Morgunblaðið - 10.12.1995, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.12.1995, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ Deilur í verkalýðshreyfingunni og búist við átökum um val forseta á ASÍ-þingi , Morgunblaðið/RAX ATAKAFUNDURI Dagsbrún sl. fimmtudag þar sem stjórn félagsins lagði að félagsmönnum sínum að hafna tillögu launanefndar og halda uppsögn kjarasamninga til streitu. „Menn eru að fara í skotgrafirnar“ Agreiningur er kominn upp í verkalýðs- hreyfingunni í kjölfar niðurstöðu launa- nefndar og ákvörðunar nokkurra verkalýðs- félaga að standa fast á uppsögn samninga. Einstaka verkalýðsforingjar hafa gagnrýnt forystu ASÍ harkalega og spáð er miklum átökum fyrir komandi Alþýðusambandsþing í maí. Undirbúningur fyrir kjör nýrrar forystu samtakanna er þegar hafínn. Ómar Fríðriksson fjallar um deilumar í verkalýðshreyfíngunni. BENEDIKT Davíðsson, forseti ASÍ, segir allar líkur á að þorri félagsmanna hefði dæmt forystuna óhæfa og hreyfingin hefði sundrast ef launanefnd og formenn landssambanda hefðu ákveð- ið að segja upp samningum upp þrátt fyrir að slíkt væri ólögiegt. AÐ ER stormasamt innan Alþýðusambands íslands þessa dagana kjölfar nið- urstöðu meirihluta launa- nefndar ASÍ, Vinnuveitendasam- bands íslands (VSÍ) og Vinnumála- sambandsins (VMS). Einstakir verkalýðsformenn hafa gagnrýnt forystu ASÍ harðar á undarifömum dögum en dæmi eru til um langt árabil. Það er til marks um óeining- una að Björn Grétar Sveinsson, for- maður Verkamannasambandsins (VMSI), skrifaði ekki undir tillögu meirihluta ASÍ í launanefnd og nokkur verkalýðsfélög hafa sagt skilið við meirihlutann í hreyfingunni og ætla að fylgja fast eftir uppsögn kjarasamninga. Drógu uppsögn til baka Mikill meirihluti verkalýðsfélaga innan VMSÍ sem sögðu upp samn- ingum hafa ákveðið að afturkalla uppsögn kjarasamninga og fallast á tillögu launanefndar. Þegar þetta er skrifað hafa fjögur félög hins vegar ákveðið að halda uppsögn til streitu, en þau eru Baldur á ísafirði, Eining á Akureyri, Hlíf í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélag Kefla- víkur. Niðurstaða úr atkvæða- greiðslu félagsmanna í Dagsbrún um tillögu trúnaðarmannaráðs að standa við uppsögn samninga liggur ekki fyrir, en flestir reikna með að hún verði samþykkt. Þá standa fimm stór verkalýðsfélög fyrir utan það samkomulag sem náðst hefur í launanefnd vinnumarkaðarins um sérstakar kjarabætur til viðbótar gildandi kjarasamningum. Hreyfingin gat sundrast ef launanefnd hefði sagt upp Þær deilur sem risið hafa á und- anfömum dögum hafa Ieitt til þess að Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, sá ástæðu til að leggja sérstaka greinargerð fram á miðstjórnarfundi í vikunni, þar sem hann varði af- stöðu meirihluta ASÍ í launanefnd. Athygli vekpr að Benedikt gaf i skyn að ASÍ gæti sundrast ef mál hefðu skipast með öðrum hætti. „Ég held að niðurstaða launanefndar hafí verið rétt því ef nefndin hefði sagt upp samningum, þrátt fyrir að ekki væru samningslegar forsendur til þess, hefði slíkt verið dæmt ólög- legt. í kjölfar þess hefði hreyfíngin getað sundrast mjög mikið og þar með hefðu allir möguleikar til að ná einhverju fram farið fyrir bí, “ sagði í greinargerð forseta ASÍ. Benedikt sagði í samtali við Morg- unblaðið að ef formenn landssam- bandanna og launanefnd hefðu talið rétt að segja samningum upp á sömu forsendum og formaður Dagsbrúnar hefði kynnt á félagsfundi Dagsbrún- ar, þó vitað væri að uppsögn væri ólögleg, „þá væru allar líkur á því að megin þorri hinna almennu fé-' lagsmanna í hreyfingunni dæmdi okkur óhæfa til að halda á málinu og hreyfingin myndi sundrast á þeim forsendum," sagði Benedikt. Afstaða vinnuveitenda er skýr. Launþegar þeirra félaga sem sagt hafa upp samningum fá ekki hækk- un desemberuppbótar. Vinnuveit- endur taka ekki í mál að hefja