Morgunblaðið - 26.05.1998, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
BÆJAR- OG SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 1998
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Kosið í nýju sveitarfélagi
MARÍA Hafsteinsdóttir og Smári sem meðal annars hefur verið
Geirsson, forseti bæjarstjórnar á kallað Firðir og Austurríki. Smári
Neskaupstað, greiða atkvæði í Ieiddi F-Iistaim, sem hlaut hreinan
nýju sveitarfélagi á Austfjörðum, meirihluta í sveitarfélaginu.
virðist ánægt með þennan meiri-
hluta.“
Gunnar sagði að bæði sjálf-
stæðismenn og framsóknarmenn
hefðu lýst því yfir í kosninga-
baráttunni að samstarf þeirra í
meirihluta hefði gengið vel og
hvorir tveggja hefðu áhuga á að
starfa saman áfram. „Þannig að
við munum ræðast við á mánu-
dag.“
Fylgi sjálfstæðismanna náði ekki
því sem flokknum hafði verið spáð í
skoðanakönnunum en Gunnar
kvaðst ekki hafa tekið mark á því.
„Það hefur verið þannig að
skoðanakannanir hafa alltaf sýnt
langtum meira fylgi hjá flokknum
hér og annars staðar en kosn-
ingaúrslit."
Sigurður Geirdal
B-lista
Aldrei jafn
ánægður
með Kópa-
vogsbúa
„ÉG HEF alltaf verið ánægður
með Kópavogsbúa en aldrei eins og
núna,“ sagði Sigurður Geirdal odd-
viti Framsóknarflokksins í Kópa-
vogi í samtali við Morgunblaðið.
„Við bættum við okkur 8% fylgi
sem er það mesta sem nokkur
flokkur hefur nokkum tíma bætt
við sig í Kópavogi. Ég lít á það sem
skýr skilaboð um að Kópavogsbúar
séu ánægðir með það sem við höf-
um verið að gera og vilji hafa mig
áfram.
I framhaldinu munum við halda
áfram á þeirri braut sem við höfum
verið á síðastliðin átta ár. Menn
þekkja mína línu og ég h't á þetta
sem stuðningsyfirlýsingu við hana.
Við erum ekki flokkur sem getur
leyft sér ákveðin gæluverkefni
heldur stefnum við að áframhald-
andi uppbyggingu og alhliða fram-
fórum. Til þess að Kópavogur vaxi
og dafni á öllum vígstöðvum þýðir
ekki að tala bara um skóla eða bara
um umhverfismál. Við stefnum að
því að byggja upp gott bæjarfélag
og til þess verða fjölmargir þættir
að haldast í hendur," sagði Sigurð-
ur Geirdal.
Flosi Eiríksson
K-lista
Ákveðin
vonbrigði
„ÞETTA eru náttúrulega ákveðin
vonbrigði," sagði Flosi Eiríksson,
efsti maður á Kópavogslistanum í
Kópavogi, sem fékk fjóra menn
kjöma, einum færra en flokkarnir
sem að listanum stóðu fengu við
síðustu kosningar.
„Framsóknarflokkurinn bætir
við sig einum 10-12% frá
skoðanakönnunum en við töpum
aðeins, sem verður þess valdandi
að við missum einn mann. Það eru
náttúrulega vonbrigði að halda
ekki fimm mönnum í bæjarstjórn."
Aðspurður um skýringar sagði
Fiosi að Kópavogslistinn og Sjálf-
stæðisflokkurinn hefðu fyrst og
fremst tekist á í kosningabarátt-
unni en Framsóknarflokkurinn
hefði notið þess. „Ég held líka að
skoðanakönnunin hafi hjálpað hon-
um. Framsóknarflokkurinn lá frek-
ar lágt í henni og ég held að margir
hafi þá ákveðið að kjósa hann.“
Aðspurður um horfur á breyt-
ingum á meirihlutasamstarfí
sagðist Flosi ekki ætla að hafa
skoðanir á því strax en samkvæmt
niðurstöðum kosninganna getur
t.d. Framsóknarflokkurinn mynd-
að meirihluta jafnt með sjálf-
stæðismönnum og Kópavogslista.
Seltjarnarnes
Sigurgeir Sigurðs-
son D-lista
Ætlum að
verða
traustsins
verðug
„ÉG ER náttúrlega alveg himinlif-
andi og við erum það öll hér á Sel-
tjarnarnesi vona ég,“ sagði Sigur-
geir Sigurðsson oddviti Sjálfstæðis-
flokksins á Seltjarnarnesi um úrslit
kosninganna en listinn bætti við sig
fimmta manninum í bæjarstjórn.
„Við fengum mun meira íylgi en
við höfðum reiknað með og við er-
um mjög þakklát bæjarbúum fyrir
að sýna okkur traust í öll þessi ár
og ætlum svo sannarlega að verða
þess trausts verðug.
Ég vil taka það skýrt fram að
þetta er sigur heildarinnar, hópur-
inn sem var í framboði var mjög
samstilltur þannig að við komum
fram sem heild og bæjarbúum hefur
greinilega líkað það sem við höfum
við þá að segja,“ sagði Sigurgeir.
