Morgunblaðið - 14.06.1989, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 14.06.1989, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐE) ÍÞRÓTTIR MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1989 KNATTSPYRNA / HEIMSMEISTARAKEPPNIN Skynsemin ræður Ásgeir Sigurvinsson segir íslenska liðið verða að spila út frá öruggri vörn og hafa hugann við að fá ekki á sig mark „STEMMNINGIN íhópnumer mjög gott og hugarfarið í mannskapnum rétt. Ég held að menn geri sér grein fyrir því með hvernig hugarfari verður að fara í leikinn. Sú hlið verður ekkert vandamál," sagði Ás- geir Sigurvinsson í samtali við Morgunblaðið um HM-leikinn gegn Austurríkismönnum á Laugardaisvelli í kvöfd. Asgeir segir leikmenii vera jarð- bundna — minnuga þess að bjartsýni getur verið hættuleg. „Það yrði auðvitað æðislega gaman að leggja Austurríkismenn en við höfum allan vara á því að vera að tala of mikið um það. Ég held að það sé skynsamlegast." Hvað með leikaðferð íslenska liðsins. Er ekki skynsamlegast Frá Önnu Bjamadóttur ÍSviss ■ BLÖÐ í Austurríki sögðu frá því í gær að íslendingar væru mjög baráttuglaðir og líkamlega sterkir og spili svipaða knattspyrnu og gerist í Eng- landi. Ekkert lið geti lengur bókað sigur gegn litla Is- landi lengur, hvað þá á heimavelli. ■ HERBERT Prohaska, leik- stjómandi Austurríkismanna, á við smávægileg meiðsli að stríða, en gert er ráð fyrir að hann leiki með í dag. ■ SIEGFRIED Held, landsliðs- þjálfari íslands og Josef Hickers- berger, þjálfari Austurríkis, eru gamlir félagar og léku á sínum tíma með Kickers Offenbach eins og kom fram í Morgunblaðinu í gær. Þeir eru mjög varkárir í tilsvörum við austurrísku blöðin um leikinn og segja báðir að liðin geti bæði unnið og dagsformið komi til með að ráða úrslituim ■ A USTURRÍSKU blaðamenn- irnir segja að klukktíma seinkun hafi orðið á flugvélinni sem flutti liðið til íslands. Þeir minna á að þriggja tíma seinkun hafi verið á flugi þeirra til Oslóar á dögunum er þeir töpuðu fyrir Norðmönnum, 4:1. Hvort samhengi er þarna á milli skal ósagt látið en blaðamenn- imir voru greinilega að gefa það í skyn. HM 3. RIÐILL Fj. leikja U J T Mörk Stig SOVÉTRÍKIN 5 3 2 0 8: 2 8 TYRKLAND 5 2 1 2 8: 6 5 AUSTURRÍKI 3 1 1 1 4: 5 3 fSLAND 4 0 3 1 3: 5 3 A-ÞÝSKALAND 5 1 1 3 4: 9 3 að hún verði sú sama eg venju- lega? Að liðið bakki og sæti lagi á að ná skyndisóknum? „Jú, ég hugsa að hún verði mjög svipuð og áður hjá okkur. Við þurf- um ekki að bakka mjög mikið, en verðum að spila út frá öruggri vörn og hafa hugann við það að fá ekki á okkur mark því okkar tækifæri koma. Við fáum í minnsta lagi þijú til fjögur tækifæri til að skora.“ Urslitin í Moskvu hafa væntan- lega komið þér þægilega á óvart? „Já, ég bjóst alls ekki við að lið- ið næði stigi í Moskvu. En liðið lék mjög skynsamlega, og eftir að hafa náð að jafna alveg í lokin megum við vera mjög ánægðir með árang- urinn. Það var töluvert um þetta talað í Þýskalandi, og víðar reyndar veit ég, og fannst mönnum þetta auðvitað mjög góður árangur." Hefurðu séð þetta austurriska lið spila? „Nei, ég hef ekki séð mikið til Austurríkismanna. Ég sá til dæmis ekki leikinn í Austur-Þýskalandi, en frétti af því að þeir hefðu spilað mjög vel — verið betri aðilinn í þeim leik. Ég hugsa því að þeir verði mjög erfiðir hér; þetta er gott lið.