Morgunblaðið - 28.06.1994, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
JHmrðtittlilaftÍfr
C
1994
ÞRIÐJURDAGUR 28. JÚNÍ
BLAÐ
adidas
Argentína
leikur í Adidas
KNATTSPYRNA II HANDBOLTI
Sigurður í
aðgerð í dag
Sigurður Jónsson, landsliðsmað-
ur í knattspyrnu frá ÍA, fer í
aðgerð í dag vegna kviðslits.
Meiðslin komu í ljós fyrir skömmu,
en hann lék þó með gegn KR fyrir
helgina. Sigurður sagði, í samtalið
við Morgunblaðið, að heppnaðist
aðgerðin vel gæti hann hugsanlega
verið kominn á fulla ferð eftir viku
til tíu daga — og hugsanlega verið
með í næsta deildarleik, gegn ÍBK,
sem er einmitt eftir tíu daga. Sig-
urður missir því jafnvel aðeins af
bikarleik ÍA gegn Leikni á morgun.
Hallsteinn meiddur á hné
Hallsteinn Arnarson tengiliður
hjá FH er meiddur og leikur ekki
með Hafnarfjarðarliðinu í bikar-
keppninni á morgun en þá mætir
FH liði Aftureldingar í Mosfellsbæ.
Hallsteinn varð að fara af leikvelli
í fyrri hálfleik í 1. deildarleiknum
gegn Eyjamönnum í Eyjum á föstu-
daginn og er talið að liðbörd í hné
séu tognuð.
„Ég vona að liðböndin séu ekki
slitin, en það kemur í ljós síðar í
vikunni. Hallsteinn leikur alla vega
ekki með okkur gegn Aftureldingu
á fimmtudaginn," sagði Hörður
Hilmarsson þjálfari FH í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Klinsmann
markahæstur
ÞJÓÐVERJINN Jiirgen Klinsmann er
markahæsti leikmaður riðlakeppninnar
í heimsmeistarakeppninni í Bandaríkj-
unum, hefur gert fjögur mörk. Hann
skoraði tvívegis í gærkvöldi þegar
heimsmeistararnir mörðu 3:2 sigur á
liði Suður-Kóreumanna. Á myndinni
fagnar Thomas HáSsler félaga sínum
Klinsmann, en sá fyrrnefndi lagði upp
markið fyrir markahrókinn þýska.
Keppni er lokið í A og C-riðli og þau
lið sem eru örugg áfram úr þeim riðlum
eru Sviss og Rúmenía úr A-riðli og Þjóð-
veijar og Spánveijar úr C-riðli. Keppnin
heldur áfram í dag og ráðast úrslitin í
B riðli, þar sem Brasilía mætir Svíþjóð
og Rússland spilar við Kamerún, og í
E-riðli, með viðureign írlands og Noregs
annars vegar og hins vegar Ítalíu og
Mexíkó. Síðustu leikirnir í riðlakeppn-
inni verða á fimmtudaginn en 16 liða
úrslitin hefjast á laugardaginn.
Reut«r
■ IMánar um HM / C3,
C6-C9 og C14
HANDKNATTLEIKUR
Inga Lára til IMoregs
INGA Lára Þórsidóttir, leik-
stjórnandi og fyrirliði Víkings,
mun líklega leika með norsku
liði, Refstad Veitvet, í fyrstu
deildinni þar í landi næsta
vetur.
|^jálfari liðsins, sem er fyrrum
landsliðsmarkvörður
kvennalandsliðsins, hafði sam-
band við mig vegna þess að miðju-
maðurinn hjá liðinu er að hætta,
sagði Inga Lára í samtali við
Morgunbiaðið í gærkvöldi. Þjálf-
arinn þekkir vel til íslenks kvenna-
handknattleiks og var meðal ann-
ars með námskeið hér á landi í
fyrra. Með liðinu leikur ein sterk-
asta skytta Norðamanna, Ingrid
Steen.
Inga Lára ætlar að gera meira
en leika handbolta með Oslóarlið-
inu Refstad Veitvet því hún stefnir
einnig að skólavist. „Ég er að von-
ast til að ég komist inn í íþróttahá-
skólann í Osló, en fæ ekki svar
fyrr en í byijun júlí. Ég ætla á
tveggja ára þjálfarabraut í hand-
knattleik en ég held að ég fari til
Refstad þó svo ég fái ekki inni í
skólanum,“ sagði Inga Lára.
Refstad Veitvet er sterkt lið í
einni sterkustu kvennadeild
heimsins þannig að munurinn
verður væntanlga mikill fyrir Ingu
Láru: „Já, þetta verður mikill
munur því deildin er gríðarlega
sterk og þar leika stelpur frá
mörgum löndum þannig að þetta
verður spennandi og erfitt,“ sagði
Inga Lára sem fer utan í byijun
ágúst, en hún segist hafa haft
hug á að prófa að spila erlendis
síðustu tvö árin.
Gústaf
íHauka
GÚSTAF Bjarnason línumaður
hjá Selfossi og landsliðinu hef-
ur ákveðið að söðla um og leika
með Haukum úr Hafnarfirði
næsta vetur.
Maður hefur verið að hugsa um
það í nokkurn tíma hvort
skynsamlegt væri að prófa eitthvað
nýtt og ég hef verið í viðræðum við
Hauka alveg frá því mótinu lauk
og í gærkvöldi var gengið frá
þessu,“ sagði Gústaf í gærkvöldi.
„Ég mat það þannig að það væri
kominn tími á mig að breyta til og
athuga hvort maður gæti bætt sig,
en mér finnst eins og ég hafi dálít-
ið staðnað enda leikið með Selfoss-
liðinu alla tíð, eða svo gott sem.
Ég fór einn vetur til Eyja þegar ég
var í öðrum flokki, en það var svo
stutt að það telst eiginlega ekki
með. ég held að það sé oft gott að
breyta til,“ sagði Gústaf.
KAPPAKSTUR
Mansell með?
Miklar líkur eru á að fyrrum
heimsmeistari í kappakstri,
Bretinn Nigel Mansell, hefji keppni
á nýjan leik í Formula 1 keppni,
en hann hefur keppt í IndyCar í
Bandaríkjunum í vetur. Williams
liðið hefur boðað til blaðamanna-
fundar í dag, þar sem búist er við
að tilkynnt verði að Mansell muni
keppa í Frakklandi um helgina.
TENNIS: ENN FLEIRI „STJORNUR" UR LEIK A WIMBLEDON / C16