Morgunblaðið - 08.06.1971, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 08.06.1971, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1971 19 fyrstu bemskuárum œvinnar, þegar fafíirinn var látinn og móðirin barðist fyrir tilveru bamanna við erfiðar aðstæður islenzkra sveita, og þegar stund um var ekki vitað hvað skyldi til matar haft næsta dag. Skilningurinn hefur enn auk- izt með unglingsárunum, þegar brotizt var til mennta og erfið- ar ferðir fótgangandi frá Norð- urlandi um ókunn héruð og erf- iða fjallvegi, virtust smámunir einir, þvi að til náms I Kenn- araskóla íslands iá leiðin. Siðan kom ábyrgðin sem því fyflgdi að vera trúað fyrir upp- fræðslu bama. Fullmótaður hef- ur þá verið skilningurinn á því, hvað það er að gera skyldu sína, enda var ekki hikað við að leggja út í hrið og storma. Kennslan mátti ekki falla nið- ur í skólanum hinum megin í Mýrdalnum. Árin í skólahúsinu í Fljóts- hlíð urðu mörg og indæl. Þar ólust flestar dætur þínar upp við heimilisbrag, sem mótaðist áf skilningi og samheldni. Kærar eru bemskuminningar systr- anna frá þessum árum er setið var við skrifborðshomið þitt með námsbækur og notið tilsagn ar þinnar. Skyldur þínar gagn- vart heimilinu vom þá slíkar, að það að eiga kmkku af neftó- baki og fá sér stöku sinnum korn í aðra nösina gat virzt munaður. Enda var dætrunum öllum fimm komið til mennta og það atvfkaðist svo að þær hlutu allar nám við þinn gamla Kenn- araskóla. Þú hafðir hlotið í vöggugjöf skálds'kapargáfu. Eins og þú unnir tungu vorri hlýtur slík náðargjöf oft að hafa freistað þín. Skilningur þinn á skyldum þínum hefur þá eflaust yfirbug- að slikar freistingar. Ég minn- ist ekki að sjá þig koma heim úr Laugamesskólanum öðruvísi en klyfjaðan stórum úttroðnum skjalatöskum. Bömdn skyldu ekki svikin, enda flest kvöld og helgar vinnudagar. Ég minnist bamana, sem þú útskrifaðir tólf ára, og höfðu fýlgt þér nokkur síðustu árin í skólanum. Þau höfðu vissulega fuTídið hug þinn, er þau af hjart ans þakklæti færðu þér Skraut ritað skjal með myndum af sér. Þú hengdir þetta skjal fagurra minninga fyrir ofan skrifborðið þitt. Þótt dæturnar flyttu að heim- an, hélt heimili þitt í rauninni áfram að vera þeirra, aðeins höfðu tengdasynir og barna- börn bætzt við. í nær fimmtíu ár hafðir þú stundað störf þín og nær jafn lengi stóð við hlið þér sú kona, sem batzt þér kærleiksböndum sautján ára gömul og var eitt i þér til hinzta dags, svo þar bar aldrei skugga á milli. Harmur hennar er því mikill, jafnvel þótt þið bæði hefðuð öðlazt fullvissu um að líf er að loknu þessu. Er ég nú kveð þig að þessu sinni, kæri Halldór, langar mig aðeins að þakka þér þann lær- dóm, er ég nam af kynnum okk- ar og sem mun vara um ókomin ár. Hvers er hægt að óska sér fremur en að öðlast skilning þinn á þeim orðum er þú forð- um sagðir við mig: „Maður verð- ur að gera skýldu sína meðan maður getur." Hrafn Einarsson. Haustið 1920 hittumst við Halldór fyrst. Þá vlð inntöfeu- próf í Kennaraskóla Islands. Ekki er mér ljóst hvemig á þvi stóð, að við urðum strax góðir félagar. Ef til vill af þvi að við vorum báðir húnvetnskir sveita- piltar ókunnugir hér i bæ. Við sátum við sama borð í