Morgunblaðið - 08.06.1971, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 08.06.1971, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1971 Dr. Þorsteinn Sæmundsson, st jörnufræöingur; Jólagjöf til Jankovic Framhaldssaga úr Rannsóknaráúi Myndin sýnir, hve margir lítrar af bensíni voru venjulega tekn- ir á bifreið rannsóknaráðs árið 1969. Algengast er, að teknir séu 41—55 lítrar, en annar toppur keinur fram á bilinu milli 26 og 35 lítra. í GREIN sem ég ritaði í Morg- unblaðið fyrir skömmu, lýsti ég tildrögum þess, að ég fór að kanna reikninga og fylgiskjöl Rannsóknaráðs ríkisins fyrir ár- ið 1969. Ég gat þess þá einnig, að mér hefði þótt sitthvað at- hugavert i reikningunum, en nefndi hvorki töiur né efnisatr- iði, enda eðlilegt að málið væri fyrst lagt fyrir rannsóknaráð sjálft. Það tókst svo á hinum langþráða fundi ráðsins 18. maí sl. Þar sem yfirlýsingar fram- kvæmdanefndar og framkvæmda stjóra ráðsins eftir þennan fund hafa verið fremur fáorðar, og auk þess heldur villandi, sýnist mér ástæða til að rekja nokkru nánar efni þeirra athugasemda sem ég setti fram á fundinum. * SAKLAUS ÓREIDA Áður en ég kem að megin- atriðum málsins, þykir mér rétt að vikja litillega að þeim þætti i reikningum rannsóknaráðs, sem nefna mætti saklausa ó- reiðu. Mistök í bókhaldi geta alltaf átt sér stað og eru sjaldn- ast umtalsverð. 1 bókhaldi rann- sóknaráðs eru villurnar hins veg ar svo margar og fjölbreytilegar, að með fádæmum er. Til óreiðu reikna ég t.d. það, þegar þátt- tökugjald í stjórnunarnámskeiði, kr. 6800, er fært sem „önnur þjónusta við jarðefnaleit“; þeg- ar reikningur frá véladeild SÍS fyrir bifreiðavarahluti (kr. 920) er færður á ritfangakostnað; þeg ar reikningur frá framkvæmda- stjóranum vegna síðdegisboðs (kr. 2000) er að hluta tvígreidd ur; þegar fylgiskjöl vantar með ferðakostnaðarreikningum, eins og algengt er, o.s.frv. Fyrir kemur að færslumar eru svolítið kyndugar. Sem dæmi má nefna reikning frá skartgripaverzlun fyrir hnappa (kr. 890). Á reikninginn er rit- að: „Jólagjöf til Dr. Jankovic“, en síðan er hann færður til gjalda á viðhald bifreiðar rann- sóknaráðs, R-10816! Óreiðu af þessu tagi eru gerð allgóð skil í athugasemdum ríkisendurskoð unar, sem fylla 14 síður vélritað ar (34 með fylgiskjölum), og er óþarfi að rekja slíkt nánar. * GRÆNAR BAUNIR OG KJÖTBOLLUR Á mörkum þess sem unnt er að kalla saklausa óreiðu, er færsla ýmissa reikninga sem snerta Surtseyjarfélagið. Þannig er mál með vexti, að fram- kvæmdastjóri rannsóknaráðs er jafnframt formaður Surtseyjar- félagsins, og hefur hann fengið skrifstofustjóra rannsóknastofn- ana atvinnuveganna til að taka að sér bókhald félagsins sem aukastarf. Þetta fýrirkomulag hefur leitt til þess, að reikning- ar Surtseyjarfélagsins hafa blandazt reikningum rannsókna- ráðs í allríkum mæli. Sérstak- lega verður þetta ámælisvert fyr ir þá sök, að framkvæmdanefnd rannsóknaráðs hafði áminnt framkvæmdastjórann um að blanda ekki saman reikningum ráðsins og Surtseyjarfélagsins. Hef ég þetta eftir formanni fram kvæmdanefndar, sem þrívegis sagði mér frá þvi. Á fundi rann sóknaráðs hinn 18. maí sagði framkvæmdastjórinn hins vegar, að hann minntist þess ekki að hafa fengið neina slíka áminn- ingu. í úrskurði ríkisendurskoðunar er Surtseyjarfélaginu gert að endurgreiða kr. 8190 til rann- sóknaráðs, og verður ekki annað séð, en að félagið megi vel við una. Áður en skilizt er við Sui'ts- eyjarfélagið, verður að minnast á fylgiskjal nr. 42/12. Þar er að 'finna reikning frá Steingrími Hermannssyni til Surtseyjarfé- lagsins. Reikningurinn