Vísir - 10.03.1939, Blaðsíða 5

Vísir - 10.03.1939, Blaðsíða 5
Föstudaginn 10. mars 1939. V I S I R 5 VÍSIS Frá Alþingi: Mepkilegt f#umvarp til íþpóttalaga. I síðastliðnu vori skipaði forsætisráðherra níu manna nefnd, er semdi frumvarp til íþróttalaga og gerði tillögur um, hvernig koma mætti íþróttamálum okkar á fastan grundvöll. Þessir menn voru í nefndinni: Pálmi rektor Hannesson, for- maður, Aðalsteinn Sigmundsson, Erlendur Pétursson, Erling- ur Pálsson, Guðm. Kr. Guðmundsson, Jón Kaldal, Jón Þor- steinsson, Óskar Þórðarson og Nefndin hefir nú samið frv. og er það borið fram af menta- málanefnd- Það er í 31 gr. og 6 köflum. Þykir rétt að skýra lesendum fþróttasíðunnar frá efni þess að nokkuru. 1. kafli: UM STJÓRN fÞRÓTTAMÁLA- Kenslumálaráðherra hefir umsjón þessara mála, en lion- um til aðstoðar er íþróttafull- trúi og íþróttanefnd. íþróttafulltrúi á að liafa al- liliða þekkingu á íþróttamálum og auk þess þelckingu á alm. uppeldismálum. Skal fulltrúinn skipaður til 2 ára í senn og vera launaður af rílcissjóði. Hann á að hafa þessi störf á hendi, m- a.: Umsjón með íþróttastarfsemi í skólum, vinna að útbreiðslu og eflingu íþróttanna, veita fé- lögum og einstaklingum leið- beiningu og aðstoð um íþrótta- mál o. þ. h. fþróttanefnd skal skipað 3 mönnum og tilnefnir stjórn í. S. í. og stjórn U. M. F- í. hvor sinn mann. íþróttanefnd starfar kauplaust og slculu nefndar- menn búsettir í Reykjavik eða nágrenni. Stjórnar nefndin iþróttasjóði, en hefir annars þessi störf að- allega: Að vinna að eflingu í- þróttamála og koma skipulagi á þau mál o. fl. 2. kafli: UM ÍÞRÓTTASJÓÐ. Um liann segir svo i 5. gr. laganna: „Stofna skal sjóð til eflingar íþróttum í landinu, og nefnist liann iþróttasjóður. Al- Steinþór Sigurðsson. þingi veitir sjóðnum árlega fé til ráðstöfunar eða sér honum fyrir öruggum tekjum á annan hátt. Veitir sjóðurinn slyrki til hverskonar mannvirkja og tækja, sem miða að bættum skilyrðum til iþróttaiðkana, til íþróttaskóla og námskeiða, út- breiðslu iþrótta o. þ. li. 3. kafli: UM ÍÞRÓTTIR f SKÓLUM. Þar segir í 13. grein: „öll börn á landinu skulu læra sund, nema þau séu óhæf til þess, að dómi skólalæknis- Höfuðáherslu skal leggja á að kenna bringu- og baksund og helstu aðferðir við björgunar- sund og endurlífgun úr drukn- unarástandi. Skal hver nem- andi hafa lokið þessu námi fyr- ir 14 ára aldur og hafa leyst af hendi ákveðnar raunir í sundi og björgun, samkvæmt reglu- gerð, sem ráðhera setur“. 17. gr-; „I öllum barnaskól- um og öðrum almennum skól- um skal fara fram kensla í beilsufræði. Leggja skal sér- staka áherslu á heilsuvernd, gildi íþrótta og skaðsemi eitur- nautna“. Þar að auki eru i lögunum ýms önnur þarfleg ákvæði og nýmæli, sem ætti að verða í- þróttastarfsemi okkar til efling- ar á komandi árum, ef lög þessi ná fram að ganga. En þá verður líka að vanda val þeirra manna, sem um þessi mál eiga að f jalla og þeim eiga að stjórna. Sé það ekki gert, er það undir