„Við höfum verið það lengi hér við
völd að við þurfum kannski ekki að
sanna okkur, en við höfum komið
málum hér í gott lag. Hér hefur ver-
ið einsetinn skóli lengi, fjármálin
eru í góðu lagi, svo og umhverfis-
mál. Við þurftum því ekki að gefa
stór loforð heldur bara að lofa því
að vinna eins og við höfum gert. Það
þýðir að sjálfsögðu að reyna að láta
fólkinu líða sem best.“
Sigurgeir hefur ákveðið að þetta
muni verða sitt síðasta kjörtímabil.
„Já, ég ætla að láta þetta duga, ég
er að byrja á mínu tíunda kjörtíma-
bili og fjörutíu ár í sveitarstjóm er
nokkur góður tími. Ég vil taka það
fram að það hefur verið jafn gaman
allan tímann, þetta er starf sem er
það lifandi og skapandi að það er
ekki hægt að láta sér leiðast í því.
Ég vil þakka þeim sem hafa starfað
með mér þessa áratugi þvi það eru
að sjálfsögðu líka þeirra verk sem
við erum að uppskera núna,“ sagði
Sigurgeir að lokum.
Högni Óskarsson
N-lista
Mikil
vonbrigði
„VIÐBRÖGÐ mín eru bara á einn
veg,“ sagði Högni Óskarsson odd-
viti Neslistans í samtali við Morg-
unblaðið, „og það eru mikil von-
brigði.“
„Þrátt fyrir skýr stefnumál okkar
og góðan hóp fólks á listanum höf-
um við einhverra hluta vegna ekki
náð nógu vel til kjósenda. Skýringar
á því hef ég ekki á reiðum höndum
en ég tel að minna fylgi Neslistans
gæti verið hluti af þeirri hægri-
sveiflu sem nú ríður yfir landið,“
sagði Högni, en Neslistinn tapaði
einum manni í kosningunum, hafði
þrjá en fékk nú tvo.
„Önnur skýring gæti verið sú að
kjörsókn var fremur lítil hér á Sel-
tjamamesi að þessu sinni, og það
gæti verið að við höfum tapað mest
á því, en ekki listi Sjálfstæðisflokks-
ins. Þriðja skýringin sem ég hef er
sú að Seltirningar era kurteist fólk
og hafí ekki viljað senda bæjarstjór-
anum þau skilaboð að hans tími
væri búinn og hafi þannig sýnt hon-
um tryggð og stutt hann áfram til
embættis. Þetta er því persónuleg-
ur sigur fyrir Sigurgeir bæjarstjóra
og ég óska honum til hamingju með
það,“ sagði Högni Óskarsson odd-
viti Neslistans á Seltjarnarnesi.
„Auk þess tel ég að skoða þuifi
betur samsetningu þessa samsetta
lista þar sem óháðir voru stærsti
hópurinn meðal frambjóðenda og
því hefur hann kannski ekki höfðað
jafn sterkt til flokksbundinna kjó-
senda og áður,“ sagði Högni að lok-
um.
Mosfellsbær
Þröstur Karlsson
B-lista
Bætum
heldur við
okkur
ÞRÖSTUR Karlsson, oddviti
Framsóknarflokks í Mosfellsbæ,
sagði á sunnudag að úrslit kosning-
anna sýndu að Framsóknarflokkur-
inn væri sterkur í Mosfellsbæ, sér-
staklega í ijósi þess að hann hefði
bætt við sig fylgi og haldið tveimm-
bæjarfulltrúum þrátt fyrir að klofn-
ingsframboð Mosfellslista hefði
fengið rúmlega 10% fylgi.
„Ég þakka þetta að við höfum lát-
ið verkin tala, meirihlutinn hafi
starfað vel saman og fólkið vilji
halda þessu áfrarn," sagði hann og
bætti við að hann liti á úrslitin sem
traustsyfirlýsingu við núverandi
meirihlutasamstarf Framsóknar-
flokks og G-lista Alþýðubandalags,
Alþýðuflokks og Kvennalista.
Þröstur sagði að uppbygging
skólamála, framkvæmdir í öldran-
armálum og fjölskyldu- og umhverf-
ismál hefðu verið sett á oddinn í
kosningabaráttunni.
„Nú stefnum við að því að halda
áfram að vinna að þeim stefnumál-
um, sem við höfum starfað að frá
því við felldum meirihlutann fyrir
fjórum árum,“ sagði Þröstur. „Við
höfum náttúrulega verið að vinna að
mörgum málum, uppbyggingu skóla
og fleira, á síðasta tímabili, sem enn
stendur yfir og fólk vill leyfa okkur
að halda henni áfram. Við settum
fram að við hefðum staðið við lof-
orðin, væram að vinna að þessum
málum og legðum mikla áherslu á
að ljúka þeim.“
Jónas Sigurðsson
G-lista
Fólk vildi
samstarfið
áfram
JÓNAS Sigurðsson, oddviti G-lista
Alþýðubandalags, Alþýðuflokks og
Kvennalista í Mosfellsbæ, sagði á
sunnudag að úrslit kosninganna á
laugardag gæfu til kynna að kjós-
endur vildu að framhald yrði á sam-
starfi þess meirihluta, sem setið
hefði undanfarin fjögur ár.
