Morgunblaðið - 16.05.2000, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Sameining Is-
landsbanka og
FBA samþykkt
Hluthafafundir Islandsbanka og FB A sam-
þykktu sameiningu bankanna í gær. Að
þeim loknum var fyrsti hluthafafundur hins
-----------------------------
sameinaða banka, Islandsbanka-FBA hf.
haldinn. Guðrún Hálfdánardóttir og
Steingerður Ólafsdóttir sátu fundina.
Morgunblaðið/Ásdís
Frá hiuthafafundi Íslandsbanka-FBA hf. í gær. Kristján Ragnarsson, formaður bankaráðs, Eyjdlfur Sveinsson
varaformaður, Bjarni Ármannsson og Valur Valsson, forstjórar sameinaðs banka.
Frá hluthafafundi Fjárfestingarbanka atvinnulífsins sem haldinn var í gær.
Hluti bankaráðsmanna íslandsbanka á hluthafafundi bankans í gær. Einar
Sveinsson, Guðmundur H. Garðarsson, Haraldur Sumarliðason, Helgi
Magnússon og Orri Vigfússon.
FYRIRLIGGJANDI samrunaáætl-
un og samþykktir fyrir hið nýja félag
Islandsbanka-FBA hf. voru sam-
þykktar á hluthafafundum beggja
banka í gær. Á hluthafafundi Fjár-
festingarbanka atvinnulífsins sem
haldinn var fyrir hluthafafund í ís-
landsbanka-FBA hf. var mætt fyrir
79,55% atkvæða, einn hluthafi, full-
trúi um 300 þúsund atkvæða af 6,3
milljörðum, greiddi atkvæði á móti
sameiningunni. Sameining íslands-
banka við Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins var samþykkt einróma á
hluthafafundi íslandsbanka en full-
trúar eiganda 67% atkvæða voru á
fundinum.
Eins og fram hefur komið verður
heildarhlutafé í nýjum banka 10 millj-
arðar króna, samkvæmt samruna-
áætlun. Hluthafar í Islandsbanka fá
51% í nýju félagi og hluthafar FBA
49%. Hluthafar í FBA fá hlutabréf að
nafnverði 4.900 milljónir króna fyrir
allt hlutafé sitt að nafnverði 6.371,5
milljónir og hluthafar í íslandsbanka
hf. fá hlutabréf að nafnverði 5.100
milljónir fyrir allt hlutafé sitt að nafn-
verði 3.851,5 milljónir.
Valur Valsson, annar forstjóra ís-
landsbanka-FBA hf., segir að það
gleðji sig óneitanlega að sameiningin
hafi notið jafn eindregins stuðnings
og raun bar vitni á hluthafafundum
bankanna og það sé mikill styrkur
fólginn í því fyrir stjómendur hins
sameinaða banka að finna það að
hluthafamir standi við bakið á þeim.
Þann 30. mars var tilkynnt til
Verðbréfaþings íslands að íslands-
banki og FBA ættu í óformlegum
sameiningarviðræðum. Að kvöldi
annars apríl náðu bankaráð bank-
anna samkomulagi um sameiningu
bankanna tveggja og 2. júní tekur
sameining bankanna formlega gildi.
Að sögn Vals verður ferlinu lokið
jafn hratt og það hófst og þann 2. júní
verði sameining orðin að veruleika og
allir starfsmenn komnir á sínar
starfsstöðvar. „Það verður býsna
þröngt setinn bekkurinn víða á
Kirkjusandi en starfsmenn bankanna
hafa almennt tekið þessum tilfærsl-
um mjög vel. Þetta þýðir hins vegar
að ekki verður auðvelt að fjölga
starfsmönnum bankans á næstunni
en það þyrfti frekar að fjölga starfs-
fólki en fækka við sameininguna.
Eins verður engin breyting á úti-
búaneti bankans," segir Valur.
Aðspurður segir Valur að augljóst
sé að það hafi haft áhrif á fundarsókn
að kjósa þurfti til bankaráðs þar sem
átta framboð hefðu borist í sjö manna
bankaráð Islandsbanka-FBA en það
hafi ekki breytt afstöðu hluthafa til
sameiningarinnar.
Stór áfangi í íslenskri
fjármálasógu
Bjami Armannsson, annar for-
stjóra Íslandsbanka-FBA hf., segist í
samtali við Morgunblaðið fyrst og
fremst ánægður með hversu margir
hluthafar sóttu fundi félaganna og
samþykktu samrunann. „Samþykkt
samrunans er afskaplega stór áfangi í
íslenskri fjármálasögu og ég held að
þetta sé heillaspor fyrir hluthafa
bankanna beggja, starfsfólk og við-
skiptavini.“
Hann segist sannfærður um að
sátt ríki um nýja stjóm Islands-
banka-FB A hf. og þakkar bankaráðs-
mönnum stórhug og mikla vinnu við
samrunann. Stefnt er að því að
stærstur hluti starfsemi FBÁ verði
fluttur í næstu viku og flutningum
verði að fullu lokið í byrjun júní.
