Morgunblaðið - 12.02.1993, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 12.02.1993, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 12. FEBRUAR 1993 Morðingja CIA-manna er leitað í Pakistan Washington, Islamabad. Reuter. PAKISTANI sem grunaður er um morð á tveimur starfsmönnum bandarisku leyniþjónustunnar (CIA) er álitinn hafa komist úr landi. Er hann talinn dveljast í heimalandinu þar sem hans er nú leitað. Talsmenn bandarísku alríkislög- reglunnar (FBI) sögðu að 28 ára Pakistani, Mir Aimal Kansi, væri grunaður um ódæðið við aðalstöðvar CIA í Virginíu-ríki 25. janúar sl. Auk þess að myrða tvo menn særði hann þrjá. Morðvopnið fannst í íbúð hans í Reston í Virginíuríki en það reyndist vera hríðskotariffíll sem lík- ist rússneskum AK-47 Kalashníkov- riffli. Staðfest hefur verið að skotun- um sem leiddu CIA-mennina til ólíf- is, var skotið úr rifflinum. Tvær skammbyssur fundust í íbúðinni, 550 skothylki og skothelt vesti. Talsmaður pakistönsku lögregl- unnar staðfesti að Kansi væri nú leitað í Pakistan. Vitað væri að hann hefði komið í lok janúar til heima- borgar sinnar, Quetta, en farið það- an sl. sunnudag. Hann hefði tjáð foreldrum sínum að hann ætlaði að dveljast nokkra daga í Islamabad áður en hann sneri aftur til Banda- ríkjanna. Kansi komst með ólögmætum hætti til Bandaríkjanna í mars 1991 og er morðin áttu sér stað var um- sókn hans um pólitískt hæli til með- ferðar hjá yfírvöldum. ------» ♦ ♦ Keuter Byltingarafmæli í Teheran ÞESS var minnst í gær að fjórtán ár eru frá byltingunni í íran sem kom klerkastjóm Ayatollahs Khomeinis til valda. A myndinni sjást þátttakendur í einni af mörgum göngum í Teheran halda á myndum af Khomeini heitnum. Maastricht er blæðandi njórú, ísi.'im sár breskra stjómmála ÞÝ0s,KAKeuSórverksmiðjan Beck -segir Tebbit lávarður, fyrrverandi flokksformaður, og vill þjóðaratkvæði fer inn á nýjar brautir er hún lætur kanna áhrif geislunar og þyngdarleysis á geijunarhumal úti í geimnum. Það eru kvenaldin humalsins sem ráða úrslitum um bragð bjórs. Tveir þýskir vísindamenn verða í áhöfn bandarískrar geimfeiju sem skotið verður á loft 25. febrúar en þeir munu vinna að ýmsum rannsóknum um borð í tilraunastöðinni Spacelab sem er á braut um jörðu. London. The Daily Telegraph, Reuter. STJÓRN Johns Majors í Bretlandi jók í gær enn á spennuna vegna væntanlegrar lokaatkvæðagreiðslu um Maastricht-samninginn í breska þinginu sem líklega verður eftir þijár til fjórar vikur. Nokkr- ir íhaldsþingmenn i neðri deildinni og ýmsir frammámenn, meðal þeirra Tebbit lávarður, fyrrverandi flokksformaður, hóta að greiða atkvæði með breytingartillögu stjórnarandstöðunnar sem Ihalds- flokkurinn er andvígur. Douglas Hurd utanríkisráðherra sagði í við- tali við breska útvarpið, BBC, í gær að ekki kæmi til greina að stjórnin myndi sætta sig við breytingar á þeirri málamiðlun sem Major náði fram í Maastricht, fremur myndi síjórnin láta Breta standa utan við samninginn. Slappaðu af og láttu þreytuna líða ur þér í nýja hvíldarstólnum frá Action. Stóllinn er með stillanlegu baki, innbyggðum skemli og fæst ruggandi eða fastur. Marco Langholtsvegi 111, sími 91-680 690. Verð m/tauáklæði aðeins kr. 29.610 stgr. Verð m/leðuráklæði á slitflötum aðeins kr. 49.820 stgr. Húsgagnaverslun Verkamannaflokkurinn vill að Bretar samþykki svonefndan fé- lagsmálahluta Maastricht-samn- ingsins