnum
náið saman og því er þetta ekkert
vandamál."
18 ára og eldri en Anna Lára varð
í öðru sæti í léttvigt og þungavigt
í flokki 18 ára og eldri. Seinni dag-
inn sigraði Anna Lára í þungavigt
i flokki 18 til 23 ára og varð í öðru
sæti í léttvigt í flokki 18 ára og
eldri. Þá hafnaði Ármann í öðru
sæti í léttvigt og þungavigt í flokki
18 ára og eldri.
Anna Lára og Ármann tóku þátt
í alþjóða mótum í fyrsta sinn í fyrra
og unnu þá einnig til verðlauna.
Þau hafa æft af kappi í vetur und-
ir stjórn Leone Tinganelli, sem hef-
ur þjálfað íslenska kappróðramenn
í 10 ár. Keppendurnir sögðu við
Morgunblaðið að árangurinn í Skot-
landi væri uppskera þrotlausra æf-
inga en vegna aðstöðuleysis á ís-
landi væri nauðsynlegt að keppa á
mótum erlendis. „Heimsmeistara-
mótið fer fram í Skotlandi i ágúst
og þar sem við verðum þá með var
mikilvægt að kynnast aðstöðunni
og sjá hvar við stöndum í^saman-
burði við aðra,“ sagði Ármann.
„Við höfum æft 11 sinnum í hverri
viku en það er ekki aðeins tíma-
frekt að ná árangri heldur einnig
kostnaðarsamt. Til að komast á
toppinn verðum við að keppa á
mótum erlendis en við höfum ekki
fjármagn til að gera það sem þarf.“
Anna Lára tók í sama streng. „Ár-
angurinn bendir til þess að við eig-
um fullt erindi í svona keppni en
aðstæður hérna heima eru ekki
sambærilegar við keppnisaðstæður
erlendis og ef við ætlum lengra
verðum við að sækja alþjóða mót.“
Þau bættu við að aðstoð frá er-
lendum róðrarsamböndum og Al-
þjóða róðrarsambandinu auk styrks
frá Siglingasambandi íslands hefði
samt haft mikið að segja.
Fyrirhugað er að þau taki þátt í
þremur mótum erlendis í sumar.
Þar er um að ræða alþjóða mót í
Kaupmannahöfn eftir fjórar vikur,
heimsmeistarakeppni 23 ára og
yngri í Belgíu í júlí og svo fýrr-
nefnt heimsmeistaramót í Skotlandi
í ágúst. „Krakkarnir stóðu sig mjög
vel og þeir hafa alla burði til að
gera betur,“ sagði þjálfarinn Leone
Tinganelli.
Morgunblaðið/Ásdís
ANNA Lára Steingrímsdóttir, nemandi í Menntaskólanum í
Reykjawík, og Ármann Kojic Jónsson, nemandi í Kvennaskó-
lanum, með gullverðlaunin.