kennslu- stundum, bjuggum i sama her- bergi, borðuðum á sama matsölu stað og svo framvegis. Að námi loknu skildust leiðir. Starfið hófst. Annar fór norður í land, hinn vestur á Snæfellsnes. Þá skrifuðumst við á. Fundum okk- ar bar saman öðru hvoru. Við skiptum um kennslustaði. Að lofeum höfnuðu svo báðir í Reykjavife. Hér bjuggum við í nágrenni. Örstutt á milli. Unn- um við sömu stofnun, Laugames sfeólann i mörg ár. Alltaf var samkomulag okkar gott, enda var Halldór góður félagi, gáfað- ur, skemmtilegur og hagorður vel. Eftir þvi sem árin liðu varð vinátta okkar nánari. „Ber er hver á baki nema sér bróður eigi,“ kvað Grettir. Ég hef aldrei átt neinn bróður, en hafi nokkur maður komizt nærri því að fylla það skarð, þá er það Halldór Sölvason. Hann var maður traustur. Við söknum oft sárt góðra fé- laga, þegar þeir hverfa af svið- inu, en missir trúnaðarvinar verður aldréi bættur, því að slíkur maður er á vissan hátt orðinn partur af manni sjálfum. Halldór var frábær starfsmað ur. Áhugi hans á öllu, sem hon- um var trúað fyrir, dugnaður og samvizkusemi brugðust aldrei. Ekki kæmi mér á óvart, þótt þeir yrðu æðimargir fyrrver andi nemendur hans, sem hugs- uðu til hans i dag með hlýhug og söknuði. Hann var gæfumaður um flest. Kvæntur ágætri konu, Katrínu Sigurðardóttur. Unni hann henni mjög. Þau eignuðust fimm dætur, allar prýðilega gefnar. Heimili höfðu þau búið sér mjög gott. Undi Halldór sér þar bezt. Fjárhagur hans var góður, eink um hin slðari ár. Heilsuveill var hann að visu upp á síðkastið, en aldrei þjáður til muna. Var sjúkdómur hans með þeim hætti, að hann gat búizt við skyndi- legum endalofeum. Varð ég þess var, að hann vonaði að þegar að því kæmi, þá tæki fljótt af. Varð honum þar líka að ósk sinni. Flyt ég svo konu hans og allri fjölskyldu þeirra mínar ynnileg ustu samúðarkveðjur. Þá er þessari fimmtíu ára sam- fylgd okkar lokið, Halldór. Þakka ég þér hana alla hjart- anlega. Þú hefur lifað og starf- að vel og æðrulaus „gengið til hvíldar með glófægðan skjöld, glaður og reifur hið síðasta kvöld.“ Vertu sæll gamli vinur. Klemens Þórleifsson. Síð sumars árið 1948 kom Hadldór Sölvason í Laugarnes- skólann og hóf þar kennslu. Við höfðum áður sézt i svip á kenn- araþingum, en kynni voru eng- in, utan afspurnar, sem ég hafði af störfum hans austur í Fljóts- hlíð. Það er ekkert launungar- mál, að í skólum er það ástund- að eftir getu að fá sem bezta og hæfasta kennara til starfa, enda er allur farnaður skóla fyrst og fremst undir þeim kominn. Það orð hafði farið af Hall- dóri, að við hann voru tengdar miklar vonir þegar við komu hans í skólann, og er skemmst af því að segja, að þær vonir rætt- ust svo sem bezt mátti verða, enda eru öll mín kynni af Hall- dóri á þá lund, að ég hygg, að enginn hafi nokkru sinni orðið fyrir vonbrigðum með störf hans. Halldór var einhver mik- ilhæfasti kennari, sem ég hef kynnzt. Hjá honum fóru saman góðar gáfur, einbeittur vilji, ein læg hlýja og sá skörungsskapur og persónuleiki, sem kennurum er nauðsynlegur, til þess að góð ur árangur verði af störfum þeirra. Gilti einu, þegar Halldór átti í hlut, hvort litið var til þess árangurs af námi, sem fram kem ur í