Aðspurður segir Bjami að EVA-
greiningin, sem m.a. tengir laun
starfsmanna við afkomu fyrirtækis-
ins, og notuð hefur verið hjá FBA
leggist sjálfkrafa niður þar sem fé-
lagið hefur verið lagt niður. Ekki sé
Ijóst hvort sama kerfi verði notað hjá
sameinuðum banka, en einhvers kon-
ar afkomutengt launakerfi verði tekið
upp innan skamms. „í samþykktum
nýs félags er gert ráð fyrir heimild
bankaráðs til að auka hlutafé um allt
að 200 milljónum króna í þeim til-
gangi að gefa starfsmönnum félags-
ins kost á að kaupa hluti í félaginu.
Þar er verið að undirbúa jarðveginn
fyrir árangurstengt launakerfi en
það er nýkjörins bankaráðs að fjalla
um með hvaða hætti það verður. Það
er áfram stefna bankans að hagur
hluthafa og starfsmanna fari saman,“
segir Bjami. í samþykktum samein-
aðs banka er gert ráð fyrir að hlut-
hafar afsali sér forkaupsrétti sínum á
þeirri hækkun hlutafjár.
FBA hefur skilað 15 milljörðum
i rikiskassann
Aðspurður segir Bjami það sitt
mat að hluthafar séu að fá mun meira
en þeir missi við samranann. „Fram-
tíð FBA sem sérstaks fyrirtækis
hefði getað orðið góð en það er mat
okkar að hún verði betri í sameinuðu
félagi vegna þess að við höfum ýmis-
legt fram að faera sem við getum nýtt
okkur betur í íslandsbankaumhverf-
inu. Við fáum jafnframt ýmislegt sem
tæki okkur langan tíma að byggja
upp og væri óvissa um árangur.“
Fram kom í máli Magnúsar Gunn-
arssonar, fráfarandi stjómarfor-
manns FBA, á hluthafafundi FBA, að
mat á skiptihlutfalli hlutabréfanna
hafi m.a. verið ákvarðað með hliðsjón
af markaðsverðinu en einnig hafi tillit
verið tekið til fjárhagslegrar stöðu,
afkomu, markaðsstöðu og framtíðar-
horfa. Samranaáætlunin er gerð með
fyrirvara um samþykki viðskiptaráð-
herra en í lögum um viðskiptabanka
er áskilið að ráðherra samþykki sam-
rana banka, eins og fram kom í máli
Magnúsar.
Gengi hlutabréfa íslandsbanka
stóð í stað í viðskiptum á Verðbréfa-
þingi íslands í gær en gengi bréfa
FBA hækkaði um 1,2% í 12,8 millj-
óna króna viðskiptum. Gengi FBA
var við lok dagsins 4,35 en Islands-
banka 7,35 eftir 4,5 milljóna króna
ríðskipti.
I ræðu sinni sagði Magnús m.a. að
með lokum einkavæðingar FBA hefði
ríkið náð fram öllum þeim markmið-
um sem sett vora fram við stofnun
bankans. ,Á- þeim tíma sem bankinn
hefur starfað hefur hann óumdeilan-
lega sannað tilverurétt sinn og til-
koma hans inn á íslenskan fjármála-
markað hefur hleypt nýju blóði í
íslenska fjármálamarkaðinn og orðið
til þess að auka samkeppni, lækka
verð og flýta fyrir og auka hagræð-
ingu í atvinnurekstri í landinu. Á
sama tíma hefur sala bankans og arð-
ur skilað tæplega 15 milljörðum
króna í ríkiskassann, sem jafngildir
nær öllum tekjuskatti félaga á Islandi
yfir tveggja ára tímabil."
Magnús sagðist oft hafa verið
spurður að því eftir að fréttir af sam-
einingarviðræðum bárast, hvað varð
til þess að viðræður á milli bankanna
hófust. „í stuttu máli má segja að
stjóm og stjómendur bankans hafi
lengi gert sér grein fyrir því að til
þess að halda samkeppnisstöðu sinni
á innlendum og erlendum mörkuðum
þá þyrfti bankinn að stækka. Um-
ræðan um bankasameiningar á inn-
lendum markaði undirstrikaði að
framundan væri harðnandi sam-
keppni. Þegar tækifæri skapaðist til
viðræðna við íslandsbanka var það
nýtt. Það var æðstu stjómendum fé-
laganna Ijóst að starfsemi bankanna
passaði vel saman.“ Ennfremur sagði
Magnús: „Bæði fyrirtækin era einka-
íyrirtæki, hægt er að ná ákveðinni
kostnaðarhagræðingu með spamaði í
fjárfestingum, menning fyrirtækj-
anna er ekki ólík, með sameiningunni
er náð fram mikilli stærðarhag-
kvæmni sem m.a. mun nýtast í fjár-
mögnun bankans og síðast en ekki
síst yrði sameinaður banki ótvírætt
leiðandi afl á íslenskum fjái-mála-
markaði."