samn- ingaviðræður við þessi félög og upp- sagnir þeirra verða tafarlaust lagðar fyrir Félagsdóm. Raunar blandast fæstum innan verkalýðshreyfingar- innar í dag hugur um að uppsagnim- ar yrðu dæmdar ólögmætar og að úrskurðað yrði að kjarasamningar félaganna frá í febrúar giltu áfram út næsta ár. Launþegar á félags- svæði þessara félaga fengju þá ums- amda launahækkun, 2.700 kr. eða 3%, um næstu áramót eins og aðrir. Haldi félögin hins vegar uppsögn- um til streitu þrátt fyrir dómsniður- stöðu og færu út í einhveijar skærur eða verkfallsaðgerðir ætla vinnuveit- endur að svara því með höfðun dómsmáls og krefja félögin skaða- bóta vegna hugsanlegs tjóns af völd- um aðgerðanna. Vinnuveitendur telja ekki mikinn þunga á bak við þær hótanir sem talsmenn einstakra félaga hafa haft uppi. Benda þeir á að aðeins lítill hópur hafi tekið þessa afstöðu á félagsfundum og nefna sem dæmi að 37 félagsmenn Hlífar hafi ráðið niðurstöðunni á fundi í félagi, sem er með rúmlega 1.100 félagsmenn innan sinna vébanda. Þeir félags- menn sem njóti nú þegar hærri des- emberuppbótar en aðrir hafi sig mest í frammi og séu reiðubúnir að svipta félaga sína, sem eru með 13.000 kr. uppbót í dag, þeirri hækk- un sem launanefnd lagði til. Þegar frá líður muni áhrif þessara minni- hlutahópa dvína og óánægja annarra félagsmanna með að fá ekki hækkun desemberuppbótar koma upp á yfir- borðið. Sú óánægja muni þá beinast gegn stjórnum félaganna og veikja forystumenn þeirra. Það er einnig samdóma álit margra viðmælenda blaðsins innan ASÍ að umrædd verkalýðsfélög séu í mjög veikri stöðu til að fylgja málinu eftir, þótt ósennilegt sé að sú óánægja sem blossað hefur upp á undanförnum vikum muni fjara út. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins innan verkalýðsfélaga sem sagt hafa upp samningum eru for- ystumenn þeirra ósáttir við þær yfir- lýsingar og hótanir um lögbrot sem Sigurður T. Sigurðsson, formaður Hlífar, hefur verið með í fjölmiðlum og vilja beita öðrum ráðum til að leiða þessi mál til lykta. Leggja fram kröfugerð og óska eftir viðræðum „Ég á von á því að vinnuveitendur framfylgi hótun sinni um að draga okkur fyrir dómara og að Félags- dómur taki á málinu," segir Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, að- spurður um framhaldið eftir að fé- lagsfundur ákvað að standa við upp- sögn samninga. „Ef þeir gera það ekki, munum við leggja fram kröfu- gerð og óska eftir samningaviðræð- um. Ég ætla að spara mér öll gífur- yrði um verkföll og ólögleg átök en vinna þetta áfram á málefnalegan og löglegan hátt,“ segir hann. Kristján bætir við að dómur Fé- lagsdóms í máli Baldurs á ísafírði, sem reiknað er með að falli í næstu viku, verði skoðaður af mikilli at- hygli. Hann sagði að félagsmenn í verkalýðsfélaginu tryðu því að þeir hefðu stöðu til að gera vinnuveitend- um gagntilboð og ná skammtíma- samningum sem giltu út næsta ár. Þá sagði hann að félögin, sem hafa ákveðið að draga uppsögn samninga ekki til baka, myndu mæta mjög samhent til leiks. Fari svo að Dagsbrún bætist í hóp þeirra félaga sem ætla að standa við uppsögn kjarasamninga verður, þrátt fyrir þrönga stöðu þeirra, ekki fram hjá því litið að innan þessara fímm félaga eru 13.400 félagsmenn eða tæpur helmingur (47%) allra félagsmanna innan VMSI og fimmt- ungur allra félagsmanna innan vé- banda ASÍ. Óvíst er hvaða stuðning félögin muni fá frá öðrum VMSI- félögum í baráttu sinni og nokkrir heimildarmanna innan annarra starfsgreinasambanda halda því fram að veruleg óeining, jafnvel klofningur, sé innan VMSI. Því neita talsmenn Verkamannasambandsins. Nokkur aðildarfélög VMSÍ, sem ekki sögðu upp samningum og féllust á tillögu launanefndar, hafa lýst yfír megnri óánægju sinni með niður- stöðuna og beint mikilli gagnrýni að meirihluta ASÍ í launanefnd.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.