Baldur 25 ára - 01.04.1941, Page 1

Baldur 25 ára - 01.04.1941, Page 1
1. apríl 1916 Útgefandi: Verkalýðsfélagið Baldur, ísafirði. ara 1. apríl 1941 Helgi Hannesson: Verkalýðsfélagið Baldur tuttugu og fimm Stofnun Baldurs og fyrstu ár. Áriö 191(),laugardaginn l.apríl kl. 8 síðdegis, komu nokkrir ísfirzkir verkamenn saman á i'und, til [)ess að ræða um stofnun verkamannafélags á Isa- íirði. Þegar verkamenn hefja »brölt« þetta, liafði heimsstyrjöldin fyrri staðið í hart nær tvö ár. Yerð lífsnauðsynja var stigið upp úr öllu valdi. Vöruverð var þá ekki ólíkt því, sem það er nú, en þrátt fyrir það hafði kaupgjaldið haldizt óbreytt, eins og það var fyrir stríð. Karlar höfðu 3 kr. um daginn, konur kr. 1,50, en unglingar þaðan af minna. Vinnutíminn var frá kl. 6 að morgni til kl. 8 að kvöldi, en ofl mikið lengri, ef þannig stóð á, þ. e. a. s., ef atvinnurekand- anum kom það betur, var ofl unnið óslilið, þar lil ákveðnu verki var lokið, t. d. útskipun íiskjar, uppskipun á kolum og salti, en lítill munur var þó gerður á kaupgreiðslu, eftir því, hvort vinnan fór l'ram að nóltu til, á helgum degi eða rúmhelgum. Við l'ermingu og al'fermingu skipa stóð vinnan jafnvel 30—- 40 slundir samlleytt, og voru þó ekki geíin hlé lil máltíða né kaftidrykkju. Verkalólkinu var færður matur og drykkur á vinnustaðinn, og þar sem það var statl viö vinnu sína, hvorl heldur það var um horð í skip- umim, í llæðarmálinu, í sall- eða kolastíunni eða þá í íisk- lnisunum, varð það að liáma í sig mat sinn og drykk. Enga hvíld var að fá, fyrr en verk- inu var lokið. I»á var [>aö og algengt, að verkakonurnar unnu karl- mannsverk. Þær háru kúffullar íiskhörur á reitunum móti karlmönnum, þær báru margar hverjar skip- pundsbörur — 320 punda þunga — þegar fiskinum var afskipað. Þær háru salt- og kola-poka á hakinu eftir mjóum húkkum og hálu fjörugrjótinu, þær stóðu við mokstur á kolum og salli. Erostkalda vormorgnana urðu þær að hefja fiskþvottinn með því að hrjóta íshúð klakavatns- ins, sem þær þvoðu liskinn upp úr, því að þá þekktist ekki annað cn að fiskþvott- urinn færi fram undir beru lofti, og það ekki ósjaldan á stöðum, sem mjög voru áveðra. Þetta er sú aðbúð og þau kjör, sem verkalýðurinn átti við að búa, áður en félagssamtaka hans naut við. Þetta þótti svo eðlilegur og sjálfsagður hlutur á þeim »gömlu, góðu dögum«, að þeir fáu, er við það höfðu eitthvað að athuga, voru taldir óalandi og óferjandi. Þannig voru og kjör ísfirzkra verkamanna, er þeir, hinn fyrráminnsta laugar- dag, 1. apríl 1916, komu saman til fundar, til þess að ræða um hin bágu kjör og finna ráð til úrbóta. Fundarmenn verða sam- mála um það, að eina leiðin, et einhverju ætti að fá um þokað í betra horf, sé sú, að bindast fé- lagssamtökum, og verður mörg- um það á í ræðum sínum þetta kvöld að minna á orðin: »Sameinaðir stöndum vér, en sundraðir íöllum vér«. Ýmsir eru þó hikandi, vit- andi um andúð atvinnurek- endanna, sem hal’a, að þcim virðisl, öll ráð þeirra í hendi sér. Niöurslaða þcssa l'undarverður sú, að slolnað er Verkaniaiina- f'élag ísliröinga, en II. lebr. næsta ár er nal'ni félagsins breytt í Verkamannalélagið llaldur. Ástofnfundi l'éiagsins, 1. apríl 