Lesbók Morgunblaðsins - 06.01.1990, Blaðsíða 4
Mynd: Pétur Halldórsson
F r anz Kafka
Hamskiptin
og
Kafka þjáðist alla tíð af
minnimáttarkennd
gagnvart föður sínum,
sem var harður
uppalandi og skipti sér
lítið af viðkvæmu
tilfmningalífi sonarins.
Kafka þráði að þóknast
honum, en hans köllun
og innri þrá var að skrifa
bækur og olli þetta
gífurlegri sálarkreppu.
Eftir Jón Gnarr
Sagan segir frá Gregori
Samsa, sölumanni sem
vaknar upp í rúmi sínu einn
daginn og hefur þá breyst
í risavaxna bjöllu. Hann
er ákaflega yfirvegaður og
borgaralegur venjumaður.
Það fyrsta sem hann
hugsar um þegar hann vaknar og hefur
gert sér ljóst ástand sitt (sem hann vissulega
gerir, mjög yfirvegað), er hvort hann komist
ekki til vinnu. Honum er ákaflega mikið
áhyggjuefni hvað yfirmaðurinn komi til með
að segja. Þetta virðist vera það eina sem
angrar hann. Sú staðreynd að hann er
skyndilega orðinn að risavöxnu, hugsandi
skorkvikindi þjakar hann ekki að nokkru
leyti:
„Eiginlega leið Gregori prýðisvel, ef
undan var skilin syfja, alveg ástæðulaus
eftir alla þá hvíld sem hann hafði notið,
hann langaði meira að segja til að éta
eins og hestur..."
Það kemur fram' að Gregor er eina
fyrirvinna fjölskyldunnar, sem
samanstendur af honum, föður hans, móður
og systur og hann er ákaflega duglegur og
samviskusamur. Þó hatar hann
sölumannsstarfið. Og auðvitað fer hann
ekkert í vinnuna. Eftir mikið brölt tekst
honum að komast fram úr og til dyra, en
þá eru allir farnir að hafa miklar áhyggjur
af honum og fulltrúi frá fyrirtækinu sem
hann starfar hjá, kominn til að athuga með
hann:
„... Jæja þá,“ sagði Gregor og gerði sér
vel Ijóst að hann var sá eini sem haldið
hafði ró sinni, „ég fer undir eins að klæða
mig, pakka niður sýnishornunum og tek
lestina. Viljið þið þá, viljið þið þá að ég
fari? Þarna getið þér séð, fulltrúi, að ég
er ekki þverlyndur og tel ekki eftir mér
að vinna ...“
Gregor er al(ur af vilja gerður til að ræða
málin við ljölskyldu sína en það ber lítinn
árangur. Faðir hans rekur hann svo aftur
inní herbergið, með harðri hendi og þar er
hann mestan hluta sögunnar. í hvert sinn
sem hann vogar sér fram, rekur faðir hans
hann aftur inn af miskunnarleysi. Hann
ásetur sér jafnvel að drepa Gregor með því
að kasta í hann eplum en móður hans tekst
blessunarlega að stöðva það. Eitt eplið fer
þó á kaf í síðu hans og á seinna meir einn
stærstan þátt í dauða hans.
Eftir hamskipti Gregors fer efnahagur
l'jölskyldunnar ört versnandi og meðlimirnir
neyðast til að fá sér illa launuð hlutastörf
og að endingu neyðast þau til að leigja
herbergi þrem mönnum sem gera allt til að
láta þau skríða fyrir sér. Eina manneskjan
sem eitthvað hugsar um aumingja Gregor
er systir hans Gréta sem öðru hveiju skutlar
inní herbergið úldnum mat á dalli. En að
endingu deyr Gregor vannærður og sjúkur
og vinnukonan hendir honum í ruslið.
Öll sagan er í hæsta máta furðuleg,
þrungin yfirvegaðri geðbilun og rósemi.
Umhverfið er stórborg, einhvern tíma upp
úr aldamótum, má draga þá ályktun af
klæðaburði sögupersónanna. Lítið fer fyrir
tíma í sögunni, nema þar sem varla verður
komist hjá honum. Það kemur ekki fram
hve lengi Gregor lifir sem bjalla en það er
varla meira en nokkrir mánuðir. Allar
persónur eru ákaflega látlausar og
yfírvegaðar og enginn efast um það að
paddan sé Gregor Samsa. Þetta gerir
lesandanum ákaflega erfitt fyrir. Hann
verður að spyija sjálfan sig margra
spurninga: Hvers konar veröld er þetta, er
það draumur eða veruleiki? Okkur er boðið
inní heim súrrealísks fáránleika þar sem
hlutir og atburðir gerast í samhengi sem er
í þversögn við sjálft sig. En vitskertust er
þó ísköld yfirvegunin og látleysið sem
einkennir persónurnar og reyndar
frásögnina alla. Það er líkt og ekkert
merkilegt hafi gerst. Maðurinn breyttist í
pöddu og er það ekki ósköp eðlilegt? Er
fólk ekki alltaf að breytast í hinar ýmsu
tegundir af skorkvikindum, hér og þar?
Persónur sögunnar eru annars vegar
fjölskyldan og hins vegar Gregor. Nokkrar
aukapersónur koma einnig við sögu:
leigjendurnir þrír, brussuleg vinnukerling
og fulltrúinn frá fyrirtækinu. Þótt lítið fari
fyrir eiginlegum persónulýsingum hafa þó
persónurnar mjög sterkt, táknrænt gildi eins
og flest annað í sögunni. Allt er svo hluti
af einhveijum óhuggulegum og
hversdagslegum raunveruleika eða
óraunveruleika, geðbilun sem nær hámarki
þegar fjölskyldan — eftir að Gregor er allur
— fer í skemmtiferð: