Morgunblaðið - 14.06.1989, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 14.06.1989, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1989 Minning: Valdimar Jónsson stórkaupmaður Fæddur 14. júní 1921 Dáinn 7. júní 1989 Það er svo erfitt að trúa þ.ví að nú sé afí sofnaður og vakni ekki aftur. Það er svo erfitt að skilja lífið og dauðann og það er svo erfítt að ímynda sér tilveruna án afa. Hvað það var alltaf gott að koma til afa og ömmu „í brún“. Þar var alltaf nógur tími fyrir alla og alltaf var afi tilbúinn að sýna okkur björtu hliðamar á lífinu og tilverunni. Hann var duglegasti, skemmtilegasti og besti afi sem nokkurt barn gæti eignast. Minningin um afa mun allt- af lifa í hjörtum okkar og við vitum að hann mun vaka yfír okkur og fylgja okkur alla okkar lífsleið. Elsku amma nú líður afa vel og megi guð almáttugur styrkja þig í sorg þinni. Bamaböm í dag er kvaddur Valdimar Jóns- son heildsali, sem lést þann 7. júní sl. tæplega 68 ára að aldri. Valdimar var allur stór í sniðum, hávaxinn og vörpulegur. Hann hafði sem ungur hrafnsvart hár og yfír honum var nokkuð suðrænt yfir- bragð. En Valdimar var ekki aðeins stór á ytra borðinu. Lundin var stór, hann var skapmaður en fór val með skap sitt, var manna stoltastur og gætti mjög að heiðri sínum. Honum var í blóð borin rík réttlætiskennd og vildi á engan halla, heiðarleika og reglusemi mat hann mikið og fyrirleit óheilindi og undanbrögð. Þessir eðlisþættir Valdimars voru líka metnir í áratugalöngu starfi hans að verslun og viðskiptum. Óhæfíleg sérdrægni ráðamanna þjóðarinnar og embættismanna, tvö- feldni og staðfestuleysi, var eitt af fáu, sem ollu nokkurri reiði hjá Valdimar. Hann hélt í heiðri sígildum borgaralegum viðhorfum eins og þau gerast best. Valdimar sneri sér ungur að versl- unarstörfum eða fljótlega að loknu námi í Verslunarskólanum. Aðspurð- ur sagðist hann ekki hafa verið sinn- aður fyrir búskap, þótt bóndasonur væri. Ævistarf hans varð á sviði verslunar og viðskipta, lengst af í eigin fyrirtæki, heildversluninni K. Þorsteinsson og Co. Valdimar var harðduglegur til allra verka, hafði sérstakt yndi af líkamlegri vinnu, sérstaklega smíðum og annarri vinnnu við húsbyggingar. Enda byggði hann að meira og minna leyti þijú einbýlishús og nú síðast tveggja hæða einbýlishús í Fannafold 71. Byggingu þess lauk hann rétt í þá mund að hann fór að kenna þess sjúkdóms sem varð honum að aldurt- ila. Það var sérstök ánægja, að sjá Valdimar að vinnu, dugnaðurinn og þrekið var slíkt. Yngri menn máttu hafa sig alla við, ef þeir ætluðu að fylgja honum í verkum. Það var líka alltaf áhyggjuefni fjölskyldu hans, að hann gengi of nærri sér við vinn- una, hvort sem var úti eða inni við. Næmt auga Valdimars fyrir verk- lagni og vinnu við húsbyggingar hljóta að hafa gagnast honum vel við dagleg störf. Heildsalan sérhæfði sig í innflutningi á handverkfærum og hafði einkaumboð fyrir margar þekktustu tegundir verkfæra, svo sem Stanley, Stahlville, Kongsberg og Lysbro/Zink-garðverkfæri. Starfs síns vegna þurfti Valdimar eðlilega oft að fara erlendis, þá oft- ast til Þýskalands. Þangað þótti honum best að koma, kunni vel að meta ýmis sérkenni í fari Þjóðveija éins og stundvísi, eljusemi, reglu- semi og næmt auga fyrir skipulagi. Fyrirtæki Valdimars naut almennrar virðingar fyrir traust, áreiðanleika og sanngirni. Er það ekki að undra þar sem Valdimar lagði metnað sinn í að rekstur þess væri í samræmi við grundvallarsjónarmið