Verkamaðurinn - 10.09.1923, Blaðsíða 2
84
VERKAMAÐURINN
40. tbl.
• • • • •• • •• • •> »«»«» »-« •• • •-• • é 0 » 0 » • • • •
■▲▲▲▲▲▲▲▲AAAAAAAAÁAAAAAAAH
Súkkulaðivörur,
fjðlbreyttast úrval í bænum.
Ztesto vörur.
Best viðskifti.
Guðbjörn Björnsson.
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
t
TVVTVVTTTVTTTVTVTTTVTVTVH
Kosningar
í Eyjafjarðarsýslu.
Stefán Jóhann Stefánsson, lögfræð-
ingur, gefnr kost á sér til þingmensku
fyrir Eyjafjarðarsýslu, við kosningar f
hauat, vegna fjölmennra áskoraua.
Stefán er ungur maður, rúmlega
þrftugur, vasklegur og piýðilega máli
farinn. Hann er ættaður héðan úr
sýslu. Um mörg ár hefir hann haft á-
huga á stjórnmálum og fylgst þar á-
gætlega með. Enda hefir hann dvalið
mörg ár f Reýkjavfk. Atlir, sem þekkja
Stefán jóhann, viðurkenna dugnað hans,
hæfiieika og mannkosti.
Stefán J. hefir ætfð verið frjálslynd-
ur f skoðunum; hann er andvfgur mis-
rétti og skipulagsleysi, en fylgir þeim
að málum er vilja jafnrétti og full-
komið skipulag þjóðféiagsins. Hann er
andvfgur drottnun erlendra og inn-
lendra auðfélaga. Hann vill frelsi og
mentun verkalýðsins og mun berjast
á móti innfiutningi erlends verkalýðs
meðan atvinnuleysi er f landinu.
Þetta er auðvitað engin stefnuskrá
Stefáns, heldur aðeins lausleg lýsing
á skoðunum hans, svo kjósendur geti
gert sér ofurlitla hugmynd um hann;
þeir, sem ekki þegar þekkja hann.
Verkamenn og sjómenn eiu mjög
fjölmennir í Eyjafjarðarsýslu. Hingað
til hafa þeir ekki gert kröfu til þess
að hafa fulltrúa sinn á þingi, enda
þingmál, er skift hafa flokkum, aðal-
lega hnigið að deilum við Dani, er nú
eru fallnar úr sögunni. Það þing-
mannsefnið er næst stóð þvf að ná
kosningu í sýslunni, annar en Einar
á Eyrarlandi, áður en Stefán Jóhann
kom til sögunnar — hann mun nú
ganga næstur Einari að fylgi —, hefir
beinlfnis sýnt sig fjandsamlegan verka-
lýðnum.
Þegar togaravökulögin voru til með-
ferðar á Alþingi, greiddi Stefán frá
Fagraskógi atkvæði gegn þeim. Til-
lögum Jóns Baldvinssonar f fátækra-
máluoum greiddi hann md/fatkvæði,
þrátt fyrir skýlausa yfirlýsingu greiddi
hann íslandsbanka atkvæði í vU; var
á móti því, að íannsakað yrði, hvort
nægar tryggingar væru fyiir stórlán-
um rfkissjóðs til bankans. — Mesta
glapræði og gáleysi sem sjómenn og
verkamenn gæti því hent, væri, að
kjósa Stefán frá Fagraskógi á þing,
mann, sem á undanfarandi þingum
hefir með stefnuleysi og hrossakaupa-
pólitfk sýnt, að hann er langt frá þvf
fær um að sitja á þingi. AUs er Ste-
fáni frá Fagraskógi þó ekki varnað,
hann hefir með óstjórnlegri aðgæslu
reynt að gera Siglfirðingum til hæfis,
vegná veiðivonar þar við kosningar.
Sumum Siglfirðingum hefir hann þó
gleymt, er hann var á móti togara-
vökuiögunum; er hann var á móti því,
að nema úr gildi þá svfvirðingu, að
menn eru sviftir mannréttindum geti
þeir, vegna siysa eða heilsubrests,
ekki alið önn fyrir sér og sfnum;
er hann var á móti þvf, að fuli vfsa
væii fengin fyrir, að íslandsbanki væri
fær um að geía landinu nægar trygg-
ingar. Og öðrum kjósendum sínum
hefir fyrverandi annar þingmaður Ey-
firðinga lfka gleymt, bæði f þessu og
öðru. Þessa er hér minst, ekki til að
niðra Stefáni bónda, heldur til hins,
að minna kjósendur á, að »gamlar«
syndir á líka að setja á vogarskálina,
þegar gamli maðurinn fer að velta
vöngum og lofa, fyrir kosningarnar.
Væri eg kjósandi í Eyjafjarðarsýslu
og vildi koma greindum manni og
stefnuföstum á þing, mundi eg hik-
laust kjósa Stefán Jóhann Stefánsson,
og með honum kysi eg líkiegasta
þingmannsefnið, þótt eg væri óánægð
ur með það; en eg hygg Einar á
Eyrariandi vera lfklegastan. Að kjósa
Stefánana saman væri sama og að
draga úr fylgi Stefáns Jóhans.
Verkalýður, sjómenn, verkamenn,
verkakonur, vinnumenn og vinnukonur
og allir aðrir, er vilja sjálfstæði manna
og jafnrétti, fhugið mái mitt og bindið
ekki atkvæðl ykkar, fyrr en þið hafið
heyrt Stefán Jóhann Stefánsson.
Pórður.
Símfrétíir.
Rvík 10. Sept.
Manntjónið í Japan hálf miljón,
áaetlað efnatjón 1000 miij. sterlings-
punda.
