Morgunblaðið - 08.06.1985, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ,- LAUGARDAGUR 8.JÚNÍ1985
STYRMIR GUNNARSSON:
TIL HVERS
ÞESSA
laus svæði í Sovétríkjunum og þá ekki
sízt á Kolaskaga, en þar eru einhverjar
mestu herstöðvar í heimi og ógna Norður-
löndum og þar með íslandi.
I pólitískum umræðum á okkar dögum
nær hugtakið „Norður-Evrópa" ekki
nema til Norðurlanda og hluta Þýzka-
lands og Bretlandseyja. Þetta er að mín-
um dómi sá skilningur, sem leggja ber í
orðin „Norður-Evrópa" í pólitískum um-
ræðum, þótt landfræðileg merking þess-
ara orða kunni að vera víðtækari. I við-
tali, sem fréttamaður Ríkisútvarpsins
átti við Hjörleif Guttormsson, alþing-
ismann, um þetta mál var ekki hægt að
skilja hann á annan veg en þann, að hann
teldi að hér væri einungis átt við Norður-
lönd, m.ö.o. skilningur hans var sá, að
með þessari samþykkt væri Alþingi að
bjóða upp á einhliða samninga um
kjarnorkuvopnalaust svæði á Norður-
löndum.
Þetta orðalag er svo óljóst, að Eyjólfur
Konráð Jónsson, formaður utanríkis-
málanefndar og framsögumaður fyrir til-
lögunni í sameinuðu þingi, sá sig knúinn
til að skýra hvað átt væri við. Hann sagði
í ræðu sinni: „Allmiklar umræður urðu í
utanríkismálanefnd um fyrri lið 6. mgr.
ályktunartillögunnar og skilning á hon-
um. Ýmsum hugmyndum var varpað
fram um orðalagsbreytingar, en á það var
fallizt að halda orðalagi undirnefndar-
innar óbreyttu, en formanni falið að
koma á framfæri fyrir hönd nefndarinn-
ar eftirfarandi skýringum er hann mælti
fyrir tillögunni:
1. Sá landfræðilegi skilningur væri rétt-
ur, að Norður-Evrópa næði a.m.k. yfir
.JMÁLAIV
FYRIR SKÖMMU gerðist sá óvenjulegi
atburður á Alþingi, að allir þingflokkar
og 60 þingmenn þeirra urðu sammála um
stefnumörkun í veigamiklum utanríkis-
málum og samþykktu samhljóða tillögu,
sem kom frá utanríkismálanefnd um af-
vopnunar- og kjarnorkumál. Þegar til
þess er litið, að afstaðan til utanríkis-
mála hefur verið mesta deiluefni ís-
lenzkra stjórnmála í nær fjóra áratugi og
valdið djúpstæðum klofningi með þjóð-
inni vegna varnarsamningsins við Banda-
ríkin og aðildar að Atlantshafsbanda-
laginu, er ástæða til að staldra við, þegar
slík samstaða tekst á Alþingi. Hvað hefur
gerzt? í stuttu máli hefur það gerzt að
mínum dómi, að þingflokkur Sjálfstæðis-
flokks hefur gengið alltof langt til móts
við vinstri flokkana um málamiðlun i
mikilvægum utanríkismálum. Þessi af-
staða á eftir að veikja Sjálfstæðisflokk-
inn og vekja upp spurningar um það í
sendiráði Sovétríkjanna við Túngötu og
austur í Moskvu, hvort sú staðfesta, sem
Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt í utan-
ríkismálum alla tíð sé að bresta.
Samþykkt Alþingis er niðurstaða af
viðræðum milli fulltrúa þingflokkanna,
fyrst í undirnefnd og síðan í utanríkis-
málanefnd sjálfri, þar sem leitazt var við
að samræma sjónarmið flokkanna um
þennan málaflokk en nokkrar þingsálykt-
unartillögur voru lagðar fram á Alþingi í
vetur um þetta efni og vísað til utanrík-
ismálanefndar.
'LUN“?
Kjarnorku vopnala us
svæði
I SAMÞYKKT Alþingis segir m.a. svo:
„... að könnuð verði samstaða um og
grundvöllur fyrir samningum um kjarnorku-
vopnalaust svæði í Norður-Evrópu jafnt á
landi sem á hafinu eða í því ...“ Það
hlýtur að vera skilyrði fyrir hugsanlegum
samningum vestrænna þjóða við Sovét-
menn um kjarnorkuvopnalaus svæði, að
þau verði jafnt í Austur-Evrópu sem
Vestur-Evrópu. Samningur um kjarn-
orkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum
getur t.d. ekki komið til greina nema
jafnframt sé samið um kjarnorkuvopna-
Norðurlönd, eyjar í norðanverðu Atl-
antshafi og Norður-Þýzkaland, þ.e.