er fyrir grænar baunir og kjötbollur, kr 2000 sléttar. Upphæðin er greidd af rannsóknaráði og færð til gjalda á „viðhald bifreiðarinnar R-10816"! ★ LASARUS Á HJÓLUM? Eitt af því sem athygli vek- ur í reikningum rannsóknaráðs er bifreiðakostnaðurinn. Á ég þá ekki við aðkeyptan akstur, þótt hann sé umtalsverður (um 300 þús. á árinu 1969), heldur rekst urskostnað bifreiðar rannsókna- ráðs, R-10816. Bifreið þessi var fremur litil bandarísk fólksbif- reið af gerðinni Chevrolet Chevy II, árgerð 1965, og taldist í flokki forstjórabifreiða, þ.e. fram kvæmdastjórinn hafði fengið heimild til að nota haina í eigin þágu endurgjaldslaust. Árið 1969 eru færðir á reksturskostnað þessarar bifreiðar reikningar sem nema hvorki meira né minna en 275000 kr., þar af kr. 185300 í viðhaldskostnað og kr. 66300 í bensín. Engum dylst, að þessar tölur þarfnist nánari skýr inga. í greinargerð með árs- reikningum rannsóknaráðs dags. 19. júní 1970 skýrir frarn- kvæmdastjóri bifreiðakostnaðinn á eftirfarandi hátt: „Kostnaður við bifreið Rann- sóknaráðs var mjög mikill árið 1969, einkum viðhaldskostnaður. Bifreið þessi er frá 1964, og varð þegar Ijóst á árinu 1968 að gera þyrfti mjög verulega við hana. Því var athugað, hvort unnt mundi vera að fá bifreið- ina endurnýjaða, en það var ekki talið koma til greina vegna ráðgerðra breytinga á bifreiða- eign ríkisins. Því var ekki um annað að ræða en að fram- kvæma kostnaðarsamar viðgerð ir á bifreiðinni. Má segja, að bif reiðin öll, bæði vél, hús, undir- vagn o.fi. hafí verið lagfært, allt ryð fjarlægt og bifreiðin máluð.“ Lýkur þar skýringum fram- kvæmdastjóra. Einhver hefði nú kannski hugsað sem svo, að með tilliti til „ráðgerðra breytinga á bif- reiðaeign ríkisins" væri réttast að eyða ekki allt of miklu fé í kostnaðarsamar viðgerðir á bif- reiðinni. En framkvæmdastjór- inn ei' sýnilega á öðru máli. — Þannig lætur hann mála bifreið ina og ryðbæta fyrir 38 þúsund krónur í árslok 1969, rétt áður en hún er seld. Illgjarnir menn myndu kannski segja, að fram- kvæmdastjóri hefði verið að storka þeim yfirvöldum, sem neituðu honum um nýjan bíl, en fáir myndu treysta sér til að' halda slíku fram i alvöru. * KYNLEGIR REIKNINGAR Þótt hægt sé með góðum vilja að verja myndarlegum fjár hæðum til viðhalds á einni bif- reið, eru 185 þúsund krónur samt ótrúleg upphæð, þegar um er að ræða fólksbifreið, sem ekki er notuð við atvinnurekst- ur, í venjulegum skilningi þess orðs. (Það skal tekið fram, að talan 185 þúsund er nettóupp- hæðin; þ.e. sú upphæð, sem fæst þegar grænar baunir, kjötboilur og annað góðgæti er frádregið.) Séu lagðar saman vinnustúnd ir á verkstæðisreikningum koma út 342 stundir, þ.e. nálægt einini stund á dag árið um kring, að meðaltali! Sú spuming hlýtur að vakna, hvort þarna hafi ekki slæðzt með reikningar fyrir við hald annarra bifreiða en bifreið- ar rannsóknaráðs R-10816. Þegar farið er yfir reikning- ana má auðvitað sjá, að margir eiga við bifreið af sömu gerð og bifreið rannsóknaráðs. Á ég þar sérstaklega við varahluta- reikninga, þar sem númer vara- hluta eru greinilega tilgreind. Bn því miður eru ekki allir reikn- ingarnir jafn ljósir, og innan um og saman við eru reikningar sem koma undarlega fyrir sjónir. Dæmi: 1) Þrir varahlutareikningar frá SIS, sem samkvæmt númerum tilheyra bifreið af gerðinni Scout. 2) Reikningur fyrir varahluti frá Agli Vilhjálmssyni, þar sem einhver hefur byrjað að skrifa G-númer á reikninginn (G-l...), en númerinu hefur síðan verið breytt í R-10816. 3) Reikningur fyrir varahluti frá Agli Vilhjálmssyni, þar sem númerið G-1149 er yfirstrikað og breytt í R-10816. 4) Reikningur frá Radíóþjón- ustu Bjarna, þar sem númeri hef ur verið breytt úr G-1149 í R-10816. 5) Reikningur frá Stillingu h.f. þar sem R-10816 er skrifað ofan í G-1149. Athygli vekur, að sumir þess- ara reikninga fylgja viðgerðar- reikningum frá verkstæði, þann ig að verkstæðið virðist hafa lát ið sækja varahlutina. Verkstæðis reikningarnir eru þó undantekn- Þorsteinn Sænnindsson ingarlaust færðir á rannsókna- ráð. Til fróðleiks var gerður sam anburður á verkstæðisreikning- um og bensínúttektum í þau skipti, sem bifreiðin hafðí verið dögum saman á verkstæði. Kom þá í ljós, að í sex skipti liafði bensín verið tekið á R-10816, þegar bifreiðin hefði samkvæmt verkstæðisreikningum átt að vera í viðgerð. Rétt er að geta þess til skýr- ingar, að auk bifreiðar rann- sóknaráðs, sem framkvæmda- stjóri hafði meðfram til einka- afnota, átti hann sjáifur aðra bif reið. Sú bifreið var af gerðinni Scout, og skrásetningarnúmer hennar var G-1149. * GULLBRINGUNÚMER Númerið G-1149 kemur víð- ar fyrir í reikningum raninsókna- ráðs. í skýringum til ríkisendur- skoðunar segir framkvæmda- stjórinn, að hawn hafi stundum, þegar bifreið rannsóknaráðs var á verkstæði, notað eigin bifreið og látið sér þá nægja að taka bensín á hana á kostnað ráðsins í stað' þess að taka kílómetra- gjaid samkvæmt reglum ríkisins, sem hefði þó „bæði verið langt- um hagkvæmara fyrir mig og réttara", eins og framkvæmda- stjórinn kemst að orði. Að það hefði verið réttara, lög um samkvæmt, er víst ekkert efamál. Hitt er athyglisvert, þeg- ar athugaðar eru dagsetningar á þessum bensínnótum, að þær koma ekki alltai' heim við þá daga, sem hin bifreiðin á að vera á verkstæði samkvæmt við gerðarreikningum, hversu ótrú- legt sem það kann nú að virðast þegar fjöldi viðgerðarstumdanna er hafður i huga. Þá kemur það fyrir, að bif- reiðin G-1149 sé smurð, og að á hana sé settur frostlögur, en starfsmaður Surtseyjarfélagsins kvittar á reikninga. Einnig finn- ast bensínreikningar fyrir G-1149, sem á er skrifað „v/ Surtseyjarfélags". Samkvæmt upplýsingum framkvæmdastjóra á fundinum 18. maí, fékk hann einnig greidda leigu frá Surts- eyjarfélaginu fyrir afnot af þess ari bifreið um þriggja mánaða skeið, kr. 5000 á mánuði. Auk bensínreikninganna eru aðrir reikningar vegna G-1149. Þar á meðal eru reikningar fyrir notkun bifreiðarinnar skv. kíló- metrataxta ríkisins, að upphæð kr. 18800 og einnig reikningur þar sem G-1149 er leigður á bíla leigutaxta, kr. 10360! Fyrir kemur, að þessir reikn- ingar fléttast saman á hinn furðulegasta hátt. Þannig gerir framkvæmdastjóri reikning fyrir notkun G-1149 skv. kílómetra- gjaldi frá 27. nóvember til 5. desember 1969. Síðan tekur hann bilaleigubifreið á kostnað rannsóknaráðs frá 5. des., til 13. des, en gerir aftur reikning fyr ir notkun G-1149 frá 12. des til 15. des. Á þessu tímabili öllu á bifreið rannsóknaráðs R-10816 að vera á verkstæði skv. skýr- ingum framkvæmdastjóra til rik isendurskoðunar. Það er því meira en lítið und arlegt, þegar í ljós koma bensín- reikningar sem sýna, að bensín hafi verið tekið á bifreiðina R-10816 dagana 28. nóvember, 4. desember og 10. desember 1969, Hvernig á að skýra slíkt? ★ BREYTILEGUR BENSÍN- GEYMIR? Eins og fyrr er sagt, nam upphæð bensínreikninga sem færðir voru á kostnað bifreiðar Innar R-10816 áilið 1969 kr 66300. Eru þetta 5792 lítrar, eða um 16 lítrar á sólarhring, að meðaltali. Bensínúttektirnar eru 130 talsins, þar af aðein-s 12 utan Reykjavíkur. í sjö skipti er bens ín tekið