hans sjálfs. Af þeirri sérstöku forsjálni sem ein- kenndi Valdimar tók hann þátt í byggingu húsnæðis fyrir heildsölur inni í Skútuvogi, þar sem húsnæði heildsölunnar var aukið um helming. Var það á síðasta ári eða á sama tíma og hann stóð í byggingu húss- ins í Fannafold. Framkvæmdir voru Valdimar að skapi, og þótti heldur dauflegt, ef ekki þurfti að ráðast í einhver verk eða framkvæmdir. Rekstur heildsölunnar var alla tíð arðsamur, þar sem Valdimar hafði góða tilfínningu fyrir vönduðum rekstri og nauðsynlegri aðgæslu í peningamálum. Valdimar var gæfumaður í einka- lífí sínu. Þau hjónin, Valdimar og Dóra, byggðu upp gott heimili, þar sem rausnarskapur og hlýja sátu í fyrirrúmi. Heimilið var alla tíð stórt, börnin alls 5 og barnabömin 12. Það var Valdimar sérstök ánægja að hafa sem flesta af íjölskyldunni hjá sér enda var hann sérstakur heimilis- faðir, vandaði uppeldi sinna af þeim sama metnaði, sem einkenndi hann sjálfan, og hlúði að og studdi afkom- endur sína. Áður er minnst á for- sjálni hans. Þegar Valdimar réðst í byggingu hússins í Fannafold, réð þar nokkru um að hann vildi minnka við sig á þann hátt að fá tvær íbúð- ir til umráða í sama húsi. Þannig gæti hann látið böm eða barnabörn njóta annarrar íbúðarinnar eftir þörfum. Fluttu þeir feðgar, Valdimar og Guðjón, saman með konur sínar. Er það Dóm mikill styrkur að hafa son sinn og fjölskyldu hjá.sér á þess- um erfiðu tímum. Það hefur verið einstakt happ að mægjast við Valdimar Jónsson. Slíkir heiðursmenn eru ekki algeng- ir. Af slíkum manni mátti margt læra fyrir utan þá ánægju að vera honum samferða síðastliðinn áratug. Það er því mér, sem tengdasyni hans, sjálfsagt að þakka fyrir alla þá vinsemd, aðstoð og góðvild, sem hann alla tíð sýndi. Blessuð sé minn- ing Valdimars Jónssonar. Ólafur Klemensson Þann 7. júní síðastliðinn andaðist í Landspítalnum tengdafaðir minn, Valdimar Jónsson, eftir hetjulega baráttu við illkynja sjúkdóm. Hann sem alla tíð hafði verið mjög hraust- ur tók því með miklu æðruleysi þegar sjúkdómurinn uppgötvaðist fyrir tæpu ári. Valdimar fæddist á Flugumýri í Skagafirði, sonur hjónanna Jóns Jónassonar bónda þar og seinni konu hans, Sigríðar Guðmunds- dóttur. Þar ólst hann upp með systkinum sínum þrem, tveim hálf- systrum og fóstursystur. Þessi Flugumýrarsystkini, böm þeirra og bamabörn hafa alla tíð haft mjög náið samband og veit ég ekki sam- heldnari fjölskyldu en þessa, svo vel vaka þau yfir velferð hvors ann- ars. Valdimar var ekki allra og finnst mér lýsing sem skrifuð hefur verið um föður hans vera að mörgu leyti mjög vel til fallinn að lýsa Valdi- mari, en um föður hans, Jón á Flugumýri, skrifar Gísli Magnússon í Eyhildarholti meðal annars: „Hann var greindur vel, hygginn í besta lagi, og vom þau honum eðlisgró- inn, íjármálvit hafið yfír allan efa. Hitt vissu líka þeir sem þekktu manninn best, að hjartað var gott og geðið hlýtt, þegar inn kom úr harðhnjósku hins ytra borðs. Eigi var hann allra, satt er það, þurr á manninn og stundum höstugur, einkum þegar honum þótti skorta manndóm, orðheldni og ábyrgðar- kennd, en á hinn bóginn hjálpfús og hoHráður, rammmtraustur mað- ur, felldi aldrei niður velvild sína til nokkurs manns, þess er hann einu sinni hafði bundið tryggð við.