Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1986, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1986, Blaðsíða 3
uaaw Charies Jenks er maður nefndur og er hann nafntogaður arkitekt og einn af þeim sem aðhyllast svonefndan postmodemisma í byggingarlist. Jenks hefur teiknað hús í London, sem er einskonar allsheijarlistaverk, tileinkað árstíðunum og einstökum brautryðjendum í húsagerðarlist. Fjölnir átti sér stutta sögu, en flestir þekkja tímaritið og þá fjóra, sem nefndir hafa verið Fjölnismenn. Þeim þótti tímarit henta vel til að vekja þjóðina og örva, en fljótlega urðu þeir ósammála um margt og Fjölnir leið útaf eftir dauða þeirra Jónasar Hallgrímssonar og Tómasar Sæmundssonar. Sigrún Davíðsdóttir skrifar um sögu Fjölnis. Forsiðan er af höggmynd sovézka myndhöggvarans Emst Neiz- vestnys og heitir „Spámaðurinn". Þetta verk hefur myndhöggvarinn unnið eftir að hann flúði föðurland sitt. Það er hugsað sem miðpunktur og aðalskúlptúr i risa-höggmynd, sem Neizveistny hefur á pijónunum og á að heita „Tré lífsins". Hér í blaðinu er sagt frá Neiz- vestny og í næsta blaði verður fjallað um „Tré lífsins". Tékkneska er móðurmál Peters Radovan, en þar að auki talar þessi tungumálasnillingur 12 tungumál reiprennandi oger að bæta því 13. við um þessar mundir; nefnilega ís- lenzku. Hann segir í viðtali við Ellý Vilhjálmsdóttur, að hann hafi orðið fyrir gjömingum af landinu og hér hefur hann verið síðan 1983. Hannes Sigfússon Santó Domingó Þvíneita égekki Einnigég vildi njóta einfaldara lífs. Nýjabrumið á tijánum Tíminn sem lokar hring árstíðanna Tölvísi almanaksins Nýtt tungl á himni Eg held á fjögurra laufa smára Það táknar hamingju Égneita þvíekki En andlit mitt gránar Eldskin morgunroðans á fjöllunum Það boðar ekki nýjan dag Ég bíð næturinnar Nú er ekki tímabært að skoða sjaldgæfa steina Stígurinn um skóginn leiðirþigá villigötur Þú vonast eftir að hitta ástvinu þína En vígfimar skyttur leynast bak við öll tré Ein launskyttan hefurþegar hæft þig í hjartastað Himinninn roðnar: Það minnir þig á blóð Þú bíður átekta framan við sjónvarpstækið I Santo Domingó líður tíminn Frá eykt til eyktar Enn halda þeir velli Ar klukkunnar höktir um torgið Október A hækjum Rómverjanna Hægt þokast armar tímans Þér verðurlitið út umgluggann Laufið er bliknað Það er vetur Hannes Sigfússon er fæddur 1922 í Reykjavík. Hann hefur lengi átt heima í Noregi og er bókavörður í Stavangri. Hannes var einn af ritstjórum Birtings, formbyltingarmaður í Ijóölist og hefur sent frá sér bæði Ijóðog skáldsögur. Að virða einstakliriginn Fyrir nokkru var sýnd hér í sjónvarpinu kvikmyndin „Skip hinna fordæmdu". Er mynd þessi gerð eftir sannsögulegum atburð- um. Fjallaði hún um 974 gyðinga, sem Hitler leyfði að sigla brott frá Hamborg vorið 1939 með stefnu á Havana á Kúbu. Þegar til Havana kom reyndist allt á svikum byggt, land- gönguleyfin ógild, og hin gjörspillta embætt- ismannastétt Batista einræðisherra á Kúbu notaði fólkið sem verslunarvöru. „Þetta er gullnáma," voru orð eins þeirra. „Við tökum ekki við þessu fólki nema fyrir hæsta verð,“ mælti annar. Virðingarleysið fyrir einstakl- ingnum virtist takmarkalaust hjá þeim fé- lögum Hitler og Batista. Nú er enn verslað með fólk, Austur- Þjóðveijar selja ávallt fjölda manna til Vestur-Þýskalands og eru þar greiddar háar fjárhæðir fyrir hvern mann. Castro, arftaki Batista lét aftur á móti fólk fijálst í skiptum fyrir dráttarvélar. Um njósnaskiptin milli austurs og vesturs þarf ekki að ræða, svo kunn sem þau viðskipti eru og mikill frétta- matur hvetju sinni, en þar er þó um nokkurs konar vöruskipti