tvívegis sama daginn (fimm skipti i Reykjavík), og má það teljast athyglisvert, þeg ar þess er gætt, að bensíngeymir bifreiðarinnar R-10816 mun hafa tekið 63 lítra. Sé nú athugað í bensinreikning um rannsóknaráðs hve mikið bensínmagn er keypt í hvert skipti, kemur í ljós, að dreif- ingin er eins og meðfylgjandi mynd sýnir. Eins og við er að búast, er algengt, að bensín sé tekið á bilinu milli 40 og 55 lítra, þ.e. þegar minnka tekur á geym- inum. Hitt er einkennilegra, að fram skuli koma toppur í línu- ritinu á bilinu milli 25 og 35 lítra. í fljótu bragði mætti ætla að bensin hafi verið tekið á minni bensingeymi en þann, sem var í R-10816, þótt hitt sé auð- vitað hugsanlegt, að bensínmæl- irinn í R-10816 hafi stundum verið í ólagi og sýnt minna en eðlilegt var. Lesendur verða sjálfir að ráða við sig, hvaða skýring þeim þykir senmilegust. Rétt er að taka fram, að fram- kvæmdastjóri hefur oftast kvitt að sjálfur fyrir móttöku bensíns ins. * TORSKILIN TRYGGINGAMÁL Samkvæmt bókhaldsgögnum átti bifreið rannsóknaráðs að vera vátryggð bæði með ábyrgð artryggingu og húftryggingu (kaskótryggingu) hjá Samvinnu tryggingum. Fyrir ábyrgðar- trygginguna höfðu verið greidd- ar kr. 11876, sem er há upphæð en bifreiðin var reiknuð í hæsta áhættuflokki vegna ítrekaðra tjóna. Fyrir húftrygginguna höfðu verið greiddar kr. 9417. Þegar að var gáð, reyndist fylgi skjalið vegna húftryggingarinn- ar ófullkomið, svo að ekki sé meira sagt (sjá mynd), því að það var aðeins tilkynning (ekki kvittun) frá Samvinnutrygging- um um að húftrygging bifreiðar innar væri tilbúin og að upp- hæðin kr. 9417 óskaðist greidd. Númer bifreiðarinnar var ekki tilgreint, en framkvæmdastjóri hafði ritað á tilkynninguna — „v/R10816“. Þar undir var stimpill sem táknaði að skrif- stofan hefði sent greiðsluna hinn 20. júni. Nú hefði ég tæplega séð á- stæðu til að kanna þetta mál nánar, ef ég hefði ekki rekizt á reikning frá bifreiðaverkstæði fyrir vinnu við að rétta fram- hjólagrind o. fl., að upphæð kr. 11 þúsund. Var þarna ekki tjón, sem hefði átt að greiðast af húf- tryggingunni? Ég gerði mér nú ferð inn í Samvinnutryggingar og bað um að fá að sjá tryggingarspjaldið fyrir húítryggingu bifreiðarinn- ar R-10816. Kom þá heldur betur babb í bátinn, þvi að tryggingar- skjöl fundust engin, hvernig sem leitað var. Voru þó tvær stúlkur og einn karlmaður kom- in i málið áður en lauk. Ábyrgð artryggingin fannst umsvifalaust og sömuleiðis gömul húftrygg- ing, löngu úr gildi fallin. En af húftryggingu bifreiðarinnar R- 10816 fanmst hvorki tangur né tetur. Ég hafði einnig samband við Innkaupastofnun ríkisins og' spurði hvort þar væri nokkuð vitað um þessa tryggingu. 3á sem fyrir svörum varð, kannað ist við bifreiðina, en fullyrti, að Innkaupstofnunin hefði ekki haft neina miiligöngu um útvegun þeirrar tryggingar, sem þarna um ræddi. Degi síðar (13. nóvember) átti ég svo fund með framkvæmda- stjóra rannsóknaráðs á skrif- stofu hans. Viðstaddir voru einn ig skrifstofustjóri rannsóknastofn ana atvinnuveganna og formað- ur framkvæmdanefndar ramn- sóknaráðs. Á þessum fundi skýrði ég framkvæmdastjóranum frá málavöxtum og óskaði skýr inga. Framkvæmdastjórinn brást reiður við og sagði, að bifreiðin hefði vissulega verið húftryggð; skírteinið myndi líklega vera í skrifborði sínu. Gerði hann síð- an skyndileit að skírteininu, en það fannst ekki. Aðspurður um það, hvers vegna áðurnefnt tjón hefði ekki verið greitt af húf- tryggingunni, úr því að hún hefði verið til, sagði fram-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.