hælinn lagt, hvort þau nái tilætluðum árangri. Árni M. Jónsson: Knattspyrnan á Englandi. Áður, en sjálfri kepninni verÖLU' lýst, mun verða drepið lauslega á, hvernig „League-an hefir tekið á sig núverandi mynd. Árið 1888 mynduðu tólf þá- verandi bestu og frægustu knattspyrnufélög Englands með sér samband og byrjaði kepni innan sambandsins þá þegar á þvi ári. Mörg félög, sem ekki voru í sambandinu óskuðu eftir upp- töku í sambandið og 1892 hafði fjórum félögum tekist að fá upptöku og taldi League-an því 16 félög þá. Sama ár voru tólf bestu félögin af hinum mörgu umsækjendum valin og leyfð upptaka í sambandið. Var svo ákveðið að þau 16 félög, er fyr- ir voru skyldu vera í sér flokki eða deild og var sú deild nefnd I. deild, en hin tólf skyldu verá í II. deild. Ekki var það fyr en 1920 að hver deild hafði 22 fé- íög eins og nú er. Þetta sama ár var bætt við III. deild (suð- ur) með 22 félög, og árið eftir III. deild (norður) með sama félagafjölda. Síðan hefir League-an ekki tekið neinum breytingum og er ósennilegt, að hún geri það á næstunni. Öll knattspyrnufélögin innan sambandsins eru atvinnu- mannafélög og því ekki íþrótta- félög í venjulegum skilningi, lieldur eru þetta lilutafélög, sem rekin eru eins og hver önnur fyrirtæki. Kappliðsmenn eru því ekki meðlimir félag- anna heldur öllu fremur starfs- menn. Stjórn hvers félags er kosin af liluthöfum og ræður stjórnin sér forstjóra (man- ager), ritara, skrifstofumenn, þjálfara og annað starfsfólk þar iá meðal kappliðsmenn. Hvert félag á sinn eigin leik- vang, sem eru raunar mjög misstórir. Rúma þeir frá 20—- 80 þús. áhorfendur. Mörg félögin eru mjög auð- ug og eru það þá helst félögin í I. deild, eins og t, d. Aston Villa, Arsenal, Everton og Wolver- liampton. Tottenham, sem er í II. deild, er þó talið auðugasta knattspyrnufélag Englands. Kappliðsmenn. Eins og áður er sagt, eru kappliðsmenn ekki meðlimir félaganna, lieldur samnings- bun'dnir starfsmenn. Hver kapp- liðsmaður er ráðinn gegn viku- legri peningagreiðslu (6—81 pund, sbr. fyrri greinina). Eftir fimm ára starf fær liver maður launauppbót og er það þá aiinaðlivort ákveðin uppliæð, t. d. 500 pund eða meira stund- um, eða þá nettó ágóða eins leiks. Flestir kappliðsmenn hafa eigi aðra atvinnu en knatt- spyrnuna, en þeir er einnig stunda aðra atvinnu, verða að fá samþykki félagsins til þess og er það venjulega ekki veitt ef um líkamlegt erfiðisstarf er að ræða. Margir atvinnuknatt- spyrnumenn eru barnakennarar eða kennarar í æðri skólum, aðrir skrifstofumenn, hljóð- færaleikarar eða þá jafnvel læknar. Frægasti knattspyrnu- maður Skotlands, Tommy Walker, stúderar guðfræði, og má af þvi sjá, að knattspyrnu- menn liafa mismunandi áhuga- mál. Meira. Á laugardag fara fram þessir leikir: Birmingham Bolton Charlton Chelsea Leeds United Leicester City Liverpool Manchester U. Middlesbro’ Preston Stoke City W’hampton Brentford Blackpool Grimshy Arsenal Huddersfield Portsmouth Aston Villa