Þjóðabandalaginu liggur við að
sundrast. Fulltrúar norrænu þjóðanna
hóta að ganga af fundi.
Þjóðabandalagið ræðir grísku deil
una. ítalir standa þar einir uppi. Af-
staða Frakka og Spánverja vafasöm.
Samþykt að alpjóða dómstóllinn í
Haag útkljái deiiu Grikkja og ítala
ítalir hafa hertekið 3 eyjar við Grikk-
land og hóta að senda fiotann til
Piræus (hafnarborgar Aþenu).
Fiumedeilan er að ná hámarki.
í Þýzkalandi er rætt um að koma
á fót fjárhagslegu einræði. Dollar
kostar 40 milj. marka. Ákvæði pýzku
stjórnarskrárinnar um eignarrétt og
friðhelgi heimilisins, að ekki megi
Iesa póstbréf numið úr giidi í biii.
Frakkar búast við samningatiiboði
frá Þjóðverjum um sameiginlegan
iðnrekstur.
Togararnir liggja allir enn. Nokkr-
ir vilja fara fyrir gamla kaupið, en
Ciaésen bankastjöri ógnar hverjum
þeim, sem fer pannig án samþykkis
útgerðarmanna með að heimta
greiðslu á því er þeir skulda og
neitun um rekstúrslán. Menn standa
hér forviða yfir slíkri framkömu.
Stjórnmálafundur við Öifusátbrú
I gær.
Fréttaritari Vra.
SmásGluverð á fóbaKi
má ekki vera hærra en hér segir:
VINDLAR.
Maravilla..5° stk- kassi á kr. 22.25
3 Stjerner.- — — - — 21.75
Supremo...— - — - — 21.50
El Erté...— — — - — 17.25
King . y..- - - - - 15 75
1 Stjerne.— — — - — 12.25
Utan Reykjavíkur má verðið vera því hærra, sem nemur fiutningskostnað
frá Reykjavfk til sölustaðar, en þó ekki yfir 2 °/o.
Landsverzlun.
K-O-L "sw
Kaupfélaganna koma með »Annahoe« og kosta
á bryggju kr. 72.00. Verða afhent gegn af-
hendingarmiðum frá Kaupfélögunum.
Kaupfélag Eyfirðinga. Kaupfélag Verkamanna.
GÓÐ STOFA með aðgangi að
stóru eldhúsi og geymslu, er til leigu
nú þegar. Ritstj. v. á.
Undirrituð tekur að sér
strauningu á hálslíni og skyrtum.
Guðrún Ólafsdóttir,
Glerárgötu 1.
Kolaverð.
Ragnar Ólafsson hefir selt kol hér í bæ-
inn i sumar á 84—90 kr. smálestina. Fyrir
nokkrura dögum buðu kaupfélögin hér kol
í þessum mánuði fyrir 77 kr. smálestina.
Við það skruppu kol, sem R. Ó. á von á
nú á næstunni, ofan í 72 kr. smál. eftir því
sem „Isl.“ segir og er kampagleiður yfir.
Ekki er ólíklegt að R. Ó. hafi hagnast á
kolasölunni í sumar, fyrst hann geturskropp-
ið þetta níður með verðið núna. »Samkepn-
in lifi«! segir ísl Höepfners-verslun og
Hamborg fluttu inn kol í suinar. Ekki lækk-
aði kolaverðið þá. ísl. hefði því heldur átt
að hrópa: Kaupfélögin lifi! því frá þeim
stafar verðlækkunin. Máske gerir Tryggvi
þetta í næsta blaði?
Bæjarstjórnarfundur
á Þriðjudaginn va>-samþykti að leita kaupa
á Staðareynni fyrir bæjarins hönd. Fyrir að-
gjörðir Magnúsar Kristjánssonar var bæn-
um trygður kaupréttur á eynni, áður en
bæjarstjórnin vaknaði til þessara fram-
kvæmda. Sami fundur sampykti að gera veg
yfir land bæjarins við nýju brúna á Eyja-
fjarðará. Verða verkamenn í bænum látnir
sitja fyrir þessari vinnu og verður hún
framkvæmd á þessu haus'i, ef veðrátta leyfir-
»Til lands og sjávard
Áður höfum vér þekt góðæri, veðurblíðu,
harðæri og ótíð til lands og sjávar. Verði
Björn Lindal kosinn á ping, eigum vér í
vændum að kynnast lífsreynslunni er „sá
maður hefir, til lands og sjávar«, sbr. ísl. á
Föstudaginn var.
Ekki veðsetfar.
ísl. »Iepur« upp eftir Verði, að tolltekjur
ríkissjóðs séu ekki veðsettar. Líklega eru þá
ensku lánardrottnarnir að grenslast um toll-
tekjurnar svona af kumpánaskap.
Nærföt
nýkomin í
Kaupfélag Verkamanna.
Hafragrasog Rófur
margar tegundir, fæst hjá jarðrækt-
atfélaginu Nýrækt.
Menn snúi sér til
Gunnars Jónssonar,
lðgregluþjóns.
Klæddu húsið þitt utan með
þakpappa fyrir kosningahríOina.
Það ver utan að komandi áhrifum
og fúa Besti og ódýrasti þakpapp-
inn fæst — e»ns vant er — hjá
Gunnari Guðlaugssyni
5—6 hæns
ung af góðu kyni til sölu.
R. v. á.
Agætur þakpappi,
nokkrar rúllur til sölu.
ölt'- Sanngjarnt verðí
Gunnar Guðlaugssont
Tvíbreitt
rekKiuvoðaléreft,
ágætt, nýkomið í
Kaupfélag Verkamanna.
Prentsmiðja Odds Björnssonar.