Lesbók Morgunblaðsins - 18.12.1999, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 18.12.1999, Blaðsíða 3
LESBðK MORCUNBLAÐSINS - MENNINC LISTIR 49. TÖLUBLAÐ- 74. ÁRGANGUR JÓLABLAÐ LESBÓKAR EFNI Náttúruperlan Skrúður og fuglalífið þar. Myndafrásögn eftir Snorra Snorrason. Hallgrímur Pétursson og heimsinyndin. Grein eftir Ingimar Erlend Sigurðsson. Gullna hliðið á fjölum Þjóðleikhússins á jól- uiium. Júnídagar í Jórvík. Grein: Kristfn Pálsdótt.ir. Teikningar: Ragnar Lár. Alkort. Jón Aðalsteinn Jónsson dustar rykið af spili sem var vinsælt, fyrr á öldinni. Kornbrúður. Smásaga eftir Þorvarð Helga- son. Elstu nafngreindu myndlistarmenn fslands. Grein eftir Þóru Kristjánsdóttur. Börnum líður hvergi betur en í kirkju. Viðtal Kristínar Einarsdóttur við Sigurbjörn Ein- arsson biskup. Húsin í Byggðasafninu í Skógum. Myndir og frásögn: Gísli Sigurðsson. Stefán Már Gunnlaugsson skrifar um séra Einar Sigurðsson í Heydölum. Guðfinna M. Hreiðarsdóttir sagnfræðingur skrifar um sérkennilegan Isfirðing, Sólon í Slunkaríki. Goðsöguljóð eftir Helga Ingólfsson. Skriðuklaustur - eitt þriggja höfuðbóla í Fljótsdal. Grein eftir Helga Hallgrfmsson. Verðlaunamyndagáta og verðlaunakross- gáta. Jólarabb: Hjörtur Magni Jóhannsson, Frí- kirkjuprestur. Ljóð eftir séra Einar í Eydölum, Nínu Björk Arnadóttur, Jóhann Hjálmarsson, Pétur Sig- urgeirsson, Elías Mar, Ágústínu Jónsdóttur og Þóru Björk Benediktsdóttur. EiNAR SIGURÐSSON KVÆÐIAF STALLINUM CHRISTI, SEM KALLAST VÖGGUKVÆÐI Emanúel heitir hann, herrann minn inn kæri. Með vísnasöng eg vögguna þína hræri. Nóttin varsú ágæt ein, í allri veröldu Ijósið skein, það er nú heimsins þrautar mein að þekkja hann ei sem hæri. Með vísnasöng eg vögguna þína hræri. í Betlehem varþað bai-nið fætt, sem bezt hefur andar sárin grætt, svo hafa englar um það rætt sem endwlausnarinn væri. Með vísnasöng eg vögguna þína hræri. Fjármenn hrepptu fögnuð þann, þeirfundu bæði guð ogmann, í lágan stall varlagður hann, þó lausnaiinn heimsins væii. Með vísnasöng eg vögguna þína hræri. Lofið og dýrð á himnum hátt honum með englum syngjum þrátt, friðurájörðu ogfengin sátt, fagni því menn sem bæri. Með vísnasöng eg vögguna þína hræri. Umbúð verður engin hér, önnur en sú þú færðir mér, hreina trúna að höfði þér fyrir hægan koddann færi. Með vísnasöng eg vögguna þína hræri.' [Brot] FORSÍÐUMYNDIN Nýja altaristaflan sem Kristín Gunnlaugsdóttir hefur mólað af Maríu með Jesúbarnið i islenskri vetrarnótt fyrir kirkjuna i Stykkishólmi. A bls. 37 gerir Kristín grein fyrir myndinni. Einar Sigurðsson, 1538-1626, fræddist 6 Hrauni í Aðaldal, en var prestur að Eydölum í Breiðdal fró 1590 og jafnan kenndur við þann stað. Nónar vísast til greinar í blaðinu um Einar í Eydölum. 2000 ARA VEGFERÐ RABB Kna fæðir barn. Það er hið mikla undur. Tilefni helg- ustu hátíðar kristninnar er ekki samþykkt einhvers merks kirkjuþings, vígsla kirkjubyggingar, bylting, undirskrift samninga eða hernaðarsigur. Tilefni helg- ustu hátíðar kristninnar er barnsburður ung- rar gyðingastúlku sem hét María. Atburður- inn átti sér stað og stund í Júdeu við botn Miðjarðarhafs fyrir 2000 árum. Aðstæður voru hrörlegar. Þegar að fæðingu kom var María þegar örmagna af þreytu eftir langt og strangt ferðalag. Barnið sem hún ól var rétt eins og hvert annað mannsbarn sem kemur úr móðurskauti, gersamlega ósjálfbjarga, skjálfandi af kulda, grátandi og umkomulítið. Það var síðan vafið reifum og lagt í jötu sem var í fjárhúsinu til að María gæti hvílt sig eft- ir erfiði næturinnar. Síðar var drengnum gefið nafnið Jesú eins og engillinn nefndi hann áður en hann var getinn í móðurlífi. María nærði drenginn með mjólk úr brjóst- um sínum, hlúði að honum í faðmi sínum, kenndi honum að segja fyrstu orðin. Og sag- an er ekki öll sögð. í þessum holdlega en þó dýrðlega atburði sameinuðust himinn og jörð. Slíkur er leynd- ardómur þessa atburðar sem allir aðrir leyndardómar blikna í samanburði við. Snertipunkt himins og jarðar er ekki að finna á kyrrlátu heiðskíru vetrarkvöldi þar sem sjórinn virðist renna saman við himininn út við ysta sjóndeildarhring. Sameiningu him- ins og jarðar er að finna í fæðingunni í Betlehem forðum. Fjármenn hrepptu fógnuð þann, þeir fundu bæði Guð og mann. (Sb. Sálm. 72. Ein. Sig.) Nú birtist sá, er hjálp oss fann og frelsi vann. Mærin helga heimi fæddi Guð og mann. (Sb. Sálm. 79. Sbj. E.) Holdtekja Jesú Kiists heitir það á máli guðfræðinnar. Kenningin segir að í þessum atburði hafi Guð gerst maður. Sjálfur Guð, ómælisdjúpið, kærleikskrafturinn, tók á sig manns mynd. Himnafaðirinn sendi son sinn og setti hann undir þau mörk og mæri sem tími og rúm setja mannlegri tilveru til þess að við gætum öll orðið bræður hans og syst- ur: í dag er heimi frelsi fætt, er fær vor mein og harma bætt, það barnið þekkjum blessað vér, vor bróðir Jesús Kristur er. (Sb. Sálm. 85. Stef. Thor) Það að í Jesú Kristi sameinast bæði Guð og maður, himinn og jörð, er leyndardómur sem orð fá ekki lýst. Allt frá örófi alda hefur maðurinn skynjað að til er annað svið tilverunnar en það sem hann skynjar með skilningai-vitunum. Þetta annað svið er jafn raunverulegt fyrir þeim sem reynir, eins og allt annað sem er skynj- að. Þegar þetta svið upplýkst og opinberast vitundinni verður það jafnvel enn mikilvæg- ara en hversdagsskynjun okkar. Það verður hið eina sem skiptii’ máli. Allt annað hverfur í skugga þess. Hér erum við að tala um hinstu rök, merk- ingu lífsins og tilgang þess. „Jesús Kristur sannur Guð og sannur maður“ er nokkuð sem brýst út yfir ystu mörk þess sem við skynjum dags daglega. Það er það svið tilver- unnar sem liggur dýpra og er nær hjartarót- um veruleikans en nokkuð það sem við get- um skilgreint eða höndlað. Þegar lýsa á því sem orð fá ekki lýst er gripið til málfars mynda, líkinga og tóna. Samt sem áður grundvallast gyðing- kristin trúarhefð á opinberun Guðs í sögunni. Hann er Guð tímanlegrar opinberunar frek- ar en að hann sé Guð sérstakra helgra staða í umhverfi okkar, landsvæða eða þjóðríkja. Allt frá tímum spámanna Gamla testamentis- ins sem sögðu fyrir um fæðingu barnsins í Betlehem hefur Guð opinberastí sögunni. Spámennirnir kenndu að Guð væri í sögunni og að sagan yrði að lúta dómi réttlætisins sem mun birtast á efsta degi. Samkvæmt gyðing-kristnum skilningi hefur sagan ákveðinn tilgang og hún stefnir að ákveðnu markmiði, sem er kærleiksríki Guðs á jörðu. Guð birtist í sögunni. Fæðing Jesú Krists er miðlægur atburður í þeirri sögu. Jesús Krist- ur er mikla undrið í sögu mannanna því að í honum sameinast Guð og maður. Koma hans í heiminn er því leyndardómur. Fæðing hans af jarðneskri móður er leyndardómur sem við fáum ekki skilið, aðeins tjáð í lofsöng og tilbeiðslu. Fæðingarhátíð frelsarans er framundan. Há-tíð merkir