Lesbók Morgunblaðsins - 16.09.1995, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 16.09.1995, Blaðsíða 1
L A Ð S Stofnuö 1925 32. tbl. 16. september 1995 — 70. árg. Siðmenning þjóðar býr í máli hennar Tungumálið er félagslegt tjáningartæki, notað til að tjá hugsanir, tilfinningar, reynslu og þekk- ingu. Skáld, heimspekingar og málvísindamenn hafa lengi velt fyrir sér hvernig mannlegt mál þjónaði þessu meginhlutverki sínu. Þýski Lengi var einblínt á liðna tíð, eins og títt er um fátækar og umkomulitlar þjóðir. Ritað mál hefur verið í hávegum haft, en daglegt mál legið í láginni. Eftir TRYGGVA GÍSLASON stærðfræðingurinn Leibnitz (1646-1716) lét svo um mælt að málið væri spegill mann- sandans og lykill að allri þekkingu.1 Enska skáldið Sheíley (1792-1822) sagði málið hafa skapað hugsunina og væri það sú mælistika sem allur heimurinn er mældur á.2 Þýski stærðfræðingurinn Frege (1848- 1925) taldi það undrum sæta hve miklu málið fengi áorkað. í örfáum orðum væri unnt að gera grein fyrir hugsun sem verið væri að hugsa í fyrsta skipti.3 Haft er eftir franska stjórnmálamanninum de Talleyrand (1754-1838) að manninum hafi verið gefið málið til að leyna hugsun sinni.4 Danski heimspekingurinn Soren Kierkegaard (1813-1854) gengur enn lengra og segir að maðurinn hafi fengið málið til þess að geta leynt því að hann hugsaði ekki.5 í ljóði sínu Orðin sem ég aldrei finn segir Hannes Pétursson: Ég veit þau búa einhvers staðar öll en aldrei finn ég þeirra djúpa heili þó svo ég leiti fram í efstu elli um úfna vegi: tungunnar bröttu fjöll. Ég veit þau finnast aldrei. Engum mönnum þau orð ég flyt sem geymi huga minn: þágu frá aldinkjöti sætleik sinn og særðu herzlu og styrk úr úlfsins tönnum.6 Mál og mannleg hugsun eru því flókin fyrirbæri því að til hugsun án orða - og unnt er að tjá hug sinn, hugsun og hug- myndir, með öðru en orðum. Það sem aft- ur á móti unnt er að tjá með orðum er hægt að segja á skýran og skilmerkilegan hátt. Það sem ekki verður sagt með orðum er aftur á móti ógerningur um að tala. Um það verðum við að þegja, svo notuð séu orð austurríska heimspekingsins Wittgenstein (1889-1951).’ I eftirfarandi grein er ljallað um stöðu íslenskrar tungu á 50 ára afmæli lýðveldis- ins og reynt að svara þeirri spurningu hvernig þetta fornlega mál hefur gegnir hlutverki sínu sem félagslegt tjáningar- TÖLVUKYNSLÓÐIN talar stundum mál sem jafnvel aldamótakynslóðin ætti erfitt með að skilja. En þarna er einmitt dæmi um fijóa og góða orðmynd- un. Um leið og fólk tileinkar sér þessa nýju tækni, notar það íslensk, gagnsæ orð, sem hafa strax náð fullri fótfestu. tæki í fámennu samfélagi í sem um aldar- aðir einkenndist af stöðnun en hefur á nokkrum mannsöldrum tekið algerum breytingum á mótum nýrrar aldar. SÉRSTAÐA ÍSLANDS OG ÍSLENSKRAR TUNGU íslensk þjóð hafði lengi sérstöðu meðal þjóða Evrópu vegna fámennis og einangr- unar og vegna þeirrar tilraunar, sem hún hefur gert, til að vera frjáls og fullvalda þjóð í eigin landi. Engin svo fámenn þjóð hafði gert slíka tilraun þegar landið öðlað- ist fullveldi árið 1918 og ekkert af stofn- ríkjum Sameinuðu þjóðanna var jafn fá- mennt og Islendingar, þótt nú séu fjöl- mörg aðildarríki samtakanna mun fámenn- ari. Engin önnur þjóð í Evrópu þekkir heldur upphaf sitt með þeim hætti sem íslendingar gera. Saga annarra þjóða hverfur í rökkurmóðu frásagnarlausrar fortíðar. íslensk tunga hefur einnig sér- stöðu meðal Evrópumála vegna sérstakrar þróunar og vegna þeirra bókmennta sem á málinu hafa verið skrifaðar. Talað hefur verið um samhengið í íslenskum bók- menntum8 af því að hvert mannsbarn get- ur lesið íslenskar bókmenntirnar frá eddu- kvæðum og Agli til Fríðu Á. Sigurðardótt- ur og Vigdísar Grímsdóttur. I reynd er það fremur samhengið í íslensku máli sem veldur því að unnt er lesa bókmenntir frá öllum tímabilum í sögu þjóðarinnar. ís- lensk tunga hefur nefnilega breyst minna en tungur annarra Evrópuþjóða og það er þessi forna tunga sem veitt hefur þjóð- inni styrk í baráttu við erlenda áþján og kröpp kjör og gert bókmenntir hennar að almenningseign. Einhæf Menning Hins vegar má færa fyrir því rök að saga þjóðarinnar og bókmenntir hennar hafi gert menningu hennar einhæfari: bók- menntirnar og tungan hafi á stundum íþyngt þjóðinni. Lengi var einblínt á liðna tíð, eins og títt er um fátækar og umkomu- litlar þjóðir. Vegna bókmenntanna hafa aðrir þættir menningarinnar verið van- ræktir. Ritað mál hefur verið í hávegum haft en daglegt mál legið í láginni og minni rækt lögð við talmál og munlega frásögn en ritað m'ál. Hefur því verið hald- ið fram að hluti íslendinga þjáist af mál- ótta, ótta við að tjá hug sinn á opinberum vettvangi.9 Fornlegt mál hefur líka lengi verið notað við hátíðleg tækifæri og í ljóð- um og sögum og ræðum manna. Hefur þá mátt heyra óm af máli íslendingasagna og Sturlungaaldar. Frá fyrstu tíð var sagnaskemmtun sterkur þáttur í lífi íslendinga10 og fágun bundins máls var íþrótt þar sem menn öguðu mál sitt við stuðlanna þrískiptu grein." Skáld voru ókrýndir þjóðhöfðingj- ar, kjörnir af alþýðu manna, og tækifæris- kveðskapur, lausavísan eða ferskeytlan, um aldaraðir hluti af daglegu lífi fólks og hafa hagyrðingar notið virðingar umfram aðra menn. Undarleg er íslenzk þjóð! Allt sem hefur lifað, hugsun sína oghag, íljóð hefur hún sett og skrifað.'2 Áhugi almennings á málinu er einnig einstakur. Þegar útlendingar, sem læra vildu málið, komu til landsins voru þeir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.