Magnús gerði grein fyrir stærð
sameinaðs banka sem er stærsta fé-
lag skráð á Verðbréfaþingi íslands,
að markaðsvirði tæpir 56 milljarðar
króna. „Eigið fé vcrður yfir 18 millj-
arðar króna og eiginfjárhlutfallið
verður í heild 11,2%, sem er mjög
sterkt. Heildareignir era um 226
milljarðar og fjármunir í vörslu um
93 milljarðar. Bankinn verðui- lang-
stærsti lánveitandinn til íslensks at-
vinnulífs og næststærstur í lánum til
einstaklinga. Hann verður leiðandi á
fjármagnsmarkaðinum og mun
gegna lykilhlutverki á verðbréfa- og
gjaldeyrismarkaði. Markaðshlut-
deild bankans verður á bilinu 20-45%.
Hann verður nær alls staðar leiðandi
en hvergi yfirgnæfandi."
Stærri fyrirtæki kalla
á stærri banka
Kristján Ragnarsson, stjómarfor-
maður íslandsbanka sagði í erindi
sínu á hluthafafundi bankans í gær að
mörg rök hnigju að því að fækka
bönkum á Islandi og þar með stækka
þá. „Breytt sparnaðarmynstur al-
mennings kallar á heOdarþjónustu
með breytt þjónustuval. Fyrirtæki
era að stækka og það kallar á stærri
banka til að geta veitt þeim sam-
keppnishæfa fjármálaþjónustu. Sam-
keppni fer harðnandi í alþjóðlegu um-
hverfi og sívaxandi þörf er fyrir
fjárfestingar í upplýsingatækni. Allt
þetta kallai- á að íslenskir bankar,
sem era mjög smáir í alþjóðlegu sam-
hengi, snúi bökum saman.“
Að sögn Kristjáns hefur hann
ítrekað lýst þeirri skoðun bankaráðs
á aðalfundum Islandsbanka að þörf
væri á uppstokkun í íslenska banka-
kerfinu og að íslandsbanki væri
reiðubúinn til að taka þátt í henni.
„Við höfum bent á ýmsa aðra kosti en
þó fyrst og fremst sameiningu við
aðra viðskiptabanka. Reynsla okkar
við sameiningu fjögurra banka í einn
með stofnun Islandsbanka sýndi að
hægt er með sameiningu viðskipta-
banka að ná veralegri hagræðingu í
rekstri, fyrst og fremst í útibúanet-
inu. Við höfum oft rætt þessi mál við
stjómvöld, enda ríkið langstærsti
hluthafinn í Landsbanka og Búnaðar-
banka. Þótt margir ráðherrar hefðu
skilning á málinu var þó orðið Ijóst á
fyrstu mánuðum þessa árs að áhugi
stjómvalda fyrir sameiningu við-
skiptabanka var ekki mikill og málið
gæti dregist um ófyrirsjáanlegan
tína. í þessari stöðu var því ástæða til
að horfa til annarra kosta.“
Kostir sameiningar íslandsbanka
og FBA era aðallega tveir að sögn
Kristjáns. í fyrsta lagi skapi hún ný
tækifæri til tekjuöflunar vegna þess
að stærri eining er betur hæf til að
þjóna síbreytilegum þörfum við-
skiptavina sinna. Með stærri einingu
opnast einnig ný viðskiptatækifæri,
ekki síst erlendis.
í öðra lagi geti sameiningin leitt til
lægri kostnaðar. Margvíslegur tví-
verknaður sparast og fjárfestinga-
sparnaður er umtalsverður.
Íslandsbanka-FBA hafa verið sett
fjármálaleg markmið. Að sögn Krist-
jáns er stefnt að því að arðsemi verði
sambærileg við vexti óverðtryggðra
ríkisbréfa að viðbættum 5-8%, þ.e.
16-19%. Stefnt sé að því að arð-
greiðslur geti numið 25-50% af hagn-
aði. Áformað er að eiginfjárhlutfall
verði yfir 10% og þar af verði eigin-
fjárþáttur A yfir 8%. Kostnaðarhlut-
fall verði innan við 55% sem er að
sögn Kristjáns mjög gott í alþjóðleg-
um samanburði og að afskriftir út-
lána verði að jafnaði innan við 0,5% af
útlánum. Gert er ráð fyrir því að
tekjur og hagnaður geti vaxið um 7-
15% á ári.
Kynningarfundur um
rafrænar undirskríftir
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti
heldur kynningarfundum rafrænar undirskriftir
í Borgartúni 6, miðvikudaginn 17. maí kl. 15:00.
Dagskrá:
Inngangur: iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
Valgerður Sverrisdóttir;
Rafrænar undirskriftir: Gunnar Jónsson,
formaður nefndar um rafrænar undirskriftir;
Frumvarp um rafrænar undirskriftir:
Birgir Már Ragnarsson, lögfræðingur.
Umræður og fyrirspurnir.
Samantekt:
Þorgeir Örlygsson, ráðuneytisstjóri.
Fundurinn er öllum opinn.
Drög að frumvarpi um rafrænar undirskriftir er að finna á
vef ráðuneytanna: www.stjr.is/ivr undir „Nýtt efni“.
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti.