Lesbók Morgunblaðsins - 11.07.1998, Blaðsíða 2
ERLENDIR GESTIR
Á REYKHOLTSHÁTÍÐ
TÓNLISTARHÁTÍÐIN í Reykholti verður
sett 24. júlí og stendur yfír frá föstudags-
kvöldi til sunnudagskvölds. Alls verða fernir
tónleikar á Reykholtshátíð og hefjast þeir
fyrstu kl. 20.30 föstudagskvöldið 24. júlí með
frumflutningi verksins Vocalise eftir Hjálmar
H. Ragnarsson tónskáld, og á sömu tónleik-
um verða flutt verk eftir Jón Nordal og Carl
Nielsen. Laugardaginn 25. júlí hefjast aðrir
tónleikar kl. 13.30 með verkum eftir Lange-
Muller, P. Heise og ítölskum 19. aldar tón-
skáldum í flutningi sérstakra gesta Reyk-
holtshátíðar, Ninu Pavlovski sópran og
finnska píanóleikarans Risto Lauriala. Þriðju
tónleikarnir hefjast laugardagskvöldið 25.
júh' kl. 20. 30 þar sem flutt verða verk fyrir
píanótríó, selló og píanó og fiðlu og píanó.
Lokatónleikarnir verða síðan sunnudaginn
26. júlí kl. 17 en þá verða flutt
verk eftir Tchaikovsky,
Schumann, Sibelius, Grieg og
tónskáld frá Eystrasaltsríkjun-
um, Barkauskas og Madtoja.
Flytjendur eru Risto Lauriala pí-
anó, Bryndís Halla Gylfadóttir
selló, Martynas Svégzda fiðla,
Gréta Guðnadóttir fiðla, Auður
Hafsteinsdóttir fiðla, Steinunn
Birna Ragnarsdóttir píanó, Guð-
mundur Kristmundsson lágfiðla
Listræn stefna Reykholtshá-
tíðar lýtur að kynningu á tónlist-
arstarfi Eystrasaltslandanna og
jafnframt er stefnt að því að
frumflytja a.m.k. eitt islenskt
verk á hverri hátíð. Að auki er
sjónum sérstaklega beint að
einu Norðurlandanna og að
þessu sinni verður Danmörk í
aðalhlutverki. Fulltrúi Dan-
merkur er óperusöngkonan
Nina Pavlovski frá konunglegu
óperunni í Kaupmannahöfn og
einnig verða flutt verk m.a. eftir
dönsku tónskáldin Lange-Mull-
er og Carl Nielsen. A Reyk-
holtshátíð verður lögð áhersla á
að kynna framúrskarandi er-
lenda listamenn, ásamt þeim er-
lendu og segjast aðstandendur
hátíðarinnar munu leitast við að
flytja góða tónlist sem allir geta
notið í því sérstaka og sögulega
Nina Pavlovski, sópran. umhverfi sem Reykholt er.
Hrói höttur og félagar
Minnisvarði um
Eggert og Ingi-
björgu
Hellissandi. Morgunblaðið.
MINNISVARÐI um Eggert Ólafsson og
konu hans Ingibjörgu Guðmundsdóttur
verður afhjúpaður sunnudaginn 12. júlí kl. 14
á Ingjaldshóli. Það er Páll Guðmundsson
myndhstarmaður frá Húsafelli sem hefur
unnið listaverkið.
Athöfnin hefst með helgistund í Ingjalds-
hólskirkju kl. 14, þar sem héraðsprófastur,
sr. Ingiberg J. Hannesson, prédikar, sóknar-
prestur þjónar fyrir altari. Kirkjukór
Ingjaldshóiskirkju syngur við undirleik org-
anistans Kay Wiggs Lúðvíksson og Gunnars
Kvaran sellóleikara. Að lokinni helgistund-
inni verður listaverkið afhjúpað. Þar syngur
kirkjukórinn lagið Ingjaldshól og Island ögr-
um skorið. Þá mun Páll Guðmundsson lýsa
verki sínu með fáum orðum.
Að því loknu verður gengið til safnaðar-
heimilis kirkjunnar og þegnar kaffíveitingar.
