Morgunblaðið - 08.06.1985, Blaðsíða 4
4
MORGUMBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1985
Tel horfur Haf-
skips bjartar
þrátt fyrir erf-
itt ár í fyrra
— segir Ragnar Kjartansson,
RAGNAR Kjartansson formaður
stjórnar Hafskips hf. sagði í ræðu
sinni á aðalfundi fyrirtækisins í gær
að ófyrirséð röð af skakkaföllum
síðasta árs hefði gert það að verk-
um að afkoma fyrirtækisins á liðnu
ári varð ekki betri en raun bar
vitni. 95 milljóna króna tap varð á
rekstri félagsins á sl. ári og bók-
færð eiginfjárstaða í árslok 1984
Morgunblaðift/Ól.K.M.
Frá aðalfundi Hafskips hf. á Hótel Sögu í gær. Frá vinstri Björgólfur Guðmundsson forstjóri fyrirtækisins, Albert
Guðmundsson fjármálaráðherra sem var fundarstjóri og í ræðustól er Ragnar Kjartansson stjórnarformaður Haf-
skips.
Björgólfur Guðmundsson, forstjóri Hafskips:
Tap Hafskips hf. á liðnu ári
nam 95,7 milljónum króna
„ÁRIÐ 1984 mun verða eftirminni-
legt í sögu félagsins fyrir margra
hluta sakir. Það var ár andstæðna,
erfiðleika, en jafnframt ár möguleik-
anna. Fyrir starfsfólk félagsins var
árið eitt hið erfiðasta, enda hefur
sjaldan í sögu þess gætt jafn mikilla
sveiflna í ytri og innri aðstæðum.“
Þannig hóf Björgólfur Guðmundsson
forstjóri Hafskips hf. ræðu sína á að-
alfundi Hafskips, sem haldinn var á
Hótel Sögu í gær.
I máli Björgólfs kom fram að
rekstrartekjur liðins árs námu lið-
lega 944 milljónum króna og höfðu
þær aukist um 62,8% á milli ára.
Rekstrargjöld jukust hins vegar
um %,2%, þannig að hagnaður af
rekstri fyrir afskriftir og fjár-
magnskostnað var 56,6 milljónir
króna. Rekstrarhagnaður eftir af-
skriftir nam 12,6 milljónum króna,
sem jafngildir 1,3% af rekstrar-
tekjum, en árið 1983 var þetta
hlutfall 17,1% af rekstrartekjum.
Afkoma félagsins eftir fjár-
magnsgjöld, afskriftir og skatta
var neikvæð um 95,7 milljónir
króna, sem nemur um 10,1% af
rekstrartekjum. Eiginfjárhlutfallið
um síðustu áramót var því nei-
kvætt um 104,9 milljónir króna,
sem er 12,4%. I febrúar sl. var hins
vegar ákveðið að auka hlutafé fé-
lagsins um 80 milljónir króna, og er
öll sú hlutafjáraukning nú þegar
seld, þannig að útlitið er ekki jafn
dökkt og litið gæti út fyrir.
Flutningsmagn í innflutningi
nam rúmlega 113 þús. tonnum, og
jókst um 5% frá árinu á undan.
Útflutningsmagn nam um 67 þús.
tonnum og jókst um 23%. Erlendir
flutningar námu um 55 þúsund
tonnum þannig að félagið flutti
samtals um 235 þús. tonn á liðnu
ári, sem reyndist 45% magnaukn-
ing frá árinu á undan.
Siglingar yfir Atlantshafið hóf-
ust 15. október sl. og hafa þær
gengið mjög vel. Skipafloti sá er
við sögu kemur í þeim siglingum er
samsettur af 4 skipum, með sam-
Aðeins ein mannabreyting
í stjórn Hafskips hf.
Á AÐALFUNDI Hafskips hf., sem
haldinn var á Hótel sögu í gær undir
fundarstjórn Alberts Guðmundsson-
ar fjármálaráðherra, voru eftirfar-
andi menn kjörnir í stjórn fyrirtæk-
isins: Bjarni Magnússon, Finnbogi
Kjeld, Guðlaugur Bergmann, Gunn-
ar Þór Ólafsson, Hilmar Fenger, Jón
Helgi Guðmundsson, Jón Snorra-
son, Jónatas Einarsson, Ólafur B.
Ólafsson, Páll G. Jónsson, Pétur
Björnsson, Ragnar Kjartansson,
Sveinn R. Eyjólfsson og Víðir Finn-
bogason.
Aðeins einn nýr maður kemur
inn í stjórnina, Finnbogi Kjeld, og
tekur hann sæti Davíðs Scheving
Thorsteinssonar, sem setið hefur í
stjórn fyrirtækisins um 10 ára
skeið. Davíð gaf ekki kost á sér í
stjórn að þessu sinni.
anlagða gámagetu upp á 2500
gámaeiningar og 33 þús. burðar-
tonn.
Björgólfur rakti í ræðu sinni
sögu fyrirtækisins Cosmos Shipp-
ing Company, sem er dótturfyrir-
tæki Hafskips í Bandaríkjunum.
Þar starfa 46 starfsmenn, þar af 3
Islendingar. Fyrirtækið lenti í
taprekstri, er bandaríski dollarinn
styrktist og útflutningur dróst
saman. Taprekstur fyrirtækisins á
liðnu ári svaraði til um 8 milljón-
um króna.
Björgólfur sagði að horfur væru
á að heildarafkoma félagsins i ár
yrði betri en nokkru sinni fyrr, en
þó benti allt til þess að rekstur ís-
landssiglinga félagsins yrði áfram
með halla. Líkur væru þó á að veru-
legur bati yrði á þessari starfsemi
á þessu ári.
