Morgunblaðið - 13.04.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.04.1995, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 morgunblaðið FRÉTTIR Fundi úthafsveiðiráðstefnunnar lauk í New York í gær Samningsdrögin talin viðunandi fyrir Island FUNDI úthafsveiðiráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna í New York lauk í gær. í fyrrakvöld lagði formaður ráðstefnunnar, Satya N. Nandan, fram endurskoðuð drög _að væntanlegum út- hafsveiðisáttmála. Helgi Ágústsson, sendiherra og formaður íslenzku sendinefndarinnar á ráð- stefnunni, segir að drögin séu viðunandi fyrir ísland. ESB olli fjaðrafoki Fulltrúar Evrópusambandsins ollu nokkru fjaðrafoki á ráðstefnunni fyrr í vikunni er þeir lögðu fram flölda breytingartillagna við fyrir- liggjandi texta formannsins. Meðal annars lagð- ist ESB gegn tillögu íslendinga um rétt ríkja, sem væru sérstaklega háð fiskveiðum, en henni hafði verið bætt við 16. grein samningsdrag- anna um nýja þátttakendur í svæðissamstarfi í fískveiðistofnunum á borð við NAFO og NE- AFC. Helgi sagði að í tillögum ESB hefði verið fjöldi breytingartillagna, sem sambandið hefði aldrei komið fram með áður. Málflutningur fulltrúa þess hefði borið talsverðan keim af hagsmuna- gæzlu fyrir úthafsveiðiríki. ísland tók ekki til máls gegn málflutningi ESB, en fuiltrúar Kanada, Indónesíu og Perú gagnrýndu afstöðu sambandsins harðlega. „Mönnum þótti tillöguflutningur ESB miðast að því að stigin væru skref tvö eða þijú ár aftur í tímann," sagði Helgi. Hann sagði að hins vegar litu menn á ráðstefn- unni svo á að málflutningur Evrópusambandsins væri herbragð, sem miðaði að því að skapa því sterkari samningsstöðu. Mál komin til betri vegar á ný „Málin eru talin vera komin til betri vegar aftur,“ sagði Helgi. Hann sagði að þannig væru tillögur íslendinga áfram í texta formannsins og enn hefðu menn ekki séð að þar hefðu verið teknar inn mikilvægar breytingartillögur, sem beindust gegn hagsmunum íslands. Aðspurður um líkumar á því að samkomulag tækist á síðasta fundi ráðstefnunnar, sem verður haldinn í júlí og ágúst, sagði Helgi að fulltrúar aðildarríkjanna færu nú hver til síns heima og tækju afstöðu til fyrirliggjandi texta Nandans. „Menn munu hugsa málin og ákveða hvemig þeir ætla að þoka málum áfram, því að vanda- málin em náttúmlega fyrir hendi og eitthvað verður að gera í þeim,“ sagði hann. Helgi sagði að það vekti vonir með mönnum um árangur á sumarfundinum að Nandan for- maður hefði lýst því yfír að hann væri tilbúinn að beita þeim reglum, sem fundarsköp leyfðu, þ.e. að láta greiða atkvæði um tillögumar. „Þá kemur auðvitað til þess að ríki verða að taka ábyrga afstöðu, hvort þau eiga að vera með eða á móti,“ sagði Helgi Agústsson. Gasstöð reist í Straumsvík SKEUUNGUR, Olíufélagið og ÍSAL opna nýja þúsund rúmmetra gasstöð í Straumsvík í byrjun júní nk. Þar verður birgðastöð og áfyllingarhús, sem leysa af hólmi gasstöðvar Skeljungs í Skeijafirði, Olíufélagsins í Holtagörðum og ISALSs í Straumsvík og áfyllingarstöðvar olíufélaganna. Þórir Haraldsson, framkvæmda- stjóri rekstrarsviðs Skeljungs, seg- ir stöðina vera fjárfestingu upp á á annað hundrað milljónir sem skiptist jafnt á milli eignaraðilanna