Undir borðum munu þeir Thor Vilhjálmsson
rithöfundur og Richard Ringler prófessor
við háskólann í Wiseonsin-Madison í Banda-
ríkjunum flytja ræður um Eggert Ólafsson.
Þá munu þau Gunnar Kvaran sellóleikari og
Ástríður Sigurðardóttir píanóleikari leika á
milli atriða.
Það eru Lionsfélagar, karlar og konur,
ásamt stuðningi annarra félagasamtaka í
Ingjaldshólssókn og sóknarnefnd sem
standa að þessu framtaki og hátíð á Ingjalds-
hóli.
-----------------
Hálfur milljarður
fyrir bók
London. The Daily Telegraph.
AUÐKÝFINGURINN Sir Paul Getty hefur
fest kaup á dýrustu bók sem prentuð hefur
verið; íýrstu útgáfu Canterbury-sagnanna.
Bókin verður geymd á sveitasetri Gettys í
Buckingham-skíri og þar munu fræðimenn
hafa frjálsan aðgang að henni. Ekki hefur
enn verið ákveðið hvort hún verður sýnd al-
menningi.
Bókin var seld á uppboði hjá Christie’s í
Lundúnum fyrir 4,6 milljónir punda, sem
svarar til um hálfs milljarðs ísl. kr. og er
þetta hæsta verð sem fengist hefur fyrir
prentaða bók.
Hún er verk breska prentarans William
Caxton frá 1476 og er þetta síðasta eintakið
af sex sem boðið er til kaups á þessari öld.
Sir Paul kveðst lengi hafa haft augastað á
bókinni og vonast til þess að fjölskyldan sem
hana átti, myndi bjóða hana til kaups. Hann
hafi þó vart þorað að vona að honum yrði að
ósk sinni og myndi takast að tryggja að hún
yrði áfram í landinu. Getty er 65 ára, fæddur
í Bandaríkjunum og erfingi mikilla olíuauð-
æfa. Hann var sæmdur riddaranafnbót árið
1986 og fékk breskan ríkisborgararétt á síð-
asta ári.
HRÓI höttur og félagar voru á ferðinni í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í gær,
þegar frumsýnt var leikrit í þýðingu og
leikgerð Gísla Amar Garðarssonar Leik-
stjóri er Þór Tulinius leikarar: Agnar Jón
NÝÚTKOMIN barnabók í Bretlandi,
Harry Potter og herbergi leyndardómanna
eftir Joanne Rowling, trónir í efsta sæti
BookTrack metsölulistans. Bókin kom út
fyrir viku síðan og hefur þegar stungið aft-
ur fyrir sig nýjum bókum metsöluhöfunda á
borð við Jeffrey Archer, John Grisham,
Julie Birchall og Delia Smith. BookTrack
metsölulistinn byggist á sölutölum 2.200
bókabúða vítt og breitt í Bretaveldi.
Harry Potter og herbergi leyndar-
dómanna er önnur bókin um munaðarleys-
ingjann Harry Potter sem uppgötvar að
hann er göldróttur. Þegar eru í undirbún-
ingi fimm bækur til viðbótar og galdramað-
urinn ungi er óðum að verða átrúnaðargoð
yngstu kynslóðarinnar í Bretlandi. Útgef-
endur í Bandaríkjunum eru einnig komnir á
bragðið og sögusagnir eru á kreiki um að
kvikmyndaframleiðendur í Hollywood séu
famir að renna hýru auga til bókanna. Ekk-
ert fæst þó staðfest í þeim efnum ennþá.
Höfundurinn Joanne Rowling datt sann-
arlega í lukkupottinn þegar hún hóf að
semja sögurnar um Harry Potter. Aðstæð-
ur hennar voru ekki björgulegar, hún var
nýlega fráskilin, á atvinnuleysisbótum og
Egilsson, Gottskálk Dagur Sigurðarson,
Gunnar Gunnsteinsson, Gunnar Hansson,
Hrefna Hallgrímsdóttir, Linda Ásgeirs-
dóttir, Marta Nordal, Richard Kolnby og
Sverrir Þór Sveinsson.
segist hafa skrifað fyrstu bókina og hluta
þeirrar nýútkomnu á kaffihúsum í Edin-
borg með dóttur sína kornunga í vagni við
hlið sér, því of kalt og hráslagalegt hafi ver-
ið í leiguherberginu hennar. Þá kom galdra-
maðurinn Harry Potter til sögunnar og
breytti lífi mæðgnanna á skammri stundu.
