Morgunblaðið - 15.09.1979, Síða 36

Morgunblaðið - 15.09.1979, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979 Vel dúnaöur og nálgast þaö aö verða geröur, en þá er hann laus viö allan dúninn og oröinn dökkbrúnn. Súlan, drottning Atlantshafsins, er einn glæsilegasti fugl íslenskra sjávarfugla og ber hún drottningar- titilinn með rentu þegar hún flýgur renniflugslotur yfir haffletinum í ýmsum hæöartilbrigöum. Súlan verpir í stórum byggöum og er stærsta byggðin í Eldey, um 20 þús. pör, en næst stærstu súlubyggöirn- ar eru í Vestmannaeyjum í Súlna- skeri, Geldungi, í Hellisey og fleiri eyjum þar. Súlur fljúga oft í odda- leiö þótt hún mæti einhverjum en sama er aö segja um búskapinn í björgunum þar sem hún hrekur aöra fugla frá heföbundnum varp- stöövum ef farið er aö þrengja að henni. Súlan hefur glögg landamæri í kring um hrauk sinn og er vissara fyrir gesti og gangandi aö viröa þá landhelgi. Frægust er súlan fyrir súlukastiö, enda er stórbrotið að sjá hana stinga sér úr um 30 metra hæð og kljúfa svo hafflötinn aö varla kemur gusa eftir stunguna. Súlan heldur sig nærri landi áriö um kring, en oft sést hún langt til hafs. Hún verpir í sæbröttum úteyj- um eöa á bjargsyllum og byrjar aö verpa strax í marzmánuði, en þær síöustu geta verpt í maí. Unginn veröur því geröur á akaflega mism- unandi tíma, en þar sem hann er nytjaður er farið í súlu um mánaö- amótin ágúst-september. Þegar fariö er um súlubyggðirnar upphefst mikill kórsöngur drottningarinnar sem byggist aöallega á skerandi urrandi „arrah“. Súla á hrauk sínum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.