Elding


Elding - 01.01.1901, Page 1

Elding - 01.01.1901, Page 1
]: Blaðið kemur út á i| hverjum sunnud. Kost- : ar innanl. 3 kr. (75 au 11 ársfjóið.), erlend. 4kr., |: í AiLeríku 1V2 doll. ELDING Töntun á blaðinu er inranlands bundin við minst einn ársfj., er- lendis við árg. Porgun fyrirfram utan Rvík. 1901. BEYKJAVÍK, ÞRIÐJUDAGINN 1. JANÚAR. tbl. ,ELDING“. bVD er ekki laust við að menn séu farnir að hrista höfuðið yíir blaðamergðinni á íslandi. Þeim finst það að bera í bakkafullan lækinn að fara að stofna uýtt blað. Vér ráðumst þó óhræddir í það, því sannleikurinn er sá, að hvergi í heiminum er lestrarfýsnin jafn mikil og hér á íslandi. Þar á ofan eru blöðin hér svo ódýr, að það dregur menn litlu, þó þeir bæti við sig einu smáblaði. Það er ekki miklu til spilt, þó þeir reyni. Enginn veit að hverju barni gagn verður. — Vér viljum hér í stuttu máli skýra frá tilgangi þessa blaðs. §§§^>—Það mun kosta kapps um að verða frœðcindi og skemtandi. Stjórnmálaþref er útilokað frá dálkum þess. Það ætlar stærri blöð- unum að vera einum um hituna hvað það snertir. Aðaláherzlan verð- ur lögð á það, að flytja létt og læsilega skrifaðar greinar um almenn efni, en einkum og sér í lagi um bœjarmálefni. Fréttir mun það flytja frá yztu endimörkum þessarar* veraldar, en mestar og beztar úr höfuðstað vorum. Ofan á alt þetta flytur það öðru hvoru til smekk- bætis þýðingar á stuttum útlendum greinum og sniásögum. Svo er til ætlast að blaðið komi út reglulega á hverjum sunnudegi, svo menn geti notið þess í helgidagsrónni eftir hita og þunga virku daganna. §§§^>—Yerð blaðsins er 3 kr. árgangurinn, sem í Reykjavík borgist með 75 aurum á ársfj'orðungi. Út um land geta menn pantað blaðið hjá afgreiðslumanni þess, mbt því að senda borgun fyrir fram, eða hjá pbstafgreiðslumönnum. Pöntunin á að vera bundin við minst einn ársfj'orðung. Erlendis kostar blaðið 4 kr. árg., í Ameríku Pj2 doll., og er pöntunin bundin við árganginn og borgun fyrir fram. §§§§>—^ Viðvíkjandi afgreiðslu blaðsins og auglysingum eru menn beðnir að snúa sér til hr. cand. phil. Einars Gunnarssonar, Lauf- ásvegi nr. 6. fff^—y Ritstj. blaðsins geta- menn fyrst um sinn hitt aðmáli í húsi Haldbrs Þbrðarsonar, Laugavegi nr. 2, á miðvikud. og laugard. kl. 5—7 síðdegis. Aldamótaljóð. [Þessi prjú eftirfylgjandi erindi eru upphaf að hinum fögru Aldamótaljóðum Einars Benediktssonar, er Stúdentafé- lagið i Reykjavik sæmdi 100 kr. verð- launum]. Lag: Þið þcklúð fold með bliðri brá. Við aldahvarf nú heyrum vér sem hljóm af fornum sögum, og eins og svip vor andi sér af öllum landsins högum; af sókn þess fram með sverð og kross með siðmenning og lögum. Og hátt skín bjarminn yfir oss frá Islands frægðar dögum. Það ljós skín yfir aldahaf að yztum tímans degi, í gegnum bölsins blakka kaf, sem blys á niðjans vegi. Það verndi oss, það víki’ ei brott; í virðing lieims það standi, að fornöld ber þess fagran vott, hvað felst í þessu landi. Það veki lijá oss kraft, sem knýr til kapps, til alls þess stærra, til starfs, sem telur tími nýr, til takmarks æðra’ og hærra. Hver þekkir rétt, hvert þjóðin kemst, þó þúsund ár hún misti ? Oft seinastur varð settur fremst og síðastur hinn fyrsti. Aldamót. í dag rennur 11. öldin upp yfir þessa fámennu einstæðingsþjóð. 1 rúm 1000 ár hefur hún unað kjör- um sínum á þessu fjarlæga og fá- tæka landi. I 1000 ár hefur hún orð- ið að sæta hér bæði blíðu og stríðu, sorg og gleði. Hér hefur hún fram- leitt líf svo fjörugt, viðburðarikt og tilkomumikið, að furðu gegnir, og hér hefur hún aftur setið þögul og syrgj- andi yfir brostnum vonum. Hér hef- ur sólin varpað geislum sinum yfir hana, þar sem hún stóð í fegursta æskublóma, búin flestum þeim kost- um, sem þjóð mega prýða. Hér hef- ur sólin einnig hulið ásjónu sína í skýjum fyrir henni, þegar hún varð að sæta vansæmandi ánauðaroki og var að þrotum komin; og hér hefur hún brosað við henni á ný, þegar hana aftur tók að dreyma fagra drauma um frelsi og sjálfstæði. Þessi 1000 ár eru ekki nema lítill kafli í sögu mannkynsins, en fyrir oss eru þau alt, því þau fela í sér sögu vora eins og hún er. Og þegar vér renn- um huganum yfir þau, finst oss margs að minnast. Á fyrstu öld þjóðar vorrar, eða 10. öldinni, var lagður hinn fyrsti fasti grundvöllur undir þetta þjóð- félag með stofnun innlendrar stjórn- ar. Og þessi grundvöllur var sann- arlega aðdáanlegur. Hann var bæði traustur og gjörður af svo mikilli fyrirhyggju, að á honum mátti reisa hina fegurstu byggingu, hefði hon- um ekki verið raskað. Hyrningar- steinarnir, sem hið unga þjóðfélag bygði á, voru lögbundiö frelsi og

x

Elding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Elding
https://timarit.is/publication/231

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.