Morgunblaðið - 15.11.1978, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 1978
19
Hjúkrunarfræðingar
úr HI óánægðir með
úrskurð Kjaradóms
MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi fréttatilkynning frá
BSc—hjúkrunarfræðingum. Þar kemur fram að dómur féil nýlega fyrir
Kjaradómi í launamálum þeirra hjúkrunarfræðinga, sem lokið hafa prófi
frá Háskóla íslands. Segja BSc—hjúkrunarfræðingarnir í fréttatilkynn-
ingu sinni, að þeir fái samkvæmt dómnum ekki laun sambærileg við annað
háskólamenntað fóik, heldur fjórum launaflokkum neðar. Tilkynningin
fer hér á eftin
Kjaradómur hefur fellt dóm í
launamálum BSc—hjúkrunarfræð-
inga enda tími til kominn eftir
tæplega árs bið. Þessi dómur hefur
þó farið á þann veg að
BSc—hjúkrunarfræðingar standa á
öndinni af undrun yfir vinnubrögð-
um þessa háttsetta dóms.
Eins almenningur e.t.v. veit braut-
skráði Háskóli Islands sína fyrstu
BSc—hjúkrunarfræðinga vorið 1977.
Hafa nú alls verið brautskráðir 23
háskólamenntaðir hjúkrunarfræð-
ingar. Þetta háskólanám tekur
fjögur ár og lýkur með BSc—gráðu í
hjúkrunarfræðum, sem metin er til
120 eininga og 170—184 námsstiga
til launamats, sambærilegt við aðrar
háskólagreinar. Flestir brautskráðra
hjúkrunarfræðinga hófu störf hjá
ríkinu að námi loknu. Engir samn-
ingar höfðu verið gerðir við þá og
tóku þeir laun sem háskólanemar er
lokið höfðu fjögurra ára háskóla-
námi, þ.e.a.s. launaflokk 11 (BSRB)
og síðar launaflokk 12.
I september 1977 gengu
BSc—hjúkrunarfræðingar í Banda-
lag háskólamanna og í febrúar 1978
voru hafnar samningaviðræður við
samninganefnd ríkisins um kjör
háskólamenntaðra hjúkrunarfræð-
inga og var gerð krafa um að þeir
tækju laun eftir launaflokki 107
(BHM), en háskólamenn með
fjögurra ára BSc—próf eru almennt
í þeim launaflokki. Samkomulag
náðist ekki og var málið lagt fyrir
kjaradóm.
Fjármálaráðherra krafðist tvíveg-
is frávísunar og tafði það málið
verulega.
Dómur var loks kveðinn upp þann
8. nóvember sl. og samkvæmt honum
skulu BSc—hjúkrunarfræðingar
með 8 mánaða starfsreynslu taka
laun eftir launaflokki 103 (BSRB 13).
Hvergi kveður á um í hvaða
launaflokki þeir skulu hefja störf og
í fljótu bragði má ætla að þeir haldi
áfram á fyrrnefndum nemalaunum.
Dæmdur launaflokkur þýðir einnig
að kjaradómur hefur ekki dæmt
þessum hópi laun á borð við aðra
háskólamenntaða menn með sam-
bærilega menntun, heldur fjórum
launaflokkum neðar og námsmat til
launa að engu haft og furðar
BSc—hjúkrunarfræðinga að slíkt
geti viðgengist við félaga innan
Bandalags háskólamanna, þar sem
námsmat er eitt helzta viðmið til
launaflokkaröðunar. Háskólamennt-
aðir hjúkrunarfræðingar telja að
dómur þessi feli í sér lítilsvirðingu
við háskólanám þeirra og vanmat á
hjúkrun.
Hvað hefur gerzt hér? Hverra
hagsmuna er verið að gæta? Hver
eru rökin fyrir því að brotið er svo
hrapalega á slíkum minnihlutahópi?
Hvernig eiga BSc—hjúkrunarfræð-
ingar t.d. að borga þær vísitölu-
tryggðu milljónir, sem þeir skulda í
námskostnað, með krónur 219.063 í
laun á mánuði? BSc—hjúkrunar-
fræðingar vilja ekki una þessum
úrskurði og munu sækja mál sitt til
fj ármálaráðherra.
Reykjavík 14/11.1978.
Tveir fólksbflar rákust saman á veginum yfir Kópavoginn á þriðja
tímanum f gær. Ökumaður minni bflsins slasaðist lftils háttar. Myndin
sýnir lögreglumann athuga bfl mannsins eftir áreksturinn f gær.
Ljósm. Kristján.
Málm- og skipasmíðasambandið fagn-
ar lögum um heymar- og talmeinastöð
SAMBANDSSTJÓRN Málm- og
skipasmiðasambands íslands fagn-
ar setningu laga um heyrnar- og
talmeinastöð íslands.
Með starfrækslu slíkrar stofnun-
ar, þar sem sameinaðir eru flestir
þeir aðilar sem að þessum málum
vinna, er helst von um árangur, og
sambandsstjórnin væntir þess að
góður árangur verði af starfsemi
stofnunarinnar.
Sambandsstjórn telur að leggja
beri mjög ríka áherslu á fyrirbyggj-
andi aðgerðir, að því er varðar
heyrnarskemmdir. Arangursríkast
er að koma í veg fyrir skemmdirnar
eða sjúkdóminn, það er best fyrir
einstaklinginn og best og ódýrast
fyrir samfélagið.
Þær kannanir, sem þegar hafa
verið gerðar á hávaða á vinnustöð-
um og heyrnarskemmdum starfs-
manna þeirra, sýna ótvírætt hina
brýnu þörf þess að allt sé gert, sem
hægt er, til þess að hávaði fari ekki
yfir hættumörk, og koma þannig í
veg fyrir heyrnarskemmdir.
Sambandsstjórn telur eðlilegt og
mælist eindregið til þess að búnað-
ur til heyrnarverndar með lágtíðni-
móttöku fyrir boð innan vinnustað-
ar — hliðstæður þeim sem notaður
er í kirkjum og leikhúsum — sé
tollflokkaður sem önnur öryggis-
tæki.
Afmælis>eisla
á 72 sídum'fcmw
Fyrr og nú. Sama stúlkan
og aftur nú 25 árum síðar.
balabaði, 7 mánaða
Ævar Kvaran skrifar um dulsýnir Hafsteins
miðils.
Ráðherrastólarnir og skap
gerðareinkenni þeirra
sem á þeim sitja.
Taugalyf í tonnatali.
Grein um lyfjanotkun
landsmanna.
Á neytendamarkaði:
Hvað kostar fertugs-
afmælið.
Klúbbur matreiðslumeistara: Gísli Thoroddsen,
yfirmatreiðslumeistari, kennir okkur að matreiða lambapott.
Poppk
Nýr þáttu
Umsjón:
»7ktV