Morgunblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979 ví£t> MORÖ-JNc iíafp/nu V ' Því gastu nú ekki haft þetta í lagi áður en við lögðum af stað? BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Hversu oft heyrist sagt á spila- stundum: Ef þú gerir þetta makker þá ræð ég við hann. Eða á hinn veginn, ef ég geri annað makker þá sjáum við um hann. Eins og við vitum eru svona bollaleggingar ótrúlega algengar enda möguleikar bridgespilsins jafn margbreytilegir og mennirn- ír. Norður gaf, norður-suður á hættu. Norður S. ÁG72 H. 5 T. K95 L. KG1065 Vestur S. 853 H. K10632 T. G86 L. Á3 Austur S. D104 H. Á94 T. 7432 L. 974 Suður S. K96 H. DG87 T. ÁDIO L. D82 í þessu spili varð lokasögnin þrjú grönd, spiluð í suður. Vestur spilaði út hjartaþristi og ef til vill hefur þú gaman af að velta fyrir þér möguleikunum, sem í spilinu leynast. Þegar spilið kom fyrir tók austur fyrsta slaginn með ás og spilaði níunni til baka. Suður lét þá gosann og hvað var skást fyrir vestur að gera? Hann gat tekið slaginn en með því gæfi hann sagnhafa tvo stöðvara í litnum og vinningur yrði auðveldur eins og við sjáum. í reynd valdi vestur hinn kost- inn. Hann gaf sagnhafa slaginn á gosann í von um, að austur kæmist að nægilega snemma til að spila hjartanu aftur. En suður spilaði þá laufunum, vestur fékk á ásinn en hann gat ekki náð valdi á spilinu og suður fékk tíu slagi þegar yfir lauk. Nokkrar athugasemdir? Já, vestur gat sagt við makker sinn: Ef þú lætur níuna í fyrsta slag, makker, þá ráðum við spilinu. Og lesendur ættu sjálfir að sannreyna þessa fullyrðingu. Ekki ekki! Berð’ann í gólfið og hringdu á Iögregluna, væna mín! Hvert er besta svarið? Þann 4. júlí s.l. var okkur hjónunum boðið til góðra ná- granna. „Skál fyrir 203 ára full- veldi Bandaríkjanna og skál fyrir 33 ára afmæli fullveldis Filipps- eyja“, sagði gestgjafinn, kona frá Filippseyjum. Ég sneri mér að sessunaut mínum, myndarlegum skreðara frá Utah, og sagði: „0, já, ég man, þegar ég var í ameríska sendiráðinu á íslandi 4. júlí 1946, að það var serstaklega skálað við óbeinan heiðursgest þa.r, eina Filippseyjamanninn á Islandi þá, sem var kokkur á Keflavíkurflug- velli.“ „Það var nú önnur saga, þegar ég kom á skipi til íslands, það skálaði enginn við mig. Ég var „mate“ (undirforingi) í sjóhernum og skipstjórinn hvatti mig til að fara ekki í land, því að aðeins menn með náhvítt hörund væru vinsælir þar. Svo ég fór ekki í land. Er það satt, sem skipstjórinn sagði?" Mér vafðist tunga um tönn, en sagði svo: „Jú, þetta er satt, þó að sjálfir vilji þeir verða sem dekkst- ir af sólinni og í mína tíð var sagt „svartur og sjarmerandi". En Is- lendingar eru svo fáir og þeir eru fullir af ættjarðarást. Þeir eru hræddir um að tapa ættarein- kennum sínum. T.d. berjast þeir á móti öllum erlendum áhrifum á móðurmálið og það er sérstaklega erfitt fyrir útlendinga að gerast íslenzkir borgarar. Og umfram allt vilja þeir halda sínu kyni Lausnargjald í Persíu 62 Eftir Evelyn Anthony Jóhanna Kristjónsdóttir sneri á íslenzku og inn í setustofuna. James sneri sér að manninum. — Bíðið hér. Ég segi hr. Field frá þessu. Hann kemur eftir andartak. Hann benti Logan að koma. Hann sá að Khorvan fylgdist með og stakk sér f hans stað f hópinn. — Ráðherra, ég hef varla gefið mér tfma til nema rétt kasta á yður kveðju. Ég vona að yður skorti ekkert. — Allt er í sómanum, þökk fyrir, sagði Khorvan. Hann skemmti sér alveg ljómandi. Maturinn var afbragðs gómsæt- ur og hann dáðist að smekklegri umgjörð veizlunn- ar. Honum geðjaðist alls ekki að Logan Field, en hann var óneitanlegan örvandi og skemmtilegur. Og þó að hann liti á hann sem andstæðing hafði hann gaman af þvf að vera í návist hans. — AHt er í lagi endurtók hann og beindi máli sfnu til James. — Nema að ég sakna húsfreyjunnar. Ég er mjög von- svikinn yfir því að hún skuli ekki vera hér. James vonaði að Janet heyrði hvað hann sagði. Og svipbrigði á andliti hennar vottuðu að svo hafði verið. — Hr. Field sagði að dóttir þeirra værí lasin og hún kæmist ekki frá Englandi um sinn, mér þótti leitt að heyra það. Khorvan var auðvitað ekki aivara og James vissi það og Khorvan vissi að hann vissi það. Hins vegar gaf fjarvera Eileen honum kærkomna átyllu til að hafa f frammi dálftið argaþras við gestgjafann. — Við söknum hennar allir, sagði James hátt og snjallt og vonaði að þetta bærist einnig að eyrum Janet Armstrong. Ung og giæsilega klædd frönsk kona gaf sig nú að honum. Hann kannaðist við Sann hennar, hann var einn af um persneskum aðalsmönn- um sem tóku þátt í opinberu lííi. Sjálf var hún erfingi mik- illa námuauðæfa. Hún talaði frönsku og þýzku reiprennandi ekki síður en ensku. Hún ar orðin leið á manninum sfnum og hafði iðulega gefið James í skyn, að henni fyndist hann þekkilegur. Ef Eileen hefði ekki skipað jafn stóran sess f huga hans og raunin var, hefði hann kannski látið tii leiðast. Meðan hann hélt uppi léttu skrafi við hana braut hann heilann um hvað færí á milli Logans og Saiid Homsi inni f húsinu. 6. kafli Ég kom með nokkur hand- klæði handa yður. Og sápu. Peters lagði það á rúmið. Eileen sat í stólnum, hún hafði kveikt á lampanum á náttborðinu. Úti fyrir var orðið aldimmt. Hitinn í herberginu var kæfandi. — Þökk fyrir, sagði hún. — Ég get þá að minnsta kosti þvegið mér. Hann tók eitthvað upp úr vasa sínum og lét það falla ofan á handklæðin. Það var karl- mannsgreiða. — Þér getið fengið þetta Iíka, sagði hann. — Mér er svo hræðilega heitt, sggði Eileen seinlega. Hún stóð upp og hreyfði sig eins og svefnengiil. Peters vissi ekki hvers vegna hann hlustaði á orð hennar, hann hafði ekki ætlað að tala við hana. — Er ekki hægt að leysa þetta vandamál með gluggann svo að ég geti fengið frískt loft inn. Ég sé ekki betur en hæðin sé nógu mikil til þess að þið gætuð nokkurn veginn treyst því að ég reyndi ekki að stökkva. Mér finnst ég vera að kafna. — Við settum rimlana fyrir gluggana barnsins vegna, sagði Peters — svo að engin hætta væri á að hún dytti út um giuggann. — Hefðuð þið raunverulega læst hana hér inni? — Nei. Hann tók fram sfgarettu og kveikti í. — Hún hefði sofið hér, en

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.