Fréttablaðið - 03.08.2006, Blaðsíða 61

Fréttablaðið - 03.08.2006, Blaðsíða 61
FIMMTUDAGUR 3. ágúst 2006 41 Nánari upplýsingar á siminn.is eða á næsta sölustað Símans. * Eingöngu innan kerfis Símans SUMARTILBOÐ Á SAMSUNG SÍMUM 5 KR. SMS & MMS ALLAR HELGAR Í SUMAR * E N N E M M / S ÍA / N M 2 2 7 7 8 Nánari upplýsingar á siminn.is eða á næsta sölustað Símans. Gullfallegur samlokusími, sem býður upp á alla helstu möguleikana. Meðal búnaðar má nefna VGA myndavél og hægt að taka upp hreyfimyndir, FM-útvarp, 3MB minni, 6 klukku- stunda taltíma á rafhlöðu og margt fleira. 14.980 kr. SAMSUNG X650 Glæsileg hönnun. Örþunnur, með stórum TFT hágæða litaskjá og 1,3 MP myndavél sem hægt er að snúa 180 gráður. Hægt er að tengjast tölvu, handfrjálsum búnaði og blátannarsímum í gegnum blátannarbúnað. 37.980 kr. SAMSUNG D820 * Eingöngu innan kerfis Símans Metsöluhöfundurinn og skapari galdraveldisins sem kennt er við Harry Potter, J.K. Rowling, seg- ist skemmta sér sem aldrei fyrr við að skrifa síðustu söguna um galdrapiltinn heimsfræga enda sé mesti þrýsingurinn af öxlum hennar nú þegar sér fyrir end- ann á ævintýrinu. Höfundurinn er nú staddur í Bandaríkjunum þar sem hún tók þátt í góðgerðasamkomu ásamt rithöfundunum John Irving og Stephen King en haft er eftir þeim að þeir félagar hafi hitað upp fyrir Rowling enda hafi áhorfendaskarinn verið í yngri kantinum. Dagblaðið The Guardian greinir ennfremur frá því að fyrrgreindir ritjöfrar hafi beðið galdradrengnum Harry Potter vægðar, minnugir þess að Row- ling lýsti því yfir í vor að ástkær persóna myndi láta lífið í lok sög- unnar. Rowling kveðst vel á veg komin með síðustu bókina og lýsti því yfir að henni þætti ekki alltaf gaman að gera út af við persónurnar sínar. Hún áréttaði þó að þegar kæmi að hinum eig- inlegu skrifum væri hún búin að taka út sorgina því dauðsföllin væru ákveðin með löngum fyrir- vara. - khh Ritjöfrar biðja Potter vægðar J.K. ROWLING Komin vel áleiðis með síðustu Potter bókina. MYND/REUTERS Ástralski tónlistarmaðurinn Peter Uhlenbruch er staddur hér á landi og leikur á tónleikum í kvöld. Peter er 24 ára og kallar sólóverk- efni sitt Owls of the Swamp. Hann segist vera undir áhrifum frá tón- listarmönnum á borð við Elliott Smith, Nick Drake og Elbow og ætlar að sýna það í verki á tónleik- um á Café Rosenberg í kvöld. Þar kemur hann fram ásamt Mike Pollock. Tónleikarnir hefjast klukkan 22 í kvöld. Áhugasamir geta kynnt sér tónlist Uhlenbruch á heimasíðunni Myspace.com/ owlsoftheswamp. Ástrali á Rosenberg OWLS OF THE SWAMP Ástralski tónlistar- maðurinn Peter Uhlenbruch spilar á Café Rosenberg í kvöld. Myndlistarmaðurinn Sigurður Örlygsson opnaði sýningu í List- húsi Ófeigs á Skólavörðustíg 5 um síðustu helgi en hún er haldin í til- efni af sextugsafmæli hans. Á sýn- ingunni eru 120 vatnslitamyndir sem mynda tvær seríur en mynd- irnar eru allar unnar á þessu ári. Sigurður hefur haldið um 50 einkasýningar en hann stundaði nám við Myndlista- og handíða- skólann og síðar framhaldsnám í Kaupmannahöfn og New York. Sýningin verður opin á þjón- ustutíma listhússins en henni lýkur 23. ágúst. - khh Afmælislist VERK SIGURÐAR ÖRLYGSSONAR Litríkar vatnslitamyndir. Tafla sem sýnir æskilegan loftþrýsting í dekkjum, pund (lbs) samanborið við kílóPascal (kPa). lbs 28 195 22032 kPaÆskilegur loftþrýstingur Of mikill loftþrýstingur Of lítill loftþrýstingur Algengt er að upplýsingar um réttan loftþrýsting sé að finna í hurðafalsi eða á bensínloki bifreiða. Í venjulegum fólksbíl er algengast að æskilegur loftþrýstingur sé í kringum 200 kPa. 1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.