þriggja. Hún stendur á 16 þúsund fermetra lóð á uppfyllingu fyrir neðan kerskála ÍSALs. Geymslu- geta stöðvarinnar er um 450 tonn af própangasi en ársnotkun er 1.200 til 1.300 tonn og mest yfír sumarið. Gasið er flutt hingað frá Danmörku og koma skip með gas þrisvar til fjórum sinnum á ári. Ein helsta ástæða þess að stöðin er reist í Straumsvík er sú að þá sparast flutningskostnaður en ÍSAL er stærsti gasnotandi á land- inu með um þriðjung allrar notkun- ar. Gasið verðurtekið beint úr stöð- inni til ÍSALs um leiðslu. Að sögn Þóris er gasnotkun mest yfir sumarmánuðina þegar fólk er að ferðast og grilla mikið. í áfyllingarstöðinni verður fyllt á litlu hylkin, gulu og bláu kútana, sem fólk þekkir, og þaðan verður þeim dreift á sölustaði. Þórir segir að allt mannvirkið sé í samræmi við bestu gæðastaðla sem til eru í dag. Lóðin er 16.000 fermetrar vegna strangra krafna um öryggissvæði í kringum gas- tankana sjálfa, sem verða heygðir. Til viðbótar við tankana og áfyll- ingarstöð verður hús með starfs- mannaaðstöðu og skrifstofu og viðhaldsaðstöðu. Hafíst var handa við undirbúning fyrir um tveimur árum og smíði á tönkum og endan- legur undirbúningur útboðs hófst fyrir einu ári. Andlát Morgunblaðið/Ingibjörg PÉTUR J. THORSTEINSSON FYRRV. SENDIHERRA LÁTINN PÉTUR J. Thorsteinsson fyrrverandi sendiherra er látinn á 78. aldursári. Pétur var fæddur í Reykjavík, sonur Katrínar Pétursdóttur Thor- steinsson og Eggerts Briem. Pétur starfaði í utanríkisþjónustu íslend- inga frá 1944 til 1987. Pétur varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1937 cig við- skiptafræðingur frá Háskóla íslands 1941. Þremur árum síðar lauk hann lögfræðinámi. Héraðsdómslög- mannsréttindi fékk hann 1950. Pétur var sendiráðsritari við sendiráðið í Moskvu 1944 til 1947 og vann síðan við ýmis störf í utan- ríkisráðuneytinu frá 1947 til 1953, þar af yfirmaður viðskiptadeildar 1950 til 1953. Hann var sendiherra í Sovétríkjunum 1953 til 1961, jafn- framt sendiherra í Ungveijalandi og Rúmeníu 1956 til 1961. Hann var sendiherra í Þýska sambandslýð- veldinu, jafnframt í Sviss, Grikklandi og Júgóslavíu 1961 til 1962. Hann var sendiherra í Frakklandi, jafn- framt í Júgóslavíu, Belgíu, Lúx- emborg, hjá Efnahags- bandalagi Evrópu og fastafulltrúi hjá NATO, OECD og UNESCO 1962 til 1965. Hann var sendiherra í Banda- ríkjunum, jafnframt í Kanada, Mexíkó, Bras- ilíu, Argentínu og á Kúbu, 1965 til 1969. Pétur var ráðuneytis- stjóri utanríkisráðu- neytisins, jafnframt rit- ari utanríkismálanefnd- ar Alþingis, 1969 til 1976. Hann var sér- stakur ráðunautur í ut- anríkisráðuneytinu 1976 til 1987, jafn- framt heimabúsettur sendiherra í Kína, Japan og íran 1976 til 1987, í Indlandi og Pakistan 1976 til 1984, lýðveldinu Kóreu og alþýðulýðveld- inu Kóreu 1982 til 1987, Astralíu 1984 til 1987 og Indónesíu 1985 til 1987. Pétur var formaður orðunefndar frá 1970 til 1980 og sat í mörgum nefndum til samninga við erlend ríki, oftast sem formað- ur. Hann bauð sig fram í forsetakosningum 1980. Pétur þýddi leikritið Mávinn eftir Anton Tsjekhov og samdi sjálfur Manual for Ho- norary Consuls of Ice- land, sem kom út 1979, Meðferð utanríkismála 1987 og og Utanríkis- mál og saga