“ Hvernig lýst þér á þær vonir sem fólk hér á landi virðist vera farið að gera sér um aðjþið kom- ist í úrslitakeppnina á Italíu? „Ég held að enginn í hópnum sé farinn að hugsa svo langt. Það er heldur ekki skynsamlegt að menn fari að leika sér með tölur og tala um annað sætið í riðlinum. Það er eitthvað sem við eigum ekki að velta fyrir okkur í augnablikinu. Það er ekkert nýtt að fólk sé að leika sér með tölur, en það hefur alltaf farið á verri veginn þegar eitthvap svoleiðis hefur verið gert,“ sagði Asgeir. Asgeir Sigurvinsson. Verðum að halda okkur á jörðinni - segir GuðmundurTorfason sem verður í fremstu víglínu „LEIKURINN leggst vel í mig, en við gerum okkur grein fyrir því að Austurríkismenn hafa á að skipa mjög góðum leik- mönnum sem allir eru atvinnu- menn," sagði Guðmundur Torfason, sem leikur með Rapid Vín í Austurríki og þekk- ir því vel til austurrfska liðsins. jr Eg tel að það séu tímamót í íslenskum fótbolta. Við eygjum nú möguleika á að komast í úrslit heimsmeistarakeppninnar í fyrsta sinn. Þess vegna verða leikmenn að koma sér niður á jörðina og gefa sig meira en hundrað prósent í leikinn eigi góður árangur að nást,“ sagði Guðmundur. „Austurríska liðið hefur á að skipa mjög góðum einstaklingum, en hefur fengið ákúrur fyrir að leika ekki sem liðsheild. Liðið lék vel gegn Austur-Þýskalandi fyrir skömmu og var óheppið að vinna ekki. Þjálfarinn gerði þá skyssu að láta liðið bakka eftir að hafa kom- ist yfir í stað þess að halda áfram með sama leikstíl. Ég tel að úrslitin í Noregi [1:4 tap] hafi verið slys og því ekki marktæk. Austurríska liðið hefur verið gagnrýnt mikið eftir tapið og leikur því undir mik- illi pressu á Laugardalsvelli. Hættulegasti leikmaður þeirra er Anton Polster, sem leikur með Sev- illa á Spáni. Hann er mikill marka- hrókur og það má ekki líta af hon- um eitt augnablik. Með honum í framlínunni verður líklega Andreas Ogris, Austría Vín, sem er mjög snöggur. Herbert Prohaska er frægasti og leikreyndasti leikmaður austurríska liðsins og er mjög góður leikstjórnandi. Hann hefur sagt að leikurinn hér verði sinn síðasti og Byrjunarliðið Tvær breytingar verða á byij- unarliði íslands í kvöld frá því í viðureigninni gegn Sovét- mönnum í Moskvu. Asgeir Sigur- vinsson kemur inn fyrir Ómar Torfason og Sævar Jónsson tekur stöðu Ágústs Más Jónssonar. Siegfried Held, landsliðsþjálf- ari, sagði i samtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi að Ásgeir Sig- urvinsson væri mun betri af bak- meiðslunum en daginn áður og nær öruggt væri að hann léki. Byijunarliðið verður því þann- ig, að sögn Helds, að Bjarni Sig- urðsson stendur í markinu, Guðni Bergsson, Atli Eðvaldsson og Sævar Jónsson verða í vöminni, tengiliðir verða Gunnar Gíslason og Ólafur Þórðarson, sem leika á vængjunum, Ásgeir Sigurvinsson, Sigurður Jónsson og Pétur Am- þórsson, og í fremstu víglínu verða Sigurður Grétarsson og Guðmundur Torfason. Varamenn verða Guðmundur Hreiðarsson, markvörður, Halldór Áskelsson, Rúnar Kristinsson, Þorvaldur Örlygsson og Viðar Þorkelsson. því mikið í húfi fyrir hann að ná hagstæðum úrslitum.“ Guðmundur sagði að Austurríkis- menn hafi talið það nánast forms- atriði að vinna Islendinga áður en Island náði öðm stiginu í Moskvu. „Nú er breytt hljóð úr horni og þeir gera sig ánægða með jafntefli í Reykjavík. Ég hef trú á því að Austurríkismenn byiji ekki með heinum látum heldur fari rólega af stað og sjái hvernig leikurinn þró- ast. Annars held ég að það verði dagsformið sem komi til með að ráða úrslitum.