Alþýðublaðið - 05.06.1930, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 05.06.1930, Blaðsíða 4
4 ffiíJptÐUBUAÐIÐ Hernaðarandi sænska anðvaidsins. Lundúnum (UP.), 5. júní, FB. ■Frá Stokkhólmi er símað: „Sér- fræðinganefnd", sem skipuð var í Svíþjóð í fyrra til þess að at- huga landvarnirnar og stjórnar- farsleg mál í sambandi við þau, hefir skilað áliti sínu til land- varnarráðuneytisins. Nefndiþ er þeirrar skoðunar, að algerð af- yopnun í Svíþjóð sé ógerleg. Vitnar hún til Eystrasaltsrikjanna og sambands þeirra við Rússland ög enn fremur er í álitinu getið ium, hve veí liggi við að sigla frá Danmörku inn í Eystrasalt. BókSn falar. Maður nokkur í Frakklandi hef- ir gert merkilega uppíinningu. Það er áhald, sem les bækur lupphátt. Áhald þetta er dálítill stokkur, er setja m)á í samband við ljósaleiðslu, og mái þá láta hann lesa upphátt fyrir sig bók eða tímarit. Fregn þessi mun þykja ótrúleg, en mun þó vera sönn. Mörgum þótti ótrúleg fréttin um talsím- ann — að talast mætti við, þó menn væru sinn á hverju lands- horni — og enn útrúlegri fréttin íim víðvarpið, þráðlausa firðtal- Ið og nú síðast firðsýnina. Un daginað og veginzs. JFÚNbÍR\Íi/Tli.KyfifÍÍNGAR IÞAKA í kvöld kl. 8i/2 Í3TÚKAN 1930. Framhaldsstofn- fundur verður haldinn föstud. 6. júní kl. 81/2 í Templarahús- inu við Templarasund. Stofn- félagar mœti stundvíslegá. Næturlæknir er í nótt Halldór Stefánsson, Laugavegi 49, sími 2234. . Alþýðufólk! Vinnum fyrir listann okkar — A-listann. Kosningaskrifstofa Alþýðufiokks- ins er þar, sem áður var Hafnar- kaffi, rétt hjá Steinbryggjunni. Sími 1915. Gætið að, hvort þér eruð á kjörskrá! Sjói-.ieíin .; og aðrir, sem farið burtu úr borgínni fyrir annan sunnudag (15. þ. m.). Komið í skrifstofu iögmannsins, Suðufgötu 4, milli kl. 1 og 5, og kjósið A-listann,. Virðingargjörn kona. ' í álþingishátíðartölublaði danska blaðsins „Politiken“ birt- ist grein urn islenzkar konur. Landsins beztn hjöl .........=== B. S A., HAILET oglÞÓR Þessipijól og alt tilheyrandi hjölhestnm fáið þið hjð SÍBUFÞáiP JdnssynE — Aostrstr’aeti 3. (HJfiIiii íást v :«*ð najög kagkvœmain atborgnnapskilmálnm).- Greininni fylgja 2 myndir af Guðrúnu Lárusdóttur. Greinina hefir skrifað — Guðrún Lárus- dóttir. Alþingishátiðin. Minnispeningarnir eru komnir, 2, 5, og 10 kr., og fást í skiftum fyrir sömu upphæð í báðum bönkunum, hjá ríkisféhirði og í pósthúsinu og í ýmsum verzlun- um. Þeir eru í öskjum, bæði ein- stakir og allir saman. (FB.) Haraldur Guðmundsson og Jónas Jónsson komu í gær- kveldi með „Esju“. Með Esju kornu einnig Sigurjón Á. Ólafs- son alþm., Ingimar Jónsson skólastjóri og Hannes Jónsson dýralæknir, er verið hafa í þing- málaleiðangri um Snæfellssýslu. Sömuleiðis komu með „Esju“ þeir Kristinn Ág. Eiríksson form. F. U. J. og Þorvaldur Brynjólfs- son varaformaður F. U. J. Voru þeir að koma úr ferðalagi um Austur- og Norður-Iand. Fyrsti fardagur er í dag. Bæjarstjósnarfundur er í dag í G.