„Það sést nú kannski fyrst og
fremst á því að Sjálfstæðisflokkur-
inn tapar fylgi frá því í síðustu
kosningum," sagði hann. „Ég er nú
reyndar einnig þein-ar hyggju að
atkvæði greitt klofningsframboði
M-listans frá Framsóknarflokknum
sé greitt þessum meirihluta. G-list-
inn bætir við sig tveimur prósent-
um, sem er kannski minna en við
áttum von á vegna sameiginlegs
framboðs Alþýðubandalags,
Alþýðuflokks og Kvennalista, era
það því nokkur vonbrigði."
Hann sagði að G-listinn, sem hélt
tveimur mönnum, hefði ekki átt von
á því að hann myndi bæta við sig
bæjarfuiltrúa, en miðað við úrslitin
fyrir fjórum árum hefði hann átt
von á meira fylgi.
Jónas benti á að samkvæmt
skoðanakönnunum hefði annar
maður B-lista verið úti og kvaðst
telja að ýmsir kjósendur, sem ella
hefðu kosið G-lista, hefðu greitt
framsóknarmönnum atkvæði sitt af
„taktískum" ástæðum til þess að
tryggja að Mosfellslistinn leiddi
ekki til að meirihlutinn félli.
Sjálfstæðisflokkurinn lagði
áherslu á fjármál og skuldir bæjar-
ins í kosningabaráttunni, en Jónas
kvaðst telja að það hefði ekki höfðað
til kjósenda vegna þess að þeir
hefðu gert sér grein fýrir því að
með núverandi uppbyggingu væri
verið að greiða fyiir syndir fyrri
tíma.
„Fólk gerir sér grein fyrir því að
það þarf tímabundið átak og skuld-
setningu til að komast yfir þann
hjalla," sagði hann. „Þar á ég við
þann meirihluta sjálfstæðismanna,
sem sat áður en við komumst að
fyrir fjóram áram og hafði verið við
völd í 20 ár.“
Hákon Björnsson
D-lista
Stefndum
hærra en
við upp-
skárum
HÁKON Bjömsson, oddviti sjálf-
stæðismanna í Mosfellsbæ, þar sem
Sjálfstæðisflokkur hélt sínum þrem-
ur bæjarfulltrúum, kvaðst hafa
viljað að úrslitin yrðu hagstæðari.
Framsóknarflokkur og G-listi
Alþýðubandalags, Alþýðuflokks og
Kvennalista hafa starfað saman í
Mosfellsbæ.
„Við stefndum hærra en við upp-
skárum, en við munum þrátt fyrir
það ganga að því starfi, sem okkur
hefur verið falið þremur, af atorku
og bjartsýni," sagði Hákon síðdegis
á sunnudag. „Eins og staðan er í
dag á ég ekki von á að breyting
verði á núverandi meirihlutasam-
starfi."
Hákon sagði að það, sem borið
hefði á milli í kosningabaráttunni,
hefði verið skólamál og gagnrýni
sjálfstæðismanna á fjármál bæjar-
ins. Sjálfstæðisflokkur og G-listi
hefðu reyndar verið sammála um að
efla þyrfti stöðu skóla- og mennta-
mála.
„Það sem kannski bar á milli í
sjálfri kosningabaráttunni var af-
staða okkar til skuldastöðu og fjár-
mála bæjarins,“ sagði hann. „Við
sjálfstæðismenn gagnrýndum starí
atvinnuþróunarsjóðs og vaxandi
skuldastöðu bæjarins. Þetta var
það, sem aðgreindi okkur frá hinum
þegar leið á kosningabaráttuna.“
Akranes
Sveinn Kristinsson
E-lista
Lang-
stærsta
bæjar-
málaaflið
SVEINN Kristinsson, oddviti E-list-
ans á Akranesi, segir úrslitin mjög
ánægjuleg.
„Við erum mjög glöð og hreykin ai
okkai’ frammistöðu. Við náðum
þama 43% fylgi sem era auðvitað
mjög ánægjuleg úrslit þó að við næð-
um ekki hreinum meirihluta. Við er-
um langstærsta bæjarmálaaflið á
Akranesi og komum væntanlega til
með að leiða bæjarstjóm á næsta
kjörtimabili," sagði Sveinn.
Hann sagði að kannanir sem gerð-
ai’ hefðu verið á vinnustöðum hefðu
bent mjög ákveðið í þessa átt þannig
að það hefði legið í loftinu síðustu
dagana að E-listinn myndi vinna góð-
an sigur.
„Við höfum átt frumkvæði að fund-
um með Framsóknarflokknum og
stefnum að því að ljúka viðræðum við
framsóknarmenn um næstu helgi.“
Gunnar Sigurðsson
D-lista
Bjóst við
meiru
GUNNAR Sigurðsson, oddviti D-
lista á Akranesi, segir listann hafa
SJÁ BLS. 9