Nýja dagblaðið - 15.02.1934, Blaðsíða 4

Nýja dagblaðið - 15.02.1934, Blaðsíða 4
4 N Ý J A DAGBLAÐIÐ Annáll. Skipafréttir. Gullfoss kom frá út- útlöndum í gærkvöld, Goðafoss or í Keykjavík, Brúarfoss er á leið til Kaupmannahafnar frá Leith, Dettifoss kom til Hull í gæianorg- un, Lagarfoss fór til Austfjarða og Kaupm.h. í gærkvöld kl. 8, Sel- foss fór frá Leith þann 12. á leið hingað. Esja var á Borðeyri síðari hluta dags í gær. Gullfoss kom í gærkvöld frá út- löndum og hafði honum seinkað um einn sólarhring vegna óveðurs. ísfiskssalan. Maí seidi í gær i Hull 1586 kitt fyrir 1943 steri.pd. Tryggvi gamli seldi 81 tonn , Grimsby íyrir 1700 steri.pd. ís- fiskssalan er að verða búin og eru togaramir nú að búast á saltfisks- veiðar. Aflalítið hefir verið undanfarna daga og mjög litlar gæftir. Virkjun Sogsins verður meðat annars til umræðu á bæjarstjórn- arfundinum í dag. Helgi Sigurðsson verkfræðingur hefir verið ráðinn deildarverkfræð- ingur undir yfirstjórn bæjarverk- fræðings, til þess að hafa á hendi verklega stjórn vatns- og hitaveit- unnar. Byrjunarlaun hans em á- kveðin kr. 550.00 á mánuði. Borgarritari. Jón þorláksson borgarstjóri flytur frumvarp til viðauka við samþykkt um stjórn hæjarmálefna Reykjavíkur. í frum- varpi þessu er gert ráð fyrir nýju embætti, þ. e. borgarritara, er gegni störfum borgarstjóra í for- föllum hans. „Borgarritari annast og daglegar afgreiðslur fyrir hönd liorgarstjóra", segir í frumvarpinu. Borgarritari skal og hafa yfirum- sjón með innheimtu fyrir bæinn og flytja mál bæjarins fyrir undix-- rétti. Frá Norræna félaginu. þeir sem ætla að taka þátt í dansleik fé- lagsins að Hotel ísland á laugar- daginn, eru beðnir um að skrifa sig á lista, sem liggur frammi í Bókaverzlun Sigf. Eymundssonar, iyrir kl. 7 i kvöld. Aðgöngumiðar em einnig afhentir þar. Aðalsteinn Eiríksson kennari hef ir sökum, lasleika og þreytu orðið að taka sér hvíld frá kennslu- störfum, það sem eftir er vetrar. Per liann utan innan skamms og ætlar sér að dvelja nokkra mánuði á Norðurlöndum. Um fátækralæknisstöðuna hafa sótt læknarnir Bragi Ólafsson, Árni Pétursson, Halldór Stefáns- son, Sveinn Gunnarsson, Kristin Ólafsdpttir, Daníel V. Fjeldsted, Jón Kristjánsson, Bergsveinn Óiafs- son og Kristinn Bjarnason. Bæjai-- stjórnin ræður hver ráðinn verður. Embættisprófi í lögum hafa ný- lega lokið Bjöm Fr. Björnsson með L einkun, II6V3 stig og Gunnar Thoroddsen með 1. eink., \W-/s stig. Nýjung er það sem ritfanga- verzlunin „Pensinn" auglýsir hér i blaðinu í dag. Munu margir verða fegnir að fá grafið á sjálf- hlekunga sína og blýanta, sem oft eru mönnum kærir og dýr- mætir. Hefir blaðið séð nokkra sjálfblekunga, sem þar hefir verið grafið á og er það prýðilega aí hendi leyst. Smávegis ryskingar urðu í mið- bænum seint i gærkveldi milli Gísla Sigurbjömssonar og nokk- urra sendisveina, sem komu af fundi. Hafði Gísli hringt á lög- regluna og beðið um hjálp, en ekki munu hafa hlotizt nein vand- ræði af viðureign þessari. Áheit á Strandakirkju frá S. H. .10 krónur. Skákþing íslendinga hófst á Ak- ureyri á sunnudagskvöldið vai'. Skákstjóri er Björn Halldórsson lögfræðingur. þessir eru keppend- ur í meistar- og fyrsta flokki: Frá Skákíélagi Húsavíkur: Guðbjartur Vigfússon. hTá Skákfélagi Siglu- fjarðar: þráinn Sigurðsson, Jónas Jónsson, Páll Einarsson, Sveinn þorvaldsson og Sigurður Lárusson. Frá Skákfélagi