Morgunblaðið - 15.11.1978, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
261. tbl. 65. árg. MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Krafa Sadats:
Gazasvæðið verði
egypzt land á ný
Símamynd AP
Nýtt met í Heimsmetabók Guinnes að verða að veruleika.
John Massis frá Belgíu setti nýlega heimsmet í að draga
járnbrautavagna með tönnunum einum saman, þegar
hann dró þrjá járnbrautavagna með alls 126,3 tonnum á.
Sprengingar á
Norður-írlandi
Ismailia. 14. nóv. AP. Rcutor
ANWAR Sadat, forseti
Egyptalands, sagði á þing-
flokksfundi í gær að for-
sendurnar fyrir því að
Egyptar og ísraelsmenn
gætu samið endanlega um
frið væru þær að Israels-
menn skiluðu aftur Gaza-
svæðinu sem þeir hertóku í
sex daga stríðinu 1967, að
sögn eins þingmanna í
flokki forsetans.
Að sögn þingmannsins sagði
Sadat ennfremur að afstaða
Egypta væri skýr það yrði ekki
hvikað frá þessum skilyrðum.
Deilurnar um búsetu á vestur-
bakka árinnar Jórdan sagði Sadat
alfarið vera vandamál palistínu-
skæruliða en ekki Egypta.
Fyrr í dag sagði Sadat á fundi
með fréttamönnum að hann hefði
ákveðið að senda varaforseta sinn,
Hosni Mubarak, til Washington til
viðræðna við Carter Bandaríkja-
forseta. Einnig ætti varaforsetínn
að afhenda Carter orðsendingu
egypzku stjórnarinnar þar sem
Nairobi, 14. nóv. AP. Reuter.
IDI Amin, forseti Úganda
tilkynnti í dag að hann
væri að draga allt herlið
afstaða hennar væri ítarlega
skýrð.
Haft var eftir Boutros Ghali,
utanríkisráðherra Egyptalands, í
París í dag, að friðarviðræðurnar í
Washington væru í sjálfheldu
vegna alvarlegra vandamála sem
upp hefðu komið en þau væru alls
ekki óyfirstíganleg.
Úgandamanna til baka frá
Tanzaníu þar sem barist
hefur verið síðustu þrjár
vikurnar.
Úgandaútvarpið hafði
eftir forsetanum að hann
teldi það skyldu sína til að
vernda sameiningu Afríku
að draga allt herlið sitt til
baka, að viðurkenndum
landamærum ríkjanna.
I yfirlýsingu Tanzaníumanna
vegna þessa segir hins vegar að
allt tal um að her Úganda sé á leið
burt frá Tanzaníu sé þvættingur;
hið rétta sé að Amin sé að styrkja
herlið sitt til muna á þessum
slóðum.
Tanzaníumenn segjast munu
láta hart mæta hörðu og hersveitir
þeirra verði verulega efldar að
mannafla á næstunni.
Idi Amin
Ekki var gefin út nein opinber
tilkynning vegna atburðanna en
sjónarvottar segja þá hafa verið
blóðuga og margir hafi fallið.
Sérstaklega var hart barist í
verzlunarhverfum Teheran og lágu
blóðug lík þar víðs vegar um götur.
Samtímis þessum skærum til-
kynntu verkamenn í olíuverk-
smiðjum landsins ;em verið hafa í
Belfast, 14. nóv. Reuter. AP.
SPRENGJUR sprungu _ í
sex bæjum á Norður-ír-
landi í dag og særðust 30
verkfalli í þrjár vikur að þeir
ætluðu að snúa aftur til vinnu á
morgun. Kemur þessi tilkynning í
kjölfar langra og strangra funda
sem verkfallsmenn hafa átt með
stjórnvöldum á síðustu dögum, en
verkfallið hefur kostað þjóðina
gífurlegar fjárhæðir. Talið er að
tapið nemi daglega allt að 4
milljörðum íslenzkra króna.
manns í þeim, en enginn
lét lífið að því er segir í
tilkynningu frá lögregl-
unni.
Forráðamenn lögregl-
unnar telja þessar spreng-
ingar aðeins forboða enn-
frekari aðgerða liðsmanna
írska lýðveldishersins nú
fyrir jólin, en þeir láta
jafnan til skarar skríða á
þessum tíma ár hvert.