„Við heitum á ykkur, góðir
hluthafar, að standa vörð um félag-
ið og tryggja og sýna með þeirri
samstöðu, að lítið ævintýri geti enn
gerst við kaflaskipti í sögu Haf-
skips hf.,“ voru lokaorð ræðu
Björgólfs Guðmundssonar for-
stjóra Hafskips.
stjórnarformaður Hafskips
var neikvæð um 105 milljónir
króna.
Ragnar sagði að meginástæður
slæmrar afkomu sl. árs hefðu
verið þær að íslensku skipafélög-
in misstu flutninga fyrir varnar-
liðið, að verðsamkeppni á flutn-
ingamarkaðnum hefði farið út
fyrir öll skynsamleg mörk, að
verkfall BSRB hefði valdið
margra vikna stöðvun, að geng-
isfelling í kjölfar verkfallsins
hefði aukið á gengistap og að fé-
lagið hefði tapað mikið á auknum
styrk Bandaríkjadollara.
í ræðu formannsins kom fram
að hann telur að horfurnar fyrir
Hafskip í framtíðinni séu bjartar
verði skynsamlegar leiðir valdar.
Nefndi Ragnar þar aukið sam-
starf og samnýtingu varðandi
skipa- og vöruafgreiðslu, bæði
innanlands og milli landa, og
sagðist hann telja að með slíku
samstarfi mætti spara hundruð
milljóna. Jafnframt sagði hann
að aukin þátttaka íslendinga í al-
þjóðasiglingum gæti fært heim
nýja þekkingu, tækni og tekju-
auka. Ragnar sagði að áætlanir
fyrir yfirstandandi ár væru já-
kvæðar hjá félaginu og að for-
svarsmenn fyrirtækisins væru
vongóðir um að vinna mætti til
baka það sem tapast hefði í mold-
viðri ársins 1984.
„í Hafskip hf. munum við
ótrauð takast á við verkefni
morgundagsins. Svo lengi sem við
vitum að það starf skili okkur og
því þjóðfélagi, sem við viljum
vernda og efla, nokkuð fram á
við,“ sagði Ragnar að lokum.
©
INNLENT
FLskvinnslusalir ísbjarnarins og
Bæjarútgerðar Reykjavíkur tæmd-
ust snemma í gær en þar var fisk-
vinnslufólki sagt upp störfum frá
og með deginum í dag. Er þetta í
annað sinn á árinu sem fisk-
vinnslufólki í Reykjavík er sagt
upp vegna verkfalla fiskiflotans
auk þess sem uppsagnir voru rétt
fyrir jól af ýmsum ástæðum svo
sem vegna aflabrests. Atvinnu-
leysisdagar hafa verið margir, til
dæmis stóð fyrra verkfallið í 21
dag áður en samningar náðust all-
staðar og er ófyrirsjánalegt hversu
lengi vinna mun stöðvast að þessu
sinni.
í Bæjarútgerð Reykjavíkur
var nú sagt upp 250 manns, þar
af 200 konum, en í ísbirninum
var sagt upp um það bil 115
manns, þar af 85 konum.
Fullar atvinnuleysisbætur eru
nú 705 krónur á dag og eru borg-
aðar að auki krónur 28,21 með
hverju barni.
„Þetta kemur illilega niður á
þeim sem þurfa að vinna fyrir
sér,“ sagði Anna Norris fisk-
vinnslukona hjá ísbirninum.
„Þetta er í þriðja skipti sem
okkur er sagt upp í vetur en yfir-
leitt hefur bara verið eitt stopp
um áramót og svo ekkert allt ár-
MorgunbiaðiA/Emilia
í ísbirninum og Bæjarútgerð Reykjavíkur var vinnu hætt upp úr hádegi
og byrjað að þrífa vélarnar, en fiskvinnshifólkinu var sagt þar upp vinnu
frá og með deginum í dag.
ið. Ég hef unnið hér í sjö ár og
stend ein fyrir fjölskyldu. Ég á
fimm börn og eru þrjú þeirra
heima. Ég hef heyrt á fólki hér
að það ætlaði í sumarfrí, sumir
vilja fá sér eitthvað annað að
gera en aðrir vilja vera áfram,
þar á meða) ég. Erfitt fjárhags-
lega? Maður verður að reyna að
kljúfa þetta. Spara."
„Þetta er alveg ferlegt og vildi
ég ekki vilja standa í fjarfesting-
um með svona atvinnuöryggi,"
sagði Stefán Stefánsson sem
hefur unnið í ísbirninum í eitt
ár. „Þetta kemur lítið niður á
„Þetta kemur illa niður á þeim
sem þurfa að vinna fyrir sér,“
sagði Anna Nordal fiskvinnslu-
kona.
mér ennþá því ég hef unnið við
að hreinsa vélarnar að loknum
vinnudegi og því haft mikið
meira kaup en bara fyrir dag-
vinnuna. Eg væri ekki í þessu
öðruvísi. Þrifin eru borguð í upp-
mælingu og hef ég getað lagt
fyrir. Ég hef ekki fyrir fjöl-
„Ég mundi ekki vilja standa í fjár-
festingum með svona atvinnuör-
yggi,“ sagði Stefán Stefánsson.
skyldu að sjá og má kannski
segja að ég sé heppinn þar.
Atvinnuleysisbæturnar? Þær
eru of lágar til að lifa af. Ef
maður þarf að leigja sér íbúð til
dæmis þá lifir enginn af þessu og
ekki dagvinnunni heldur og bón-
usinn er lélegur þegar hann er.“
ísbjöminn og Bæjarútgerð Reykjavíkur:
Fiskvinnslufólki, 360 manns, sagt upp störfum