Lesbók Morgunblaðsins - 21.08.1982, Blaðsíða 7
HUSGCN
Islenzkur
homsófi
af norskum
uppruna
Óneitanlega er ánægjulegt, þegar hægt er aö vekja
athygli á einhverju góöu, sem framleitt er á íslandi.
Þar á meöal er þessi „Partý“ hornsófi, sem svo er
nefndur. Gerðin mun vera norsk, en framleiðslan er
hjá Sameinuöu kaupfélagatrésmiöjunum á Hvolsv-
elli. Grind og umgjörö eru úr furu, en yfirdekkt meö
leðri — ullaráklæöi þó fáanlegt. Bólstrað er meö
svampi og ágætt er aö sitja í þessum hornsófa, sem
samanstendur af tveimur einingum: Fjögurra sæta
og tveggja sæta. Sófaborð í sama stíl er einnig á
boðstólum. Meö leöuráklæöi kostar þessi hornsófi
kr. 21.215,- meö ullaráklæöi 17.790 og sófaboröið
kostar kr. 3.110,- allt í JL-húsinu, en selt víöar.
reyr
Þegar gengiö er um húsgagnaverzlunina í JL-húsinu, vekja sér-
kennileg reyrhúsgögn athygli og skera sig töluvert úr ööru, hvaö
útlit snertir. Þarna eru stólar og borö frá Ítalíu og er ekki aö
sökum aö spyrja, þegar ítölsk hönnun er annarsvegar. Eins og
myndirnar sýna, er tvennskonar reyr notaður: Sver í buröargrind,
en grennri reyr er fléttaöur í hliðarnar. Stólarnir eru mjög mjúkir
ásetu og yfirdekktir meö þunnu bómullarefni. Þessi húsgögn eru
einungis seld í settum, sem eru tveggja sæta sófi, tveir stólar og
sófaborö úr reyr og meö glerplötu eins og sést á myndinni.
Þannig sett kostar kr. 21.790.
7