Morgunblaðið - 09.06.1985, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1985
Frægur fjársjóður sjó-
ræningjans Charles
„Svarta Sams“ Bell-
amy frá Nýja Englandi er
fundinn. Ef til vill hefur
aldrei áður í sögunni fund-
izt eins verðmætur fjár-
sjóður í einu skipsflaki.
Flaggskip Bellamys sökk
með gulli, silfri, skartgrip-
um og öðrum ránsfeng
fyrir tæpum 258 árum í
fárviðri við Cape Cod í
Massachusetts.
Barry Clifford, sem hefur það
fyrir atvinnu að leita að fjársjóð-
um, hefur til þessa bjargað 6.000
spænskum silfurpeningum sem
fundust í kistu í flakinu. í kistunni
voru einnig franskir peningar.
Nefna má nokkuð af því sem
Clifford fann:
Gullstengur og skartgripir
vandlega skornir, sennilega af sjó-
ræningjunum þegar þeir skiptu
ránsfengnum á milli sín.
Gimsteinar í 180 strigapokum. í
hverjum strigapoka voru 50 pund
af gimsteinum.
Orsmáir gullmolar og gullsvarf.
Rúmlega 20 spænskar fallbyss-
ur, byssa fest á möndul svo að
hægt sé að miða henni í allar áttir,
sjóræningjabreiðsverð, tinnu-
byssa, málmílát og ýmsir aðrir
munir.
Samkvæmt samtímaheimildum
nam verðmæti ránsfengsins úr
flaki flaggskipsins, „Whidah",
einni milljón punda. Að nútíma-
verðgildi er fjársjóðurinn metinn
á a.m.k. 10 milljónir dala og hon-
um hefur verið komið fyrir í
traustu bankahólfi i Chatham,
Massachusetts.
Sú fullyrðing Cliffords að þetta
sé flak „Whidah" nýtur stuðnings
Roberts Cahill, sérfræðings
nefndar í Massachusetts sem hef-
ur umsjón með fornleifarannsókn-
um neðansjávar. Hann telur að
verðmæti fjársjóðsins nemi 400
milljónum dala.
Aðrir fulltrúar í nefndinni, sem
leyfði Clifford að leita í flakinu,
telja ekki fullsannað að um sé að
ræða flak „Whidah“.
Sjóræningjaforinginn Svarti
Sam Bellamy og 101 af áhöfn hans
fórust þegar þeir voru á heimleið
til að skipta ránsfeng úr 22
Sjóraeningjar voru blóðþyrstir og grimmir.
0 MILES 25
Atfaffític Ocezn
Frægur fjársjóður
finnst í flaki
sjóræningjaskips
bænum á eynni New Providence,
1703. Eftir það var engin stjórn á
eynni og flestir íbúanna flúðu.
Sjóræningjar hreiðruðu þá um sig
á eynni og stofnuðu skammlíft
sjóræningjalýðveldi.
Skömmu áður en „Whidah" sökk
dvöldust um 2000 útlagar á New
Providence. Auk Bellamy voru
helztu leiðtogar þeirra Henry
Jennings, Charles Vane, Oliver ia
Bouche, Benjamin Hornigold og
aðstoðarmaður hans, Edward
Teach.
Bellamy var með Vane og Jenn-
ings þegar fimm skip þeirra og 300
menn þeirra ollu mikilli milli-
ríkjadeilu með því að ræna geysi-
miklum auðæfum frá spænskum
björgunarmönnum, sem höfðu
unnið að því mánuðum saman að
bjarga fjársjóðum úr skipum, sem
Silfurhleifar og aðrir munir
hafa skolazt á land á strönd Del-
aware Channel, nokkru sunnar.
Talið er að þeir séu úr flaki eins of
mörgum sjóræningjaskipum, sem
notuðu flóann fyrir bækistöð á
síðari hluta 17. aldar.
Margir hafa reynt að bjarga
fjársjóðnum við Cape Cod. Einn
þeirra var heimspekingurinn
Henry David Thoreau. Sagt var að
nokkrir vinir hans hefðu fundið
verulegt magn af verðmætum pen-
ingum.
Clifford, sem er fertugur að
aldri, ólst upp í Vineyard Haven,
Massachusetts, skammt frá flak-
inu með fjársjóðnum Hann segir
að það hafi verið draumur sinn að
finna fjársjóðinn úr „Whidah" síð-
an hann heyrði fyrst söguna um
sjóræningjana þegar hann var lít-
ill drengur.
í frægri bók um sögu sjórána
lýsir Daniel Defoe Bellamy skip-
stjóra þegar hann storkar nátt-
úruöflunum í fárviðri, sem hann
kvað svo mikið að það vekti ugg í
garð „almættisins ... sem öllu
ræður, hafi og vindum". En Defoe
segir að fárviðrið hafi haft allt
önnur áhrif á sjóræningjana, því
að „þeir reyndu með bölvi sínu og
ragni og hryllilegum formæling-
um að yfirgnæfa skarkalann ...
Bellamy bölvaði sér upp á það að
verst væri að hann gæti ekki
hleypt úr fallbyssunum og svarað
hinni formlegu kveðju og átti við
þrumugnýinn, en hann gerði sér í
hugarlund að guðirnir hefðu
drukkið frá sér vit og rænu“.
Charles Bellamy var einn af
mörgum frægum sjóræningjum,
sem höfðu bækistöð á Bahamaeyj-
um snemma á 17. öld. Frakkar og
Spánverjar eyddu Nassau, aðal-
höfðu sokkið í fellibyl undan Ba-
hamaeyjum.
Um Bellamy hefur verið sagt að
hann hafi verið einn bezti fulltrúi
stjórnleysisins á New Providence.
Honum er eignuð eftirfarandi
ræða, sem hann hélt yfir skip-
stjóra er hafnaði boði hans um að
ganga í lið með sjóræningjunum:
„Fjandinn hafi það ... þú ert
bölvaður læðupoki og það eru líka
allir þeir sem gefa sig á vald lög-
um, sem ríkir menn hafa sett til
þess að tryggja öryggi sitt, því að
þessir blauðu hundar þora ekki að
verja á annan hátt það sem þeir
hafa fengið með klækjum. Ætt-
irðu ekki heldur að verða einn af
okkur í staðinn fyrir að skríða
fyrir þessum þorpurum til þess að
fá vinnu?
Ég er minn eigin herra og hef
eins mikið vald til að segja öllum
heiminum stríð á hendur og sá
sem á 100 seglskip á hafinu ... En
það er ekki hægt að telja um fyrir
svons væluskjóðum, sem láta yfir-
boðara sína níðast á sér eins og
þeim sýnist og setja traust sitt á
prestsómynd, fitukepp, sem trúir
ekki á það sem hann ber á borð
fyrir heimskingjana, sem hann
messar yfir og fer ekki eftir því
sem hann predikar."
Skömmu eftir að Bellamy
drukknaði leystist sjóræningja-
lýðveldið á New Providence upp,
eins skyndilega og það hafði verið
stofnað. Sumir sjóræningjar leit-
uðu uppi aðrar eyjar, aðrir fóru til
Guineuflóa, eða til sjóræningja-
nýlendna á Madagaskar, því að
þeir höfðu heyrt sögur um að mik-
inn ránsfeng væri að hafa á Ind-
landshafi og Rauðahafi.
Nýjum landstjóra, Woodes Rog-
ers, sem kom til Nassau 1718,
Mesta sjóræningjagull sögunnar?
frönskum og spænskum skipum,
ser.i þeir höfðu ráðizt á um marg-
ra mánaða skeið á Karíbahafi.
Skipið fór á hliðina og sökk í þoku
og fárviðri 26. apríl 1717 hálfan
kílómetra frá Wellfleet á Cape
Cod.
Þrjú skip, sem Svarti Sam hafði
tekið herfangi, voru með í förinni.
Eitt þeirra strandaði, en hin tvo
sigldu á haf út.
Sjóræningjarnir höfðu komizt
yfir Madeiravín á skipi, sem þeir
höfðu tekið skömmu áður en fár-
viðrið brast á. Altalað var á Nýja
Englandi að þeir hefðu verið
drukknir og flestir þeirra hefðu
farizt þar sem þeir hefðu fyllt
Kortið sýnir staðinn þar
sem flakið er út af Cape
Cod.
vasa sín af gulli áður en þeir
reyndu að synda í land.
Fjársjóður sjóræningjanna var í
400 pokum, sem voru læstir niðri í
kistum. Nokkrar upplýsingar um
fjársjóðinn komu fram í réttar-
höldum gegn örfáum mönnum,
sem komust lífs af. Þeir voru allir
hengdir.
Landstjóri Breta í Massachus-
etts á þessum tíma sendi leitar-
flokk á slysstaðinn til þess að
reyna að bjarga ránsfengnum. Til-
raunin fór út um þúfur.
Peningar og ýmsir munir, sem
gert hefur verið ráð fyrir að hafi
verið í „Whidah“, hafa stundum
skolazt á land á Cape Cod í
hvassviðri á þeim langa tíma sem
liðinn er síðan skipið sökk, Ný-
Englendingar hafa safnað slíku.
Stundum hefur flakið sézt á mik-
illi fjöru.
Barry Clifford (til vinstri)
og Bob McClung kafari, at-
huga byssu sem bjargað var
úr flakinu út af Cape Cod. Á
litlu myndinni sést gullmoli
úr flakinu. Clifford telur að
flakið sé sjóræningjaskipið
„Whidah“, sem sökk 1717.