Norður-Evrópusléttuna og allt frá Græn-
landi til Úralfjalla.
2. Sá skilningur, sem kom fram i eftir-
farandi hugmynd um breytingu á upphafi
6. mgr., væri réttur. Tilvitnunin er þessi:
„Um leið og Alþingi áréttar þá stefnu
Islendinga, að á íslandi verði ekki stað-
sett kjarnorkuvopn hvetur það til þess að
könnuð verði samstaða um og grundvöll-
ur fyrir samningum um kjarnorkuvopna-
laus svæði í Norður-Evrópu, sem nái til
aðildarrikja Norður-Atlantshafsbanda-
lagsins, Varsjárbandalagsins og hlut-
lausra ríkja, jafnt á landi, í lofti sem á
hafinu eða í því. Samningur þessi verði
liður í samkomulagi til að draga úr víg-
Félagið mun stefna rit-
stjóra og ljósmyndara HP
í HELGARPÓSTTINUM 6. júní sl. birtast skrif um Hafskip hf., þar sem ráðist er
að félaginu með óvenju rætnum hætti. Heimildarmenn eru tveir fyrrverandi
starfsmenn félagsins og eru skrifin látin birtast í blaðinu daginn fyrir aðalfund
þess.
Ávallt orkar tvímælis, hvort
svara eigi skrifum af þessu tagi, en
þetta er eingöngu birt í hefndar-
skyni og til að grafa undan trausti
félagsins.
En þar sem Hafskip hf. er fyrir-
tæki, sem starfar í harðri sam-
keppni á innlendum sem erlendum
vettvangi og veitir hundruðum
manna atvinnu, er óhjákvæmilegt
að gera athugasemdir við róg-
skrifin.
1. Til marks um þ?,ð, hvernig grein-
arhöfundur veður villur vegar, má
nefna, að í skrifum hans er látið að
því liggja að tap félagsins sé í nám-
unda við 200 milljónir króna árið
1984. En eins og fram kemur í árs-
reikningi félagsins, nemur tapið 95
milljónum króna.
2. I skrifum HP veltir greinarhöf-
undur skuldastöðu fyrirtækisins
fyrir sér og staðhæfir að það eigi
ekki fyrir skuldum. Skuldastaða fé-
lagsins er ekkert launungarmál og
hún kemur fram í ársreikningi þess,
sem lagður er fram á aöalfundi 7.
júní. Bókfærð eiginfjárstaða er
neikvæð um 105 milljónir króna í
árslok 1984. En í þessu sambandi
ber aö hafa í huga eftirfarandi:
— Nýtt hlutafé að fjárhæð 80 millj-
ónir króna, sem boðið var út
hinn 9. febrúar sl., er að fullu
selt.
— Bókfært verð varanlegra rekstr-
arfjármuna er samkvæmt var-
færnismati. Þannig má nefna að
í ársreikningi 1984 kemur fram,
að samkvæmt mati erlends
skipasölumiðlara er áætlaö
markaðsverð á skipum félagsins
37,5 milljónum krónum hærra en
bókfært verð þeirra.
— Rétt er að benda á, að afkoma
félagsins fyrstu mánuði ársins
1985 hefur verið jákvæð.
3. Við mat á stöðu fyrirtækisins
birtist hrapallegur misskilningur
greinarhöfundar m.a. í því, að hann
virðist telja að skipaeign félagsins
sé færð í efnahagsreikningi þess
samkvæmt mati tiltekins erlends
skipasölumiðlara. Hið rétta er, að
bókfært verð varanlegra rekstrar-
fjármuna í efnahagsreikningi, þar á
meðal skipa, er að sjálfsögðu miðað
við framreikning upphafslegs stofn-
verðs að frádregnum föstum árleg-
um afskriftum. Hins vegar er í skýr-
ingum með ársreikningi getið um
áætlað markaðsverð skipanna til
frekari upplýsinga. Það skal skýrt
fram tekið, að matsverð það á skip-
um félagsins i árslok 1984, sem vitn-
að er til í lið 2 hér að framan, er
ekki komið frá fyrirtækinu Ragnar
Johansen A/S, en greinarhöfundur
reynir að gera þá aðila tortryggi-
lega.