Ekki urðu veruleg meiðsl á þeim
sem lentu í sprengingunum en
lögfræðingur nokkur slapp þó
naumlega, því að hann átti aðeins
ófarna nokkra metra að bifreið
sinni þegar hún sprakk í loft upp.
Aðgerðir írska lýðveldishersins
beindust að þessu sinni nokkuð að
þvi að stugga fólki frá verzlunar-
hverfum, m.a. í Belfast. Liðsmenn
hersins telja kaupmenn ekki nægi-
lega hliðholla málstað sínum og er
búist við að þeir muni gera enn
frekari atlögu að þeim þegar nær
dregur jólum.
Noregur:
Mikið brugg og
vopn gerð upp-
tæk á eyðieyju
Frá fréttaritara Mbl. í Osló í gœr.
MIKILL styrr stendur þessa dagana um norsku leyniþjónustuna
vegna máls fyrrverandi útgerðarmanns, Hans Otto Meyer, sem var
handtekinn fyrir skömmu. grunaður um stórfellt heimabrugg á
cyðiey í Ósióarfirði og geymdi mörg hundruð skotvopn, vélbyssur,
skriðdrckavopn, útvarpsviðtæki, tölvuvélar og um 10.000 skotfæri og
sprengikúlur í íbúð sinni.
„Verdens Gang“, sem ljóstraði upp
um málið og hefur haft mjög góð
sambönd í lögreglunni, skýrir frá
því að Meyer muni nafngreina að
minnsta kosti 10 yfirmenn í
leyniþjónustunni sem hann hafi
staðið í sambandi við. Heraflinn
hefur gefið í skyn að allir
yfirmenn sem Meyer nafngreinir
verði undanþegnir þagnarskyldu
svo að allar staðreyndir málsins
komi fram í dagsljósið.
Meyer er þekktur fyrir nánast
sjúklegan áhuga á vopnum. Safn
hans hefur aðallega að geyma
vopn frá árunum eftir heimsstyrj-
öldina eða vopn sem eru ófáanleg í
Noregi. Lögreglan reynir einnig að
fá úr því skorið hvernig hann
hefur komizt yfir þessi vopn og
komið þeim til Noregs.
Á eynni þar sem Meyer er
grunaður um að hafa framieitt
áfengi eru geymdar margar fall-
byssur. Meyer hefur einnig komið
sér upp skriðdreka sem hann
notaði þegar hann minntist þjóð-
hátíðardags Norðmanna 17. maí
er hann skaut nokkrum lausum
skotum með honum.
Norsk blöð hafa líkt málinu við
James Bond-sögu, einkum vegna
þess að kvikmyndaleikarinn Sean
Connery heimsótti bústað Meyers
1974 þegar hann vann við kvik-
myndagerð í Noregi. Hann lánaði
framleiðendum kvikmyndarinnar
tvær af Boeing 737 þotum sem
hann á. Frá bústað hans liggja
leynigöng og vopnabúrið er varið
með dauðageislum.
Meyer hefur lýst því yfir að
hann hafi staðið í nánu sambandi
við leyniþjónustuna og geymt
vopnin með leyfi hennar. Bæði
leyniþjónustan og yfirstjórn land-
varna hafa vísað staðhæfingu
Meyers á bug, en viðurkenna að
Meyer hafi verið á skrá um menn
sem yrðu kallaðir út til starfa ef
til styrjaldar kæmi á árunum 1956
til 1964.
Því er eindregið vísað á bug að
leyniþjónustan hafi staðið í
nokkru sambandi við Meyer eftir
þetta eða á nokkurn hátt vitað eða
leyft að hann hefði vopnabúr í
bústað sínum — nógu stórt handa
litlum her.
Heraflinn hefur undanþegið
Meyer þagnarskyldu og þess er
beðið með þó nokkrum spenningi
hvað hann muni segja um sam-
band sitt við heraflann. Blaðið
Hans Otto Mayer.
Herlið Amins
frá Tanzaníu?
Áframhaldandi
skærur í íran
Teheran, 14. nóv. Reuter. AP.
BARDAGAR brutust út enn á ný í Teheran og nágrenni eftir að allt
hafði verið með kyrrum kjörum í vikutíma. Voru þar helzt á ferðinni
andstæðingar keisarans sem fóru um í smáflokkum og gerðu atlögu að
mönnum hliðhollum keisaranum.