Þjóðviljinn - 30.05.1954, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 30.05.1954, Blaðsíða 6
Ö) — ÞJÓÐVILJINN — Smmudagur 30. maí 1954 -------------- þJÓOVIUINN Otgefandl: Samelnlngarflokirur alþýðu — Sósíalistaflokkurlnn. Kitstjórar: Magnúa Kjartanason (&b.). SigurOur Guðmundsson. Fréttastjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Asmundur Slgurjónsson, BJarnl Benediktsson, Gu®- 1 mundur Vigfússon. Magnús Torfi ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Rit8tjóm, afgrelðsla, auglýslngar, prentamlOJa: Skólavórðustlg 18. — Sími 7600 (3 línur). Aakriítarverð kr. 20 á mánuðl 1 Reykjavfk og nágrennl; kr. 1T annara staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. PTentjimiðja Þjóðviljana h.f. ____^ Hergróðaanm skipt Eins og skýrt var frá í fimmtudagsblaði Þjóðviljans voru þá um kvöldið áður loks tilkvnntar niðurstöður þeirra lang\rarandi samningaumleitana sem Kristinn Guðmundsson utanríkisráð- herra hefur átt í við bandarísk stjórnarvöld varðandi framkvæmd hernámssamningsins. Eöfuðatriði samninganna eru eftirfarandi: 1. Bandaríkjunum er gefið fyrirheit um að mega leggja undir sig Njarðvík og byggja þar herskipahöfn. 2. Hamiltonfélagið illræmda verður flutt af landi brott en í þess stað taka við ný helmingaskipti Vilhjálms Þórs og her- námsdeildar S.I.S. annarsvegar og gróðamanna íhaldsins hins- vegar. 3. Gerð verður girðing um dvalarstaði hemámsliðsins og sett- ar enn einar reglur um ferðir þess, sem þó eru ekki birtar eða nánar skýrðar i þeirri skýrslu sem utanríkisráðherra flutti þjóð- inni. Af skýrslu ráðherrans er ljóst að í hinu langa samningaþófi hafa bandarísk stjómarvöld neitað með öllu að verða við nokkr- um kröfum Kristins Guðmundssonar nema fá það að fullu bætt. Gegn því að Hamiltonfélagið víki, sem raunar var orðið óhjá- kvæmilegt vegna yfirgangs þess og almennra óvinsælda, eiga Bandaríkjamenn að fá afhenta Njarðvílc til athafna sinna. Landshöfnin sem rísa á þar samkvæmt lögum frá Alþingi á að víkja fyrir framkvæmdum hemámsliðsins. Hitt er svo vitað mál að Bandaríkjamönnum er það sízt á móti skapi að tengja -gróðabrallsmenn stjómarflokkanna sem traustustum böndum við hernámið enda er það rækilega gert með hinum nýju samn- ingum. Elað utanríkisráðherra læzt mjög fagnandi yfir samningunum og þarf það engum að koma á óvarL Það sem raunverulega hef- ur gerst er að gróðamenn Framsóknarflokksins liafa tryggt sér jafnréttisaðstöðu við stéttarbræður sína í $jálfstæðisflokknum. Báðir stjórnarflokkarnir verða eftirlelðis raunverulega kostaðir af hemámsliðinu, niðurlæging islenzku þjóðarinnar verður þeirra fjárhagslegi aflgjafi og tekjulind. Málgagn samstarfsflokksins er hinsvegar hreinskilnara en blað utanríkisráðherrans. Morgunblaðið lýsir eftirfarandi yfir j gær í ritstjómargrein sem fjallar um samninginn: ,,t'm það, sem nú hefur veríð samlð er ekki nema goft eitt að segja. Þær eru gerðar í samræmi við þá reynslu, sem ríð höfum öðfast. Hér er um að ræða eðlilega og sjáifsagða þróun. Með samkomulagi því, sem undirskrífað hefur verið er ekki nein ný stefna möriaið.“ Þessi skýra og ótvíræða yfirlýsing Morgunblaðsins tekur af öll tvímæli um það, að Bandaríkjamenn telja sér hina nýju sarcninga sízt af öllu óhagkvæma. Morgunblaðið myndi vissulega skrífa í öðrum tón teldi íhaldið hart að hernámsliðinu gengið. Hér er því sannarlega ekki um neinn „sigur íslenzks málstaðar“ að ræða, eins og Tíminn gefur í skyn í gær, heldur þráðbeint áframhald á braut þeirrar undanlátsemi og niðurlægingar sem íslenzk stjórnarvöld hafa látið bjóða sér í öllum skiptum sínum við bandarísk stjórnarvöld og hernámslið þeirra. Fullyrðing Tímans í gær um að Þjóðviljinn harmi brottför Hamiltonfélag3Íns er varla svaraverð. Þjóðviljinn