einkunnum, eða þeirra upp eldisáhrifa, er nemendur njóta sér til heilla hjá góðum kenn- ara. Munu því margar hlýjar þakkarkveðjur frá gömlum nem endum, sem nú eru dreifðir víðs vegar um land, fylgja honum yf ir landamærin. Seinni árin í Laugarnesskóla vann Halldór auk kennslunnar í lesstofu skólans, og mótaði hann þar þá umgengnishætti og reglusemi, er við höfum síðan miðað við sem fyrirmyind og tak mark. Halldór veir góður og skemmti legur starfsfélagi, ævinlega glað ur og reifur dag hvern, ágæt- lega hagmæltur og lét oft fjúka 1 kveðlingum. Hann tók alla tíð þátt í félagsstörfum kennara af sínum einlæga áhuga, hvort sem um var að ræða kennslu- mál eða störf í selslandi skólans uppi í Katlagili. Halldór var fimmtugur, þegar hann kom í Laugarnesskól- ann, og þar var hann að störf- um, þar til hann var sjötugur og misseri betur. Hinn 8. maí, þeg- ar aðeins var eftir rúmur hálfur mánuður til þess, að lokið væri að fullu 46 árum við kennslu- störf, veiktist hann mikið og skyndilega. Mig minnir, að hann hefði orð á þvi þá, að sér þætti endasleppt að geta ekki lokið að fullu síðasta skólaárinu. Næsta vetur var hann þó enn í okkar hóp og vann í lesstofunni. Og alla stund hélt hann tryggð við félagana hér og skólann, tók þátt í félagsstörfum, kom oft í skólann á hátíðum og tyllidög- um og var ævinlega við skóla- slit. Síðast kom hann til okkar, þegar skólanum var slitið nú 28. maí. Þá átti hann aðeins eftir þrjá daga í þessum heimi. Við okk-ur gerði hann ekki enda- sleppt. Við eigum á bak að sjá góðum dreng, félaga og vini, sem við söknum með djúpri hryggð. Halldórs Sölvasonar verður minnzt í Laugarnesskóla með þökk og virðingu, meðan þar er nokkur maður, sem hafði af hon um kynni. Blessuð sé minning hans. Eiginkonu Halldórs og öðrum ástvinum votta ég einlæga sam- úð í sorg þeirra. Gnnnar Guðmundsson. „Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúist við atorð eitt. Aðgát skal höfð i nærveru sálar . ..“ Þennan fagra boðskap, sem skáldið boðar okkur i þessari vísu, virðist mér Halldór Sölva- son, kennari, tileinka sér í öllu sínu starfi. Ég var svo lánsöm að fá að vera nemandi hans í fimm vetur. Mikið vatn er til sjávar runnið síðan það var, en þessir vetur eru grópaðir i minn inguna eins og skinandi fagrar perlur á bandi, þar sem hver dagur var fullur eftirvætning- ar og gleði. í litlu kennslustof- unni var unnið af svo miklum áhuga og eldmóði, að það var ekki hægt annað en hrífast með. Þar var aldrei leiðinlegt eða staglsamt nám, eða lítilsvirðandi orð um þá, sem minna gátu, held ur lifandi kennsla, þar sem leit- azt var við að laða það bezta fram og bæta á allan hátt. Það var ekki gert með aðfinnslum eða predikunum, heldur í lifandi fyr irmynd. Halldór var einlægur trúmað- ur og báru kristnifræðitimar hans þess glöggt vitni, svo og látlausar bænastundir að morgni hvers kennsludags. Þannig hóf hann líka fyrstu samverustundina með væntanleg um nemendum sínum, er hann tók við skólastjórastarfi í Fljóts hliðarskóla haustið 1934, þeirri stund mun ég aldrei gleyma. Það var þá þegar, sem níu ára gömul stúlka fann, að þama var kom- inn kennari og maður, sem hún gat borið fyllsta traust til. Enda varð svo