að ræða. En hvert hefur viðhorf okkar íslendinga verið til einstaklingsins? Vegna fámennis hefur það verið með nokkuð sérstæðum hætti. ísland hefur ávallt þurft á hveijum einstakhngi að halda, en illt árferði hrakti að vísu margt valmennið vestur um haf og var það vissulega mikil blóðtaka fyrir svo fámenna þjóð, en þegar fjárkláði, hafís og öskufall lögðust á eitt, þá var ekki margra kosta völ fyrir landsmenn. En ég held einmitt, að viðhorfið til ein- staklingsins komi e.t.v. einna best fram í frásögninni um einn af bestu sonum íslands, sem hélt til Vesturheims með foreldrum sín- um árið 1882, þá fjögurra ára. Ekki var vitað þá, að þessi litli drengur, sem fæddur var að Kópareykjum í Reykholtsdal 21. nóvember 1878, ætti eftir að marka dýpri spor í réttarsögu Bandaríkjanna en flestir lögfræðingar á 3. áratug þessarar aldar. Hann hét Guðmundur og var sonur hjónanna Steingríms Grímssonar bónda á Grímsstöð- um og Kópareykjum Steinólfssonar og konu hans, Guðrúnar Jónsdóttur Kristjánssonar hreppstjóra á Kjalvararstöðum í Reykholts- dal. Guðmundur Steingrímsson Grímsson lauk námi í lögfræði við fylkisháskólann í Norður-Dakota árið 1905. Guðmundur átti svo sannarlega erindi til Bandaríkjanna. Árið 1923 var ekki meir um annað talað þar, en svonefnt Tabert-mál. Drengur frá Norður-Dakota, vel kynntur unglingur í sinni sveit, sem hafði farið úr föðurhúsum til þess að skoða heiminn, var hýddur til bana með svipum í sögunarmyllu einni í Florida. Hann var leigður til sögunar- myllunnar úr fangelsi, sem hann hafði verið hnepptur í fyrir þá sök eina að ferðast farseðilslaus stuttan spöl með járnbrautar- lest. Sú óhæfa hafði viðgengist um langan tíma í Florida, að fangaverðir og ýmsir háttsettir embættismenn í fylkinu leigðu út fanga til sögunarmyllunnar og fengu dijúg- an skilding fyrir. Margir þessara ógæfusömu fanga höfðu sætt sömu afdrifum og Tabert. En það var ekki fyrr en íslendingurinn, Guðmundur Grímsson lögmaður frá Langdon í Norður- Dakota, gekk með ráðum og dáð fram í því að rannsaka þetta glæpsamlega athæfi, að óhæfa þessi varð opinber. Af hendingu bárust fréttir um afdrif Taberts til foreldra hans og Guðmundur var valinn til þess að rannsaka málið, en þá hafði hann verið kjörinn aðstoðardómsmálaráðherra Norð- ur-Dakota. Ýmislegt torleiði varð á vegi Guðmundar í máli þessu, því stjórnarskrá Bandaríkjanna heimilaði ekki einu ríkja þeirra að rannsaka brot á rétti þegna sinna í öðru ríki. En Guðmundi tókst að vekja athygli helstu blaðanna í landinu í þessum glæp og með óþreytandi dugnaði tókst honum að afla nægjanlegra sannana til þess, að hinir seku í máli þessu hlytu makleg málagjöld. Martin Tabert lá því ekki óbættur hjá garði. Vissulega var það mikið áfall fyrir ekki fjölmennari þjóð en okkur Islendinga, að tíu þúsund manns, eða fimmtungur þjóðarinnar, fluttist vestur um haf milli 1880—90. Sumir íslendingar vilja líta á Vestur- Islendinga sem hveija aðra útlendinga, en þar er ég á öndverðum meiði. Þessir landar okkar gerðu íslendingsheitið að sæmdarheiti í Ameríku, þeir héldu vestur um haf vegna þess, að ekki var lífvænlegt fyrir þá hér á landi um sinn. Þess vegna stækkuðu þeir bara ísland. Guðmundur Grímsson var fulltrúi Norð- ur-Dakota á Alþingishátíðinni 1930. í þeirri ferð var hann gerður að heiðursdoktor við Háskóla íslands. Hann var hæstaréttardóm- ari í Norður-Dakota 1949—1958 og forseti dómsins 1957—58. Þessa fágæta drengskaparmanns mun ávallt verða minnst jafnt vestan hafs sem austan. Hann kenndi okkur að virða ein- staklinginn. LEIFUR SVEINSSON o

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.