Fyrir fyrstu bókina fékk höfundurinn eitt
hundrað þúsund sterlingspunda fyrirfram-
greiðslu og bókin seldist í 70 þúsund eintök-
um. Nýja bókin stefnir í að slá það met og
ekki verður séð fyrir endann á vinsældun-
um. Joanne Rowling sem starfaði áður við
kennslu, segist ekki hafa skrifað bækurnar
með börn í huga sérstaklega. „Ég skrifaði
bækurnar fyrir sjálfa mig, til að afla ein-
hverra peninga og til að hressa mig við eftir
erfiðan skilnað. Eg var mjög spennt að vita
hvaða aldurshópi útgefandinn teldi að bæk-
urnar hentuðu best.“ segir hún. Sagan segir
reyndar að margir fullorðnir kaupi bækurn-
ar handa sjálfum sér því þeir hafi ekki
minni ánægju af þeim en börnin. I fyrra
hlaut fyrsta bókin, Harry Potter og steinn
heimspekingsins, Smarties verðlaunin, sem
eru stærstu og þekktustu barnabókaverð-
laun sem veitt eru í Bretlandi.
BARNABÓK í EFSTA
SÆTI í BRETLANDI
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn - Sigtúni Yfírlitss. á verkum
Ásmundar Sveinssonar.
Gallerí Homið, Hafnarstræti Olöf Sigríður Da-
víðsdóttir og Páll Heimir Pálsson sýna til 12.
júlí.
Gallerí Stöðlakot Hjálmar Hafliðason sýnir til
tii 19. júlí.
Ingólfsstrætí 8, Ingólfsstrætí 8 Sigurður Guð-
mundsson sýnir til 26. júlí.
Kjarvalsstaðir Stiklað í straumnum. Urval
verka úr eigu Listasafns Reykjavíkur. Til 30.
ágúst.
Landsbókasafn íslands, Háskólabókasafn
Trú og tónlist í íslenskum handritum fyrri alda.
Til 31. ágúst.
Listasafn Einars Jónssonar, Skólavörðuholti
Opið laug. og sun. kl. 13.30-16. Höggmynda-
garðurinn er opinn alia daga.
Listagallerí Snn'ðar og skart Kristbjörg Guð-
mundsdóttir sýnir til 23. júlí.
Galleríkeðjan Sýnirými Sýningar í júlí: Hildur
Bjarnadóttir sýnir í Sýniboxi, Vatnsstíg 3.
Erna G. Sigurðardóttir sýnir í Gallerí Barmi,
berendur sýningarinnar eru; Ari Gísli Braga-
son og Siríður Hjaltested. Símsvaragalleríið
Hlust: RelaxFax, sími 5514348 og í sýningar-
rýminu 20fm er söngskemmtun á mið., fim.,
fös., laug. og sun.dögum kl. 15-18, að henni
standa Vasaleikhúsið og Þorvaldur Þorsteins-
son.
Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi 7 Kaffistofa:
Grafíkmyndir Jóns Engiiberts. Ut júlí.
Listasafn Sigurjóns Olafssonar Höggmyndir
eftir Sigurjón Olafsson í neðri sal, málverk eft-
ir Ninu Tryggvadóttur í efri sal.
Gallerí Fold, Kringlunni Þorgerður Sigurðar-
dóttir sýnir til 22. júlí.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg Ragna Sigrún-
ardóttir sýnir til 31. júlí.
Gallerí Listakot, Laugavegi 70 Auður Jóns-
dóttir sýnir til 26. júlí.
Norræna húsið „Þeima mál ei talar tunga“ ís-
landsdætur í myndlist til 16. ágúst og ljós-
myndasýning Petter Hegre í anddyrinu til 19.
júlí.
Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3b Roman Signer sýn-
ir í Bjarta og Svarta sai. Einnig sýna Ásmund-
ur Ásmundsson, Erlingur Þ.V. Klingenberg,
Magnús Sigurðsson og Bruce Conkle.