að það brást aldrei all an okkar samverutíma. Halldór átti líka góða konu, Katrínu Sigurðardóttur, sem var honum stoð og stytta í starfi og bjó honum fagurt og friðsælt heimili. Dæturnar fimm fetuðu í fótspor föður síns, því þær tóku allar kennarapróf. Ég óska og bið að þjóð vor eignist sem flesta kennara sem vinni í anda Halldórs Sölvasonar. Kæri gamli kennarinn minn. Ég kveð þig að sinni með hjart- ans þökk fyrir allar samveru- stundirnar og fyrir allt hið fagra og góða, sem þú sáðir i hjörtu okkar riemenda þinna. Það mun aldrei gleymast, en vera okkur leiðarljós og styrk- ur i önn og erfiði lifsins. Hittumst heil á sviðinu hand- an tjaldsins, sem aðskilur í bili. Guðrún Hulda. Gamall skólafélagi og vinur er fallinn í valinn með langan starfsferil að baki. Hann óx upp norður í Húnaþingi á hörðu en fyrirheitaríku vori nýrrar ald- ar, kaus sér að ævistarfi leið- sögn og fræðslu, og stundaði kennslu hátt á fimrnta áratug. Leiðir okkar Halldórs Sölva- sonar lágu fyrst saman vetur- inn 1920. Hann var þá í 2. bekk Kennaraskólans en ég í fyrsta. Þótt ekki værum við bekkjar- félagar tókust fljótlega með okkur góð kynni, sem síðar áttu eftir að eflast og verða að ævilangri vináttu. Vorið 1922 útskrifaðist Hall- dór úr Kennaraskólanum og næsta haust réðst hann farkenn ari í Breiðavíkurhrepp á Snæ- fellsnesi. Vorið 1923 útskrifaðist minn árgangur. Það sumar héld- um við hópinn í Reykjavík nokkrir skólabræður í atvinnu- leit, en með misjöfnum árangri. Þar á meðal var Halldór Sölva- son, sem ekki h-ugði nú á fram- tíðarstarf í Breiðuvík. — Auk leitar að sumaratvinnu stóð nú fyrir dyrum að komast í kenn- arastöðu næsta vetur, en þar voru margir um boðið. Tókum við að senda umsóbnir hingað og þangað og var nokkuð tilvilj- anakennt hvar borið var niður. Við vildum ógjarnan sækja hver á móti öðrum og kom þá fyrir, að hlutkesti var látið ráða. Þannig atvikaðist það, að Hall- dór sótti um kennarastöðu í Vestur-Landeyjum. Stöðuna fékk hann og starfaði þar næstu fjögur árin. Þar kynntist hann tilvonandi eiginkonu sinni Katrinu Sigurðardóttur. Þau gengu í hjóna-band vorið 1925. — Þegar við Halldór, síðar á æv- inni, rifjuðum upp gamlar minn- ingar og „hlutkestið" bar á góma, varð honum að orði, að þar hefðu heilladísir haft hönd í bagga. Og ekki dreg ég i efa, að þau hjónin voru sammála um, að þetta var stóri vinningurinn þeirra beggja. Haustið 1927 fluttust þau hjónin austur í Mýrdal, þar sem Halldór gerðist skólastjóri við Reynis- og Deildarárskóla. Þar voru þau til ársins 1934, er þau fluttust vestur í Fljótshlíð og Halldór varð skólastjóri barna- skóla sveitarinnar. — Ég var þá nýkominn að heimavistarskólan um að Strönd og fagnaði þvi, að fá minn góða, gamla félaga i ná- grennið. — Margs er að minnast frá árunum, sem í hönd fóru, þótt hér verði að engu eða litlu getið. Varðandi skólastarfið átt um við Halldór sameiginleg áhugamál og ýmsan vanda við að glíma, og á ég honum þar mörg hollráð ógoldin. Á heimili þeirra hjóna átti ég marga góða stund, og í huganum geymist enduróm- ur af glettnum tilsvörum og glöð um hlátrum. Árið 1948 fluttist Halldór með fjölskyldu sina til Reykjavlfeur. Þar var hann kennari við