Morgunblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979 23 Simamynd — AP. Ungur Bandaríkjamaður situr ofan á braki þess sem fyrir nokkrum dögum var reisuieg verzlun frænda hans. Verzlunarhúsið eyðilagðist með öllu er fellibylurinn Friðrik gekk yfir borgina Pascagoula í Missouri í fyrrakvöld. Fellibylurinn hefur valdið miklu tjóni í Bandaríkjunum. Kúbu og víðar. Enn ólmast Pol Pot Bangkok, 14. september. AP. HIN fallna Kambódíu- stjórn Pol Pots segist hafa unnið frækilega sigra á mörgum vígstöðvum og frelsað víðáttumikil svæði í bardögum gegn Víetnöm- um í monsúnrigningunum í Kambódíu að undan- förnu. Þá hafa fregnir borizt af miklum átökum í vesturhluta landsins þar sem búizt er við mikilli sókn Víetnama og hers Pnom Penh-stjórnarinnar þegar rigningum linnir. Víetnamar eru með um 150 þús. manna herlið i Kambódíu og hafa þeir lýst því yfir, að það verði ekki flutt á brott fyrr en endan- legur sigur sé unninn yfir mönn- um Pol Pots. FeUibylurinn Frederic varð6 mannsað aldurtíla Gífurlegt eignatjón. Jimmy Carter fór til svæðanna, sem urðu verst úti Mobile, 14. september. AP. Reuter. AÐ MINNSTA kosti sex manns fórust og tveggja er saknað eftir að fellibylurinn Frederic æddi yfir Alabama. Florida og Missisippi. Gífurlegar rigningar fylgdu í kjölfarið. Jimmy Carter, forseti Bandaríkj- anna, flaug til svæðanna, sem urðu verst úti og þar sem lýst var yfir neyðarástandi. Borgin Mobile í Alabama varð illa fyrir barðinu á óveðrinu og útvarpið í borginni lýsti verksummerkjum sem „King Kong hefði þrammað um bæinn“. Carter hét íbúunum aðstoð í endurreisnar- starfinu. Hann sagði að flutningur um 500 þúsund manns frá svæðinu hefði vafalítið dregið úr manntjóni. Veður víða um heim Akureyri 3 léttskýjað Amsterdam 18 léttskýjaó Aþena 39 heiðskírt Barceiona 26 léttskýjað Berlfn 17 skýjað BrUssel 21 heiðskírt Chicago 21 skýjaö Frankfurt 25 skýjað Genf 23 heiðskírt Helsinki 15 rigning Jerúsalem 30 heiöskfrt Jóh.borg 25 heiðskírt Kaupmannahöfn 17 skýjaó Lissabon 25 heiðskírt London 20 heiðskírt Los Angeles 31 skýjað Madrfd 30 skýjað Malaga 25 alskýjað Mallorca 26 skýjað Miamí 30 rigning Moskva 14 skýjað New York 26 rigning Ósló 17 heiðskfrt Parfs 23 aólskin Reykjavík 4 léttskýjaö Rio de Janeiro 31 skýjað Rómaborg 29 heiðskírt Stokkhólmur 13 skýjaö Tel Aviv 30 heiðskfrt Tókýó 29 heiðskfrt Vancouver 22 heiðskfrt Vínarborg 23 skýjað Jody Powell, blaðafulltrúi for- setans, sagði að endurreisnar- starfið tæki mörg ár. Eftir að mesta óveðrinu slotaði fylgdu gífurlegar rigningar í kjölfarið. Leifar fellibylsins fóru norður eftir landinu og í Buffalo í New York mældist rigningin 13 senti- metrar. Þar var öllum skólum lokað og miklar umferðartruflan- ir. í Erie í Pensilvaníu hrundi þak á strætisvagnastöð vegna vatnsþungans og sex vagnar skemmdust þar sem þeir stóðu innandyra. Fólk var farið að flytja aftur til heimila sinna í suðurhéruðunum, sem urðu verst úti. Ljóst er að eignatjón er gífurlegt, jafnvel talið meira en þegar fellibylurinn David gekk yfir fyrir skemmstu. Frederic var þó ekki eins mannskæður, því 1100 manns 1970 — ítölsk farþegaflugvél brotnar í tvennt á Kennedyflug- velli (156 fórust). 1967 — Egypzki marskálkufinn Amer fremur sjálfsmorð. 1966 — Þriggja daga geimferð tveggja bandarískra geimfara lýk- ur. 1964 — Páfastóll semur við Ung- verja. 1959 — Krúsjeff kemur til Washington í 13 daga heimsókn. 1952 — Bretar láta Erítreu af hendi við Eþíópíu. 1950 — Landganga Bandaríkja- manna í Inchon, Suður-Kóreu. 1949 — Konrad Adenauer verður fyrsti kanzlari Vestur-Þýzka- lands. 1946 — Búlgaría verður alþýðu- lýðveldi. fórust af völdum Davids á eyjum í Karabíska hafinu og 16 í Bandaríkjunum. 