Dagur - 02.02.1950, Blaðsíða 1

Dagur - 02.02.1950, Blaðsíða 1
Forustugreinin: Rastt um úrslit bæjar- stjórnarkosninganna. Fimnita síðan: Úr ræðu Jakobs Frí- mannssonar á félags- ráðsfund iKEA. XXXIII. árg. Akureyri, íimmtudaginn 2. febrúar 1950 9. tbl, Sósíalisku flokkarnir töpuðu 12-13% í löí kaupstöðum f kaupstöðunum 10, sem gengu til bæjarstjórnarkosn- ; inga 1946 voru greidd 37605 ; atkvæði þá, en 42403 nú. Aukning greiddra atkvæða er því um 14%. Alþýðuflokkur hlaut 8162 atkvæði þá en 8344 atkvæði nú. Framsóknar- flokkur hlaut 3009 atkvæði þá en 4412 nú. Sósíalistaflokkur hlaut 9847 atkvæði þá er 9956 ; nú. Sjálfstæðisflokkur hlaut 16163 atkvæði þá cn 19297 nú. Aukning á fylgi flokkanna er þessi: Alþýðufl. 2%, Sósíal- • istar 1%, Framsóknarflokkur 5 47%, Sjálfstæðisflokkur 19%. ! Þar sem aukning greiddra at- $ kvæða er 14%,er Ijóst, að Al- þýðuflokkur hefir raunveru- | lega tapað 12%, sósíalistar j \ 13%, Sjálfstæðisílokkur unnið .5% en Framsóknarflokkur 33% og er það mjög glæsileg útkoma fyrir flokkinn. Rússarnir íengu ekki að koma á jólahátíðina! Líknarfélag nokkurt í Bergen hélt sjómannasamkomu að venju um jólin og bauð til hennar sjó- mönnum úr landi og af skipum í höfninni. Komu um 900 manns. — Athygli vakti það, að>enginn af áhöfn rússnesks kaupfars í höfn- inni kom á hátíðina og töldu Bergenbúar að þeim hefði verið bannað að fara í land. Norðmeira hafá selt Iivallýsisframleiðslu sína fyrirfram Norsk blöð herma, að Norð- menn hafi nú selt mest alla hval- lýsisframleiðslu sína í ár fyr.ir- fram. Bretar eru stærsti kaup- andinn, hafa tryggt sér 50000 tomi fyrir 80 sterlingspund tonn- ið. Vestur-Þýzkalyand kaupjr 10000 tonn, og 7000 tonn-af hertri hvalfeiti. Fímm umsækjendur um bæjarstjórastöðuna í gær var útrunninn frestur- inn til þess að sækja um bæjar- stjórastöðuna hér og höfðu bor- izt fimm umsóknir. Þessir menn sækja, að því blaðið hefur frétt: Guðmundur Guðlaugsson, fram- kvæmdastjóri, Bergur Sigur- hjörnsáon, viðskiptafræðingur, Jón Þorsteinsson, lögfr., Stefán Ág. Kristjánsson, sjúkrasamlags- stjóri og Steinn Steinsen, bæjar- stjóri. Frá álfadansinum á Gleráreyrum Eins og áð'ur er frá skýrt, cfndi íþróttafélagið Þór til álfadans og brennu á Gleráreyrum fyrir skemmstu. Var þar fjölmenni saman komið og þótti þetta skemmtileg nýbreytni í bæjarlífinu. Edvard Sigurgeirsson tók þessar myndir við þctta tækifæri. Efri myndin: Álfakóngur og drottning hans aka inn á hátíðasvæðið. Neðri mynd: Álfasveitin gengur fylktu liði inn á völlinn. Kosniiigiii á Ákureyri: Fylgi sósíalísku flókkauea hefur víða hrakað síðait í bæjarstíóraar- gunum ICoamkúnistar topilðu einu sæti í bæjarstjórn - kjörsókn lökust Kér í kaupstöSunum' Þrátt fyrir ágætt veður og auðar götur varð kjörsdknin hér á Ak- ureyri í bæjarstjómarkosningunum sl .sunnudag mun lakari en í Alþingiskosningunum í haust, og varð lökust hér í kaupstöðunum, eða rösklega 80%. Mest kjörsákn var í ísafirði, eða 92%. í síðustu bæjarsíjómarkosningum var kjörsókn hér 82%. Á kjörskrá voru 4150, en 3331 kusu. Kjörfundi lauk seint og var talningu atkvæða ekki lokið fyrr en undir morgun. Tafðist kjör- fundur nokkra hríð meðan beðið var eftir utankjörstaðaratkv.æð- um úr e.s. Brúarfossi, sem lagðist hér að bryggju um miðnætti. Þegar talningu var lokið, kom í ljós að flokkarnir höfðu skipt fylginu þannig með sér: Alþýðuflokkurinn 548 atkvæði, 2 fulltrúar. (648 atkv. og 2 fulltr. 1946), Framsóknarflokkur 945 atkv., 3 fulltr. (774 atkv. 3 fulltr.). Sósialistafl. 728 atkv. 2 fulltr. (819 atkv. íL fulltr.). Sjálfstæðisfl. 