Morgunblaðið - 10.09.1963, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 10. sept. 1963
MORGUNBLADID
13
HIN nýja Reykhólakirkja í
Reykhólasveit í Barðastranda-
sýslu var vígð s.l. sunnudag af
Sigurbirni Einarssyni, biskupi
Margt fólk var viðstatt athöfn-
ina eða 300-400 manns.
Fréttaritari • Morgunblaðsins
Sveinn Guðmundsson, Miðhús-
um, v£ir viðstaddur vígsluna og
segir svo frá henni:
Klukkan 2 hófst athöfnin með
því að biskup, prestar og sókn-
arnefnd fóru í skrúðgöngu frá
gömlu kirkjunni og gengu til
nýju kirkjunnar. t>á hófst sjálf
vígslan, biskupinn yfir Islandi
hr. Sigurbjörn Einarsson vígði
kirkjuna.
Kirkjukór Reykhólakirkju
söng undir stjórn Jóns Isleifs-
sonar, söngstjóra úr Reykjavík.
Sóknarpresturinn séra Þórar-
inn "í>ór predikaði, vígsluvottar
voru þeir séra Árelíus Níels-
son, séra Jón Árni Sigurðsson,
sem báðir hafa verið þjónandi
prestar á Reykhólum, séra Sig-
urður Kristjánsson, ísafirði, en
Prestar ganga úr gömlu kirkjunni með kirkjugripL
Fjölmenni var við vígslu
hinnar nýju Reykhólakirkju
hann er Reykhólasveitungur að
uppruna og nágrannaprestur,
séra Tómas Guðmundsson Pat-
reksfirðL
Skírð voru þrjú böm í mess-
unni og síðan var almenn altar-
isganga. Að lokum söng kór og
kirkjugestir þjóðsönginn og
meðhjálpari las bæn, þess má
geta að meðhjálparinn Ólafur
Þorláksson hefur verið með-
hjálpari í Reykhólakirkju yfir
30 ár og mun aðeins einu sinni
ekki getað mætt við guðsþjón-
ustu á Reykhólum öll þessi ár.
Margt fólk var viðstatt vígslu
athöfnina eða 300-400 manns og
var athöfnin öll hin virðulegasta.
Síðan var haldið að Bjarkar-
lundi og setin veizla í boði Barð
strendingafélagsins, þar voru
margar ræður fluttar og var
hófið hið ánægjulegasta.
Arið 1958 var hafist handa um
byggingu á nýrri kirkju á
Reykhólum.
Kirkjan tekur um 120 manns
í sæti og er teiknuð af húsa-
meistara rikisins Herði Bjarna-
syni og innanhústeikriingar hef-
ur annazt Sveinn Kjarval hús-
gagnaarkitekt.
Teikningar allar eru gerðar af
mikilli smekkvísi og frumleik.
Yfirsmiður við húsbygging-
una var Magnús Skúlason, Vog-
um, Vatnleysuströnd og með
honum hefur unnið Gísli Ingi-
mundarson, Reykjavík og má
fullyrða, ef þessara tveggja
manna hefði ekki . notið .við
væri þetta glæsilega guðshús
ekki tilbúið til notkunar. Þeir
hafa unnið verk sín af trú-
mennsku og lítillæti og verður
þeim seint fullþakkað.
Múrarar að kirkjunni voru
Oddur Daníelsson frá Trölla-
tungu, Kristján Guðmundssön
og Rútur Guðmundsson. Raf-
virkjameistari var Einar Stef-
ánsson, Reykhólum. Málara-
meistarar voru Sveinnn Eiríks-
son og Teitur Guðmundsson
Reykjavík.
Kirkjan er hituð með hvera-
vatni og leikur það um röra-
kerfi í gólfi kirkjunnar, sem
gefur notalegan varma.
Tréverk allt, sem smíðað var
á verkstæði var gert af Dverg
h.f., HafnarfirðL svo sem
predikunarstóll, altari, hurðir
og gluggar. Pípulagningameist-
arar voru: Magnús Kristjánsson
og Heiðdal Jónsson, Reykjavík.
Þrír framkvæmdastjórar hafa
verið við kirkjubygginguna.
Fyrstur var Sæmundur Björns-
son kaupmaður á Reykhólum,
en hann fluttist til Reykjavík-
ur. Við starfi hans tók Sigurður
Elíason formaður sóknarnefnd-
ar, en hann fluttist til Reykja-
víkur og við starfi hans tók
Ingi Garðar Sigurðsson tilraun-
arstjóri, Reykhólum.
Kirkjan kostar 1 milljón og
562 þúsundir og af því hefur
ríkissjóður greitt 775 þúsundir,
sem álag á kirkjuna. Kirkjan
gamla var eign Reykhóla, en
ríkissjóður á jörðina og hafði
I því ríkissj óður ~ endurbyggingar-
skyldu á kirkjuna. Gamla kirkj
an er orðin 105 ára gömul og
var byggð af Ara Hallvarðssyni
„snikkara“ frá BörmUm í Reyk-
hólasveit og var hann fenginn
heim frá Kaupmannahöfn til
þess að byggja kirkjuna, en þar
var hann búsettur.
Gamla kirkjan er orðin mjög
úr sér gengin þó að hún á sín-
um tíma væri stílhrein og fall-
egt guðshús.