Everton Derhy County Sunderland í fyrra fóru þessir sömu leik- ir svo: Birmingham—Wolver- Iiampton 2:0; Bolton—Brent- ford 2:0; Charlton—Blackpool 4:1; Clielsea—Grimsby 1:0; Leeds—Arsenal 0:1; Leicester— Huddersfield 2:1; Liverpool— Portsmouth 3:2; Middlesbro’— Everton 1:2; Preston—Derby C. 4:1 og Stoke—Sunderland 0:0. skíðaáliurður er kominn á markaðinn. Þeir skíðamenn, sem vilja fylgjast með' timanum nota eingöngu fyrsta flokks skíðaáburð. Sparið yður erfiði með því að nota hinn rétta MUM-skíða- áburð, sem er orðinn uppáliald allra skíðamanna • MUM-skíðaáburður fæst fyrir allskonar færi. — Hnefaleikaskðii Þorsteins Gíslasonar. Hnefaleikar hafa átt ótrúlega erfitt uppdráttar hér á landi. Er þetta mest að kenna skiln- ingsleysi alraennings fyrir á- gæti þessarar íþróttar. Það er enginn efi á því að hnefaleikar, rétt iðkaðir, er góð íþrótt, sem menn ðettu að veita meiri at- liygli framvegis. Einn af þeim mönnum, sem mest og best hefir unnið að því að vinna að útbreiðslu og efl- ingu lmefaleika-íþróttarinnar hér á landi. er án efa Þorsteinn Gíslason hnefaleikakennari. Þorsteinn hefir um mörg ár haldið uppi hnefaleikakenslu, hér í bæ, þrátt fyrir slæma að- stöðu, sérstaklega vegna hús- næðisleysis og svo skilnings- leysis fólks. En hann liefir samt ekki gefist upp og nú virtist hann loks vera að nálgast tak- mark sitt, almenningur er far- inn að meta þessa íþrótt og að- sókn að skóla Þorsteins evkst nú óðum, enda liefir hann nú fengið ágætis liúsnæði fyrir skólann, er það í Iþróttaskóla Garðars, Laugavegi 1. Þar liefir hann öll áliöld og vistlegt liús- næði. J. I [rlenðar ibröttafrir Mikið íþróttalíf í Danmörku. Samkvæmt nýjum íþrótta- skýrslum frá Danmörku iðka 77000 menn knattspyrnu þar í landi, hafa þeir 1300 knatt- spyrnuvöllum yfic að ráða- Handknattleik iðka 28000 manns, sem hafa 85 innanhús- velli og 785 grasvelli til afnota. 11500 iðka tennis, þar af 3600 konur, i 20 tennis- og íþrótta- höllum með 26 völlum og 852 völlum utan húss. Fimleika iðka 127000 manns og nota til þess 1600 fimleika- og íþróttasali. 12800 iðka frjáls- ar íþróttir og hafa þeir yfir 121 leikvangi að ráða. t 100 tíma á sundi. Argenthiumaður einn, Candi- otti að nafni, hefir nýlega sett ný met í þolsundi með þvi að synda samfleitt i 100 tíma og 33 min. SÍÍCSíSÍÍÍÍOÍlíÍíKSÍÍOÍÍÖtSOttíííSOÖOÖQCíÍííOÍSíSííOOíÍÖOOíSOÖÍÍÖOOíÍOOttOCOOíÍÍ •jtsaw í? PEYSUR, BUXUR, SKÓR, YETTLINGAR, Shida- jafnan fyrirliggjandi. YERKSMIÐJUÚTSALAN, Gefjun - Iðunn Aðalstræti. 1 0 0 o í? sOOOOOOOOOOQiSOOOOQOOOOi SOOQOOOi SOiSOOOOOOi sooooooooooooooí K. R. ij Örutiu á#a. Knattspyrnufélag Rvikurheldur um þessar mundir hátíðlegt 40 ára afmæli sitt — með kappmótum, íþróttasýningum o. þ- h. Hét félagið í fyrstu „Fótboltafélag Reykjavíkur“ og voru stofnendumir ungir menn, sem komu saman í búð Gunnars Þorbjörnssonar í Aðalstræti (nú versl. Manchester) og ákváðu að kaupa knött- Lagði hver maður fram 25 aura, en það nægði ekki fyrir fullu