-T.-húsinu og fcyrjar kl. 5. Byggingarleyfi hafa á síðustu þremur vikum verið veitt fyrir 11 ný íbúðarhús hér í Reykjavík og ýrnsar breyt- ingar og aðrar byggingar, þar á meðal landsímastöðvarhúsið, sem á að verða fjórlyft og grunnstærðin 54081 fermetrar. Kosning bæjargjaldkera fer fram á bæjarstjörnarfundin- um .í dag. Krisfján Kristjánsson söngvari syngur í kvöld kl. 7i/2 í Nýja Bíó. Veðrið. KJ. 8 í morgun var 7 stiga hiti í Réykjavík, mestur á Akureyri og Seyðisfirði, 11 stig. Útlit hér um slóðir: Hæg norðanátt. Smá- skúrir í dag, en léttir til rnaeð kvöidinu. Hvfiið er að frétta? Skipafréttir. „Suöurfand" fór í morgun í Borgarnessför. — f gærkveldi kom fisktökuskip, sem farið hafði til Akraness, og tekur nú viðbótarfarm hjá Edinborgar- verziun. Yfirbijgdu sœtin, sem vörubif- reiðaeigendur hafa pantað , hjá undirbúningsnefnd alþingishátið- arinnar og Jóni Ólafssyni, verða afgreidd daglega til 15. þ. m. kl. 10—12 og 2—7, frá toilbúð- inni, þar sem bifreiðaskoðunih fer fram. Hér með votta ég Akurnesing- um mitt innilégasta þakklæti fyr- ir þann laglega og myndarlega minnisvarða, er þeir hafa reist föður mínum heitnum og Ólafi Tryggvasyni hálfbróður mínum á leiði þeirr,a í kirkjugarðinum hér. Rvik, í júní 1930. Oddur Sigurgeirsson af Skaganum. Barnasunídrfatnadur. Nýkomið afarvandað og fallegt snið af barnafatnaði, frá tveggja til tólf ára, sportföt með hvítum herða- kraga, lika prjóna-samfestingar, pey.sur og sokkar. Verð á þess- um fatnaði er afar-lágt. Sömu- leiðis skinnkragar á dömu- og barna-kápur. Amatörverzlunin Kirkjustrœti 10, sími 1683. Nýjar vörur koma á hverjum degi í Tískubúðina, Grundarstíg 2. Aliir vilja fá mikið fyrir peninga sína og koma því í Tískubúðina, Grundarstíg 2. munntóbak er bezt. Kristileg samkoma er í kvöld kl. 8 á Njálsgötu 1. Skodun bifreida. Á morgun á að koma með að tollstöðinni til skoðunar bifreiðar og bifhjól nr. 401—450. Steypuskóflur og Steypufötur. Einnig Vatnsfötur og ÞiOtía- balar. HJA Klapparstíg 29. Sími 24. Alllr kjésa að aka i bO frá BIFROST Simi 1529. Sé eitthvað, sem þér spyrjið um, ekki til í dag, eru mikiar líkur til þess, að það verði til á morgun. Tízkubúðin, Grundarstig 2. Góð stúlka óskast til léttra húsverka, hálfan eða allan dag- inn. Uppiýsingar á Laugavegi 51 B. NÝMJOLK fæst allan daginn í Alþýðubrauðgerðinni. Látið reynsluna skera úr hvar viðskiftin eru hagfeldust. Tísku- búðin, Grundarstíg 2. Kven-reiðhjól, sem nýtt, til sölu með tækisfærisverði. Upplýsing- ar á Skólavörðustíg 3 eftir kl. 7. Rltstjóri og ábyrg&armaÖUEt Haraldur Guðmundssom Alþýðuprcntsmiðjau.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.