Morgunblaðið - 14.06.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.06.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDÁGUR 14. ,JÚNÍ 1989 Morgunblaðið/Rax Hvalveiðar framundan UPPHAF hvalvertíðar hefur enn vísindaáætlunarinnar. ekki verið ákveðið, en unnið er Bann við hvalveiðum stendur að því að búa hvalbátana á veið- út næsta ár og ólíklegt er talið ar. í fyrra hófust veiðamar 22. að íslendingar stundi nokkrar júnf og að öllu óbreyttu er búizt veiðar þá. Hver framvinda mála við því að byijað verði á svipuðum verður að loknu þessu sumri, tíma nú. Það verða eins og áður -rasðst því tæpast fyrri en á árs- Hvalur 8 og Hvalur 9, sem veið- fundi alþjóða hvalveiðiráðsins á amar stunda þetta síðasta ár næsta ári. Ýmsar tilraunir í gangi með sáningu birkifræs NÚ standa yfir ýmsar tilraunir með sáningu á birkifræi á vegum Landgræðslunnar, Skógræktar ríkisins og Rannsóknastofnunar land- búnaðarins. I tilraunimar er notað fræ sem safhað var í samvinnu við ýmis félagasamtök í hitteðfyrra. Þá var óvenjugott fræár og sofin- uðust tæp 200 köó af fræi. Safnað var um allt land og hefúr fræið verið rannsakað með tilliti til mismunar á birki efitir landshlutum. Sigurður Magnússon líffræðingur hjá Rannsóknstofnun landbúnaðar- ins sagði í samtali við Morgunblaðið að tilraunir þessar hafi byijað haust- ið 1987. Þá var sáð á fimm staði óhúðuðu birkifræi til að kanna í hvers konar svörð heppilegast væri' að sá birki. Tilraunimar miðast meðal annars að því að kanna hvort þáð skiptir máli að einhver gróður sé til staðar og þá hvers konar gróð- ur. Vorið 1988 var aftur sáð á sömu staði og kom í ljós að sáning að hausti skilaði mun betri árangri. Er talið að þannig sé best líkt eftir náttúmlegum skilyrðum. Sumarið 1988 var síðan fylgst með afföllum plantnanna og um haustið var stærð plantnanna athug- uð í þeim tilgangi að athuga hvort samband sé milli stærðar og þess hvort þær lifa af veturinn, en vetur- inn hefur mest að segja um það hvort plantan lifir eða drepst. Einnig er kannað hvort máli skiptir hvenær árs þeim er sáð. Önnur tilraun hófst haustið 1988 til að reyna að meta áhrif þess á hvaða tíma árs fræinu er sáð. Einn- ig mismuninn á húðuðu og óhúðuðu fræi og hvort því er sáð í óáborið eða áborið land. Tilraunin beinist að því að athuga hvort birki hafi áhrif á gróðurframvindu þegar því er sáð á svæði sem áður hefur verið sáð grasfræi með áburði. Oft ber á því að á slíkum svæðum verður aftur- kippur í gróðrinum eftir nokkurn tíma. Sáð var á svæði þar sem gróð- ur af þessu tagi var á mismunandi stigum til að sjá hvaða áhrif birkið hefur á framvindu hans. Fyrirhugað var að sá á mismun- andi tímum í vor, en vegna verk- falls náttúrurfræðinga var ekki hægt að sá fyrr en nú fyrir fáum dögum. Að sögn Jóns Guðmundssonar líffræðings, starfsmanns RALA í Gunnarsholti er mikið til enn af birkifræi úr söfnuninni 1987. Birkifræið er húðað í Gunnars- holti aðallega til að þyngja það og auðvelda sáningu með stórum tælq- um svo sem dreifurum eða flugvél- um. Meðal efna í húðinni er malað basalt, kalk og kísill. Auk þess er bætt í hana áburð. Fræ úr þessari söfnun verður einnig notað til sáningar í gróður- húsi hjá Skógrækt ríkisins á Mógilsá til notkunar í landgræðsluátakið sem hefjast á á næsta ári. ftr m w > V' * VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hlti veöur Akureyri 15 hálfskýjað Reykjavfk 11 alskýjað Bergen 21 léttskýjað Helsinki 14 skýjað Kaupmannah. 