Perlan Vefmyndasýning Mariu Uhlig til 2.
ágúst.
Gallerí Geysir, Hinu Húsinu Hjörtur Matthías
Skúlason sýnir til 12. júlí.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsinu Konur,
úrval úr Errósafni Reykjavíkurborgar. Til 23.
ágúst.
Listasafn ASÍ Nanna Bisp Biichert sýnir í Ás-
mundarsal og Arinstofu. Guðný Halldórsdóttir
sýnir í Gryfjunni til 2. ágúst.
Mokkakaffi, Skólavörðustíg Jón Gunnar Árna-
son. Sumarsýning.
Hafnarborg, Hafnarfirði Sýn. „Hafnarfjarðar-
Mótíf' til 3. ágúst.
Safn Ásgríms Jónss., Bergstaðastræti 74
Sumarsýning áverkum Ásgríms.
Sjómiiyasafn íslands, Iiafnarfirði Sumarsýn-
ing á Ijósmyndum Helga Arasonar.
Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v.
Suðurgötu Handritasýningin Þorlákstfðir og
önnur Skálholtshandrit. Til 31. ágúst.
SPRON Mjódd Harpa Björnsdóttir sýnir til 24.
okt.
Listaskálinn, Ilveragerði Sumarsýn. fél. ís-
lensk grafík til 12. júlí.
Slunkaríki, fsafirði Karin Sander sýnir.
Hótel Edda, Laugarvatni Elín Rebekka
Tryggvadóttir sýnir til 20. ágúst.
Listasafn Árnesinga, Selfossi Yfirlitssýning á
verkum Magnúsar Tómassonai-.
Laugardagur Hádegistónleikar í Hallgríms-
kirkju: Norski organistinn Ivar Mæland kl. 12-
12.30. Tryggvi Hansen tónsmiður og trúbadúr
verður með tónleika í Norræna húsinu kl. 16.
Hjörleifur Valsson fiðluleikari og Havard Öier-
oset gítarleikari haida tónleika í samkomuhús-
inu á Breiðumýri kl. 15. Sumartónleikar á
Norðurlandi; Pétur Jónasson gítarleikari í
Reykjahlíðarkirkju. Sumartónleikar í Skál-
holtskirkju; Tónverk eftir Hafliða Hallgríms-
son kl. 15 og Sófíu Gubaidulinu kl. 17.
Sunnudagur Sumarkvöld við orgelið í Hall-
grímskirkju kl. 21.30: Ivar Mæland, norskur
organisti. Sumartónleikar á Norðurlandi;
Karsten Jensen orgelleikari í Akueyrarkirkju.
Sumartónleikar í Skálholtskirkju; Khali-kvar-
tettinn kl. 15.
Mánudagur Gítarleikarar frá Barcelona í
Stykkishólmskirkju kl. 21.
Þriðjudagur Þriðjudagstónleikai- Listasafns
Sigurjóns Ólafssonar; Jón Sigurðsson píanó-
leikari kl. 20.30. Tónleikaröð í Iðnó: „Frjálst er
í fjallasal", flytjendur; Pétur Grétarsson, Hilm-
ar Jensson, Tena Palmer og fleiri. Gítarleikar-
ar frá Barcelona í Reykholtskirkju kl. 20.30.
LEIKLIST
Borgarleikhúsið Grease, lau. 11. júlí, fim., fös.
lau.
fslenska óperan Carmen negra. Rokk-, salza-,
poppsöngleikur, lau. 11. júlí, fös., iau.
Kaffileikhúsið „Sígild popplög" Ingveldur Ýr
Jónsdóttir syngur perlur úr poppinu fím. 16.
júlí. „Megasukk í Kaffíleikhúsinu" Megas á
tónleikum með Súkkat fös. 17. júlí.
Iðnó Þjónn í súpunni lau. frums. fím. 16. júlf.
íslenska óperan Hellisbúinn lau. 11. júlí, fim.
Tjarnarbíó, leikhúsið Light Nights, leiknir
þættir úr íslendinga og þjóðsögum á ensku, lau.
11. júlí, fim., fös., lau. kl. 21.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR H.JÚLÍ1998