Morgunblaðið - 08.10.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1992
23
Norræna félagið 70 ára
Margir líta á Nordjobb sem
helsta vaxtarbrodd starfsins
NORRÆNA félagið hélt upp á
70 ára afmæli sitt um síðustu
helgi með formannafundi í Nor-
ræna húsinu á laugardag og há-
tíðarsamkomu í Islensku óper-
unni síðdegis á sunnudag.
Á formannsfundinum var m.a.
fjallað um leiðir til að efla starf
félagsins, bæta hag þess og auka
samvinnu félagsdeilda. Áhersla var
lögð á tengsl unga fólksins við fé-
lagið sem mjög hafa styrkst síðustu
7 árin vegna „Nordjobb“. Þá starf-
semi líta margir á sem eina merk-
ustu nýjungina og vaxtarbroddinn
í starfi félagsins, enda er nú unnið
að því að gera sumarvinnu ungs
fólks á snærum „Nordjobb" að föst-
um lið í norrænu samstarfi til fram-
búðar. Þá var á það bent að
500-800 nemendur tækju á hverju
ári þátt í einhvers konar norrænum
nemendaskiptum um lengri eða
skemmri tíma.
Skipulegt og hefðbundið nórrænt
vinabæjarstarf stendur á gömlum
merg, en formannafundurinn taldi
ástæðu til að taka undir hugmyndir
sem fram hafa komið um að gera
það opnara og virkara en hingað
til, m.a. með aukinni samvinnu
sveitarfélaga og norrænu félaganna
Morgunblaðið/Þorkell
Núverandi formaður Norræna
félagsins, Haraldur Ólafsson,
o.fl., þátttöku fleira fólks en áður
og aukinni fjölbreytni í hvívetna.
Brýnt var talið að viðhalda starf-
inu í skóla-, æskulýðs- og menning-
armálum og efla það og minnt á
að umhverfismálin væru nú mál
málanna. í því sambandi kom fram
hugmynd um að ræða sérstaklega
„unglingana og umhverfismálin"
1994.
í ferðamálum taldi formanna-
fundurinn Norræna félaginu skylt
að leitast við það hér eftir sem hing-
að til, þrátt fyrir óvissu og ýmsar
breytingar á þeim vettvangi, að
bjóða félagsmönnum sem hag-
kvæmastar og ódýrastar Norður-
landaferðir, m.a. með leiguflugi,
„pakkaferðum“ og helst einhverjum
nýjungum.
í afmælisfagnaði voru þau Svava
Storr, Eiríkur Pálsson, Gils Guð-
mundsson og Jónas Eysteinsson
sæmd gullmerki Norræna félagsins.
Á hátíðarsamkomunni á sunnu-
dag ávarpaði formaður félagsins,
Haraldur Ólafsson, gesti, en hátíð-
arræðuna flutti dr. Gylfi Þ. Gísla-
son. Auður Hafsteinsdóttir og Guð-
ríður Sigurðardóttir léku saman á
fiðlu og píanó og fínnski vísna-
söngvarinn Bengt Ahlfors söng eig-
in vísur við undirleik Jukka Jarvola.
Ennfremur lagði Norðklúbburinn til
skemmtiatriði, Thorbjöm Fálldin,
formaður Sambands norrænu félag-
anna, flutti ávarp og afhenti gjöf
fyrir þeirra hönd og Tjarnarkvart-
ettinn söng. Kynnir var Sveinn Ein-
arsson.
ALLAR HELGAR
Hinir einu sönnu Hljómar:
Gunnar Þórðarson, Rúnar Júlíusson, Engilbert Jensen, Erlingur Björnsson ásamt Shady
Owens rifja upp hina einstöku stemningu áranna frá '63-'69 með lögum eins og Fyrsti
kossinn, Bláu augun þín, Æsandi fögur og fleiri gullkornum íslenskrar dægurtónlistar.
Verð kr. 4.950,-
Án matar kr. 2.000,-
‘MatseðiCC:
%ækjukóti£asápa
Qriílstáktur [ambahryggvöðvi,
Jondant
‘Jrönsf^súkfyiíaðimúis Cointrau
Stórhljjómsveit
undir stjórn Gunnars Þórðarssonar.
Jóhann Helgason, Eyjólfur Kristjánsson,
Jón Kjell Seljeseth, Gunnlaugur Briem,
Einar Bragi Bragason, Eiríkur Örn Pálsson,
Haraldur Flosi Tryggvason hljóð,
Kristján Magnússon Ijós,
sviðsstjóri Ágúst Ágústsson,
leikstjóri Egill Eðvaldsson.
Kynnir hinn vinsæli
Hermann Gunnarsson. W |
Húsið opnað kl. 19.00.
Borðapantanri í sfma 687III.
ÍIOTF.I, ]^LAND
TVLcVITES
extra
400 g
Á.ÐUR
188,-
MlLKog
HAGKAUP
- allt í einni ferd