1916, eru þessir menn kosnir í stjórn þess: Formaður Sigurður Þorsteinsson, nuirari, varaformaður Kristján Dýr- Sigurður II. Þorsleinsson, múrari, fyrsti formaður Baldurs. ara. fjörð, ritari Gunnar Ilallgríms- son, féhirðir Magnús Jónsson. Eins og fyrr hefir verið getið, var lélagið stofnað á þeim tímum, er helfjötrar dýrtíðar síðasta heimsófriðar krepptu orðið all fast að fólki, enda miða fyrstu baráttumál félags- ins að því að gera allt, sem hægt er, til að draga úr dýr- tíðinni. Og byrjar félagið á því að koma á fót pöntunar- starfsemi innan sinna vébanda. Umræður á félagstundunum snúast að mestu leyti um bjarg- ræðis- og mannúðarmál. Menn ræða eldiviðarskortinn og kolaverðið. — Kolatonnið Ólafur Friðriksson, íyrsli og mesti baráttumaður verkalýðs- lireyíingarinnar á íslandi. fer upp í 300 krónur. — Fé- lagsincnn heljast Iianda um sameiginlegan móskurö inni í Firöi. Það er ræll um sjúkra- og slysalryggiugar, og þegar í upp- hafi er stol’naður sérslakur sjúkrasjóður innan l'élagsins. Fyrstu átökin. Fyrslu átökin milli Baldurs og atvinnurekenda eru um styttingu vinnudagsins, og verð- ur þess getið sérstaklega í ann- ari grein í blaðinu. Eins og áður hefir verið getið.var vinnu- dagurinn 12—14 stundir allt ef'tir eigin geðþótta atvinnu- rekenda, en félagið fær hann færðan niður í 10 stundir, eftir nokkra baráttu. Þólt undarlegt megi virðast, hefst félagið lítið handa í sjáll'- um kaupgjaldsmálunum. Fyrsti undirbúningur að hreyttu kanp- Jón Baldvinsson, hinn giftudrjúgi foringi islenzkra verkalýðssamtaka. gjaldi hefst á fundi félagsins 28. jan. 1917. Þá er lesið upp- kast að væntanlegum kaup- taxta, þar sem kveður svo á, að kaup karla skuli vera 45 aurar um klukkustund hverja. Fast mánaðarkaup kr. 150 yfir sumarmánuðina, en kr. 80 yfir vetrarmánuðina. Kauptaxlinn er ræddur af mörgum á fundinum, og um hann eru þó nokkuð skiplar skoðanir. Segir svo í fundar- gerð frá þessum fundi: »Urðu um þctta snarpar um- ræður, nærri úr hófi«. En þegar þess er gætt, að vöruverð er komið upp úr öllu valdi: melís t. d. á kr. 2,40 kg., hveili á kr. 1.50 kg., uiargarín á kr. 3,50 kg. og annað þar el'lir, virðisl ntesla lurðulegl,að meðal verkamannanna sjálfra skuli koma l'ram andniæli við kauphækkun þeirri, er laxlinn fól í sér, [>. e. að kaupið Itækki í 45 aura um klukku- stund. En greinilegt er, að and- mælendur taxtans óttast at- vinnusviplingu, el' farið sé að róta við þeirri hefðbuudnu venju, að atvinnurekandinn skuli einn öllu ráða í kaup- gjaldsináhinum. Sýnir það belur en nokkuð annað áhril'amagn alvinnurek- endanna yfir hugum verka- mannanna, og að þeir áttu verkal'ólkið mcð húð og ltári, áður en verkalýðssamtökin leystu það úr þeim tröllahönd- um. Á fundi 9. apríl sama ár er kauptaxtinn ræddur á ný. Þátl- taka í umræðunum cr mikil, en mörgum þykir tíminn ó- henlugur lil stórræða, og mál- inu því frestað. 22. sama mánaðar eru f'ram- haldsumræður um kauptaxt- ann. Þá cr, eins og fundarritari j LAMOSBÓSASAí-'N | I ..... ; j .Xi 150974___

x

Baldur 25 ára

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Baldur 25 ára
https://timarit.is/publication/1819

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.