er kveður á um samræm- ingu réttinda launþega gagnvart atvinnurekendum. Íhaldsflokkurinn er á móti þessu ákvæði, segir það þrengja um of að athafnafrelsi fyr- irtækja og géta aukið atvinnuleysið. Major þótti vinna mikinn sigur er hann fékk því framgengt að Bretar þyrftu ekki að hlíta ákvæðinu. Naumur meirihluti Ftjálslyndir jafnaðarmenn styðja tillögu Verkamannaflokksins og þar sem íhaldsflokkurinn hefur aðeins 21 atkvæðis meirihluta í neðri deild- inni er ljóst að fáeinir uppreisnar- menn í liði flokksins geta fellt sam- komulagið, ef marka má orð Hurds. Og það er einmitt markmið Tebbits lávarðar og manna hans sem segj- ast reyndar vilja knýja fram þjóðar- atkvaéði um málið. Margaret Thatc- her, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur einnig rekið áróður gegn sam- komulaginu og vill þjóðaratkvæði. Uppreisnarliðið kærir sig kollótt um ásakanir þess efnis að það sé að ganga erinda stjómarandstöð- unnar. „Þeir sem berjast fyrir því að Bretar haldi sjálfsstjóm hafa rétt til að beita öllum brögðum til að eyðileggja samninginn,“ sagði Tebbit. Hvorki hann né aðrir liðs- menn uppreisnarinnar eru sam- þykkir félagsmálaákvæðinu; þeir vilja aðeins nota tækifærið til að reyna að koma í veg fyrir sam- þykkt Maastricht á þingi. Alger viðurstyggð Tebbit telur samninginn vera „algera viðurstyggð," hann lýsir honum sem „blæðandi sári breskra stjómmála" og „hrynjandi altari hugarheims hr. [Jacques] Delors þar sem útlendingahræðslan og of- sóknarbijálæðið ráða ríkjum“. Del- ors er forseti framkvæmdastjómar Evrópubandalagsins en Maastricht er ætlað að gera samstarf aðildar- ríkjanna mun nánara. Sumir stuðn- ingsmenn Tebbits á þingi urðu óró- legir vegna þessara ummæla, töldu þau geta valdið því að tilfínningar færu að ráða of miklu í deilunni. Talsmenn ríkisstjórnarinnar hafa gætt þess vandlega að segja ekki að litið verði á málið sem spumingu um traustsyfírlýsingu, þ.e. að stjórnin fari frá ef félagsmálahlut- inn verði samþykktur. Talið er að stjómin hyggist reyna að fá lá- varðadeildina til að fella tillögu Verkamannaflokksins hljóti hún samþykki í neðri deildinni. Embættismenn hjá Evrópu- bandalaginu eru ekki á einu máli um afleiðingamar ef tillagan verði samþykkt. Sumir segja að ekki sé neitt ákvæði í Maastricht sem heim- ili Bretum að taka félagsmála- ákvæðið upp, aðrir að hin banda- lagsríkin muni einfaldlega sam- þykkja nauðsynlega viðbót fari Bretar fram á það. Hvað sem því líður eru flestir á því máli að stjóm Majors gæti ekki þolað þá hneisu að þurfa að gleypa félagsmála- ákvæðið - og gera þar með afrek Majors í Maastricht sð engu. -------♦ ♦ ♦--------- Craxi lætur af embætti Róm. Reuter. BETTINO Craxi, fyrrum forsætis- ráðherra Ítalíu, sagði í gær af sér embætti leiðtoga Sósíalistaflokks- ins vegna gruns um aðild að viða- miklu spillingarmáli. Claudio Martelli dómsmálaráðherra sagði af í fyrradag vegna sama máls. Guiliano Amato, forsætisráðherra og flokksbróðir þeirra Craxis og Martellis, sagði í gær að ríkisstjóm sín myndi á næstu dögum leggja fram tillögur um strangari reglur varðandi störf embættismanna og nýjar siðareglur fyrir stjómmála- menn. Amato sagði að ríkisstjómin myndi ekki segja af sér vegna þessa máls en lagði til að kosningakerfí Ítalíu yrði breytt. Næstu kosningar eiga ekki að fara fram fyrr en 1997.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.