“ Ég vil gera bessa lýsingu af Jóni bónda á Flugumýri að minni, á syni hans Valdimar, svo mjög fínnst mér hún passa við hann. Það eru orðin rúm tuttugu ár síðan ég tengdist Valdmari og í átján ár höfum við starfað saman í fyrirtæki hans. Þegar litið er til baka hefur ekki skugga borið þar á, hann var mér ávallt hjálplegur og vinsamlegur. Valdimar var mik- ill íjölskyldumaður, ávallt tilbúinn að rétta hjálparhönd enda velferð og umhyggja fyrir fjölskyldunni alltaf í fyrirrúmi hjá honum. Það var ekki sjaldan þegar maður kom í heimsókn til afa og ömmu „í brún“ að hann lá á gólfinu með bók og bamabömin og hundurinn Kaffon vom skríðandi yfir hann og aldrei þreyttist hann á að segja sögur af bamabömunum. Hundurinn Kaffon skipaði sérstakan sess í lífi hans, þeir ræddu oft málin eins og Valdi- mar orðaði það og á meðan hallaði Kaffon undir flatt. Á milli þeirra var einstakur vinskapur. Valdimar var mjög bókhneigður maður, alltaf ef möguleiki var þá tók hann sér bók í hönd og las sér til fróðleika og ánægju. Þetta hefur haft áhrif á uppeldi og þroska barna hans og barnabama. Nú hefur síðustu bókinni sem hann var að lesa verið lokað, en ef til em bækur í hinu lífinu þá verður hann áreiðan- lega fljótur að ná sér í eitthvað að lesa þar. Valdimar kvæntist Dóm Ragn- heiði Guðnadóttur frá Kotmúla í Fljótshlíð árið 1945. Þau eignuðust fimm mannvænleg böm og era bamabömin orðin tólf. Samband þeirra var alla tíð mjög kærleiksríkt og stóðu þau ávallt saman í öllum ákvörðunum varðandi þeirra líf. Gagnkvæm virðing var þar í fyrirr- úmi. Þetta tæplega ár sem Valdi- mar háði sína baráttu var það Dóra hans sem, jafnt vakandi sem sof- andi, sá um að honum liði sem allra best enda vom þeir dagar sem hann hann var á sjúkrahúsi mjög fáir miðað við þau miklu veikindi sem þjáðu hann. Honum leið best heima í umsjá Dóm sinnar og í nálægð bama og bamabarna. Það verður tómlegt að koma í heimsókn í nýja húsið þeirra við Fannafold um næstu jól og fá ekki að hlusta með honum á uppáhalds jólaplötuna og sjá tár blika í augn- hvörmum undir söngnum. Nú við leiðarlok Iangar mig að þakka fyrir alla þá umhyggju og vinsemd sem hann hefur sýnt mér á liðnum áram. Elsku Dóra, þinn harmur er mik- ill en þú átt góð börn og barnaböm sem munu allt gera til að létta þér sorgina og halda minningu um góð- an föður á lofti. Blessuð veri minning tengdaföð- urs míns, Valdimars Jónssonar. Ólafur R. Jónsson Góður og traustur vinur í marga áratugi hefur kvatt langt um aldur fram. Nú á tímum þykir 67 ára ald- ur hreint ekki hár. En hin versta meinsemd, sem læknavísindin ráða enn ekki við, réðst að Valdimar fyr- ir ári og var á si. haust nokkuð séð að hveiju stefndi, þrátt fyrir alla þá læknisfræðilegu aðstoð og aðgerðir, sem unnt var að veita. Valdimar gerði sér sjálfur vel grein fyrir því, hvað myndi fljótlega gerast. Andleg- ur styrkleiki hans var þó svo mikill að þegar ég kom á heimili hans og Dóru, fyrir um það bil mánuði, hafði hann gamanyrði á vömm, en hann var með afbrigðum orðhnyttinn í hópi góðra félaga og vina. Valdimar var fæddur að Flugu- mýri í Skagafirði. Foreldrar hans vom Jón Jónasson, bóndi, ættaður frá Engimýri í Öxnadal í Eyjafirði, og Sigríður Guðmundsdóttir frá Gröf í Laxárdal í Dölum. Eftir uppvaxtar- ár sín á Flugumýri fór Vaidimar í Verslunarskólann í Reykjavík og lauk þaðan verslunarprófi vorið 1943. Þann 17. nóv. 1945 kvæntist Valdimar ungri stúlku af Suður- landi, Dóm Ragnheiði Guðnadóttur, sem fædd var að Kotmúla í Fljótshlíð. Þau hafa alla tíð búið í Reykjavík. Valdimar og Dóra eignuðust fimm mannvænleg börn, sem hafa sannar- lega erft hina miklu mannkosti for- eldra sinna. Þau em: Sigríður, hjúkr- unarfræðingur, gift