Morgunblaðið - 07.05.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.05.1991, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1991 Kaup á björgunarþyrlu fyrir Gæsluna: Ákvörðun ekki væntan- leg á næstu mánuðum FRIÐRIK Sophusson fjármála- ráðherra segir að nokkrir mán- uðir líði áður en endanleg ákvörðun um kaup á björgunar- þyrlu fyrir Landhelgisgæsluna verður tekin. „Þetta mál er í athugun og verð- ur að vera það eitthvað áfram. Það er í biðstöðu og ég sé ekki að það sé komið á neina endastöð. Ég hygg að það líði mánuðir áður en sú ákvörðun verður tekin. Það er heimild til um það að setja 100 milljónir til þyrlukaupa ef um und- irskrift er að ræða, en hún er ekki orðin,“ sagði fjármálaráðherra. Þórhallur Arason, skrifstofu- stjóri í fjármálaráðuneytinu, sagði að verið væri að vinna að saman- tekt um eiginleika þeirra véla sem skoðaðar vora í ferð fulltrúa dóms- og fjármálaráðuneytis og Land- helgisgæslunnar fyrir nokkrum vikum. „Ég held að menn þurfi einfaldlega að skoða kostina bet- ur. Ég held að menn kaupi ekki svona tæki sem kostar einn millj- arð á tveimur vikum,“ sagði Þór- hallur. Hann sagði að verið væri að skoða hvemig rekstur slíkrar vélar kæmi inn í starfsemi Landhelgis- gæslunnar. Vél af þessari stærð yrði að hafa önnur verkefni sam- hliða björgunarstarfsemi. Hann sagði að drátturinn á því að ákvörðun væri tekin um þessi kaup stafaði af tæknilegum ástæðum, ekki af slæmri stöðu í ríkisfjármál- um. Veðrið með hlýrra móti í vetur VEÐRIÐ var með hlýrra móti í vetur miðað við síðustu áratugi. Úrkoma á landinu var heldur meiri en í meðalári en snjókoma nokk- uð minni. Trausti Jónsson, veðurfræðingur, segir að veðrið í vetur hafi verið þokkalega milt hvort sem miðað sé við mánuðina desember til mars eða nóvember til apríl. Það hafi verið með hlýrra móti og til dæmis hafi þetta verið hlýjasti vetur á Akur- VEÐUR eyri síðan 1972. I Reykjavík hafi hins vegar verið álíka hlýtt veturinn 1986 til 1987. Trausti segir að úrkoma hafí verið heldur meiri í vetur en í meðal- ári en snjókoma heldur minni þó þar muni ekki miklu. VEÐURHORFUR í DAG, 7. MAÍ YFIRLIT: Milli íslands og Noregs er 1.010 mb lægð á leið aust- norðaustur en hæðarhryggur fyrir vestan land þokast austur. Við Hvarf er 1.000 mb lægð á hreyfingu norðaustur. SPÁ: Suðaustanátt, kaldi eða stinniagskaldi og á stöku stað all- hvasst. Rigning um sunnan- og vestanvert landið, en þurrt og létt- skýjað frameftir degi norðaustanlands. Fremur hlýtt í veðri. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Suðvestanátt og skúrir suðvestanlands en suðaustanátt og víðast rigning í öðrum landshlutum. Hiti 5-10 stig. HORFUR Á FIMMTUDAG: Breytileg og siðar heldur vaxandi norð- anátt. Suðaustanlands léttir til en f öðrum landshlutum verður rign- ing eða skúrir. Kólnandi veður, einkum norðanlands. Svarsfmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. TÁKN: / Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r r Rigning r r r * r * r * r * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius ý Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —J- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 i gær að ísl. tíma hitl veður Akureyri 8 léttskýjað Reykjavik 4 skýjað Bergen 11 léttskýjað Helsinki 13 skýjað Kaupmannahöfn 4 rigning Narssarssuaq 5 léttskýjað Nuuk +3 hálfskýjað Osló ' 8 rigning Stokkhólmur 7 þokumóða Þórshöfn 10 léttskýjað Algarve 23 léttskýjað Amsterdam 11 mistur Barcelona 16 mistur Bérlín 7 rigning Chlcago 10 skýjað Feneyjar 18 þokumóða Frankfurt 8 rigning Qlasgow 9 skýjað Hamborg 8 skýjað Las Paimas vantar London 7 rigning LosAngeles 14 þokumóða Lúxemborg 10 rigning Mádríd 24 hálfskýjað Malaga 21 léttskýjað Mallorca 18 skýjað Montreal 11 skúr NewYork 11 þokumóða Orlando 24 skýjað París 16 skýjað Róm vantar Vín 15 skúr Washington 17 þoka Winnipeg 0 fskorn Morgunblaðið/Kenneth Johannsson Dís í Las Vegas Fegurðarsamkeppnin Ungfrú Alheimur, Miss Universe, fer fram á Aladdin-hótelinu í Las Vegas í Bandaríkjunum föstudaginn 17. maí nk. Stúlkurnar sem þátt taka í keppninni eru þegar komnar til Las Vegas. Myndin var tekin af fulltrúa Cook-eyja og íslenzka fulltrú- anum, Dís Sigurgeirsdóttur frá Vestmannaeyjum. Dís varð í 4. sæti í keppninni Ungfrú ísland í fyrra. Hafrannsóknarstofnun: Ný jarðhitasvæði við Grímsey NÝ jarðhitsvæði fundust neðansjávar við Grímsey í leiðangri, sem farinn var á hafrannsóknarskipinu Árna Friðrikssyni norður fyrir land. Að sögn Jóns Ólafssonar haffræðings og leiðangursstjóra, er svæðið nokkur hundruð metrar á hvorn veg en verið er að rann- saka sýnin sem tekin voru. Jón sagði, að leiðangurinn hefði gengið nokkuð vel. Meðai annars hafi orðið vart við jarðhita á svæði austur af Grímsey, sem lítið var vitað um áður, og sömuleiðis svæði vestan við eyna, þar sem fannst uppstreymi. Þá var jarðhitasvæðið sem vitað er um á Kolbeinseyjar- hrygg rannsakað. Tekin voru sýni af hafsbotni á þessum stöðum sem verið er að rannsaka. „Þarna komu upp útfell- ingar eins og vænta mátti'þar sem um jarðhita er að ræða,“ sagði Jón. „Nýju svæðin við Grímsey eru ekki stór en á nokkrum stöðum virtist bóla upp af eða sjá mátti stróka." Aldís Schram látin ALDÍS Þorbjörg Brynjólfsdótt- ir Schram, til heimilis í Sörla- skjóli 1 í Reykjavík, andaðist á Landspítalanum að morgni 5. maí á 75. aldursári. Aldís fæddist í Reykjavík 23. mars árið 1917 og ólst þar upp. Hún var yngsta barn hjónanna Brynjólfs Jónssonar, sjómanns og síðar baðvarðar við Miðbæjar- skóla, og Margrétar Magnúsdótt- ur, en fimm systkini hennar kom- ust upp. Aldís vann í Braunsverslun í Reykjavík áður en hún gifti sig árið 1936. Hún rak stórt heimili í Reykjavík og lét félagsmál mikið til sín taka. Hún starfaði mikið með bridsfélögum borgarinnar og var um tíma formaður bridsfélags kvenna. Eftirlifandi eiginmaður Aldísar er Björgvin Schram stórkaupmað- ur í Reykjavík og eignuðust þau sjö börn, Bryndísi, Ellert, Mar- Aldís Þorbjörg Brynjólfsdóttir Schram. gréti, Björgvin, Magdalenu, Ólaf og Önnu Helgu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.