Lesbók Morgunblaðsins - 01.08.1981, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 01.08.1981, Blaðsíða 2
Ronald Reagan Þrnkaár mín i Hdlywood Reagan segir hér sjálfur frá því, hvernig hann kynntist raunveruleikanum í veröld stjórnmálanna Reagan, þegar hann var ungur að árum og kvikmyndaleikari í Hollywood. Sagt hefur verið að hann sé betri pólitískur leikari en kvikmyndaleikari. Um það leyti sem ég fór úr flughernum, en það var sumarið 1945, var það efst í huga mér — eins og nokkurra milljóna annarra uppgjafahermanna — aö taka mér frí um stund, njóta samvista við konu mína og hverfa síðan endurnæröur aö betra starfi í fyrirmyndar heimi. En þannig gerðust hlutirnir ekki aö öllu leyti. Ég var vel settur. Warners voru að svipast um eftir kvikmyndahandriti fyrir mig, en ég vonaöi, aö þaö tæki langan tíma, áöur en ég fengi eitthvaö slíkt í hendur. En á meöan sóttist ég eftir því af miklum áhuga aö taka þátt í starfsemi allra þeirra samtaka, sem ég gat fundiö og höföu á stefnuskrá sinni aö frelsa helminn. Ég gerði mér ekki fulla grein fyrir kommún- ismanum. Rússar virtust enn vera banda- menn okkar. Fyrsti boöskapur minn birtist þannig í eitilharöri veiðleitni minni til aö bjarga heiminum frá nýfasisma. Á þeim tíma voru taldar ýmsar greinilegar hættur í þeim efnum. Sjáifur fylgdist ég meö stofnun meira en 40 samtaka uppgjafa- hermanna, og flest virtust þau mjög umburðarlaus, hvað snerti stefnu, trú og almenna skynsemi. Ég tók þátt í starfi Ráös bandarískra uppgjafahermanna og var þar mjög virkur. Ég naut þess aö halda ræöur. Þaö efldi sjálfstraust mitt, þar sem ég haföi verið svo lengi utan sviösljóssins. En þó aö mér væri þaö ekki Ijóst þá, var ég eigi aö svo litfu leyti undir áhrifum annarra. Og svo var þaö eitt kvöld voriö 1946, að ég reyndi mínar venjulegu aöferöir til hins ýtrasta til að fá sem beztar undirtektir, en eftir ræöuna kom til mín fremur uppburöarlaus maöur og sagöi: „Ég er sammála flestu af því, sem þú sagöir, en finnst þér ekki, úr því aö þú ert að fordæma fasisma, aö þaö væri sanngjarnt aö tala jafn einarölega gegn kúgun kommúnismans?“ Eg féllst á, að þaö væri rétt og samdi nýjan lokakafla, sem ég bætti viö ræöu mína. Það var allt og sumt sem ég geröi. Og næst, þegar ég flutti hana, var klappað feikilega meira en 20 sinnum. Síöan fordæmdi ég kommúnismann. Þögnin var skelfileg. Ég staulaöist ofan af sviöinu og hrasaði í fangið á vini mínum, en úr andliti hans skein mín eigin undrun. „Heyröiröu þetta?“ hvíslaöi hann. „Ég heyröi ekki neitt,“ tautaöi ég. „Þaö var þaö, sem ég heyrði,“ sagöi hann. Upp frá því dró ég mig til baka frá ræöuhöldum. Ég haföi skotiö orðum úr munni mér án þess að þekkja mitt raunverulega skotmark. Ég einsetti mér aö komast aö mínum eigin niöurstööum. Og brátt tók röð af harkalegum atburðum að breyta skoðun minni á því, hvaöa hættur steöjuöu aö Bandaríkjunum. Flestir þessir atburöir gerðust í beinum tengslum viö mál, sem komu upp á mínu eigin starfs- sviði, á vettvangi leiklistar, og viö þá staðreynd, að ég tilheyrði verkalýðsfélagi, Félagi kvikmyndaleikara. Ameríska verkalýössambandiö haföi heitið ríkisstjórninni því, aö ekki yrði efnt til verkfalla, meöan stríöiö stæöi yfir. Þetta heit rufu fagfélög í Hollywood. í mars 1945, áður en kjarnorkusprengjunni hafði veriö varpað á Hiroshima, hófst hiö fyrsta af 2 mörgum