24 hálfskýjað Narssarssuaq e skýjað Nuuk 0 snjóél Ósló 23 skýjað Stokkhólmur 21 léttskýjað Þórshöfn 11alskýjað Algarve vantar Amsterdam 24 skýjað Barcelona 23 léttskýjað Berlín 23 léttskýjað Chicago 17 þokumóða Feneyjar vantar Frankfurt 24 léttskýjað Glasgow 17 skúr Hamborg 22 skýjað Las Palmas 24 léttskýjað London 26 skýjað Los Angeles 16 léttskýjað Lúxemborg 23 léttskýjað Madríd 30 léttskýjað Malaga 29 heiðskírt Mallorca 26 skýjað Montreal 12 alskýjað New York 17 þokumóða Orlando 24 léttskýjað Pans vantar Róm vantar Vín 16 alskýjað Washington 22 skýjað Winnipeg 8 rigning Framfærsluvísital- an hækkar um 2,9% Verðbólguhraðinn 41,6% um þessar mundir VISITALA framfærslukostnaðar er í júníbyijun 2,9% hærri en í maí. Framfærslu vísitalan hefúr síðustu 12 mánuði hækkað um 21,8%, á 6 mánaða tímabili er hækkunin 29,4%, 32,3% síðustu þrjá mánuði og milli mánaða nú nemur hækkunin 41,6%. Verð- bólguhraðinn nú er því 41,6%. Af hækkun vísitölunnar um 2,9% frá byijun maímánaðar stafa um 0,5% af hækkun matvöru, mest vegna hækkunar á mjólk og mjólk- urvörum. 18,7% hækkun á verði bensínlítra olli um 0,8% hækkun. Hækkun á verði nýrra bíla hafði í för með sér 0,2% og húsnæðisliður vísitölunnar hækkaði um hið sama. Hækkun á fatnaði og skótaui olli sömuleiðis 0,2% hækkun og verð- hækkun á ýmis konar þjónustu og fleiru veldur 1% hækkun á visi- tölunni. Þar af veldur tómstundaiðja og menntun um 0,1% hækkun. Verðbólguhraðinn í júní Breytingar á vísitölu fram- færslukostnaðar hvers mánuðar reiknaðar til árshækkunar O N D'89 F M A M J Grálúðuaflinn þriðjungi meiri en veiðileyfi heimila FISKAFLI landsmanna er að lokn- um maímánuði orðin 945.440 tonn, sem er nánast sami afli og í fyrra. Fiskaflinn í maí er sömuleiðis nán- ast sá sami og í fyrra. Breytingar á afla af einstökum tegundum öðr- um en grálúðu eru litlar. Þor- skafli er nú 187.000, um 7.000 tonnum meiri en í fyrra þrátt fyrir skertar veiðiheimildur og grálúðu- aflinn er orðinn tæp 42.000 tonn, en var rúm 34.000 á sama tíma í fyrra. Aflinn er því orðinn meira en þriðjungi meiri en útgefnar veiðiheimildir sega til um, en þær voru lækkaðar úr 50.000 tonnum í 30.000 milli ára. Skýringin Iiggur mest í því að heimildir til þors- kveiða hafa verið færðar yfir á grálúðu. Grálúðuaflinn í maí varð alls 29.794 tonn, en var í maí í fyrra 27.199. Alit árið í fyrra varð grálúðu- aflinn 49.047 tonn og námu gjaldey- ristekjur af þeim afla við útflutning fob 2,2 milljörðum króna. Fiskaflinn í maí nú varð 76.500 tonn en 1.000 tonnum meiri í fyrra. Þorskafli dróst heldur saman, ýsuafli jókst, samdráttur var í ufsaveiði, karfaafli nánast sá sami og afli ann- arra tegunda svipaður og áður. Þegar litið er á fyrstu 5 mánuði ársins kemur í ljós að heildaraflinn er nánast sá sami, um 950.000 tonn. Afli togaranna dregst saman, fellur úr 181.000 tonnum í tæp 169.000. Mestur er samdrátturinn í þorski, 8.000 tonn, en töluverð aukning er á grálúðuafla. Bátamir auka hlut sinn um 8.000 tonn og afla samtats 760.000 tonna tæpra, mest loðnu. Þorskafli er 100.000 tonn, 12.500' tonnum meiri en í fyrra og ýsuafli eykst einnig. Hlutur smábáta er 17.000 tonn og bæta þeir hlut sinn um 2.500 tonn. Hafnfirðingar hafa veitt mest af grálúðunni nú, 6.507 tonn. Reykvíkingar hafa tekið 4.577, ísfirðingar 4.255 og Akureyringar 4.142 tonn. Allir þessir staðir auka hlut sinn milli ára. Faxamarkaður: Sunnutindur fær metverð fyrir grálúðu SUNNUTINDUR SU fékk 54,79 króna meðalverð fyrir 96,2 tonn af grálúðu sem seld voru á Faxa- markaði í Reykjavík á þriðjudag. Þetta er hæsta meðalverð sem fengist hefúr fyrir grálúðu á markaðinum. Sunnutindur SU seldi samtals 106 tonn á Faxamarkaði á þriðjudag fyr- ir 5,7 milljónir króna, eða 53,67 króna meðalverð. Togarinn, sem er frá Djúpavogi, fékk aflann á Qórum dögum á Vestfjarðamiðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.