Laug- amesskólann unz hann lét af starfi fyrir aldurs sakir. Á efri árum, þegar kyrrist um, gefst tóm til að vega og meta verðmætin, sem lifið færði, bera saman tekjurnar og gjöldin. Ef- laust verður það mat meira og minna einstaklingsbundið. Þó tel ég sennilegt, að mannkost- ir og góðvild, sem við nutum I fari samferðamannanna, verði einna drýgst tekjumegin, þegar öll kurl eru komin til grafar. Ég og fjölskylda mín sendum eftirlifandi eiginkonu og dætr- um Halldórs Sölvasonar, svo og öðrum vandamönnum hans inni- legar samúðarkveðjur. Frímann Jónasson. - EBE Framhald af bls. 1. um að ræða gjaldeyrisvarasjóði annarra ríkja brezka Samveldis- ins, og nema þeir nú milljörðum sterlingspunda. Þá segir í yfir- lýsingu Rippons að Bretar séu reiðubúnir til að samþykkja að pundið fylgi sömu ákvörðunum og gildir um annan gjaldmiðil EBE-ríkjanna eftir að landið verður aðili. Samkomulag náðist einnig um innflutning Breta á súráli, og var ákveðið að ný aðildarríki EBE fengju að flytja inn súrál toll- frjálst til 1. jan. 1976, en eftir það yrði lagður á innflutningstollur í tveimur áföngum á hálfu öðru ári, er næmi alls 5,5%. Tollurinn innan EBE er nú 8,8%. Rippon ræddi einnig fiskimála stefnu EBE, en þar er gert ráð fyrir því, að hvert aðildarriki fái aðgang að fiskveiðilögsögu hinna ríkjanna. Sagði Rippon að þetta gætu Bretar ekki fallizt á. Þó taldi hann hugsanlegt að fiskiskip hinna aðildarríkjanna fengju að veiða allt upp að sex mílna mörkunum við Bretland. Ljóst er að fiskimálastefnan i heild verður tekin til ítarlegrar endurskoðunar áður en næsti áfangi viðræðnanna hefst í Lux- embourg 21. þessa mánaðar. Poul Nyboe Andersen ráðherra hélt sérkennilegan blaðamanna- fund í Luxembourg að viðræðun- um loknum í dag. Bauð hann um 200 erlendum fréttamönnum til hádegisverðar, þar sem fram voru bornir ýmsir danskir réttir. Lýsti ráðherrann ánægju sinni yfir gangi viðræðnanna í dag og kvaðst ekki efast um að unnt yrði að leysa öll vandamál varð- andi aðild Danmerkur að sam- tökunum, og það innan fárra vikna. Andersen sagði, að Danir gætu fyrir sitt leyti fallizt á fiskveiði- stefnu EBE og að danskir fiski- menn hefðu þar ekkert að ótt- ast. Hins vegar óskuðu Danir eft- ir undanþágum varðandi fisk- veiðar Færeyinga og Grænlend- inga. Patrick Hillery, utanríkisráð- herra Irlands, var ekki jafn ánægður með fiskveiðistefnuna, og benti fréttamönnum á, að hún væri mörkuð á þeim grundvelli að aðildarríkin væru sex. Hlyti fjölgun aðildarríkjanna upp í tíu að valda þar nokkrum breyting- um. Eðlilegast taldi hann að heimila nýju aðildarríkjunum fjórum — Danmörku, Noregi, Bretlandi og Irlandi — að halda óbreyttri fiskveiðistefnu frá því sem nú er, það er, að þessi ríki fengju að halda sinni fiskveiði- lögsögu óbreyttri. Að öðru leyti lagði Hillery til, að ákvörðun um fiskveiðistefnuna yrði látin bíða þar til eftir að rikin fjögur hefðu gerzt aðildar að EBE. Innilegt þakklæti færi ég öll- um þeim, er sýndu mér vin- áttu og hlýhug á áttræðis- afmæli mínu hinn 26. maí sl. Elísabet Berndsen. Lokað kl. 1-4 vegna jarðarfarar. HANS PETERSEN H/F., Bankastræti 4, Álfheimum 74.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.