“ Guðmundur meiddist í leik með Rapid Vín á þriðjudaginn í síðustu viku, en hefur verið hjá sjúkraþjálf- ara síðan og sagðist vera búinn að ná sér. „Ég spilaði ekki síðasta leik Rapid Vín í deildinni á föstudaginn vegna meiðsla, en hef verið með á fullu á æfingunum með landsliðinu og ekki fundið til. Svo ég er bjart- sýnn fýrir leikinn," sagði hann. ■ GUÐNI Bergsson ætti að vita hvað tímanum líður héðan í frá — við hádegisverðarborðið í gær fékk hann afhent úr að gjöf frá KSÍ, í tilefni þess að hann lék 25. lands- leik sinn á dögunum. Þeim áfanga náði hann gegn Englendingum. ■ PÉTUR Amþórsson hlaut svöðusár á annan fótinn á síðari æfingunni í gær. Þorsteinn nudd- ari Geirharðsson batt um sárið, og síðan hélt Pétur áfram og verð- ur með í kvöld. Hann kallar greini- lega ekki allt ömmu sína. ■ HÉR á árum áður tíðkaðist það fyrir landsleiki að leikmenn færu til rakarans rétt fyrir leik og mættu með herraklippingu í barátt- una. Þrír landsliðsmannanna fóru í gær að dæmi forvera sinna í liðinu. Guðni Bergsson, Pétur Arnþórs- son og Gunnar Gíslason fóru allir á hársnyrtistofuna í kjallara Holiday Inn hótelsins, þar sem liðið. hefur dvalist undanfarna daga, í gær, og létu skerða hár sitt. þeir mæta með stuttklippta drengjakolla til leiks í kvöld. Guðni Pétur ■ GUÐMUNDUR Torfason, sem líklega ber titilinn síðhærðasti landsliðsmaðurinn, sagðist í gær ekki þurfa að fara að dæmi félag- anna þriggja. „Ég hef engin grá hár sem ég þarf að losna við!“ sagði hann. ■ FORSALA miða á landsleik=— inn í gær gekk mjög vel. Rúmlega sex hundruð miðar voru eftir í stúku þegar sala hófst, og seldur þeir miðar á svipstundu. Mikið hefur einnig verið selt í stæði og er ljóst að fjölmenni verður í Laugardalnum í kvöld. GETRAUNIR Svíar reikna með íslenskum sigri LEIKUR íslands og Austurríkis í kvöld er á sænska getrauna- seðlinum. Svíar búast við íslenskum sigri þvílægsta upp- hæðin er borguð fyrir sigur Is- lands (1,9). Hæsta upphæðin fæst fyrir jafntefli (2,95), en svipað fyrir sigur Austurríkis- manna (2,6). Ef menn vilja t.d. leggja tíu krón- ur á íslenska sigur frá þeir 19 til baka. Veðji þeir á jafntefli fá þeir 20 en 26 krónur veðji þeir á útisigur og hafi rétt fyrir sér. Sænska getraunakerfið (Odd- sett) er töluvert frábrugðið því íslenska. Þar velja menn þijá leiki af seðli og ef þeir eru með þá alla rétta fá þeir greiddan vinning í hlut- falli við líkurnar. Þess má geta að hugbúnaðurinn við þetta kerfi er framleiddur af sömu aðilum og framleiddu íslenska kerfið og hjá íslenskum getraunum er mikill áhugi á að taka þetta kerfi upp, enda gengur það í lottó-kassana. -ekk' Lauqardaqur kl. 13:25 -- 24. LEIKVIKA- 17.júní1989 m X m Leikur 1 Fram * Valur Leikur 2 B. Miinchen - Bochum Leikur 3 W. Bremen - Stuttgart Leikur 4 M. Gladbach - H.S.V. Leikur 5 Mannheim - Kðln Leikur 6 B. Dortmund - Karlsruhe Leikur 7 Hannover - E. Frankfurt Leikur 8 St. Kickers - Núrnberg Leikur 9 St. Pauli - B. Uerdingen Leikur 10 B.Leverkusen - Kaisersl. Leikurn Kongsvinger - Brann Leikur 12 Rosenborg - Vikinq Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464. LUKKULÍNAN S. 991002 Ath. breyttan lokunartíma! Z

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.