Akureyrar; Eiður Jónsson, Stefán Sveinsson, Jóel Hjálmarsson, Aðalsteinn þorsteins- son og Guðmundur Guðlaugsson. í'rá Skákfélaginu Fjölnir, Reykja- vík: Asmundur Asgeirsson, núver- andi skákmeistari íslands. í öðruin flokkum keppa 10 menn. — Fyrsta skákumferð fór þannig, að Ás- mundur vann Jónas Jónsson, prá inn vann Sigurð Lárusson, Aðal- steinn vann Stefán Sveinsson, Páll vann Guðbjart, og Sveinn vann Eið. Jóel gerði jafntefli við Guð- mund. — FÚ. Bráðkvaddur varð á sunnudags- kvöldið var Jóseí Helgason, bóndi að Espihóli í Eyjafirði, á áttræðis- aldri. — FÚ. Borgfirðinga-, Mýramanna- og Hnappdælingamótið lítur út fyrir að ætla að verða fjölmennt. Skemmtikraftar eru ágætir. María Markan syngur, Erling Ólafsson syngur og margir Borgfirðingar og Mýramenn sýngja, ýmist tveir eða fieiri saman. Nokkrir helztu ræðu- menn þeirra flytja stuttar ræður og síðast dansa allir langt fram á nótt, því þótt pólitíkin hafi stundum þótt heit þar eíra, er hún ekki ennþá svo heit að ekki dansi karlar og konur af öllum flokkuin saman með mestu ánægju. Skákþingið. Önnur umferð á Skákþingi íslendinga fór þannig: Páll Einarsson vann Jónas Jóns- son, Ásmundur Ásgeirsson vann Guðmund Guðlaugsson, Sigurður Lárusson gerði jafntefli við Jóel Hjálmarsson, þráinn Sigurðsson vann Aðalstein þorsteinsson, Ste- fán Sveinsson vann Svein þor- valdsson, Eiður Jónsson vann Guð- bjart Vigfússon. — þriðja umferð fór þannig: Eiður vann Pál, Guð- bjartur vann Stpfán, þráinn vann Svein, Jóel gerði jafntefli við Að- alstein, Asmundur vann Sigurð, Guðmundur vann Jónas. — FÚ. Vélbáturúm Frigg kom til Vest- mannapyja 13. þ. m. eftir rúmlega 5 sólarhringa ferð frá Færeyjum. Ilafði hann lireppt aftaka veður á ieiðinni og lá til drifs í 2 sólar- hringa. Fékk hann þá á sig brot- sjóa, sem löskuðu hann nokkuð, en armars vörðust skipverjar á- íöllum eftir mætti með því að hella út steinolíu. Voru þeir 3, allir íslenzkir. Skipstjóri var Jón Bjarnarson úr Reykjavík.en Gunn- ar Guðjónsson vélamaður og Jó- liann Pálsson stýrimaður, báðir úr Eyjum. Báturinn er smíðaður í Djúpvík í Svíþjóð og er eign kaupfélagsins Fram og er annar báturinn sem félagið fær á þessu ári. Gísli Johnsen hefir útvegað bátinn. Báturinn er með June Munktel vél. Skipverjar létu mjög vol bæði af bát og vél og þótti hvorttveggja hafa reynst vel i þess- ari för. — FÚ. Eldur kom upp i kembivélahúsi Kaupfélags þingeyinga sl. þriðju- dag. Húsið var mannlaust, en menn urðu fljótt varir við eldinn og er slökkviliðið kom á vettvang tókst því að slökkva eldinn. Skemmdir urðu ekki miklar. Mál- ið er í rannsókn. — FÚ. Ritstjóri danska dagblaðsins „Ar- bejderbladet" hefir verið úrskurð- aður í 5 daga varðhald og höfðað á hann sakamál fyrir ærumeið- andi ummæli um stjómina. FÚ. peir, sem enn hafa ekki borgað blaðið hér í bænum eða nágrenn- inu, fyrir sl. mánuð, eru vinsam- lega beðnir að greiða það sem allra fyrst, á afgreiðslunni. Að leita menn uppi með smáreikn- inga veldur oft óþægindum og leið indum. Leiðréttiug, í ávarpi frá Barna- verndarnefnd, sem birtist í blaðinu í gær, er misletrað: á skólum, á að vera í skólum. Fró Finnum. 