Sunnudagsblaðið - 17.01.1965, Blaðsíða 3

Sunnudagsblaðið - 17.01.1965, Blaðsíða 3
Þættir úr sogu staðar og kirkju HANN er stundum kaldur, vornæðingurinn upp í dalina sem yztir liggja við firðina á Vestfjörðum og vita mót norðri, þegar blæs af hafi og heimskauti. Ekki eru þar heldur blíðir dag- ar, þegar norðanhríðar- geisa og brrmskaflinn gengur óslitinn í gras. 3>ó þýkir sumum ekkert land i véröldinni jafnast á við þessa daii, þar sem lækirnir glitra silf- urtærir í bröttum hlíðum og logn- aldan leikur sér mjúklega við steina og skeljar i fjörunni, en kvöldsólin slær birtu sinni, sem engri annarri birtu er lík, á .grund og flúðir. Einni slikra dala er Selárdalur við Arnarfjörð vestanverðan. Hann er yzti dalurinn; sem byggð hefur verið í við fjörðinn. Sveit- in heitir Ketildalrr inn með firð- inum, kcnndir við landnámsmann inn Ketil ilbreið, er þangað kom rétt íyrir 900, að því er taltð er. Þessum dölum hefur verið lýst þannig, að þeir væru til að sjá eins og tröllabásar, Þeir eru í breiðara iagi eftir því sem gerist á Vestfjörðum, en ekki mjög lang- ir, flatir í botninn, og núparnir á milli þeirra furðulega brattir og sléttir að ofan. En í þeim eru skjól sælir hvammar, berjalautir og blá- gresisbrekkur. Ekki varð saga landnámsmanns- ins í Ketildölum löhg þar í sveit. Hann giftist landnámsmannsdótt- ur frá Breiðafirði, fluttist þangað og nam land í Berufirði. Engar heimildir eru til um það, hvar í Ketildöium Ketill bjó, með- an hann var þar, sem sennilega hefur ekki verið í mörg ár. Hitt mundi ýmsum, sem kunnugir eru á þessum slóðum, þykja ekki ólík- legt, að Selárdalur hafi orðið fyr- ir vali hans, ekki sízt þar sem faðir hans^ Þorbjörn tálkni, var landnámsmaður i Tálknafirði. í Selárdal er skammt á aflasæl fiski mið, og nafnið segir frá því, að þar hafi selir haidið sig í árósnum. Lending er þar svo góð, að í upp genginni norðanátt verður ekki lent fyrr en á.Bíldudal, sé ólend- andi-í Selárdal í vel sjóuðu. Snjó- létt er á nesinu fyrir utan Selárdal og beitiland gott. Kirkja hefur lengi verið í Selár dal, og prestssetur var þar fram yfir síðustu aldamót. — Hér er rétt að vekja athygli á því, að Selárdalur er bæði nafn á daln- um og bænum, sem þar hefur ver- ið reistur fyrstur og þá verið eini bærinn í dalnum, þótt fleiri kæmu siðar. Verða lesendur að ráða það af efninu, hvort átt er við dal- inn eða bæinn, þegar Selárdalur er nefndur í þessum frásöguþætti. Enginn veit, hvenær kirkja var fyrst reist i Selárdal, en ætla má, að það hafx verið ekki löngu eftir að ki-istni var lögtekin, en ekki er kirkjunnar getið í eldri heimildum en frá því um 1200 (kirknatali Páls btskups). Hitt mætti vera mönnum nokkurt furðuefni, hvers vegna sóknarkirkju var þannig valinn staður að hún stendur á sveitar- enda og allir bæirnir, sem sókn eiga til hennar, liggja út frá henni á sama veg, þeir fjarlægustu hreint ekki svo skammt í burtu. Hér .getur tvennt komið til greina: í Selárdal hjó höfðingi sveitarinnar, maðurinn, sem van- ur var að ráða þar Iögum og lof- um, en var jafnframt traust og for- FYRRl HLUTI sjá sveitarmanna. Og liann bjó x Seiárdal áf því að þar var gróða- vænlegast að búa, hvort sem litið vai- til sjósóknar eðá sauðahalds. Það var hvort tveggja, að hann 'var færastur manna í sveitinni til þess að koma upp kirkju og bera kostnað af henni og að hann taldi sér það jafnframt skyld, að sjálf- sögðu með nokkru tillagi frá sveitarmönnum, enda hafa þeir að sjálfsögðu verið vanir að láta eitt- hvað af Héndi rakna til almcnnr- ar guðsþjóttustu, meðan heiðni ríkti í landinu. llitt gæti líka verið, að bænd- ur hafi haft samtök um að koma upp kirkju i sveit sinni, án þess eftir Ólaf Þ. Kristiánsson ALÞYÐUBLABIÐ - SUNNUDAGSBLAÖ 10

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.