að menn flytjast upp í aðra tíð en hversdags. Sá tími, tíð hátíðar, lýtur öðrum lögum en hversdagstíminn. Við lyftumst upp í æðri víddir, æðri veröld þar sem hversdagslegt orðfæri dugar ekki eða missir marks. Til að tjá hið ósegjanlega er leitað til myndmáls, tónlistar, líkinga og barnalegra mynda. Vitr- ingar frá Austurlöndum koma við sögu, sjá stjörnu á himni og færa barninu gjafir. Engl- ar fá mikilvægt hlutverk, flytja mikilvæg skilaboð og birtast fjárhirðum úti í haga: „Og í sömu svipan var með englinum fjöldi himn- eskra hersveita, sem lofuðu Guð og sögðu: Dýrð sé Guði í upphæðum, og friður á jörðu með mönnum, sem hann hefur velþóknun á.“ Ogjólin eru sungin inn. í jólasöng kemur andblær jólanna sterklega fram og lyftir hug og hjarta upp yfir stund og stað. Maður flyst upp í æðri veröld þar sem birta og fegurð lífs- ins, kærleikur Guðs og manna ríkir og gjafir og gnótt góðra fanga bera því glöggt vitni. Atburðir fyrstu jólanæturinnar gerðust í tíma og rúmi en tilheyra einnig veröld sem er ofar stað og stundu. Allir sem eitt sinn hafa fæðst inn í þennan heim eiga hlutdeild í þess- um atburði óháð tíma og rúmi. Hinn himn- eski Kristur, sem hefur verið kristnum mönnum lifandi reynsla og veruleiki í 2000 ár, er með okkur á vegferðinni. Hann mætir okkur einnig í helgihaldi kirkjunnar á hverj- um helgum degi. Sérhver guðsþjónusta er hátíð þar sem fortíð og nútíð sameinast og vísa til vonarríkrar framtíðar. Með þátttöku í helgihaldinu endurtökum við og endurupp- lifum leynardóma fortíðar. A 2000 ára vegferð hefur kirkjan sann- reynt orð Krists sem segir: „Hvar sem tveir eða þrír eni saman komnir í mínu nafni þar er ég mitt á rneðal." Þannig er leyndardómur trúarlífsins. Fortíð vísar fram á við, og verð- ur að síkvikri og lifandi nútíð sem gefur þrótt og djörfung til að takast á við það sem fram- undan er. Löngu liðinn atburður verður tímalaus, sprengir af sér fjötra tímans, hinn upprisni Kristur er bæði að verki hér og nú en er einnig væntanlegur, á jólum og í lok al- danna þegar hann kemur aftur í mætti og mikilli dýrð með miskunn og réttlæti hvort í sinni hendi. Að lokum, aftur til móðurímynd- arinnar í Biblíunni. Aðventan kallar okkur til að huga að hin- um efsta degi. Ritningarnar eru ríkar að hríf- andi myndmáli og þá ekki síst í því er varðar enda tímanna. í lokakafla spádómsbókar Jesaja er að finna vonar- og hughreystingar- orð. Þau eru í formi myndrænnar lýsingar þar sem fjallað er um hina nýju Jerúsalem á hinum efsta degi. Þai' er hinni nýju Jerúsa- lem líkt við konu sem hefur alið bam: „Gleðjist með Jerúsalem og fagnið yfir henni, allir þér sem elskið hana! Kætist með henni, allir þér sem nú hryggist yfir henni, svo að þér megið sjúga og saddir verða við hugsvalandi brjóst hennar, svo að þér megið teyga og gæða yður við dýrðargnótt hennar. Því að svo segir Drottinn: Sjá ég veiti vel- sæld til hennar eins og fljóti, og auðæfum þjóðanna eins og bakkafullum læk. Þér skul- uð liggja á brjóstum hennar og skuluð bornir verða á mjöðminni og yður skal hossað verða á hnjánum. Eins og móðir huggar son sinn, eins mun ég hugga yður. í Jerúsalem skuluð þér huggaðir verða. Þér munuð sjá það, og hjarta yðar mun fagna.“ (Jesaja 66:10-14.a.) HJÖRTUR MAGNIJÓHANNSSON prestur Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 18. DESEMBER 1999 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.