80% íbúanna búa í sveitunum. Nokkuð af þessu tólki stundar skógarhögg og smá- iðnað, en 2/3 hlutar allrar þjóðar- innar stunda landbúnað, og þá oftast hvorttveggja, akuryrkju og kvikfjárrækt og hefir landbúnað- urinn telcið miklum framförum siðustu árin. Vekur það eftirtekt hvað smábýlunum fjölgar i Finn* landi. Stórbýlunum íækkar árlega, ýmist við arfskiftingu eða upp- kaup ríkis eða sveitarfélaga til nýbýlafjölgunar. Af 250 þúsund sveitajörðum höfðu 77% akra, sem voru í stærsta lagi 10 ha., en á helmingi þeirra voru akrarn- ir rninni en 3 ha. Aðeins 936 jarð ir höfðu akra yfir 100 ha. og er þó talið að stórjörðunum hafi fækkað síðan. Dönsku ríkisjárnbrautirnar eru nú að byrja að nota nýja raf- magnsvagna á ýmsum brautum sínum. þeir fóru fyrstu reynslu- ferð sína 12. þ. m. og fóru hrað- ast sem svarar 130 km. á kl.st. þeir þykja léttari og þægilegri en gufuvagnarnir og um miðjan maí ætla ríkisbrautirnar að setja í not- kun 10 slíka nýtízku vagna. - FÚ. Rússneska háflugið. Prófessor- inn, sem haft hefir til meðferðar rannsókn skilríkja þeirra og tækja, sem fundust úr rússneska háloftfarinu, hefir nú gefið út skýrslu um árangur athugana sinna. Hann segir, að í þessari háloftsferð hafi fengist ýmiskon- ar merkilegur og skemmtilegúr fróðleikur, sem enn megi byggja á, þó ýmislegt hafi laskast af rann- sóknartækjunum, þegar loftfarið fórst Úr skýrslu prófessorsins eru sérstaklega nefndar athuganir há- loftsfaranna á lit og litbrigðum loftsins eða himinsins, en liðurinn er mismunandi eftir því hver hæðin er. í 8500 m. hæð er loft- ið heiðblátt, í 11000 m. hæð er það dökkblátt, í 13000 m. hæð er það dökkfjólublátt, í 19000 m. hæð er það gráfjólublátt og í 22000 m. hæð er það orðið grásvart. - FÚ. 112. ársfundur Verzlunarráðsins í Manchester, var settur 12. þ. m. og var baðmullarverzlunin þar efst á dagskrá. Forseti verzlunar- ráðsins sagði, að ekki gæti verið um fulikomna viðreisn viðskipta- lífsins í Englandi að ræða, fyr en baðmullai'verzlunin væri komin í viðunanlegt horf. Hann sagði, að sannleikurinn væri sá, að Japön- um hefði fleygt fram með fram- leiðslu og verzlun á meðan aðrir hefðu staðið í stað, og gerði hann sér alls ekki vonir um, að Ind- landssamningarnir orkuðu eins miklu og almennt væri búizt við, um aukna verzlun fyrir brezka baðmullariðnaðinn. Hann taldi heppilegast, að leita að markaði fyrir brezka baðmullarframleiðslu innan samveldislandanna, í stað þess að reyna að keppa við Jap- ana á öðrum mörkuðum. — FÚ. Indlandsmálaráðherrann, Sir Samuel Hoare, skýrði frá því í brezka þinginu 12. þ. m. að 33/4 milljónir sterlingspunda myndi þurfa ti! viðreisnarstarfs á land- skjálftasvæðinu í Indlandi. Sam- kvæmt þeim skýrslum sem tek- ist hefir að ná, hafa 6582 menn farizt í jarðskjálftunum. — FÚ. Um íþróttir. Ódýru ® Framh. af 2. síðu. konur, unga og gamla, sem ganga með lotnar herðar og höfuðið niðri í bringu, er freistandi að álykta, að svona sé fólkið skapað, og svona verði það að vera. En auðvitað er slíkt fjarstæða. Úr því að maðurinn eitt sinn hætti sér út á þá braut að ganga upp- réttur, verður hann að gera það og gera það vel. Það verður að kveða menn úr kútnum. Þeirri kynslóð, sem nú er að vaxa, á að takast það. e,uglýsingarnar. Kaup og sala Valdar Þrándheimskartöflur á kr. 7.50 pokinn. Kaupfélag Reykjavíkur Sími 1245. , A thugið: Frímerkjaverzlunin Lækjar- götu 2 kaupir notuð íslenzk frímerki háu verði. Fallega túlipana selur Kaupfélag Reykjavíkur. Útungunarvél fæst með tæki- færisverði. Sími 4326. Skólaför. Hinu 8. þ. m. fóru nemendur 3. bekkjar Kennaraskólans kynnisför til barna- og ung- lingaskólanna að Brúarlandi