1942 — Þjóðverjar ráðast á Stal- íngrad. 1940 — Harðar loftárásir Þjóð- verja á London. 1938 — Chamberlain heimsækir Hitler í Berchtesgaden og Hitler hótar innlimun Súdetahéraðanna. 1935 — Nurnberg-lögin gegn Gyðingum sett og hakakrossinn verður þjóðfáni Þjóðverja. 1916 — Bretar verða fyrstir til að beita skriðdrekum. 1882 — Bretar taka Kaíró og Arab Pasha gefst upp. 1821 — Mið-Ameríkulýðveldin lýsa yfir sjálfstæði. 1776 — Bretar taka New York-borg herskildi. 1643 — Uppreisn lýkur á írlandi. Afmæli. Albrecht von Wallen- stein, þýzkur hermaður (1583—1634) — Pierre Simon Fournier, franskur prentari (1712—1768) — James Fenimore Cooper, bandarískur rithöfundur (1789—1851) — William Howard Taft, bandarískur forseti (1857-1930) - Bruno Walter, þýzkur hljómsveitarstjóri (1876-1962). Andlát. J.F. Cooper, rithöfundur, 1851 — I.K. Brunel, verkfræðing- ur, 1859. Innlent. „Pourquoi Pas?“ strandar við Mýrar 1936 — d. herra Ásgeir Ásgeirsson 1972 — Áminningar- bréf erkibiskups til Norðlendinga 1478 — Ásökunarbréf konungs til Hamborgarráðs 1550 — d. Bjarni Kolbeinsson (Orkn.) 1222 — síra Páll Jónsson skáld 1846 — Síðari þingflokksfundur Bændaflokks 1915 — „Helgu" frá Hornafirði hvolfir á Færeyjagrunni 1961 — Samningur BSRB við ríkið um Kjaradóm 1962 — Útför frú Dóru Þórhallsdóttur 1964 — Leirvogs- árslysið 1969. Orð dagsins. Við verðum að vara okkur á því að byggja upp þjóðfé- lag þar sem enginn skiptir máli nema stjórnmálamaður eða emb- ættismaður — Sir Winston Churchill, brezkur stjórnmálaleið- togi (1874-1965). Fúkkalyfhœtt að verka á skepnur FÚKKALYF, svo sem pensilín, streptomycin og tetracycline, ollu byltingu á sviði læknisfræðinnar og þau hafa einnig komið sér vel í landbúnaði. í Bandaríkjunum er um % hlutum nautgripa, kjúklinga, svína og annarra dýra, sem ætluð eru til manneldis, gefið fúkkalyf. Um 40% af lyf jaframieiðslu í Bandaríkjunum fer í dýrin, fyrst og fremst til að viðhalda heilsu þeirra en einnig auka þau vöxtinn án þess að orsakirnar séu kunnar. Lyfjanotkun í landbúnaði hefur verið gífurleg og lítt gagnrýnd þar til á siðustu misserum að efasemdaraddir hafa verið að vakna. Það hefur komið á daginn, að það borist frá einni bakteríu til Svín éta fúkkalyfjabætt fóður í tilraunastöð í Terre Haute í Bandaríkjunum. sjúkdómsvaldandi bakteríur hafa í auknum mæli myndað ónæmi fyrir fúkkalyfjum. Þegar upp úr 1970 fór mönnum að verða þetta ljósara. Pensilínið, sem átti að vera ráð við flestu var hætt að verka. Vísindamenn hafa einnig komist að raun um að ónæmið, sem bakteríur hafa náð að mynda fyrir fúkkalyfjum, erfist ekki aðeins heldur getur annarrar. Þetta hefur valdið mönnum nokkrum áhyggjum vegna þess að margir óttast að á endanum muni maðurinn sjálfur verða fórnarlambið þar sem hann étur kjötið af þeim skepnum sem hafa fengið fúkkalyf. Það sem þykir benda til að þessi þróun sé þegar hafin er, að verkafólk í sláturhúsum og bóndabýlum hefur bakteríur ónæmar fyrir fúkkalyfjum í ríkari mæli en fólk í öðrum starfsgreinum. Frá 1972 hefur bandaríska lyfjaeftir- litið reynt að fylgja fordæmi Breta og annarra Evrópulanda og takmarka fúkkalyf til skepna. En það hefur gengið treglega í Bandaríkjunum og öldunga- deildin hefur ekki enn viljað setja lög um takmörkun fúkka- lyfja. Helstu röksemdir gegn takmörkun hafa verið, að dýra- læknar hafi misnotað fúkkalyf. Gefið þau í of ríkum mæli og stöðva beri það. Þá hefur einnig sú röksemd verið sett fram, að ef fúkkalyfjaskammtar til skepna til manneldis verði minnkaðir þá þýði það aukinn framleiðslu- kostnað þar sem fúkkalyfin hafa flýtt vexti dýra þó að ástæðurn- ar séu ekki kunnar. (Byggt á Newsweek) Þetta gerðist 15. sept.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.