Safnaðarfólk hefur lagt fram
bæði vinnu og peningagjafir,
sem mun vera nokkrir tugir þús
unda að verðmæti.
Sóknarnefnd er skipuð þessu
fólki: formaður, Sigurður Elías-
son, én hann lætur nú af störf-
um en hann hefur gengið þessu
starfi þetta ár, vegna óska safn-
aðarins.
Gjaldkeri er Jón Þórðarson
Árbæ og ritari er Ingibjörg
Arnadóttir, Miðhúsum.
Safnaðarfulltrúi er Eysteinn
Gíslason kennari frá Skáleyjum,
organisti er Ólína Jónsdóttir
Miðhúsum og sóknarprestur er
séra Þórarinn Þór prófastur
Reykhólum. meðhjálpari Ólaf-
ur Þorláksson, Börmu’m. Sam-
kvæmt upplýsingum frá sóknar-
presti í gær höfðu kirkjunni
borist margar góðar gjafir.
1. Prédikunarstóll gefinn af
Breiðfirðingafélaginu í Reykja-
vík.
2. Skírnarfontur gefinn af
Ragnheiði Hákonardóttur.
3. Skírnarskál, gefin af böm-
um Hákonar Magnússonar og
Arndísar Bjarnadóttur, sem
bjuggu á Reykhólum og börn-
um Jónasar Sveinssonar og Krist
ínar Guðmundsdóttur, sem
bjuggu á Borg í Reykhólasveit.
4. Kaleikur, gefinn af Guð-
mundi Andréssyni, gullsmið í
Reykjavík.
5. Guðbrandsbiblía, gefin af
Sigríði Einarsdóttur Miðtúni 70
í Reykjavík.
6. Hátíðamessuskrúði, gefin
af. börnum séra Jóns Þorvalds-
sonar prests á Stað í Reykhóla-
sveit.
7. Messuskrúði, gefin af séra
Árelíusi Nielssyni Reykjavík.
8. Kertastjakar á altari, gefn-
ir af Steinunni Júlíusdóttur og
Játvarði J. Júlíussyni Miðjanesi
ReykhólasveiL
9. Krusifix á altari, gefin af
séra Arngrími Jónssyni í Odda
og konu hans Guðrúnu Hafliða-
dóttur.
10. Kertastjaki, gefinn af
Ingibjörgu, Ragnheiði, Brand-
Framihald á bls. 23
Danski ballettinn
frumsýnir í kvöld
í K V Ö L D er frumsýning í
Þjóðleikhúsinu á gestaleik
Konunglega danska ballets-
ins.
í gær hittu hlaðamenn þjóð
leikhússtjóra og balletfólk að
máli, þ. á m. Niels Bjþrn
Larsen, hallettmeistara, Arne
Hammelboe, hljómsveitar-
stjóra, Hans Brenaa, leik-
stjóra, og Jens Louis Peter-
sen, framkvæmda- og farar-
stjóra.
Petersen skýrði frá því, að
Konunglega danski ballettflokk-
urinn færi ekki oft í fullkomnar
leikferðir, eins og hér væri um
að ræða. Eftir stríð hafa aðeins
til fimm slíkar ferðir verið farn-
ar, tii Lundúna, Edinborgar,
Firenze og tvær til Bandarikj-
anna. Slíkar ferðir eru bæði
mjög erfiðar og dýrar.
Larsen ballettmeistari sagði,
að áhugi almennings á leikdansi
hefði stóraukizt á síðari árum,
ekki aðeins í Danmörku heldur
og í öðrum löndum Evrópu, og
ekki sízt í Bandaríkjunum.
Hammelboe sagði aðspurður,
að hann væri mjög ánægður með
Sinfóníuhljómsveit íslands, en
hún leikur með ballettinum, eins
og kunnugt er.
Þjóðleikhússtjóri sagði, að
þetta væri í fyrsta skipti, sem
ballett er hér „uppfærður“ með
fullkominni hljómsveit og útbún-
aði. Nú væri hægt að njóta Kon-
unglega danska ballettsins eins
vel á fjölum Þjóðleikhússins og
í Kaupmannahöfn.
★
Dansararnir eru 52 talsins, en
alls koma hingað um 70 manns
vegna gestaleiksins. Þessir ball-
ettar verða dansaðir:
Skógardísin (Sylfiden), róm-
antískur ballett í tveimur þáttum
eftir August Bournonville, „föð-
ur“ danska ballettsins. Ballett-
inn er í sviðsetningarútgáfu Har
alds Landers.
Symfónía í C eftir Balanchine
við tónlist eftir Bizet. Leikdans-
inn er saminn árið 1947.
Náttskugginn (The Night Sha-
dow) eftir Rieti. Kóreógrafían
er eftir G. Balanchine. Ballett-
inn var frumsýndur í New York
árið 1946. Tónlistin byggist á
óperu Bellinis, „La Sonnam-
bula“ (Svefngengillinn).
Coppelía, gamanleikdans frá
1870. Tónlistin er eftir Delibes.
Hér er of langt mál að telja
upp dansarana, en þess má geta,
að meðal þeirra eru margir hinna
frægustu við danska ballettinn,
sem getið hafa sér frægð víða um
heim.
Frá æfingu danska ballettsins í Þjóðleikhúsins í gærkvöldi.
— Ljósm.: Myndiðn.