og Klébergi á Kjalarnesi. Þann 8. þ. m. brugðu nem- endur þriðja bekkjar Kennara- skólans sér upp á Kjalames. Var ætlunin að heimsækja heimavistarskólana á Klébergi og Brúarlandi. Lagt var af stað laust eftir hádegi og voru um 30 nemendur í förinni og einn kennari. Komið var við á Brúarlandi í uppeftirleið, sýndi skólastjóri Lárus Halldórsson skólann, «>r starfar í tveim deildum. Var síðan haldið að Klébergi og staðið þar við nokkurn tíma, skólahúsið skoðað hátt og lág-t og þegnar hinar prýðilegustu veitingar hjá skólastjóra, Sig- urði Helgasyni og konu hans, sem ekki vildu taka eyrisvirði upp í fyrirhöfn og kostnað við móttökur þessa stóra, ókunna hóps. Sérstaka athygli vakti það, að skólinn skyldi lýstur með olíu, enda þótt rafmagnsstöð standi örskammt frá skólahús- inu og þaðan sé kostur ljósa. Hallgr. Jónasson kennari, sem var með í förinni, hefir beðið Nýja dagblaðið — fyrir hönd kennaraefnanna og sjálfs sín — að flytja þeim hjónum á Klébergi alúðarfyllstu þakkir fyrir ágætar móttökur og gest- risni; sömuleiðis skólastj. á Brúarlandi fyrir viðtökurnar þar. Til Reykjavíkur var komið aftur kl. 7 að kveldi. Öfug áhrif. Fyrir nokkru ætlaði Hitler að halda ræðu í Berlín. Hann ók til fundarstaðarins í leigubíl og þekkti bílstjórinn hann ekki. þegar þangað kom bað hann bílstjórann að bíða eftir sér og keyra sig heim, þegar hann hefði aflokið erindinu. þessu neit- aði bilstjórinn ákveðið og sagðist endilega verða að fara heim, til að hlusta á ræðu Hitlers í útvarp- ið. Yfir þessu var Hitler svo á- nægður, að liann gaf bílstjóranum 10 mörk. En hann misskildi gjöf- ina og sagði: Eg gef ekki baun fyrir þennan heimskingja, hann Hitler, Ég skal bíða. Hús og aðrar fasteignir til sölu. Hús tekin í umboðssölu. Skrifstofan 1 Aðalstræti 9 B opin kl. 11—12 og 5—7. Sími 4180 og 3518 (heima). Helgi Sveinsson. Ódýr saumalaun út þennan mánuð. Tek efni og útvega efni með heildsöluverði. Einnig viðgerðir og pressanir. Guðm. Sigurðsson klæðskeri, Vestur- götu 3. Sími 3377. Húsnæði Ég undirritaður get haft í- búð til leigu í vor, gegn því að leigutaki geti lagt dálítið fé fyrir sig fram til innréttingar og einnig gæti vinna komið til greina frá leigutaka. Húsið er á mjög sólríkum stað (stutt í sjóinn til að fá sér bað í sól og sjá að sumrinu) og einnig við aðalgötuna. Talið við mig sem fyrst. Sigmundur Guðnason Reykjavíkurveg 4, Skerjafirði (Beint á móti Elis Jónssyni, kaupmanni), Stofa með litlu eldunarplássi, hejzt í nýju húsi, óskast fyrir 1. marz. Tilboð, merkt „Tvennt í heimili“, leggist inn á afgr. blaðsins. 2 stórar stofur 0g eldhús óskast til leigu frá 14. maí n. k. A. v. á eða sími 3277. Atvinna Á Grundarstíg 2 A eru saum- aðir grímubúningar og allskon- ar kvenfatnaður, einnig sniðið og mátað. Tek að mér vélritun og fjöl- ritun skjala, einnig allskonar lögfræðilega skjalagerð. Pétur Jakobsson Kárastíg 12. Stúlka óskast hálfan daginn með annari. Uppl. á Suðurgötu 22, uppi, kl. 1—2V2. Fyrsta flokks haröflskur er nýkominn í verzlun Kristinar J. Hagbarð Laugaveg 26. Kappflug á að fara fram að hausti (20. okt.) milli Englands og Ástr- alíu. Fyrstu þátttakendurnir gáfu sig fram í fyrradag, en fresturinn er ekki útrunninn fyr en í júní- lok. Búizt er við um 100 þátttak- endum frá ýmsum löndum. — FÚ. Islenzk málverk margskonar og rammar. Freyjugötn II.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.