utanríkis- þjónustunnar, sem kom út í þremur bindum 1992. Hann hlaut Stór- riddarakross hinnar íslensku fálka- orðu með stjömu og háar orður frá Belgíu, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Japan, lýðveldinu Kóreu, Noregi og Svíþjóð. Eftirlifandi eiginkona er Oddný Thorsteinsson og eignuðust þau þijá syni. Pétur J. Thorsteinsson. Skíðagöngu- veður VETUR konungnr hefur sýnt á sér ýmsar hliðar í undan- haldinu síðustu daga. Skíða- göngumenn hafa heldur ekki látið segja sér tvisvar að iðka göngu þegar veður hefur gef- ist til. Þeir vita sem er að ekki líður á löngu þar til þeir verða að leggja skíðin á hill- una og stunda aðrar íþróttir. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, sagði að hægari suðvestanátt yrði í dag en í gær. Lítilsháttar élja- gangur yrði á suðvestan og vestanverðu landinu en ann- ars staðar úrkomuh'tið. Hiti yrði um eða rétt yfír frost- marki. Spað er fremur hægri norðvestlægri átt og minni- háttar éljum vestanlands og á Vestfjörðum á morgun. Úrkomulaust og bjart verði víða annars staðar. Hiti 2 til 6 stig að deginum til og víða næturfrost. Albanir leita að- stoðar Atlanta ALBANIR hafa kannað mögu- leika á því að Arngrímur Jó- hannsson eigandi Atlanta hf. aðstoði við að koma á laggirnar almennum flugrekstri í Alb- aníu, og hefur einn viðræðu- fundur um málið þegar átt sér stað. Að sögn Arngríms er al- gengt að honum berist fyrir- spumir hvaðanæva að á borð við þessa. Amgrímur sagði í samtali við Morgunblaðið að í Albaníu væri nánast enginn flugrekstur af neinu tagi og allar aðstæður til slíks rekstrar mjög frum- stæðar. Sagði hann vilja hjá Albaníumönnum að koma upp alhliða flugrekstri, bæði hvað varðar farþegaflug og vöru- flutningaflug. Sagði hann að annar viðræðufundur um málið hefði verið boðaður 18. apríl. Læknirinn baðst af- sökunar SIGHVATUR Björgvinsson heilbrigðisráðherra lagði fram formlega kæru á hendur sér- fræðilækni til landlæknis vegna ummæla sem hann lét falla i síma við starfsmann ráðuneyt- isins. Kæran barst landlæknis- embættinu í þessari viku og segir Ólafur Ólafsson að lækn- irinn hafí beðist afsökunar og málið verið látið niður falla- 9,5 milljarða lán Landsvirkjunar Stækkun ál- vers undirbúin HALLDÓR Jónatansson, fyr' stjóri Landsvirkjunar, undirnt- aði á þriðjudag í London láns- samning upp á 150 milljómr dollara sem svarar til um 9,5 milljarða kr. og er sá stsersu sem íslenskur aðili hefur gert a evrópskum bankamarkaði. Láninu verður varið til að greiða upp eldri og óhagstseðan lán fyrirtækisins svo og til að fjármagna framkvæmdir sem Landsvirkjun kann að þurfa að ráðast í. Hafa verið teikn á lofti um að leggja þurfí í fjárfesting- ar í raforkukerfinu vegna stækkunar álversins í Straums- vík. ■ Landsvirkjun/b3 Upplýsinga- söfnun fyrir stjórnar- myndunar- viðræður UNNIÐ var að því í gær í ráðu- neytum að safna saman upplýs' ingum um þau mál og mála- flokka sem ræða á sérstaklega í viðræðum stjórnarflokkanna um áframhaldandi stjórnar- samstarf. Búist er við að ef af samn- ingum um áframhaldandi sam- starf flokkanna verður mun' stjómarsáttmálinn í upphao verða einfaldur og sumanð notað til að útfæra nánar stefnumálin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.