Ólafi R. Jóns- syni, framkv.stj. Sara Regína, kenn- ari, gift Þórarni Magnússyni, bónda og kennara. Inga Aðalheiður, hjúkr- unarfræðingur, gift Ólafí Ö. Klem- enssyni hagfræðingi, og Guðjón Við- ar, viðskiptafræðingur, kvæntur Guðrúnu Sigurðardóttur, húsfreyju. Allir, sem til þekkja, vita, að þessi fjölskylda var bundin óvenju sterk- um fjölskylduböndum. Má í því sam- bandi nefna þá miklu umhyggju og umönnun, sem Valdimar naut í sínum miklu veikindum. Það álag var mikið og þá einkum fyrir Dóru. Hún hefur átt margar svefnlitlar nætur, en hann dvaldi lengst af sínum veikindatíma heima. Valdimar sagði við mig fyrir nokkmm vikum, að nú fyrst gerði hann sér grein fyrir þeirri miklu gæfu, að eiga slíka konu og böm, sem hann ætti. Valdimar var ákaflega mikill heimilismaður og vora þau hjón mjög samtaka um að gera heimili sitt sér- lega fallegt, bæði innanhúss og ut- an. Iburður er enginn en fegurðars- mekkur svo af ber. Húsbóndinn var slíkur dugnaðarforkur, að slíka þekki ég fáa. Sem dæmi um dugnað Valdimars verð ég að nefna að hann hóf byggingu nýs húss í Grafarvogi haustið 1987 og þau fluttu inn vorið 1988. Sjálfur vann hann gífurlega mikið við þessa framkvæmd. Það em 44 ár síðan við Valdimar hittumst fyrst. Þá unnum við báðir, nýlega komnir úr skólum, hjá heild- versluninni G. Þorsteinsson hf. hér í Reykjavík. Við urðum fljótt góðir félagar og vinir, sem hefur haldist alla tíð síðan. Aðaleinkenni' Valdi- mars vom þá strax og ætíð síðan hversu traustvekjandi allt hans tal og öll hans vinnubrögð vom. Menn treystu honum, að ég held, ósjálf- rátt. Söluhæfíleikar Valdimars vom ótvíræðir. Hann hafði ekkert mál- skrúð í kringum hlutina, heldur kom strax að efninu og menn urðu strax sannfærðir um, að allt var rétt, sem hann sagði. Líklega var hann talinn verslunarmaður af eldri skólanum. Ég held að slíkt mætti vera yngri mönnum til eftirbreytni. Síðan unnum við Valdimar saman við samskonar störf í Landsmiðjunni um nokkur ár. Þar sýndi Valdimar sama dugnaðinn við sín störf, sem vom af sama toga. Um 1956 stofn- aði Valdimar ásamt fleirum heild- verslunina K. Þorsteinsson & Co. Því fyrirtæki stjómaði hann alla tíð, þar til veikindi hömluðu störfum. Þetta fyrirtæki lætur kannski ekki mikið yfir sér, en ég trúi að það sér traust — raunar veit ég að það er efnahagslega mjög traust. Valdimar hafði þá frístundaiðju, að lesa þegar um frístundir var að ræða. Hann las heimsbókmenntir og fagurbókmenntir hvenær sem stund gafst. Kunningjar veittu því athygli hversu óvenju minnugur hann var á það er hann hafði lesið, jafnvel fyrir mörgum áram. Einnig hafði hann mjög gaman af lausavísum, sem hann kunni n\jög margar. Við Valdimar byijuðum að spila saman bridge fyrir meira en 40 ámm. Sumir félaganna sem byijuðu saman hafa horfið yfír vetrarmánuð- ina. Við, sem síðast höfum spilað saman, höfum gert það í nær 20 ár. Vð söknum sárt góðs og skemmti- legs félaga, sem alltaf hafði hnyttin orð á vömm. Að kveðja góðan vin hinsta sinn er erfítt. En slíkt er gangur lífsins. Þeir, sem hafa skilað jafngóðu dags- verki og Valdimar Jónsson, em kvaddir með þakklæti fyrir sín miklu og góðu störf. Við Hrefna sendum Dóm, bömum þeirra Valdimars og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Pétur Pétursson Vinur minn, Valdimar Jónsson heildsali frá Flugumýri í Skagafírði, er látinn og féll hann frá langt fyrir aldur fram. Foreldrar Valdimars vora merkis- hjónin Jón Jónasson ættaður frá