4. Látið er að því liggja i umrædd-
um skrifum, að lausafjárstaða Haf-
skips sé mjög slæm. Þessu til sönn-
unar er talað um aö starfsmenn hafi
fengið innistæðulausar ávísanir f
stað launa sinna um sfðustu
mánaðamót.
Hið sanna er, að einn hinna 385
starfsmanna félagsins fékk slfka
ávísun vegna mistaka um sfðustu
mánaðamót og var það leiðrétt sam-
stundis.
5. Greinarhöfundur fullyrðir að
skip félagsins hafi verið stöðvuð
vegna vanskilaskulda. Þetta er
rangt.
6. Fullyrt er að félagið hafi gerst
brotlegt við bandarisk tollalög og
flutt inn gáma til Bandaríkjanna án
tilskilinna leyfa. Þetta er rangt.
öll tiltekin leyfi eru og hafa verið
til staðar, m.a. í gegnum umboðsað-
ila félagsins, Capes Shipping í Nor-
folk.
7. Reynt er að gera félagið tor-
tryggilegt með tali um „sérstæða"
viðskiptahætti og er í því sambandi
fjallað um vátryggingar gáma-
vagna.
Hér er um að ræða hjólastell und-
ir gáma, sem dregin eru af sérstök-
um dráttarvögnum. Rétt er það, að
hjólastellin eru ekki vátryggð ein og
sér. Dráttarvagnarnir, gámarnir og
innihald þeirra eru hins vegar að
sjálfsögðu að fullu vátryggð.
8. Þá er fullyrt, að mikil óánægja
ríki á skrifstofum félagsins í New
York og f Reykjavík.
Erfitt er að sanna eða afsanna stað-
hæfingu sem þessa.
Ekki þykir það þó benda til
óánægju eða vantrúar starfsmanna
á félaginu og framtíð þess, að fjöldi
starfsmanna sýndi hlutafjárútboði
félgasins mikinn áhuga og tók virk-
an þátt í þvf með hluta-
bréfakaupum.
9. Langt er seilst í viðleitni grein-
arhöfundar við að sverta félagið.
Þannig er þess getið, að tveir af
fjórtán stjórnarmönnum Hafskips
verði ekki á landinu á aðalfundinum
og sagt að það sé vegna óánægju og
ótta um málefni félagsins.
Allir stjórnarmenn Hafskips eru
úr viðskiptalífinu og þurfa því, eðli
starfa sinna vegna, að fara á milli
landa f viðskiptaerindum.
Þá er einnig staðhæft, að tveir
stjórnarmanna hyggist ekki gefa
kost á sér til áframhaldandi stjórn-
arsetu hjá Hafskip.
Hið rétta er, að aðeins einn stjórn-
armanna hyggst ekki gefa kost á sér
til endurkjörs. Tengist ákvörðun
hans um það f engu stöðu félagsins
og er óhætt að fullyrða, að mikill
einhugur ríki meðal stjórnarmanna.
10. 1 lok umræddra skrifa er lagt
ofurkapp á að gera Atlantshafs-
siglingar félagsins sem allra tor-
tryggilegastar. I þessu sambandi er
rétt að rifja upp eftirfarandi stað-
reyndir:
— Atlantshafssiglingar félagsins
hafa nú staðið yfir í tæpa 8 mán-
uði.
— Siglingar þessar hafa frá upp-
hafi skilað hagnaði.
— Umsvif félagsins í þessari starf-
semi aukast stöðugt.
— Allar áætlanir um afkomu hafa
staðist.
— Áætlanir félagsins um þessa
starfsemi til ársloka 1985 vekja
bjartar vonir um áframhaldandi
góða arðsemi. Byggt hefur verið
á varfærnismati í áætlanagerö-
inni í öllum tilvikum.
— Með þessari nýjung í kaupskipa-
útgerð tslendinga er Hafskip hf.
að nýta sér reynslu, þekkingu og
viðskiptasambönd, sem hafa
myndast í 27 ára starfi félagsins.
Þar af hefur félagið stundað sigl-
ingar til Ameriku í 7 ár. Byggt er
því á traustum grunni.
Félagið mun stefna ritstjóra
Helgarpóstsins, Halldóri Hall-
dórssyni, og Jim Smart, ljós-
myndara, fyrir atvinnuróg og meið-
yrði.