Morgunblaðið - 15.11.1978, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 1978
15
Gísli Halldórsson leikstjóri ásamt Sigríði Hagalín.
Tómas Zoega. þýðandi „Lífs-
háska“. Myndir Kristinn.
ÞRIÐJA frumsýning Leik-
félags Reykjavíkur á þessu
hausti verður í Iðnó í kvöld.
Leikritið „Lífsháski“ eftir Ira
Levin verður þá sýnt í annað
skipti utan Bandaríkjanna.
Þýðandi „Lífsháska“ er Tómas
Zoega. leikstjóri er Gísli
Halldórsson en leikarar eru 5,
Þorstcinn Gunnarsson, Iljalti
Rögnvaldsson. Ásdís Skúla-
dóttir. Sigríður Ilagalín og
Guðmundur Pálsson.
„Lífsháski“ er sakamálaleik-
rit, tryllir, eins og þýðandinn
hefur kallað það. Leikurinn
gerist í West Port í New
England í Bandaríkjunum á
heimili hjóna sem leikin eru af
Þorsteini Gunnarssyni og Ás-
dísi Skúladóttur. Eiginmaður-
inn er rithöfundur og skrifar
glæpaleikrit. Leikritið er í 2
þáttum og 6 atriðum. Sýningar-
tíminn er 2 tímar og 20 mínútur
með hléi en innri tími leikrits-
ins er 3 vikur.
„Lífsháski"
frumsýn! í Iðnó í kvöld
Fyrsta sakamálaleikrit L.R. í 21 ár
„Þetta er spennandi nútíma-
leikrit, gerist í október hvenær
sem er í nútímanum,“ sagði
þýðandinn Tómas Zoega.
Vigdís Finnbogadóttir leik-
hússtjóri tjáði okkur að síðast
hefði sakamálaleikrit verið sýnt
hjá Leikfélagi Reykjavíkur árið
1957, Lykill að leyndarmáli, en
áður var sakamálaleikritið
Blúndur og blásýra sýnt í Iðnó
árið 1947.
„Þetta er vel samið og gott
leikhúsverk," sagði Vigdís. „í
leikritinu er talsverð ádeila á
vinsældir höfunda sem lenda í
kreppu með hvað þeir eiga að
skrifa næst. Mesti kosturinn við
þetta leikrit er hvað það er nýtt.
Við höfum sjaldan fengið svona
ný leikrit, það má segja að það
sé volgt úr pennanum. Við
héldum lengi að við yrðum fyrst
til að sýna „Lífsháska" utan
Bandaríkjanna en svo varð þó
ekki þar sem það var frumsýnt í
London fyrir nokkrum dögum,“
sagði Vigdís Finnbogadóttir.
I leikskránni sem L.R. gefur
út með leikritinu eru áhorf-
endur hvattir til þess að segja
ekki frá ef eitthvað hefur komið
þeim á óvart til að spilla ekki
ánægju þeirra sem eiga eftir að
sjá leikinn.
Ilér er verið að undirbúa Þorstein Gunnarsson fyrir hlutverkið í
„Lífsháska“ en hann fer með eitt af aðalhlutverkum leikritsins.
Skólabörn-
um fækk-
aði um 1957
á 5 árum
í GRUNNSKÓLUM Reykja-
víkur voru á sl. ári 1977 — 78
samtals 12621 nemendur, að
því er fram kemur í nýút-
kominni Árbók Reykjavík-
ur. Tala nemenda í bekkjar-
deildum sýriir að nemendur
eru færri í neðri bekkjum en
þeim efri. enda kemur það
heim við þá staðreynd að
börnum fækkar með ári
hverju.
I sex ára bekkjum, þar sem
raunar ekki ér skólaskylda,
voru á sl. vetri 1351 barn, í 1.
bekk eða 7 ára 1336, 8 ára
1320, 9 ára 1259, 10 ára 1318,
11 ára 1436, 12 ára 1469, 13
ára 1495, 14 ára 1482 og 15
ára 1506.
Börnum í öllum þessum
aldurshópum hefur fækkað
verulega í skólunum á síð-
ustu 5 árum eða síðan
veturinn 1972—73. Þá voru
sex ára börnin 1579 talsins, 7
ára börnin 1609, 8 ára börnin
1619, 9 ára börnin 1587, 10
ára börnin 1625, 11 ára
börnin 1542, 12 ára börnin
1620, 13 ára börnin 1628, 14
ára börnin 1597 og 15 ára
börnin 1751 talsins.
Samtals vöru börnin fyrir
5 árum 14578, en nú 12621.
„Við erum ánægðir með
árangurinn síðasta ár og ætlum
að koma aftur næsta ár. Við
munum ekki hætta fyrr en 10 ára
hvalveiðibann er orðið staðreynd.
hvort sem það tekur 2 eða 5 ár að
koma því á,“ sögðu forsvarsmenn
Greenpeace-samtakanna á fundi
með blaðamönnum í gær.
Á næsta ári mun skip
Greenpeace-manna, Rainbow
Warrior, koma aftur hingað til
lands í byrjun hvalvertíðar. Áhöfn
skipsins, allt sjálfboðaliðar, mun
eins og áður reyna að hindra
áhafnir hvalveiðibátanna við
veiðarnar. Að sögn Green-
peace-manna munu þeir beita
sömu aðferðum og síðasta ár,
þ.e.a.s. þeir munu fara á uppblásn-
um gúmbátum milli skutuls hval-
veiðibátanna og hvalanna.
Greenpeace-samtökin álíta að síð-
Greenpeace-sam-
tökin boda komu
sína á næst a ári:
SS' s ' '
Greenpoace-menn hindra
veiðar Hvals 9. Rainbow
Warrior, skip Greenpeace,
sést í baksýn.
Allan Thornton (t.v.) og Peter
Wilkinson (t.h.) skýra málstað
Greenpeace-samtakanna á blaða-
mannafundinum í gær.
Ljósm. Kristján.
„Hættum ekki fyrr en 10 ára hval-
veiðibannið er orðið staðreynd”
asta ár hafi þau komið í veg fyrir
dráp 12 til 15 hvala með þessum
aðgerðum.
Markmið samtakanna er að
verða til þess að 10 Ara hvalveiði-
banni verði komið Trnínhið víif
samþykkt einróma á alþjóða
umhverfismálaráðstefnunni í
Stokkhólmi 1972. Nokkrum vikum
seinna greiddu íslendingar
atkvæði á móti banninu á ársþingi
alþjóða hvalveiðiráðsins.
Að sögn Greenpeace-manna eru
Islendingar eina þjóðin sem sæti á
í alþjóðahvalveiðiráðinu og veiðir
langreyði. Þeir segja að hvölum
þeirra tegundar hafi fækkað mikið
um allan heim en þeir eru nú
friðaðir alls staðar nema i
Norður-Atlántshafi.
Á næsta ári segjast Green-
peace-menn ætla að verða lengur
hér við land en á síðasta ári, eða 2
til 3 mánuði, og vonast þeir til að
geta stöðvað dráp enn fleirri hvala
en gert var í fyrra. Einnig munu
Greenpeace-samtökin halda til
Spánar á Rainbow Warrior í sömu
erindagjörðum og til Miðjarðar-
hafsins munu þeir halda til að
reyna að koma í veg fyrir að
tunnum með gasi er þar kastað í
sjóinn dagiega.