1084 atkv., 4 full- tr. (808 atkv. 3 fulltr.). Hina nýju bæjarstjórn skipa því þessir menn: Af A-Iista Steindór Steindórsson og Bragi Sigurjónsson. Af B-lista Jakob (Framhald á 2. síðu). Á mánudagsmorgun síðastlið- inn voru úrslit kunn í bæjar- og sveitarstjórnarkosningum þeim, sem fram fóru um land allt á sunnudaginn. 1 kaupstöðunum 13 voru kjörnir 117 fulltrúar. Skipta flokkarnir þeim þannig með sér, að Alþýðuflokkur hlaut 31 full- trúa, Framsóknarflokkur 14, kommúuistar 24 og Sjálfstæðis- flokkur 42. Þar að auki eru svo fulltrúar flokkanna á sameigm- legum listum. Alls greiddu atkvæði 43180 kjósendur í kaupstöðunum. — Kjörsókn var víða góð, bezt í ísa- firði, 92%, en lökust hér á Akur- eyri, eða rösklega 80%. Er það orðin venja, að Akureyringar sæki lakast kosningar allra kaupstaðarbúa á landinu, og er það siður, sem ætti að leggja niður eins og áður hefur verið rætt um hér í blaðinu. Meginlínurnar. Meginlínur kosninganna í kaupstöðunum og hinum stærri kauptúnum eru þær, að borgara- flokkarnir hafa unnið verulega á síðan í síðustu bæjarstjórnar- kosningum, og sums staðar hafa þeir jafnvel unnið á síðan í al- þingiskosningunum í haust. Sós- íalistaflokkarnir eru víða á und- anhaldi, einkum þó liommúnist- ar. Má segja, að þessar kosningar hafi verið einn samfelldur ósig- ur fyrir kommúnistaflokkinn nema í Norðfirði. í Reykjavík, Vestmannaeyjum, Seyðisfirði hér á Akureyri og víðar töpuðu þeir verulegu fylgi og viða fækkaði fulltrúum þeirra. Framsóknar- flokkurinn hefur unnið verulega á í kaupstöðunum síðan í síðustu bæjarstjórnarkosningum, aukið fylgi verulega í Reykjavík, Vest- mannaeyjum, Akureyri, Sauðár- króki, Siglufirði og víðar. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur ' einnig unnið verulega á, hélt meirihluta sínum í Reykjavík, sem er veru legur sigur fyrir flokkinn, og hér á Akureyri bætti hann við sig fulltrúa og jók verulega at- kvæðatölu sína frá bæjarstjórn- arkosningunum 1946. — Urslit í einstökum kjördæmum urðu, sem hér segir (Akureyri talin annars staðar í blaðinu): Reykjavílt. Alþýðuflokkur 4047 atkv. 2 fulítr. (3952 atkv. 2 fulltr. 1946). Framsóknarflokkur 2374 atkv. 1 fulltr. (1615 atkv. 1 fulltr. 1946). Sósíalistaflokkur 7501 atkv. 4 fulítr. (6940 atkv. 4 fulltr. 1946). Sjálfstæðisflokkur 14367 atkv. 8 fulítr. (11833 atkv. 8 fuiítr. 1946). Miðað við aukningu atkvæða- magns síðan 1946 hafa Sjálfstæð- ismenn og Framsóknarmenn báðir unnið á, en sósíalísku flokkarnir ekki haldið í horfinu. Akranes. Alþýðufl. 405 atkv. 3 fulltr. (317 atky. 3 fulltr. 1946). Fi-amsóknarfl. 172 atkv, 1 full- tr. (97 atkv. 1 fulltr. 1946). Sósíalistafl. 181 atkv. 1 fulltr. (183 atkv. 1 fulltr. 1946). Sjálfstæðisfl. 460 atkv. 4 fulltr. (437 atkv. 4 fulltr. 1946). Hafnarfjörður. Alþýðufl. 1331 atkv. 5 fulltr. (1186 atkv. 5 fulltr. 1946). Sósíalistafl. 285 atkv. 1 fulltr. (278 atkv. 1 fulltr. 1946). Sjálfstæðisfl. 974 atkv. 3 fulltr. (773 atkv. 3 fulltr. 1946). Framsóknarflokkurinn bauð ekki fram í Hafnarfirði. ísaíjörður. Alþýðufl. 690 atkv. 4 fulltr. (666 atkv. 4 fulltr. 1946). Sósíalistafl. 147 atltv. 1 fulltr. (251 atkv. 1 fulltr. 1946). Sjálfstæðisfl. 585 atkv. 4 fulltr. (535 atkv. 4 fulltr. 1946). Framsóknarfl. bauð ekki fram á ísafirði. Neskaupstaður. Sósíalistafl. 415 atkv. 6 fulltr. (293 atkv. 5 fulltr. 1946). Sameiginlegur listi Alþýðufl., Framsóknarfl. og Sjálfstæðisfl. 243 atkv. 3 fulltr. (1946 AlþýðufL - (Framhald á 7. síðu). Géð aflasala „Svalbafe44 Togarinn Svalbakur seldi afla sinn, og' afla er hann tók úr Kald- bak, í Grimsby nú á dögunum. alls rösklega 3800 kit, fyrir 12,626 sterlingspund, og er það ágæt sala. Brezki markaðurinn virðist vera búinn að jafna sig eftir verðfallið í desember, „Svalbak- ur“ verður í Bretlandi fram í næstu viku vegna smávegis við- gerðar á skipinu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.