andvirði knattarins. Hann fékst þó — með af- borgun. Ur þessu „25-aura-félagi“ er nú orðið voldugasta íþróttafélag landsins, bæði að félagafjölda, unnum afrekum og starfs- sviði. Þess er þvi eng- inn kostur að gera því þau skil i stuttri blaðagrein, sem það ætti skilið fyrir það starf, sem það hefir unnið i þágu íþrótta- lífs okkar og líkamsmentar landsmanna-i heild. En þess slcal getið, sem gert er, og fyrst minst þeirra manna, sem áttu upptökin að félags- stofnuninni og hófu þa<5 þjóð- þrifastarf, sem félagið liefir síðan unnið. Stofnendur og félagsmenn fyrstu árin voru þessir: Pétur og Þorsteinn Jónssynir, Jóhann Antonsson, Þorkell Guðmunds- son, Kjartan og Geir Konráðs- synir, Björn Pálsson (Kalman), Davíð Ólafsson, Bjarni ívárs- son, Guðm. Guðmundsson, Há- bæ, Guðm. Þorláksson, Guðm. Þórðarson, Hól, Jón Björnsson, Bjarni og Kristinn Péturssynir, Sig. Guðjónsson, Brunnhúsum, Guðm. Stefánsson, glímumaður og Kristinn Jóhannsson, Laug- arnesi. Síðar bættust við smám saman þeir Jón og Pétur Hall- dórssynir, Richard Thors, Skúli Jónsson, Símon Þórðarson, Jón Þorsteinsson, Árni og Lúðvíg Einarssynir og Ben. G. Waage- Fyrstu árin æfðu þessir menp knattspyi’nuna aðallega sér til skemtúnar og þá liefir víst ekki grunað, ftð þessi skemtun þeirra Og leikur væri grund- völlurinn, sem K.R. reisti hið sigursæla merki sitt þ. Þó kom fyrir að háðir voru kappleikir, en venjulega voru þeir þannig, að piltarnir skiftu með sér liði. T. d. var einn þvi- likur kappleikur háður árið 1900 og voru þeir bræður Pétur og Þorsteinn Jónssynir fyrirlið- ar. Fóru svo leikar, að Péturs- lið bar hærra hlut og hlaut að vérðlaunum 25 kr. í peningum, einn minnispening og heiðurs- skjal, sem Ben. Gröndal hafði Þorsteinn Jónsson (1899—1910). Ben. G. Waage (1911—’12). Árni Einarsson (1913—’19). Gunnar Schram (1920—’22). Kristján L. Gestsson (1923—’31). Guðmundur Ólafsson (1933—’35). Erlendur Ó. Pétursson 1932—’33 og 1936—’'39. 15 heimsmet af 16. Fyrir stuttu síðan setti Ragnhild Hveger, hin heims- fræga danska sundmær, nýtt heimsmet í 100 yards sundi, frjáls aðferð, og er tími henn- ar 59 7 sek., og er það y10 úr sek. betri tími en gamla met- ið, sem hollenska sundmærin Willy den Ouden átti. Þar með hefir Ragnhild Hveger eignast 15 heimsmet af 16 í sundi, frjáls aðferð; að eins 100 metrarnir eftir og er það spá manna, að hún eigi eftir að ná þeim einnig. Heimsmet Ragnhild Hveg- ers, frjáls aðferð, eru þessi: 100 yards .... 59.7 sek. 200 metrar .... 2.21-7 mín. 220 yards .... 2.25.9 — 300 — .... 3.25-6 — 300 metrar .. . 3.46.9 — 400 — ... 5-06.1 — 440 yards .... 5.12.8 — 500 metrar ... 5.57.9 — 800 — ... 11.11.7 — 880 yards .... 11.16-1 — 1000 —........ 12.36.0 — 1000 metrar ... 14.12.3 — 1500 , — ... 21.45-7 — 1 míla .... 23,11.5 — Geri aðrir betur! Eina metið, sem eftir er, á Willy den Ouden, eru það 100 m. og er 1.04-6 mín. íþróttafréttir eru einnig á 8. síðu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.