Lesbók Morgunblaðsins - 14.08.1999, Blaðsíða 9
'éð miklu um úrslit bardagans og gaf þeim hraða og hreyfanleika
irinn á her Haraldar Englandskonungs.
BROT úr myndaröð sem sýnir orrustuna við Hastings.
HARALDUR Guðinason sver Vilhjálmi hertoga af Normandí hollustueið. Saumað er í dúkinn á lat-
ínu: Ubi Harold sacramentum fecit Willelmo duci: Þar sór Haraldur Vilhjálmi drottinhollustu (í
lénsskipulagi). Hinn helgi eiður fer ekki á milli mála því Haraldur leggur báðar hendur á helga
gripi, líkamsleifar píslarvotta meðan Vilhjálmur horfir á með brugðnum brandi. Fjöldi vitna er að
eiðnum, eitt þeirra bendir meira að segja á Harald sem heldur er sviksamur og fúll á svip.
VILHJÁMUR siglir með her sinn yfir Ermarsund 27. september 1066 eftir að hafa beðið vikum
saman við Frakklandsstrendur (St. Valéry-sur-Somme) eftir hagstæðum byr. Vilhjámur sigldi
skipinu Móru sem var gjöf frá konu hans, hertogynjunni Matthildi. Ekki er vitað hve stór floti
Vilhjálms var, en skipin fluttu sex þúsund hermenn Normanna.
'gir sig í augnhæð eftir endilöngum salnum með
largesturinn gengur meðfram hinum langa refli.
refsað, það verður að byggja flota og sigla með
her manns til Englands. Tré eru felld, skip
smíðuð og eftir nokkurra mánaða bið eftir hag-
stæðum vindi, siglir her Vilhjálms af stað í
september á skipum sem einna helst minna á
langskip víkinga. Um borð er um 6 þúsund
manna her, vopn og hross sem síðar áttu eftir
að vera Vilhjálmi mikilvæg í orrustunni við
Hastings gegn fótgangandi stríðsmönnum Har-
aldar og ekki síst eftir á þegar hann lagði undir
sig England. Vilhjálmur nær landi í Suður-
Englandi, við bæinn Pavensey, skammt undan
Hastings. Haraldur konungur sem grunað hef-
ur innrás, er hins vegar búinn að gefa frá sér
slíka hugsun því kominn er vetur. Hann hefur
því tekið burt strandvarnir sínar enda næg
verkefni fyrir herinn við norðausturströndina
þar sem norrænir víkingar undir forystu
norska konungsins Haraldar harðráða hafa
gert innrás.
Barist upp á
lif og dauda
Eftir landgöngu Vilhjálms eru reiðmenn
hans sendir í ránsferðir um nálægðar byggðir
til að tryggja mat og vistir handa Normönn-
um. Vilhjálmur fyrirskipar byggingu virkis
(sem einnig reyndist mikilvæg til að tryggja
sigur á her Haraldar konungs) og undirbýr
lokauppgjörið við Harald. Fréttir berast af
sigri Haraldar á víkingunum; Haraldur harð-
ráði fallinn við Stamford Brigde og hermenn-
irnir reknir á haf út. Haraldur Englandskon-
ungur snýr nú her sínum gegn Vilhjálmi.
I morgunsárið býst Vilhjálmur til orrustu;
Odo biskup heldur messu og tekur sér lurk í
hönd, því sem vígður maður má hann ekki út-
hella blóði (en má hins vegar berja menn í
hel!). Bardaginn hefst; hermenn Vilhjálms
sækja fram. Þeir eru ekki bara Normannar
heldur einnig frá Bretagne, Maine, Poitou og
Boulogne-héruðum, ævintýramenn úr öllum
áttum, sumir alla leið frá Rínardal. Hermenn
Vilhjálms sitja flestir hesta, vopnaðir spjótum
og sverðum en hermenn Haraldar eru fót-
gangandi og margir þeirra bogamenn. Engil-
saxar eru oft áberandi verr vopnum og klæð-
um búnir en atvinnuher Normanna. Orrust-
unni er lýst í löngu og ítarlegu myndmáli þar
sem allir þrír fletir refiisins eru nýttir til hins
ýtrasta: Lifandi, brynklæddir hermenn berj-
ast upp á líf og dauða í trylltri örvahríð meðan
aðrir liggja látnir og særðir með sverð og örv-
ar í búkum, andliti og limum. Afhöggnir limir,
fætur og hendur, hross hrasa og falla, standa
jafnvel upp á endann, sverðum er veifað,
skjöldum beitt til varnar og barist á báða
bóga. Hið þétta og magnaða myndmál er svo
dramatískt og skýrt að engu er líkara en að
sýningargesturinn heyri vopnaskak og heróp,
frýs og hnegg hrossanna og dauðavein her-
mannanna.
Síðasti bútur refilsins er týndur
Bardaginn er tvísýnn, heiftarlegar árásir
Normanna valda mannfalli og usla hjá Eng-
ilsöxum en þeim er einnig hrundið og gagnsókn
hermanna Haraldar valda skaða og sundrungu
í her Vilhjálms. Odo biskup kemur mjög við
sögu í orrustunni; hvetur og kallar saman her
Normanna á ögurstundu, þegar Vilhjálmur er
talinn af. En lát Vilhjálms reynist sjónvilla; þrír
hestar hafa steypst undir honum og sjálfur er
hertoginn af Normandí móður en ósár. Hann
stendur fyrir framan menn sína og hvetur þá
að nýju til dáða. Lokabardaginn hefst, Harald-
ur konungur fellur, Engilsaxar flýja af hólmi og
Viihjámur og menn hans fagna sigri. Hertogi
Normanna er nú kallaður Vilhjálmur sigursæli
þótt viðurnefnið bastarður hafi alla tíð fylgt
honum einnig.
Hér lýkur sögu refilsins eftir 70 metra frá-
sögn. Teikningar frá 18. öld sýna, að refillinn i
hefur verið eitthvað lengri. í dag er lokastykkið
horfið en menn leiða að því líkum, að refíllinn ]
allur hefur sagt frá valdatöku Vilhjálms og
krýningu hans í Westminister Abbey í Londoa
á jóladag 1066.
Óvíst er hins vegar hvort refillinn hafi sagt
hina sönnu sögu af valdatöku Viihjálms, en
hann barði niður alla andspymu af blóðugri
L
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 14. ÁGÚST 1999