Nokkurar ritgjörðir um almenn málefni - 01.01.1879, Page 1

Nokkurar ritgjörðir um almenn málefni - 01.01.1879, Page 1
N0KKUR.4K RITGJÖRÐIR um almenn málefni. Útgefandi: Yaldimar Ásmundarson o. fl. (£/g= pessar ritgjörðir munu koma út smá- saman, með litlu millibili. Hálf örk kostar 10 aura, en lieil örk 20 aura. Alþýðumenntun. Hverjum þeim íslendingi, sem vaknaður er til meðvitundar um frelsi vort og þjöðerni, sem þekkir liagi landsins að fornu og nýju, og hefir nokkurveginn ljósa hugmynd um vegogviðgang annara þjóða, hlýtur að renna til rifja, hversu mjög vjer íslendingar stöndum nú á baki ná- grannaþjóða vorra, þar sem vjer fyrir 600 árum i mörgum greinum stóðum þeim feti framar. Nú er þó sá tími kominn, að vjer getum sjálfir ráðið lögum vorum og lofum, sem sjálfstætt þjóðfjelag, og megum vjer því ekki sitja að- gjörðalausir. Vjer þurfum að rísa upp úr margra alda kör og vesaldómi, með brennandi löngun og áhuga, til nýrrar menningar og fram- kvæmda. þ>á munum vjer úr býtum bera fagra ávexti frjálsrar stjórnar ; ella kemur hefndin yfir höfuð vor og niðja vora í þriðja og fjórða lið. En hvað þurfum vjer fyrst að gjöra? Öll- um vitrum mönnum ber saman um það, að almenn menntun sje grundvöflur allra framfara og farsældar. þ>að er því fyrsta skilyrði fyrir framförum landsins, að alþýða fái nauðsynlega menntun. En menntunin getur eigi orðið al- menn eða í góðu lagi, nema skólar sjeu settir á stofn. Nú er margt því til fyrirstöðu, að vjer getum fyrst um sinn komið upp stórum alþýðu- skólum, í líking við útlenda gagnfræðisskóla; veldur því fátækt vor, strjálbyggð landsins og samtakaleysi, er sífellt hindrar hin stærri fyrir- tæki vor. Vjer verðum því í bráð að láta oss lynda, að vjer fáum einn slíkan skóla á Norð- urlandi, hinn fyrirhugaða gagnfræðisskóla á Möðruvöllum í Hörgárdal, sem að vísu verður einkum búnaðarskóli.' þ>ótt sá skóli horfi til mikillar nytsemi, getur eigi öll alþýða sótt þann eina skóla, eða aðra slíka, þótt fleiri væru. En til þess, að útbreiða jafna menntun meðal allr- ar alþýðu, sjáum vjer eitt ráð vænst, sem heita má að sje hægðarleikur, og það er að stofna barnaskóla í svéitum. Állar menntaðar þjóðir keppast í óða önn við, að láta kenna börnum sínum nytsamleg fræði; barnaskólar og sunnudagaskólar fjölga svo árlega, að undrum gegnir. Hefir almenn- ingur víða í öðrum löndum tekið ótrúlegum framförum í almennri menntun hin síðari ár, og er það óefað að miklu leyti barnaskólunum að þakka. En af alþýðlegri menntun spretta allar aðrar framfarir. Vilji menn nú grennsl- ast eptir, hver sje mest framfaraþjóð nú á dög- um, þá munu Bandamenn í Norður-Ameríku standa einna fremstir: þeir hafa farið hamförum á seinni árum, fundið ýmsa nytsömustu hluti, og auðgazt svo að fádæmum sætir. En hvergi í heirni er jafnvel sjeð um menntun barna sem í Bandaríkjunum; þar gengur nálega fjórða hvert barn í skóla, og ávextirnir leyna sjer ekki. Vjer höfum hugsað oss, að barnaskólum mætti koma á með hægu móti víða í sveitum hjer á landi. Fáeinir barnaskólar eru þegar uppkomnir í kaupstöðum og þjettbýlum sjávar- sveitum. þ>ar er og langt um hægast að stofna slíka skóla fyrir margra hluta sakir; einkum er það bót í máli, ef börnin geta gengið í skólann daglega að heiman og heim, svo að foreldrar eigi þurfi að leysa út fæði þeirra í peningum. Barnaskóla má koma á fót með ýmsu móti, en. aðferð sú, er vjer hjer viljum benda á, virðist; oss liggja næst. Einhver góður bóndi, er finn- ur hjá sjer hvöt til að stofna barnaskóla á heimili sínu, gjörist frumkvöðull fyrirtækisins.

x

Nokkurar ritgjörðir um almenn málefni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nokkurar ritgjörðir um almenn málefni
https://timarit.is/publication/114

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.