hefur frá upp- hafi' flett ofan af allri framkomu þessa erlenda verktaka og jafnan krafizt þess að hann yrði rekinn af landi brott og það löngu áður en Tíminn og Framsóknarflokkurinn höfðu nolckuð jit é starfsemi hans að setja. Það er hinsvegar íslendingum sízt fagnaðarefni að óseðjandi gróðaklíkur stjórnarflokkanna geri sér hernám landsins og nið- urlægingu þjóðarinnar að atvinnu og tekjulind. Slík aukin tengsl spilltustu gróðamanna landsins og hemámsliðsins hljóta að verða þeim flokkum sem hergróðamennimir ráða yfir ný og aukin hvatning til að halda dauðahaldi í hemámið. Þeir sem ekk- ert föðurland eiga annað en peningana era ekki líklegir til að láte auðsöfnunarmöguleika sína af hendi ótilneyddir. Krafa her- gróðaklíkunnar verður því áframhald hemámsins og aukinn styrjaldarundirbúningur á íslandi, með því einu fær hún sval- að fégræðgi sinni og óseðjandi gróðafíkn. Hlutverk íslenzkrar alþýðu og allra þjóðhollra íslendinga hvar sete þéir standa I flokki er eftir þessa samninga eins og fyrir. þá að herða baráttuna fyrir uppsögn hernámssamningsins og brottflutningi alls herliðs af íslandi. Sigursæl úrslit í þeirri baráttu em ein þess megnug að tryggja líf þjóðarinnar, frelsi hernar og framtíð og þvo af henni smánarbíett hernámsins. Heíur þú lagt fram þinn skerf í Sigfúsarsjóð? Allt frá stofnun hsfur Sssfslistaflokkurinn, Sésfalista- félsg Reykjavíkur og Æskiiiýðsfylkiiigiti crðií að not ast við ÓRÓgf og éviðunandi ieigDhásnæði Þess misskilnings hefur orðið vart í sambandi við söfnunina í Sigfi'isarsjóð, að Sósíalistaflokkurinn sé síð- ur en svo illa staddur með húsnæði, þar sem hann eigi fyrir ágœtt húsnœðiá Þórs- götu 1. Sennilega er þetta árang- ur af miklum áróðri vissra blaða til kynna á flokks- skrifstofunum og stað þeirra, en því miður er sannleikurinn sá, að Sósíal- istaflókkurinn hefur aldrei átt húsið Þórsgötu 1 eða nokkurn hluta þess, heldur hefur leiqt húsnæði þar. Að vísu er það húsnæði rýmra og samfelldara en flokkur- inn hefur nokkru sinni átt við að búa, en þegar Sósial- istafélagið missti litla fund- arsalinn þar í vetur, varð það tilfinnanleqa ónóat. Hver sá maður. sem þekk- ir til félagsstarfsemi. veit hver lífsnauðsyn bað er fé- laqssamtökum að eioa so.ma- stað. Þau eru orðin mörq félögin á íslavdi sem hafa •ocjt orku sína árum saman í húsbyaqingar. Þet tn á einniq við um verkalýðs- hreyfinguna og ekki sízt. því hún heiur ekki átt auð- velt með að fá húsnæði lán- að oq leiot til starfserni sinrwr. Hafa fátœk verka- lýðsfélöq víða um Javd uvn- ið cfrelc til að koma sér uvp funda- on samkomuhnsum. toft við örðug skilyrði Það gegnir furðu, að Sósíalistaflokkurinn og Sósíalistafélag Reykjavík- ur skuli hafa unnið pað mikla starf sem pessi te'- lagasamtök eiga að baki án pess að hafa nokkm sinni átt hentugt og hœfilegt húsnæði fyrir .starfsemi sína. AUa tíð hefur flokk- urinn hrákizt með skrif- stofrir sínar úr einu leigu- húsnœði í annað, alltaf vantað fundarsali og satn- komuhús. Þeir sem mest hafa starfað að máluvi flokksins vita gerst hve hús næðisleysið hefur húð allri starfsemi hans. Og skiln- ingurinn á pví hvað •vinnst með pvi að eignast gott hús og stóra lóð í hjarta Reykjavíkur hefur vakið fagnaðaröldu sem kemur gleggst fram í hinum glœsilega árangri söfnun- arinnar í Sigfúsarsjóð. Hér eru birtar myndir af tveimur húsum, sem flokk urinn leigði herbergi í fyrsta starfsár sitt. Það húsnœði mátti þó teljast ó- venju rúmt, miðað við það sem síðar varð. Við stofn- un flokksins 1938, fékk Sósíalistafélag Reykjavík- ur og Æskulýðsfylkingin leigðan vesturendann á liúsinu Hafnarstrœti 21. Þar var fundarherberai á Framhald á 11. síðu. Hafnarstræti 21 Grumlarstígur 4.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.