Engimýri í Öxnadal og kona hans Sigríður Guðmundsdóttir frá Kambsnesi í Dalasýslu. Valdimar var mjög hrifínn af sinni heimabyggð, en samt hélt hann suður til fram- haldsnáms og lauk Verslunarskóla- prófi vorið 1943. Hann var eftirsótt- ur og mjög hæfur starfsmaður og vann við verslunarstörf rösk 10 ár, en árið 1954 stofnaði hann heild- verslunina K. Þorsteinsson & Co. og var aðaleigandi og stjómandi þess alla tíð meðan heilsan leyfði. Fljótlega komu í ljós afburðahæfi- leikar hans sem stjórnanda og var fyrirtækið alla tíð rekið til mikillar fyrirmyndar. Valdimar hafði aflað sér á fyrri starfsferli góðrar þekk- ingar á margvíslegum tækjum og vélum og nú nýttist þessi þekking hans í eigin rekstri. Fljótlega fékk hann góð umboð og með þrautseigju og dugnaði varð hann á sínu sviði einn dugmesti og traustasti heildsali landsins. Fyrirtækið naut mikils trausts, enda vissu viðskiptamenn að loforð hans yrði haldið og vömr afhentar á réttum tíma. Ég hefi þekkt Valdimar í meira en þijátíu ár, en mjög náin urðu kynni okkar, þegar sonur hans og dóttir mín stofnuðu heimili. Ég hafði því mörg tækifæri til þess að ræða við hann um margvísleg málefni. Hann var mjög vel að sér og skarp- greindur. Við fyrstu kynni var Valdi- mar hlédrægur, en fljótlega komst maður að raun um mikla velvild hans og hjartahlýju og mikla mann- kosti. Viðskiptavinir hans komust fljótt að mannkostum hans og því skapaðist velvild og gagnkvæmt traust milli þeirra. Valdimar hafði stálminni og næman skilning á því, hvaða vömr myndu seljast og þar af leiðandi gat hann haldið vöralag- er í lágmarki en það er einn þýðing- armesti gmndvöllur vel rekinna inn- flutningsfyrirtækja. Enda tókst hon- um að rífa fyrirtækið úr litlum efn- um í stöndugt og virt fírma, sem bjó að sínu í nýtísku húsakynnum þar sem hagkvæmni í rekstri réði ríkjum. K. Þorsteinsson & Co. réð ekki yfír mörgu starfsfólki, en hver starf- maður gekk í þau störf, sem vinna þurfti á hvetjum tíma. Það gilti jafnt um forstjórann og alla aðra. Valdi- mar bar mikið traust til starfsmanna sinna og þakkaði þeim velgengni fyrirtækisins og það traust var gagnkvæmt. Það var mesta gæfusporið í lífi Valdimars, þegar hann þann 17. nóvember 1946 kvæntist Dóm Guðnadóttur, ættaðri úr Rangár- þingi. Dóra Ragnheiður studdi mann sinn í öllum störfum hans og það var öllum ljóst að þar fóm samhent hjón, sem byggðu hvort annað upp alla tíð. Valdimar var maður önnum kaf- inn, en hann hafði alltaf tíma fyrir íjölskyldu sína og nú er hans sárt saknað. Barnalán þeirra hjóna er mikið, en þau em: Sigríður gift Guðjóni Ólafssyni ojg eiga þau eitt barn; S. María gift Olafí R. Jónssyni og eiga þau 4 börn; Sara R. gift Þórami Magnússyni. en þau eiga 4 börn; Inga A. gift Ólafi Klemens- syni, en þau eiga 2 börn, og Guðjón Viðar kvæntur Guðrúnu Sigurðar- dóttur, en þau eiga 1 bam. Fyrir um það bil einu ári var Ijóst að Valdimar var haldinn banvænum sjúkdómi. Hann barðist hetjulegri baráttu í æðruleysi og með þraut- seigju, en þó án uppgjafar. En í veikindum sínum var hann ekki einn. Þar reyndust honum best eiginkona og fjölskylda hans, sem stóðu með honum og léttu gönguna þar til yfir lauk. Hann var mjög þakklátur læknum og hjúkmnarliði fyrir mikla umönnun. Við hjónin vottum eigin- konu og fjölskyldu samúð okkar, en minningin um góðan dreng er hugg- un harmi gegn. Drottinn blessi minningu Valdi- mars Jónssonar. Sigurður Helgason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.