verkföllum í höfuöborg kvikmynd- anna. Verkföllin kostuðu kvikmyndafram- leiöendur nær $150 milljónir, en um 8000 starfsmenn töpuöu 28 millj. dollara í launum. Verkföllin voru nær einvörðungu lög- fræöilegt þjark milli félaga, deilur um markalínur — hverjir ættu aö vinna hvaöa störf. Þau ullu slíkum illindum milli fagfé- laga í Hollywood (yfir 1300 félagsmenn voru handteknir vegna ofbeldis á einu ári), aö kommúnistar gátu óáreittir komiö mönnum sínum fyrir í kvikmyndaiönaöin- um. Og sannleikurinn er sá, aö þaö voru þeir fyrst og fremst, sem skópu glundroö- ann í upphafi. Á fyrstu árum kvikmyndageröar réöu frumkvöðlarnir til sín starfsmenn frá hinum staöbundnu félögum leiksviösmanna, sem þá voru í miklum blóma. Leiksviösmenn á þeim dögum geröu alla skapaða hluti frá því aö sveifla hamri og flytja hluti til aö mála leiktjöld og taka þau niöur. Félög leiksviðsmanna mynduöu síðan meö sér landssamband. Flest önnur félög í Amer- íska verkalýössambandinu voru byggö á „láréttri" skipan, smiöir voru smiöir, málar- ar málarar o.s.frv. En Landssamband leiksviðsmanna hjó á allar slíkar aðgrein- ingar. Út af þessu hófust deilur þegar fyrir fyrri heimsstyrjöld og héldu áfram á þriöja og fjóröa áratugnum. Hinn einfaldi ágreiningur, sem deilunum olli, en seinna varö svo skeifilega flókinn, byggðist á því aö Landssamband leiksviös- manna leit á iönaöarmenn eins og smiöi, málara og rafvirkja sem „sanna" leik- sviðsmenn, þegar aö því kom að vinna viö kvikmyndaverin í Hollywood. En félög byggingariönaöarmanna töldu, aö eina rétta leiðin væri aö skipa mönnum saman eftir iöngreinum. Þaö sem virkilega flækti svo máliö, var aö Ameríska verkalýössam- bandiö viöurkenndi bæöi sjónarmiðin. Fé- lag kvikmyndaleikara, sem ég tilheyröi, var einnig fullgildur aöili aö Verkalýössam- bandinu. Mér haföi gengið ágætlega í Hollywood. Eftir aö hafa leikiö í mörgum B-myndum var ég kominn upp í A-flokkinn. (B-myndir voru þær sem teknar voru meö hraöi og lítiö kostaö til. Aths. þýö.) Áriö 1941 lék ég í „King’s Row“ á móti Ann Sheridan. Þar lék ég hlutverk manns, sem veröur fyrir slysi meö þeim afleiðingum, að báðir fætur eru teknir af honum viö mjaömir. Þá aögerð framkvæmdi illviljaöur læknir, sem haföi mislíkaö aö ég hafði átt stefnumót viö dóttur hans. Og eftir skuröaögeröina átti ég aö spyrja þessarar spurningar: „Hvar er hinn hlutinn af mér?“ („Where is the rest of me?“). Þetta var ein af mínum beztu myndum — ef til vill tókst mér aldrei jafnvel upp aftur í einu einstöku atriði — og ég varö stjarna. Ég kvæntist Jane Wyman, leikkonu, og viö eignuðumst tvö börn. Skömmu fyrir stríðsbyrjun voru vikulaun mín hjá Warners samkvæmt samningi 3.500 dollarar, en ég hafði byrjað með 200. Ég var einnig í stjórn Félags kvikmynda- leikara. Ég vil taka þaö fram hér, aö ég viröi þaö félag af fyllstu einlægni. Þetta er alveg prýðilegur félagsskapur. Ég meina þaö í orðsins beztu merkingu. Hann sýnir í reynd þá djúpu samkennd, sem ríkir innan skemmtiiönaöarins. Þeir sem sköpuöu grundvöllinn aö starfi og mætti félagsins í upphafi, voru þeir sem ekki þurftu á því að halda. Eddie Cantor, Edward Arnold, Ralph Morgan, Robert Montgomery, James Cagney, Walter Pidgeon, George Murphy, Harpo Marx, Cary Grant, Charles Boyer, Dick Powell og hundruö annarra stjarna,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.